Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1994, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1994, Page 30
42 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994 Fólk í fréttum Afmæli Jón Baldursson Til hamingju með afmælið 5. maí Jón Baldursson, fulltrúi hjá Flug- leiðum, Torfufelli 24, Reykjavík, sigraði á óopinberu heimsmeistara- móti í bridge eins og komið hefur fram í DV. Mótið var haldið í Frakk- landi og voru keppendur 52, allt út- valdir heimsþekktir spilarar. Starfsferill Jón fæddist 23.12.1954 í Reykjavík. Hann lauk gagnfræöaprófi frá Lang- holtsskóla 1971 og námi í prentiön frá Iðnskólanum í Reykjavík fimm árum síðar. Jón var prentari hjá Hilmi hf. 1976-83, framkvæmdastjóri Bridge- sambands íslands 1983-84 og hefur verið skrifstofumaður í bókhalds- deild Flugleiðafrá 1.9.1984. Jón var formaður Bridgefélagsins Ásanna 1977-78, sat í stjórn Bridge- félags Reykjavíkur 1978-82 og 1990-91 og í stjórn Bridgesambands íslands 1982-88. Hann var þjálfari yngri spilara landsliðsins 1982 og 1989 og landsliðsins í bridge 1984. Jón varð íslandsmeistari í tví- menningskeppni í bridge 1981-84 og íslandsmeistari í sveitakeppni í bridge 1982,1985-86,1988,1991-92 og 1994. Hann varð bikarmeistari í bridge 1983,1986-87 og 1990-92. Jón varö Reykjavíkurmeistari í tví- menningi í bridge 1990 og í sveita- keppni í bridge 1976,1981-83, 1985-86,1988-89 og 1992. Hann var í landsliðinu í bridge, fyrst 1975 og síðan 1982-83,1985-1988 ogfrá 1991. Jón var í bridgesveit Flugleiða sem vann Evrópumeistaratitil flugfélaga (ASCA) 1987 og 1988. Hann varð Norðurlandameistari í sveitakeppni í bridge 1988 og heimsmeistari í sveitakeppni í bridge 1991. Jón var útnefndur „European bfe master" 1992 af Evrópusambandinu í bridge. Fjölskylda Jón kvæntist 27.8.1983 Elínu Guðnýju Bjamadóttur, f. 3.1.1956, framkvæmdastjóra Bridgesam- bandsins. Foreldrar Elínar: Bjarni Kristjánsson, verkamaðurá Þing- eyri, og kona hans, Mary Karlsdótt- ir. Synir Jóns og Elínar: Jón Bjarni, f. 8.8.1985, og Magni Rafn, f. 1.5. 1987. Dóttir Elínar og stjúpdóttir Jóns: Ragnheiður Ragnarsdóttir, f. 13.8.1974, nemi. Systkin Jóns: Hafliði, f. 29.10.1944, skipstjóri í Reykjavík, sambýlis- kona hans er Guðlaug Sigmarsdótt- ir; Brynja, f. 24.121946, skrifstofu- maður í Reykjavík, gift Guðmundi Jónssyni framkvæmdastjóra; Guð- mundur Ólafur, f. 19.9.1949, fram- kvæmdastjóri í Reykjavík, kvæutur Helgu Stefánsdóttur; Halldóra, f. 22.12.1952, kennari á Reyðarfirði, gift Hilmari Sigurjónssyni kennara; Baldur, f. 2.1.1957, d. 21.12.1979. Foreldrar Jóns: Baldur Guð- mundsson, f. 14.5.1911, d. 14.8.1989, útgerðarmaður í Reykjavík, og kona hans, Magnea Guðrún Rafn Jóns- dóttir, f. 3.3.1923, d. 8.6.1981, hús- móðir. Ætt Baldur var sonur Guðmundar, útvegsb. á Vatneyri í Patreksfirði, Þórðarsonar. Móðir Baldurs var Anna, systir Láru, ömmu Láru Val- gerðar, lögfræðings ASÍ, og Halldórs Júlíussonar, forstöðumanns á Sól- heimum. Anna var dóttir Helga, b. á Öskubrekku í Barðastrandar- sýslu, Arasonar og konu hans, Þur- íðar Kristjánsdóttur. Magnea var dóttir Jóns, útgerðar- manns á Suðureyri í Tálknafirði, Guðmundssonar og konu hans, Halldóru Kristjánsdóttir, útgerðar- manns á Sellátrum, Arngrímssonar, prests á Brjánslæk, Bjarnasonar. Móðir Arngríms var Guðrún Sig- urðardóttir, klausturhaldara á Kirkjubæjarklaustri, Ólafssonar, sýslumanns í Haga, Ámasonar, bróður Guðrúnar, konu Ólafs Jóns- sonar, lögsagnara á Eyri, ættmóður Jón Baldursson. Eyrarættarinnar, langömrriu Jóns forseta. Móðir Sigurðar var Guörún Hjaltadóttir, prófasts og málara í Vatnsfirði, Þorsteinssonar. Móðir Halldóru var Þórey Eiríksdóttir, b. á Miðjanesi, Sveinssonar og konu hans, Ingibjargar, systur Sigríðar, langömmu Svanhildar, móður Ólafs Ragnars Grímssonar. Ingibjörg var dóttir Friðriks, prófasts á Stað á Reykjanesi, Jónssonar og konu hans, Valgerðar Pálsdóttur, prests á Stað, Hjálmarssonar. Móðir Páls var Filippía Pálsdóttir, systir Bjarna landlæknis. Móðir Valgerðar var Ingibjörg, systir Páls, langafa Jón- asar, afa Guðlaugs Tryggva Karls- sonar hagfræðings. Afmæli Ingvar Kristinn Þórarinsson Ingvar Kristinn Þórarinsson bók- sali, Höíðabrekku 9, Húsavík, er sjö- tugurídag. Starfsferill Ingvar fæddist á Húsavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá M A1945 og dvaldi við nám í Bandaríkjunum 1962-63 í því skyni að kynna sér nýjungar í stærðfræði- kennslu meö styrk frá Fulbright Foundation. Ingvar var kennari við Gagn- fræðaskóla Húsavíkur 1945-66, stundakennari við sama skóla 1966-73 og hefur j afnframt verið bóksali á Húsavík frá 1945. Þá hefur Ingvar verið umboðsmaður Bruna- bótafélags íslands og Ferðaskrifstof- unnar Úrvals hf. og fréttaritari Rík- isútvarpsins um árabil. Ingvar var formaður sóknar- nefndar Húsavikur 1963-75, bæjar- fulltrúi á Húsavík fyrir Sjálfstæðis- flokkinn 1966-70 og formaöur sjálf- stæðisfélags Húsavíkur 1973-79. Fjölskylda Ingvar kvæntist Björgu Friðriks- dóttur21.6.1947, húsmóðurogversl- unarmanni. Hún er dóttir Friðriks Aðalsteins Friðrikssonar, prests ís- lendinga vestanhafs og síðar prófasts og kennara og Húsavík og prests á Hálsi í Fnjóskadal, og konu hans, Gertrud Estrid Élise Friðriks- son, f. Nielsen, cand. phil., húsmóð- ur, kennara og organista en þau eru bæði látin. Kjörbörn Ingvars og Bjargar eru Stefán Örn, f. 27.7.1956, verslunar- maður á Húsavík, kvæntur Sigríði Þórhöllu Harðardóttur og eiga þau fjögur böm; Sigríður, f. 11.5.1961, sjúkraliði og húsmóðir í Reykjavík, gift Guömundi Aðalsteini Jónssyni og eiga þau þrjú börn. Fósturdóttir Ingvars er Lilja Sig- urðardóttir, f. 6.6.1948, verslunar- maður og húsmóðir á Húsavík, gift Dagbjarti Sigtryggssyni og eiga þau fjögurbörn. Bróðir Ingvars er Stefán Erlendur Þórarinsson, f. 1.8.1926, húsasmiður á Húsavík, kvæntur Aðalheiði Gunnarsdóttur og eiga þau sex börn. Foreldrar Ingvars voru Þórarinn Stefánsson, f. 17.9.1878, d. 3.5.1965, hreppstjóri og bóksali á Húsavík, og kona hans, Sigríður Ingvarsdótt- ir, f. 12.6.1889, d. 13.6.1972, ljós- myndari og húsmóðir. Ætt Þórarinn var sonur Stefáns, b. og smiðs á Grásíðu í Kelduhverfi, bróð- ur Valdimars, læknis í Fredriks- havn, íoður Finns Erlendssonar, læknis og alþm. í Danmörku. Annar bróðir Stefáns var Jón Eldon, faðir Hlínar í Herdísarvík, ömmu Eyjólfs Kjalars Emilssonar heimspekings. Stefán var sonur Erlends, alþm. í Garði, bróður Magnúsar á Víkinga- vatni, afa Benedikts Sveinssonar alþingisforseta, föður Bjarna for- sætisráðherra, fóður Björns alþm. Annar bróðir Erlends var Guð- mundur, afi Jóns Trausta. Systir Erlends var Guðrún, amma Sveins Víkings. Erlendur var sonur Gott- skálks, b. skálds og alþm. í Nýjabæ í Fljótum, Pálssonar, ættfóður Gott- skálksættarinnar. Móðir Þórarins var Margrét, syst- ir Hólmfríðar, móður Árna Óla, sagnfræðings og blaðamanns. Margrét var dóttir Þórarins, b. á Grásíðu, bróður Sveins, fóður Jóns (Nonna). Þórarinn var sonur Þórar- ins, b. á Grásíðu, Þórarinssonar, b. á Víkingavatni, Pálssonar. Sigríður var dóttir Ingvars, blikk- smiðs á ísafirði, Vigfússonar, b. á Litla-Nýjabæ í Krýsuvík, Guðna- sonar, b. í Miklaholtshelli í Flóa, Jónssonar. Móðir Ingvars var Anna Bjarnadóttir, b. í Vöðlakoti, Ketils- Ingvar Kristinn Þórarinsson. sonar. Móðir Sigríðar var Sigríður Árna- dóttir, hreppstjóra á Þorkötlustöö- um, Magnússonar, b. þar, bróður Einars, afa Sveinbjörns Beinteins- sonar skálds og Bjarna Bjarnasonar læknis. Magnús var sonur Ólafs, b. á Efri-Brú, Jónssonar og Ragnhildar Beinteinsdóttur í Þorlákshöfn Ingi- mundarsonar, b. á Hólum, Bergs- sonar, ættföður Bergsættarinnar, Sturlaugssonar. Móðir Sigríðar var Guðrún Þórðardóttir, b. á Felli, Bjarnasonar og Sigríðar Einarsdótt- ur frá Vatnsley su í Biskupstungum. Ingvar Kristinn er að heiman á afmælisdaginn. Sigurður Þórisson Sigurður Þórisson, bóndi og fyrrv. oddviti á Grænavatni í Mý- vatnssveit, er sjötiu og fimm ára í dag. Starfsferill Sigurður fæddist í Baldursheimi í Mývatnssveit og ólst þar upp til fullorðinsára. Hann var viö nám í Héraðsskóla Þingeyinga á Laugum 1937-39. Sigurður stundaði síðan ýmis störf, vann m.a. á Reykjabúinu í Mosfellssveit. Hann var bóndi á Grænavatni frá 1947 en nú hafa yngsti sonur hans og tengdadóttir tekiðviðbúinu. Sigurður gegndi umfangsmiklum félagsstörfum í héraði, sat m.a. í sveitarstjóm Skútustaöahrepps 1964-82 og var oddviti henanr 1966-74. Fjölskylda Sigurður kvæntist 14.6.1947 Þor- gerði Benediktsdóttur, f. 5.4.1916, kennara og húsfreyju að Græna- vatni. Hún er dóttir Bendikts Guðnasonar, b. að Grænavatni, og Solveigar Jónsdóttur, b. og skálds á Helluvaði, Hinrikssonar. Synir Sigurðar og Þorgerðar eru Erlingur, f. 26.6.1948, sagnfræðing- ur og íslenskukennari við MA, kvæntur Sigríði Stefánsdóttur bæj- arfulltrúa og eru böm þeirra Ema, Sigurður og Kári; Benedikt, f. 3.4. 1952, uppeldisfræöingur og skóla- stjóri Bamaskóla Akureyrar, kvæntur Helgu Sigurðardóttur kennara en dætur þeirra eru Þor- geröur og Sigrún; Hjörleifur, f. 25.10.1957, búfræðingur og b. á Grænavatni, kvæntur Æsu Hrólfs- dóttur og eru börn þeirra Brynja, Ama og Hrólfur. Bræður Sigurðar: Baldur, f. 5.5. 1919, d. 1993, b. í Baldursheimi (tví- burabróðir Sigurðar); Ketill, f. 9.12. 1920, d. 1991, b. í Baldursheimi; Þráinn, f. 2.3.1922, fyrrv. skóla- stjóri á Skútustöðum; Jón, f. 18.3. 1933, húsasmíðameistari á Akur- eyri; Pétur, f. 18.3.1933, d. 1988, b. í Baldursheimi. Foreldrar Sigurðar vora Þórir Torfason, b. í Baldursheimi og kona hans, Þuríður Sigurðardóttir húsfreyja. Ætt Foreldrar Þóris vora Torfi, b. og póstur að Birningsstööum í Laxár- dal, Sæmundsson, og kona hans Guðrún Snorradóttir í Geitafelli Oddssonar. Þuríðar var dóttir Sigurðar, b. í Baldursheimi, Jónssonar, b. í Bald- ursheimi, Illugasonar. Móðir Þur- íðar var Solveig Pétursdóttir, b. í Reykjahlíð, Jónssonar, ættföður Reykjahlíðarættarinnar, Þor- steinssonar. 85 ára_________________ Ragnheiður Þorgeirsdóttir, Skólastíg 14a, Stykkishólmi. Þorgrímur Einarsson, Sundabúð2, Vopnafirði. 75 ára Ragnar Jónsson, Stórhólsvegi 1, Dalvík. Kjartan Ólafsson, bóndi og bú- fræðingur, Hlaðhamri 2, Bæjarhreppi. Eiginkona hans er Ingibjörg Jó- hannesdóttir húsmóðir. Þau taka á móti gestum í Grunn- skóla Borðeyrar 8. maí kl. 19-23. Halldór Ebenezersson, Sundstræti 31, ísafirði. Guðný Bergsveinsdóttir, Brekkugötu25, Ólafsfirði. PéturHannes- son deildar- stjóri; Giljalandi 12, Reykjavík. Konahanser GuðrúnM. Ámadóttirhús- móðir. Sesilía Þorsteinsdóttir, Tjarnarlundi 19d, Akureyri. Ólafur Ólafsson, Öldugerði 18, Hvolsvelli. Þórir Da víðsson, Akurgerði 18, Reykjavík. 60 ára__________________ Guðrún M. Björnsdóttir, Austurbrún2, Reykiavík. Ragnheiður Sigvaldadóttir, Hólavegi7,Dalvík. Stefán Þór Óskarsson, Grænuhlíö 3, Reykjavík. Sólveig Alexandersdóttir, Seilugranda 1, Reykjavík. Runólfur Lárusson, Öldustíg 16, SauðárkrókL Ragnar Guðlaugsson, Guðnastöðum, A-Landeyja- hreppi. Hanneraðheiman. 50ára ____________________ Karl Jóhann Ottósson, Smáragötu 6, Reykjavík. Maj Britt Kolbr. Hafsteinsd., Túngötu 22, Bessastaðahreppi. Steinunn Hilmarsdóttir, Yrsufelli l, Reykjavík. Vilmundur Víðir Sigurðsson, Austurgerði 2, Kópavogi. Ida Bergmann Hauksdóttir, Hjöllum 11, Patreksfirði. Hörður Sigmundsson, Vallarhúsum8, Reykjavík. Grethe Wibeke Iversen, Langholti 17, Keflavík. 40ára______________ Bjarndís Jónsdóttir, Krókabyggð 25, Mosfellsbæ. Kristján Sigur- mundsson þroskaþjálfi, Sörlaskjóli30, Reykjavík. Eiginkonahans erAnnaElísa- bet Ólaísdóttir lögreglumaður. Sighvatur Blöm lahl Magnúss., Kópavogi. Digranesheiði 19 Sigrún Baldursdóttir, Austurbrún 27, Reykjavik. Sigurður Ámason, Presthólum, Öxarfjaröarhreppi. Þórdís Björg Kristinsdóttir, Fagrahjalla 38, Kópavogi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.