Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1994, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1994, Síða 4
30 FIMMTUDAGUR 3. MARS 1994 V * f©nlist Flóttamenn og heimspekingar Rappsveit með nýtt viðhorf kemst inn á markaðinn „Við berum ekki byssur og við köÚum ekki svartar systur okkar tæfur. Það er nýtt viðhorf í rappinu," segir Pras í Fugees. Fugees er rapphljómsveit með þrem aðilum, Haítí-frændunum Wycleff Jean („Cleff‘), Prakazrel Michael (,,Pras“) og söngkonunni og rapparanum Lauren Hill. Nafnið Fugees er dregið af orðinu „refugees" og skýrir mjög vel afstöðu hljómsveitarinnar til þjóðfélagsins. „Við leitum öll hælis í okkar eigin heimi. Við viijum öll flýja eitthvað... Við erum í raun inn- flytjendur vegna þess að við reynum að komast á ákveðinn stað en endum aldrei þar,“ segir Cleff á mjög svo heimspekilegan hátt. Áhrifamikil byrjun Fyrsta plata Fugees, sem ber nafnið „Blunted On Reality", er áhrifamikil byrjun sem kemur þeim án efa þangað sem þau vilja fara þrátt fyrir upprunann. Platan blæs lífl í reynslusögu Pras og Cleff þar sem bandaríska þjóðfélagið hefur vart litið á þá öðruvisi en „flóttamenn" eða „bátafólk“ fram að þessu. Fugees Úr leikriti - Gauragangur: ★ ★ ★ ★ Gauragangur er besta söngleiksverk sem komið hefur út hér á landi síðan Með allt á hreinu kom út. -SÞS Elton John - Duets: ★ ★ ★ ! heild er Duets vel heppnuð plata sem vinnur á við hverja hlustun. Lög Eltons eru bæði ný og gömul og sameinast í vel heppnuðum Ðutningi. -HK Úr kvikmynd - Philadelphia: ★ ★ ★ Philadelphia er sérstaklega góð og heilsteypt plata af kvikmyndatónlist að vera og nú er bara að bíða og sjá hvort myndin er eins góð og platan. -ÁT Jackson Browne - l'm Alive: ★ ★ ★ Það er mikið gleðiefni fyrir gamla Jackson Browne-aðdáendur að heyra að hann virðist vera að ná sér á strik á ný. -SÞS Smokin Suckaz Wit Logic - Playin' Foolz: ★ ★ ★ Góðir rapptextar, fullir af ádeilu með fónk- og rokkáhrifum sem hafa góö áhrif á heildarmynd plötunnar. -GBG Atomic Swing - A Car Crash Into The Blue: ★ ★ ★ Plata Atomic Swing er eitt besta byijendaverk ársins 1993, einkennandi við plötuna eru óhefðbundnar hljómasamsetningar og áheyrilegar laglinur. -GBG INXS - Full Moon, Dirty Hearts: ★ ★ ★ Þessi plata er það besta sem komið hefur frá þessari áströlsku hþómsveit í langan tíma. -GBG Crowded House - Together Alone: ★ ★ ★ Þeir sem hafa ánægju af vandaðri melódiskri popptónlist ættu ekki að iáta þessa plötu fram hjá sér fara. -SþS notar nú þessi 12 lög til að sýna hennar hlið af sögunni. Platan inni- heldur auk þess sögur af flóttafólki með alls kyns uppruna. „Við erum öll flóttamenn. Þú flýrð frá peningum, konunni þinni, kallhmm, krökkunum _ við duttum bara inn á að vera svartir karlmenn _ við flýjum kúgun _ ekki frá þjóðfélaginu heldur frá okkar eigin fóúri...“ Uppeldi, dóp og tónlistaráhrif Fugees hefur uppgötvað líf án eiturlyfja og mátt þess að komast í náttúrulega vímu með því einu að spila tónlist og gefur með þessu sterk skilaboð til ungu kynslóðarinnar. Áhrifin í tónlistinni eru margvísleg. Sameining á reggae, rokki, fónki og flóknum austurstrandaráhrifum koma Fugees á þá dýpt sem mun lyfta austurstrandarrappi upp á næsta stig. Þegar hljómsveitin er beðin um helstu áhrifavalda koma nöfnin Bob Marley, Phil Collins, Gxms N’Roses, Doors, Jimi Hendrix, Thelonius Monk, Pink Floyd og Elton John strax upp á yfirborðið. Þetta er skrýt- ið, við viðurkennum það, en þetta er okkar tónlist. Uppeldi hljómsveitar- meðlima hefur verið svipað. Öll fengu þau strangt kirkjuuppeldi sem meðal annars bannaði þeim að hlusta á þessa tegund tónlistar. Hljóm- sveitin hefur hins vegar náð þetta langt og heldur áfram með boðskap sem fleira fólk ætti að hlusta á. GBG Fugees hefur uppgötvað Irf án eiturlyfja og mátt þess að komast í náttúrulega vímu með því einu að spila tónlist og gefur með þessu sterk skilaboð til ungu kynslóðarinnar. ^þ&tugagnrýni the cranberrles tXu, ir J. iií>J. vUj* The Cranberries _ Everybody Is Doing It, So Why Can't We? ★ ★ Litlaus heild Nýlega ruddist hljómsveitin Cranberries inn á vinsældalista í Evrópu með lagið sitt Linger. Smáskífan hefur réttilega fengið framúrskarandi dóma. Nú er hins vegar komin út stór plata sem inniheldur þetta sama lag auk ellefú annarra. Hljómsveitin hefur náð að kalla fram mjög sérstaka stemningu þar sem hægt er að hlusta á plötuna án þess að taka eftir lagaskiptum nema með því að fylgjast náið með geislaspilaranum. Þetta er í sjálfú sér einstakt aírek og ekki á margra færi að leika það eftir. Hljómsveitin brýtur þó tvisvar upp einstaka stemningu. Það eru lögin „Dream" og „Linger" sem eiga heiðurinn af þessu uppbroti og eru jafnframt bestu lögin á plötunni. Ef hljómsveitin hefði gert afganginn á plötunni í samræmi við þessi tvö væri hægt að segja plötuna góða heild en svo er ekki. Platan er heild _ ekki misskilja það _ bara ekki nógu góð. Miðað við aút og allt hefði hljómsveitinni nægt að gefa út smáskífuna. Guðjón Bergmann ln Pieces _ Garth Brooks ★ ★ ★ Margbrotinn listamaður Amerískar kántríhetjur hafa átt misgóðu gengi að fagna á alþjóðamarkaði þrátt fyrir mikla lýðhylh heima fýrir. Þannig hefur þessu verið varið með Garth Brooks; hann hefur mokað út milljónum af plötum vestanhafs og það í svo gegndarlausu magni að stærstu poppstjömur og rokkarar hafa vart verið hálfdrættingar á við hann. Hins vegar hefúr hann hingað til vakið afskaplega litla athygh utan Bandaríkjanna. Á þessu er þó að verða breyting því að um þessar mundir gengur mikið Garth Brooks æði yfir Breta og þá er við því búið að fleiri þjóðir fylgi í kjölfarið. Hér á íslandi er nokkuð greinilegt að það er breski markaðurinn sem leggur línumar. Lítið hefur heyrst í Garth Brooks í útvarpi hér þrátt fýrir fádæmi vinsældir hans vestanhafs en um leið og hann nær eyrum breska markaðarins byrja lög hans að skjóta upp kollinum hérlendis líka. Tónlist Garth Brooks er langt frá því að vera það sem hægt er að kalla hreinræktað kántrí. Hún er nefnilega ótrúlega blönduð þó svo að sveitailmurinn sé yfir þessu öllu hjá kappanum. Sumpart minnir Brooks á margt af því sem kántrírokksveitir á borð við Eagles o.fl. vom að gera fýrr á árum, sumt minnir á Lionel Ritchie og svo bregður hann undir sig blúsfætinum þegar svo ber undir. Alit myndar þetta bráðskemmtilega blöndu; lögin afskaplega aðgengileg og grípandi og engin fúrða eiginlega að Brooks skuli hafa orðið þessi megahetja sem hann er. Svo er ekki verra að hann er hörkugóður söngvari með breitt svið og ræður vel við öll þessi form sem hann hrærir saman. Hann er aftur á móti ekkert heljarmenni í lagasmíðunum en það kemur ekki að sök; hann virðist hafa nóg af hæfileikafólki á því sviði í kringum sig. In Pieces er réttnefhi á þessari plötu Garth Brooks, hún samanstendur af mörgum smáum bútum og brotum af ýmsum tónlistarstefnum sem mynda sterka heild; einfaldlega góða plötu. Sigurður Þór Salvarsson Blind Melon _ Blind Melon ★ ★ ★ i, Ögrandi og ferskt rokk Fyrsta og eina plata Blind Melon kom út árið 1992 og þykir mér því löngu orðið tímabært að skrifa um hana. Hljómsveitin hefúr getið sér gott orð siðustu tvö ár og á tímabili var platan Blind Melon sú söluhæsta í Bandaríkjunum. Hljómsveitin vakti fýrst athygh þegar Shannon Hoon, söngvari hljómsveitarinnar, birtist i myndbandi hljómsveitarinnar Guns N’ Roses i laginu Don’t Cry. Platan ber lítinn ef nokkum byrjendabrag með sér. Hljómsveitin spúar ögrandi rokkmelódiur og rödd Shannon Hoon vekur verðskuldaða eftirtekt, skerandi en samt melódísk og með afbrigðum kröftug. Hljómsveitin leyfir sér að fleyta rokkinu inn á nýjar brautir, jafúvel hálan ís ef svo mætti að orði komast og vari skal hafður á við fýrstu hlustun því að hljómsveitin vex á manni. Platan krefst athygh og það gerir hljómsveitin einnig. Það er lítið meira um plötuna að segja nema ef hún er ekki th í plötuskápnum þínumö. Guðjón Bergmann

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.