Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1994, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1994, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Mælirinn er fullur Harmleikurinn í fyrram Júgóslavíu heldur áfram. Bosníu-Serbar virða enga friðarsamninga og halda uppi linnulausum árásum á múslíma og virðast ekki skeyta neinú um viðhorf annarra þjóða og viðleitni þeirra til að stilla til friðar. Þegar Bosníu-Serbar settust að bænum Gorazde, þrátt fyrir aðvaranir og raunar samkomulag um að láta staðar numið, var Vesturlöndum nóg boðið. Atlantshafsbanda- lagið hóf loftárásir á hergögn og bækistöðvar Serba. Þær árásir hafa ekki borið neinn árangur og hersveitir Bos- níu-Serba halda áfram umsátri sínu um Gorazde og halda bænum í herkví. Og það sem verra er, Vesturlönd standa ráðalaus frammi fyrir þessu skeytingarleysi Serbanna. Jafnvel Rússar, sem hingað til hafa verið hliðhollir Serb- um og átt traust þeirra, eru einnig að gefast upp gagn- vart stríðsóðum og samviskulausum hersveitum Serba. Efnhagsbandalagið, Atlantshafsbandalagið, Rússar og Sameinuðu þjóðimar hafa gert margítrekaðar tilraunir til að stilla til friðar í Bosníu. Vopnahléssamningar, sem allir era þverbrotnir og virtir að vettugi, skipta tugum. Aðvaranir, hótanir, efnahagsþvinganir og fortölur hafa ekki haft nein áhrif. Loftárásir Nató, að undirlagi og með samþykki Sameinuðu þjóðanna, áttu að sýna Serbum að umheiminum væri alvara í því að stöðva þessa ógnar- öld. Serbar máttu vita og mega vita að aðrar þjóðir vilja að bardögum linni og landvinningar Serba verða að taka enda. Loftárásimar áttu að sýna þeim í tvo heimana. Hingað og ekki lengra voru skilaboðin. En Serbar láta ekki segjast og með áframhaldandi árásum og skotbardögum við borgarhlið Gorazde hlýtur þolinmæðin að vera þrotin. Umheimurinn getur ekki látið það viðgangast lengur að þær ofsóknir sem Bosníu- Serbar standa fyrir gagnvart fyrrum samlöndum sínum, múslímum, haldi áfram óáreittar. Þetta eru brjálaðir menn, sem virða ekki leikreglur, virða ekki viðhorf ann- arra, virða ekki mannslíf og tilverurétt nágranna sinna. Yfirgangur Serbanna jafnast næstum því á við ofsóknir Þjóðverja gagnvart gyðingum í heimsstyijöldinni síðari. Það getur enginn sómakær maður, engin ábyrg ríkis- stjóm, horft upp á þetta brjálæði lengur. Sameinuðu þjóð- imar hafa löngum verið taldar máttlaus alþjóðastofnun sem engu fær áorkað þegar kemur til harðra átaka. Nú virðist sú kenning vera rétt. Ef Sameinuðu þjóðirnar, Rússar og Vesturlönd láta Serba komast upp með að storka valdi og vilja Sameinuðu þjóðanna er máttur Sam- einuðu þjóðanna sem slíkur búinn að vera. Áhrif þeirra verða engin. Sem og allur sá vígbúnaður og hervaldsmátt- ur sem Rússar og Vesturlönd telja sig hafa. Gorazde er prófsteinninn, síðasta vígið. Annaðhvort verður að lýsa stríði á hendur Bosníu- Serbum eða öfgaöfl og ofstækismenn í átökunum í Bos- níu standa uppi sem sigurvegarar. Það má ekki gerast. Hörmungarnar á þessu landsvæði era ólýsanlegar. Ekki aðeins sitja óbreyttir borgarar undir stöðugum skotárásum heldur era þeir innilokaðir og einangraðir, án matar og hjúkrunar. Þeir era ofsóttir vegna þjóðernis og trúarbragða. Þeir era fómarlömb mannfyrirlitningar og þjóðemishroka sem nú og jafnan í mannkynssögunni er undirrót blóðbaða. Siðmenntaðar þjóðir eiga að sameinast í krafti hernað- armáttar og mannúðar í fordæmingu og valdbeitingu gegn öfgaöflum sem kunna ekki að taka sönsum. Mælir- inn er.fullur. Ellert B. Schram .þjóð upp á 240.000 einstaklinga getur ekki haldið sig til jafns við stærri þjóðir á alþjóðavettvangi“. Nýtt Norðurlanda samstarf Nýlega voru birtar víötækar til- lögur frá Verzlunarráði íslands um sparnað í rekstri ríkisins. Sumar þeirra gengu nokkuð langt eins og sú að láta sjúklinga borga fyrir matinn á sjúkrahúsum fyrstu fjór- ar vikurnar. Aðrar eru raunhæfari og er þá t.d. átt við tillögu Verzlun- arráðs um að leggja utanríkisþjón- ustuna að hluta niður. Það er auð- vitað rétt að þjóð upp á 240.000 ein- staklinga getur ekki haldið sig til jafns við stærri þjóðir á alþjóða- vettvangi. Þetta kom berlega í ljós í sambandi við EES. Samkvæmt frétt í erlendu blaði var samningur- inn sjálfur 1000 blaðsíður, en við- aukar og reglugerðir aðrar 20.000 blaðsíður. Það þarf mikið lið til að lesa slíka stórsamninga yfir, að ekki sé talað um að þýða þetta allt og kynna sér með sæmilegum hætti. Það er að mörgu leyti ofverk fyrir ísland. Nú er EES í lausu lofti og enginn veit hvað gerist næst. Ný utanríkisþjónusta Ef draga á verulega saman í utan- ríkisþjónustu okkar eins og Verzl- unarráð vill þá verður eitthvað að koma í staöinn. Við gætum beðið stærri þjóð með sendiráð um allan heim að annast að hluta um mál okkar, eins og Danir gerðu fram að seinasta heimsstríði, en þá tók- um við utanríkismálin í okkar hendur með sífellt vaxandi kostn- KjaUarinn Lúðvík Gizurarson hæstaréttariögmaður aði. Við höfum á síðustu áratugum auðvitað oft verið utangátta erlend- is, svona örsmá þjóð, eins og menn gera sér betur og betur grein fyrir. Ekki taka Danir við okkur aftur með utanríkismálin svo móðgaðir sem þeir eru enn vegna sambands- slitanna. En vilja t.d. Svíar eða Norðmenn taka að sér að halda á utanríkismálum okkar um allan heim, ef við reynum að fela þau að hluta annarri þjóð? Þá er hægt að spara eins og Verzlunarráðiö vill. Niðurstaða Við erum nokkuð ráðvilltir í dag þar sem Norðurlöndin ganga lík- lega öll í ESB. Við verðum samt að halda höfði. Bezta lausnin gæti ver- ið tvíhliða samningur við ESB þar sem sérstaða íslands væri virt en t.d. Svíar tækju að sér að hjálpa með að gæta hagsmuna okkar þar og annars staðar. Við verðum að spara og sníða okkur stakk eftir vexti eins og Verzlunarráðið hefur réttilega bent á. Varla getur þjóðin öll lifað á því að bíða og sjá um framkvæmd tilskipana og reglu- gerða sem berast frá ESB? Lúðvík Gizurarson „Ekki taka Danir við okkur aftur með utanríkismálin svo móðgaðir sem þeir eru enn vegna sambandsslitanna. “ Skoðaiúr aimarra Varðstöð í f ramtíðinni „Óhjákvæmilegt er, að NATO hafl hér á landi einhverja varðstöð í framtíðinni. Áherslu ber að leggja á það, að íslendingar taki æ meiri þátt sjálfir í þeirri varðstöð, sem hér verður rekin. Þá rynni kannski upp sú stund, aö við værum ekki taldir jókerinn í NATO-spilunum eins og hingað til.“ Leifur Sveinsson í Morgunblaðinu 19. apríl. Áróður „Það er alveg ljóst af þeim könnunum, sem hafa verið gerðar, að drjúgur meirihluti Reykvíkinga vill breytingar á stjórnarháttum í borginni, og virðist hafa skipt sköpum, að andstæðingar meirihlutans komu fram sameinaðir... Baráttan í Reykjavík verður hörð næsta mánuð inn. Vafalaust verður þeim áróðri beitt gegn R- listanum, að glundroði muni ríkja og hreinsanir verði í starfsmannaliði borgarinnar, ef hann fær meirihluta. Hvort tveggja er tilhæfulaust, og þessi atriði bæði eru einkenni áróðurs þeirra, sem hafa stjórnað lengur en þeim er hollt.“ Ur leiðara Tímans 19. apríl. Uggur vegna Steingríms „Efnahagsstjórnun landsins í tíð Steingríms Her- mannssonar sem forsætisráöherra hefur verið mjög í anda handaflsaðgerða, sjóðamyndana og aukinna ríkisútgjalda til atvinnulífsins... Yfirlýsingar formanns Framsóknarflokksins á undanfórnum árum og misserum um aukna póhtíska stýringu Seðlabankans og aukin tengsl Seðlabank- ans við póhtísk öfl hljóta einnig að vekja ugg hjá þeim, sem aöhyhast þveröfug sjónarmið, nú þegar Steingrímur Hermannsson er orðinn seðlabanka- stjóri." Úr leiðara Alþýðublaðsins 19. apríl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.