Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1994, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1994, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1994 Viðskipti *Aunna 'Þr Mi R Fö Má Þr Mæst á miðri leið í debetkortamálinu: Kaupmenn spara 300 milljónir - verulegt tekjutap fyrir bankana Kaupmannasamtökin og aðstand- endur debetkorta komust að sam- komulagi í gær um debetkortin. Ljóst er að debetkortamenn hafa gefið töluvert eftir þar sem hæsta þjón- ustugjald verður 0,8% af hverri de- betkortafærslu en upphaflega voru kröfur uppi um 1,5% hámark þjón- ustugjalda. Þá hefur leiga fyrir svo- -kallaðan posa, greiðslutækið sem kortunum er rennt í gegnum, verið lækkaö úr 2.250 krónum í 1.750. Einn- ig mun þjónustugjald af kreditkort- um lækka hjá þeim söluaðilum sem taka lika við debetkortum. Kaup- menn hafa sömuleiðis slakað á sín- um kröfum því upphaflega vildu þeir ekki greiða nein þjónustugjöld. Aðil- ar hafa því mæst á miðri leið. Þrátt fyrir eftirgjöf kaupmanna munu þeir, að sögn Magnúsar Finns- sonar, framkvæmdastjóra Kaup- mannasamtakanna, spara 300 millj- ónir króna miðað viö gjaldtöku bank- anna af debetkortum í dag. Þá er samkomulagið töluvert langt frá fyrstu áætlunum bankanna um þjón- ustugjöld af debetkortum. Eins og sjá má á meðfylgjandi grafi settu bank- arnir upphaflega fram kröfu um 0,5-1,5% þjónustugjöld en samkomu- lagið hljóðar upp á 0,2 til 0,8% þjón- ustugjöld. Lágmarksgjald verður 6 krónur og hámarkið 110 krónur af hverri færslu sem þjónustuaðilinn þarf að greiöa til bankanna. Af debet- kortahöfum verður tekið 9 til 9,50 króna fast gjald af hverri færslu og árgjald 250 til 270 krónur, misjafnt eftir bönkum. Að sögn fulltrúa kaupmanna og banka á blaðamannafundi í gær mun samkomulagið ekki verða til þess að vöruverð hækki í landinu. Forráöa- menn Kaupmannasamtakanna sögðu að með því að lækka gjöld af posum og þjónustugjöldum kredit- korta hafi bankarnir komið til móts við óskir kaupmanna. Frá blaðamannafundi þar sem samkomulag kaupmanna og banka í debet- kortamálinu var kynnt. Frá vinstri: Magnús Finnsson, framkvæmdastjóri Kaupmannasamtaka íslands, Bjarni Finnsson, formaður samtakanna, Hall- dór Guðbjarnason, bankastjóri í Landsbankanum, og Helgi H. Steingríms- son, deildarstjóri í Landsbankanum. DV-mynd GVA Dýr friöur „Það er ljóst að við höfum gefið töluvert éftir og höfum þurfi að kaupa friðinn dýru verði. En ég held að allir aðilar geti verið sáttir. Eftir fimm ár gerum við ráð fyrir að debet- kortafærslur á hverju ári verði 30 milljónir," sagði Halldór Guðbjarna- son, bankastjóri í Landsbankanum, á blaðamannafundinum í gær. í ár er reiknaö með að debetkortafærsl- urnar verði 15 milljónir talsins. Búið er að gefa út um 25 þúsund debetkort. Bjarni Finnsson, formaður Kaup- mannasamtakanna, sagði að ekki væri um fullnaðarsigur að ræöa en kaupmenn gætu vel við unað. „Viö hefðum getaö náð fram meiru en viö vildum ekki stöðva samningavið- ræður. Við fögnum þessari tækni við greiðslumiðlun en þetta var spum- ing um hver borgaði brúsann," sagði Bjarni og átti von á aö samstarfsaöil- ar samtakanna myndu hver af öðr- um ganga til samninga við aðstand- endur debetkortanna. Strax í gær var fyrsta skrefið stigið þegar Bónus- verslanirnar sömdu um að taka de- betkortin. Nú þegar hafa náðst samn- ingar við 500 af þeim þjónustuaðilum semerumeðposatæki. -bjb Eftirgjöf bankanna — v/þjónustugjalda af debetkortum — H Hæstagiald Hlutabréfamarkaður 1 síðustu viku: 20 milljóna viðskipfi Olían hækkar Ýsa á fiskmörkuöum hefur ver- ið að lækka í verði. í gær var meöalverðið 107 krónur á kílóið. Þingvísitala hlutabréfa fór stöð- ugt hækkandí þar til í gær að hún fór aftur niður í 805 stig. Munar mest um lækkun hlutabréfa í ís- landsbanka. Tunnan af hráolíu á erlendum mörkuðum hækkar stöðugt og var komin í 15,40 dollara í gær- morgun. Sölugengi pundsins var 106,81 króna í gærmorgun en síðasta miðvikudag var það 107,24 krón- ur. Frá því á fostudag hefur hluta- bréfavísitalan FT-SE 100 í kaup- höllinni í London lækkað, var í 3134 stigum eftir viðskipti gær- dagsins. Lækkunin kemur til vegna lækkunar dollars gagnvart þýska markinu. -bjb Viðskipti með hlutabréf námu rúmum 20 milljónum króna i síöustu viku. Þar af voru viðskipti með hlutabréf Þormóðs ramma fyrir 5 milljónir, 4 milljónir í bréfum Olíufé- lagsins, 2,9 milljónir í bréfum Flug- leiða og rúmar 2 milljónir í hlutabréf- um íslandsbanka. Alls urðu viðskipti með hlutabréf í 12 hlutafélögum í vikunni. Það sem af er árinu nema hlutabréfaviðskiptin um 216 milljón- um króna. Hlutabréfaverð hefur ýmist hækk- að eða staðið í stað milli vikna. Vísi- tölur hlutabréfa hækkuöu í síðustu viku og enn meir sl. mánudag. Þing- vísitala hlutabréfa fór í 816 stig á mánudag og hlutabréfavísitala VIB í 603 stig. Tölurnar hækkuðu á einni viku um 2%. Búið er að leiörétta þróun þingvísi- tölu húsbréfa á meðfylgjandi grafi en síðast sýndi töluverðan kipp niður á við í lok mars sl. Tölur inni á graf- inu eru eftir viðskipti mánudagsins. -bjb Æ >.' v ■> V t-'- . Verðbréf og vísitölur 660/SV 640 \\ 620 11 603,08 600 Ijy ■XjsíVrt 580 V/ D J F M A 900 • 88of* " 84011 816,4 ,^820.ii^iw«ra 800 V. NAi> 7S0 B-J..L„!±,.A MifMllBM 'JBSSS %. Mifiii'i'M) izz 121 m 121,48. 120; / ■ ■ ' ,'V | 3 119 (J 118 3-5 ár D J F M A 86 milljóna krónahagnaður SPRONífyrra Stærsti sparisjóður landsins, Sparisjóöur Reykjavíkur og ná- grennis, SPRON, skilaöi 86 millj- óna króna hagnaði af rekstri síð- asta árs. Hagnaður fyrir skatta nam 137 milljónum samanborið viö 43 milljónir árið 1992. Á síð- asta ári lagöi SPRON108 milJjón- ir á afskriftareikning. Það er nokkru minna en 1992 en á reikn- ingnum núna eru 212 milljónir. Heildarinnlán sjóðsins námu rúmum 7 milljörðum, jukust um 12%, og útlánin voru 5,6 milljarð- ar og jukust um 9%. Eigið fé SPRON í árslok var 730 milljónir og eiginíjárhlutfallið 13%, var fyrir ári 12,1%. Stofn- fjáreigendur eru 200 talsins og á aðalfundi var samþykkt að greiða þeim 15% arð. 20prósenta hækkunáblá- refaskinnum Skinnauppboð hófst í Kaup- mannahöfn í gærmorgun og stendur fram á föstudag. Þar elga íslenskir loödýrabændur skinn líkt og norrænir kollegar þeirra. Byrjað var á að bjóða upp 111 þúsund refaskinn. Meðalverð fyrír blárefaskinn var rúmar 8 þúsund krónur sem er rúmlega 20% hærra verð en á síðasta upp- boði i febrúar sl. Þetta er í sam- ræmi við væntingar því að refa- skinn hækkuðu verulega á upp- boði í Finnlandi í síöustu viku. Skinnaframboð á markaðnum er lítið um þessar mundir en eftir- spurnin talsverð. Aðrar refaskinnstegundir hækkuðu á uppboðinu í gær mið- að við síðasta uppboö nema hvað silfurrefaskinn lækkuðu um 4% frá þvi í febrúar. Uppboð á minkaskinnum fer fram í Kaup- mannahöfn fram á fóstudag og eru deildar meiningar um hvort verðáþeim hækkar eða lækkar. Nýttvikublað um viðskipti Nýtt vikublað um viðskipti, Viðskiptablaðið, kemur út i dag. Ritstjóri er Óli Björn Kárason, hagfræðingur og fyrrum blaða- maður á Morgunblaðinu. Við- skiptablaðið mun leggja áherslu á fréttir og ítarlegar fréttaskýr- ingar um islenskt og alþjóðlegt viðskiptalíf, svo oghagnýtar upp- lýsingar um ýmsar hagstæröir og innlenda og erlenda markaði. í fyrsta tölublaðinu, sem kemur út í dag, eru m.a. birtar niöur- stöður könnunar sem gerð var á meðal 100 stjórnenda og sérfræð- inga um fyrirtæki og hvernig þau standa sig á átta mismunandi sviðum. Þegar útkoman er lögð samanlítur heildarlistinn þannig út að Eimskiplendir í fyrsta sæti, Marel i öðru og Prentsmiðjan Oddi i þvi þriðja. Aðeins eitt sjáv- arútvegsfyrirtæki lendir á topp- 10 lista Viðskiptablaðsins. VSÍIeggstgegn styttri vinnuviku „Þegar betur er að gáð getur veriö óráðlegt aö stytta vinnuvik- una, jafnvel þó að það sé gert með skerðingu launa. Launalækkun fylgir minni kaupmáttur, minni neysla og fjárfestingar sem allt orsakar enn frekari samdrátt í þjóðfélagínu,“ segir Guöni Niels Aöalsteinsson, hagfræðingur VSÍ, m.a. í. fréttablaði VSÍ, Af vettvangi í stuttu máli telur Guöni að lausn á atvinnuleysinu finnist ekki með styttri vinnu- viku og nær væri að gefa vinnu- timannftjálsan. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.