Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1994, Blaðsíða 4
20
Sýningar
Galleri Greip
A morgun verður opnuð sýning á smá-
hillum og borðum eftir Gunnar Magn-
ússon. Sýningin stendur til 4. maí.
Galleri Sævars Karls
Bankastræti 9
Þar stendur nú yfir sýning á teikningum
Gunnlaugs Blöndal (1893-1962).
Sýningin stendur til 21. april og er
opin á verslunartíma, á virkum dögum
kl. 10-18.
Gallerí 11
Skólavörðustig 4a, sími 11138
Margrét Sveinsdóttir sýnir oliumálverk.
Sýningin stendur til 25. apríl og er
opin alla daga kl. 14-18.
Gerðuberg
Þar stendur yfir myndlistarsýning Óskar
Vilhjálmsdóttur. Á sýningunni eru Ijós-
myndaverk og einnig innísetning með
þremur sjónvarpsskjám, hljóðverki og
myndbandi. Sýningin stendir til 24.
aprll og er opin mánudaga til fimmtu-
daga kl. 10-22 og föstudaga til sunnu-
daga kl. 13-16.
Götugrillið
Borgarkringlunni
Sigurður Vilhjálmsson sýnir verk sín til
20. apríl.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Þar stendur yfir yfirlitssýning Henriks
Vagns Jensen. A sýningunni eru hand-
unnin grafíkverk, landslagsmyndir og
portrett. Sýningin er opin daglega kl.
12-18 nema þriðjudaga.
„Hjá þeim"
Skólavörðustig 6b
Soffía Sæmundsdóttir sýnir verk sín.
Hún sýnir þrykk, unnin á vordögum
1993. Sýningin stendur til 28. april og
er opin mánudaga til föstudaga kl. 9-18
og laugardaga kl. 10-14. Þetta er önn-
ur einkasýning Soffíu en hún útskrifað-
istfrá grafíkdeild MHl 1991.
Café Mílanó
Faxafeni 11
Guðrún H. Jónsdóttir (Gígja) sýnir
málverk. Sýningin er opin kl. 9-19
mánudaga, 9-23.30 þriðjudaga, mið-
vikudaga og fimmtudaga, kl. 9-1 föstu-
daga, laugardaga og sunnudaga kl.
9-23.30.
Kjarvalsstaðir
Þar standa yfir sýningar á verkum eftir
Jóhannes Kjarval I austursal, Huldu
Hákon I vestursal og Ólaf Gíslason í
miðsal. Hulda sýnir myndir af eldi og
blómum, bæði I þrívidd og í málverki.
Sýning Ólafs ber heitið „Vernissage"
eða á nútímamáli „sýningaropnun".
Allar sýningarnar standa til 8. maí og
eru opnar daglega frá kl. VO-18.
Listasafn Einars Jónssonar
Njarðargötu, simi 13797
Opið laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er
opinn alla daga. Inngangur frá Freyju-
götu.
Listasafn íslands
Þar stendur yfir sýning á túskteikning-
um í eigu safnsins eftir Barböru Árna-
son við Passíusálma Hallgrims Péturs-
sonar. Sýningin stendur til 8. mai. Þá
stendur einnig yfir sýning á verkum
Jóns Gunnars Ámasonar. Listasafnið
er opið alla daga nema mánudaga kl.
12-18. Kaffistofa safnsins opin á sama
tíma.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70
Þar stendur yfir sýning sem ber heitið
Hugmynd - höggmynd úr vinnustofu
Sigurjóns Ólafssonar. Úrval verka frá
óllkum tímabilum í list Sigurjóns hefur
verið sett upp. Sérstök leiðsögn um
safnið er á sunnudögum kl. 15 fyrir
börn og foreldra. Sýningin mun standa
fram á vor og er sérstaklega hönnuð
með skólafólk i huga. Safnið er opið á
laugardögum og sunnudögum kl.
14-17 og kaffistofan lika.
Listasafn Háskóla Islands
■ Odda, simi 26806
Þar er nú á öllum hæðum sýning á
nýjum verkum i eigu safnsins. Opið er
daglega kl. 14-18. Aðgangur að safn-
inu er ókeypis.
Listhúsið
Laugardal
Sjefn Har sýnir oliumálverk og tússlita-
myndir i sýningarsal sínum. Verkin eru
flest frá árinu 1993. Sýningin er opin á
verslunartíma Listhússins.
Á morgun kl. 15 opnar Art-Hún hópur-
inn sýningu á verkum sínum. Sýningin
er haldin I tilefni af 5 ára afmæli Art-
Hún en það var stofnað 15. april 1989.
Á sýningunni gefur að líta: leirverk með
járni og gleri, skúlptúra, kol og krítar-
teikningar, málverk og pastelmyndir.
Sýningin er opin daglega kl. 14-18 til
1. mal.
FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994
Sýningar
Mokka kaffi
Skólavörðustíg
Þar stendur yfir sýning á verkum Stein-
gríms Eyfjörð Kristmundssonar. Sýn-
ingin ber yfirskriftina „Pílagrímsferð
Stefaníu Georgsdóttur I gegnum bibl-
íuna". Sýningin er sölusýning og renn-
ur allur ágóði til ABC-hjálparstarfs.
Nesstofusafn
Neströð, Seltjarnarnesi
Safnið opið samkvæmt samkomulagi.
Uppl. í sima 611016.
Norræna húsið
Sunnudaginn 17. april lýkur sýningum
sem verið hafa I Norræna húsinu. I
sýningarsölum I kjallara hefur staðið
yfir sýning á teikningum eftir norska
listamanninn Olav Chr. Jenssen og í
anddyri hússins er sýning á vatnslita-
myndum eftir dönsku listakonuna Bo-
dil Kaalund. Sýningarsalir eru opnir kl.
14-19, en sýningin í anddyri er opin á
laugardag kl. 9-19 og sunnudag kl.
12- 19.
Nýlistasafnið
v/Vatnsstíg
Um þessar mundir eru 3 sýningar í
gangi. I neðri sölum safnsins er sýning
á veggspjöldum Guerilla Girl sem er
hópur myndlistarkvenna búsettur I New
York. I neðsta sal safnsins er sýning á
nýjum verkum eftir Svölu Sigurleifs-
dóttur og samvinnuverk Ingu Svölu
Þórsdóttur og Wu Shan Zhuan. I efri
sölum er sýning á verkum úr eigu Ný-
listasafnsins. Hér er um ný aðföng að
ræða og eru flest verkin unnin á þessu
ári. Sýningarnar eru opnar alla daga kl.
14-18 og lýkur þeim 24. apríl.
Portið
Strandgötu 50, Hafnarf.
Þar stendur yfir samsýning fimm
kvenna frá Gallerí Kletti og stendur hún
til 24. apríl. Sýningin er opin alla daga
frá kl. 14-18 nema á þriðjudögum.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11, Hafnarf., simi
54321.
Opið á sunnudögum og þriðjudögum
kl. 15-18. Aðgangur ókeypis.
Safn Ásgríms Jónssonar,
Bergstaðastræti 74, simi 13644
Sýning á vatnslitamyndum Ásgrims
Jónssonar. I vetur verður safnið opið á
laugardögum og sunnudögum kl.
13.30-16.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8, Hafnarfirði, s. 654242
Sjóminjasafnið er opið alla daga kl.
13- 17.
Sólon íslandus
Óskar Guðmundsson opnar á morgun
sýningu á sérhönnuðum gleraugu.
Sýningin stendur til 23. april og er
opin alla daga kl. 14-21 og um helgar
kl. 14-18.
SPRON
Alfabakka 14
Listaverk eftir Þórdísi Árnadótturtil sýn-
is i útibúi Sparisjóðs Reykjavíkur og
nágrennis við Álfabakka. Sýningin
stendur til 22. apríl og er opin virka
daga kl. 9-16.
Stöðlakot
Bókhlöðustig 6
Nú stendur yfir Ijósmyndasýning Ingu
Sólveigar. Verkin á sýningin, sem ber
titilinn „In memoriam", eru öll unnin á
síðasta ári. Sýningin, sem stendur til
17. apríl, verður opin daglega kl. 14-18.
Þjóðminjasafn íslands
Opið þriðjud., fimmtud., laugard. og
sunnud. kl. 12-17.
Ljósmyndasýning i
Kringlunni
„Island ofar öllu" er heiti á Ijósmynda-
sýningu Mats Wibe Lund í Kringlunni.
Sýningin stendur yfir 15.-30. apríl i
Kringlunni á II. hæð. Myndirnar eru til
sölu.
Slunkaríki
ísafirði
Þar stendur yfir einkasýning Ólafs Más
Guðmundssonar og stendur hún til 17.
apríl. Ólafur sýnir þar myndverk, unnin
með akrýllitum á striga og pappír.
Listasafnið á Akureyri
Þar standa yfir tvær sýningar. I miðsal
eru sýndar vatnslita- og olíumyndir
Guðmundar frá Miðdal. I austursal eru
sýndar Ijósmyndir Vigfúsar Sigurgeirs-
sonar sem hann hefur tekið á Norður-
landi við ýmis tækifæri.
Minjasafnið á Akureyri
Aðalstræti 58, sími 24162
Opið daglega kl. 11-17.
Sólon íslandus:
Sérhönnuð
gleraugu
Óskar Guðmundsson gleraugna-
hönnuður opnar sýningu á sérhönn-
uðum gleraugum á laugardag á Sól-
oni íslandusi. Sýningarsalurinn er
opinn virka daga frá kl. 14-21 og um
helgar frá kl. 14-18. Sýningunni lýk-
ur 23. apríl.
í Gallerí Sævars Karls stendur yfir
sýning á teikningum Gunnlaugs
Blöndal. Haustið 1925 tók Blöndal í
fyrsta sinn þátt í samsýningu í París,
á Salon d’automne, og sýndi þar
myndina Danshstadómara. Var hún
ein meðal 40 listaverka sem vahn
voru úr til sýningar í Tókíó. Sá sem
réð vali myndanna hét Gunnalaugi
því að hann gæti framvegis sent
málverk sín á árssýninguna í Tókíó,
án þess að leggja þau undir dóm sýn-
ingarnefndar.
Prent-
messa '94
Viðamesta prentsýning sem haldin
hefur verið hér á landi verður á Hót-
el Loftleiðum 15. og 16. apríl næst-
komandi. Sýningin er haldin á veg-
um Prenttæknistofnunar en þar
sýna 20 þjónustufyrirtæki prentiðn-
aðarins og nokkur prentfyrirtæki. í
tengslum við sýninguna verða
haldnir fjölmargir fyrirlestrar um
nýjungar og framtíðarhorfur í prent-
iðnaði.
Art-Hún fimm ára:
Myndlistar-
legt umhverfi
Art-Hún hópurinn opnar sýningu á
verkum sínum í Listhúsinu í Laug-
ardal á laugardag.
„Það hefur myndast mjög
skemmtileg stemning þegar vinnu-
stofa nokkurra hstakvenna er sam-
eiginleg. Ég hef reynsluna af því að
vera ein með vinnustofu og líki því
ekki saman. Kostirnir eru þeir að
maður getur talað um verkin sín og
jafnvel fengið álit ef maöur vih. Hér
er ahtaf eitthvað að gerast í næstu
vinnustofu - þó við séum ekki í sama
fagi þá er ahtaf verið að fjalla um
form og íleti,“ segir Erla B. Axels-
dóttir málari en hún er ein þeirra
kvenna sem skipa Art-Hún.
Þetta form, vinnustofa fimm lista-
kvenna, ásamt galleríi var óþekkt
hér á landi þegar þær Ehnborg Guð-
mundsdóttir, Sigrún Gunnarsdóttir,
Margrét Gunnarsdóttir, Helga Ár-
manns og Erla B. Axelsdóttir komu
Art-Hún á laggirnar árið 1989.
í bæklingi sem gefinn hefur verið
út í tilefni sýningarinnar segir: „Sú
hugmyndafræði sem hggur til
grundvahar Art-Hún er einföld: að
hver og einn geti unnið að hst sinni
í næði en þó notið félagsskapar og
hvatningar hinna.“
„Þetta er myndhstarlegt umhverfi
sem maður nálgast ekki ef maður er
einn á vinnustofu. Þegar gestir heim-
sækja Art-Hún bjóðum við þeim öll-
um inn á vinnustofurnar. Við fáum
oft hópa til okkar og þá geta þeir séð
þrjár tegundir af myndhst á sama
stað,“ segir Erla.
-em
Gallerí Sævars Karls:
Teikningar
Gunnlaugs
Art-Hún hópurinn sýnir i Listhúsinu í Laugardal.
Ljósmyndasýning:
ísland ofar öllu
ísland ofar öhu er heiti á ljósmynda-
sýningu Mats Wibe Lund í Kringl-
unni um þessar mundir. Heiti sýn-
ingarinnar skírskotar til loftmynda
sem hafa verið eitt helsta viðfangs-
efni hans á undanfómum áratugum.
Mats er einmitt þekktastur fyrir átt-
hagamyndir sínar, jafnt af þéttbýh
sem dreifbýh. Að þessu sinni sýnir
Mats aðallega skreytingarmyndir,
landslags- og stemningarmyndir.
Sýningin í Kringlunni er sérstök
að því leyti að þar ber fyrir augu lík-
lega þær stærstu htljósmyndir sem
unnar hafa verið hér á landi. Mynd-
imar eru 20 að tölu og ahar rétt um
2 fermetrar að stærð.
Ein mynda Mats er úr Skorradal.