Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1994, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1994
13
dv • __________________Neytendur
Aldur rauð-
víns
Rauðvín er pressað úr bláum
vínþrúgum og hýöið er í leginum
meðan á gerjun stendur. Glæný
vín eru næstum blárauð á litinn
en eftir að vínið hefur legið í
tunnum eða á flöskum verður lit-
urinn djúprauður og nálgast síð-
ar brúnleitan blæ.
Liturinn sést gjörla ef glas með
víni er borið að ljósu blaði og ljós-
ið látiö skína á ská. Ódýr vín eru
oftast rauðblá af því að þau eru
yflrleitt ung.
Steikt í olíu
Þegar steikt er í olíu þarf að
gæta þess að olían hitni ekki um
of. Besti steikingarhiti er nálægt
170°. Hafa ber plötuna einu þrepi
neðar en þegar steikt er í smjör-
líki.
Skápa-
þrengsli
Ef hillur eru háar í borðstofu-
skápnum má nýta rýmið og koma
á betri skipan með því að setja
glasagrip neðan á hillurnar.
Glasagripin eru gerð úr u.þ.b. 'A
cm þykku tré, krossviöi eða plöt-
um. Festingar fást í jámvöru-
verslunum. Gripin.eiga að vera
u.þ.b. 1 cm styttri en nemur
breidd á hillunum.
Rauðvíns-
blettir
Gott er að strá matarsalti ríf-
lega á blauta rauðvínsbletti í dúk
og leggja hann síðan í vatn eins
fljótt og hægt er.
Húsráð
Vinnuhag-
ræðing
Það getur verið þreytandi að
skera deiglengjur í þunnar, jafn-
ar sneiðar þegar bakaðar eru t.d.
spesíur. Næst þegar þú bakar
geturðu lagt deigrúllurnar fjórar
saman í frystiskápinn og sneitt
þær síðan allar í einu þegar þær
eru frosnar. Gott er að nota til
þess brauð- eða áleggsskera en
þá gengur það bæði fljótt og greiö-
lega fyrir sig.
Egg aðskilið
Sumum reynist erfitt að skilja
rauðuna frá hvítunni án þess að
blanda þeim saman. Þetta er auð-
velt ef notuð er trekt. Þá rennur
hvítan greiðlega niöur en rauðan
verður eftir.
Kertavax
hreinsað
Notaðu aldrei hníf til að
hreinsa kertavax af fallegum
kertastjaka. Taktu kaffitrektina,
settu síu í hana og hleyptu upp
suðu í katlinum. Haltu stjakan-
um yfir síunni og helltu sjóðandi
vatni yfir hann. Vatnið safnast í
síuna en vaskurinn stíflast ekki.
Gljáandi
súkkulaði-
húð
Láttu súkkulaðið í skál sem
sett er ofan í vatn og bræddu það
án þess að vatnsgufan komist að
því. Súkkulaðihúðin fær einkar
fallegan gljáa ef blandað er 1 tsk.
af olíu í 200 g af plötusúkkulaði.
-ingo
„Hún var að snyrta hárið með hálf-
bitlausum þynningarskærum þegar
hún allt í einu khppti skarð í eyrað
á mér. Það blæddi mikið úr þessu og
þetta var alls ekki þægilegt. Hún
sagði bara „Úps, þetta hefur aldrei
komið fyrir áður“ og náði í bómullar-
hnoðra og skellti yfir sárið,“ sagði
ung kona sem kom að máh við DV
eftir að hafa farið í khppingu og orð-
iö fyrir þessari miður skemmtilegu
lífsreynslu.
„Hárgreiðslukonan hélt svo bara
áfram að khppa mig eins og ekkert
hefði í skorist, náði ekki í nein sótt-
varnarefni né einu sinni plástur. Ég
hef haft mikh óþægindi af þessu þvi
þetta hefur rifnað upp þrisvar sinn-
um,“ sagði konan. Hún sagðist hafa
farið fram á afslátt af khppingunni
en fengið þau svör að það væri ekki
vaninn. .
Ætti að bæta skaðann
Aðspurð sagðist Lovísa Jónsdóttir,
formaður Hárgreiðslumeistarafélags
íslands, ekki hafa frétt af slíku tíl-
felli fyrr á 30 ára starfsferh sínum.
„Félagið er ekki með sameiginlega
tryggingu gagnvart svona óhappi og
þaö er því upp og ofan hvemig stof-
urnar eru tryggöar. Á minni stofu
er ég t.d. bara tryggð fyrir því að
skemma hár og fót,“ sagði Lovísa.
Henni fannst það þó lágmark að
kúnninn þyrfti ekki að borga fyrir
khppinguna. „í svona tilfehum ætti
fagmaðurinn að sýna auðmýkt, biðj-
ast afsökunar og reyna að gera gott
úr öhu saman. Eg get ekki fuhyrt að
stofumar séu ahar með sjúkrakassa
Nú styttist í lok skhafrestsins í
uppskriftasamkeppni DV, Nýrra eft-
irlætisrétta, Barhla, Flugleiða og
Bylgjunnar en þar er óskað eftir öll-
um gerðum af pastaréttum, bceði fjöl-
breyttum og gimhegum.
Við hvetjum aha th að senda inn
uppskriítir þvi vegleg verðlaun em
í boði. 1. verðlaun era ferð fyrir tvo
th ítahu ög 2. og 3. verðlaun ferð fyr-
en flestar hljóta þær að vera með
eitthvað th að sótthreinsa með og það
hefði viðkomandi átt að nota.“
Hún sagði félagið ekki hafa neinar
reglur um meðhöndlun slíkra
í dómnefnd sitja fuhtrúar frá fram-
antöldum aðhum en í næstu viku
birtum við eina vinningsuppskrift
daglega. Föstudaginn 18. mars verð-
ur svo tilkynnt hveijar af uppskrift-
unum fimm hreppa 1., 2. og 3. verð-
laun. Sendið uppáhalds uppskriftina
th Nýrra eftirlætisrétta, Síðumúla 6,
108Reykjavík,fyrirfóstudag. -ingo
óhappa en þetta hefði þó verið rætt
á fundum. „Hins vegar er hara um
helmingur stofanna í félaginu og við-
komandi stofa er þar ekki. Reyndar
hef ég áður fengið upphringingar
varðandi þessa stofu og tel hana ekki
vanda að virðingu sinni,“ sagði
Lovísa.
-ingo
Gerðu góö kaup
fyrir ferminguna því aldrei hefur
verið meira úrval til af fallegum
borðstofusettum frá Danmörku,
Þýskalandi eða Ameríku.
Savona boröstofuborö m/Ancona stólum.
Verið vdkomin t stærstu hússagnaverdun landsins
Húsgagnahöllin
CB
BÍLDSHÖFDA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199
Hvað kostar 95 okt. bensín?
- verö á lítra -
73,5
Besti pastarétturinn:
Hver fer til Ítalíu?
- skilafresturtilföstudags
ir einn til Ítalíu.