Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1994, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1994, Blaðsíða 36
f Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 3.000 krónur. Ritstjórn - Augíýsingar - Áskrift - Preifing: Sítni 632700 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994. Eldhúsdagur á Alþingi: Uppskerum eins ogsáðvartil sagðiforsætisráðherra „Allt okkar erfiöi, samstillt átak og stefnufesta, er aö skila sér. Viö erum að uppskera eins og sáö var til. 111- gresiö hefur jafnharöan veriö hirt og hent úr íslenska þjóðargarðinum og því veröur uppskeran væntanlega góð. Þaö er því bjart yfir íslensku efnahagslífi næstu misserin," sagöi Davíö Oddsson forsætisráðherra í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í gærkvöldi. Fram kom í máli hans að skilyrði væru fyrir vaxtalækkun. Davíð sagði i ræðu sinni að Evr- ópustefna Islendinga snerist um ís- lenska hagsmuni og íslenskan vilja en ekki um það aö vera með í lestar- ferðum. Með þessu átti ráðherrann ■ við umræður manna um samflot í Evrópusambandið með öðrum EFTA-ríkjum. Þá benti Davíð á að engin hagsmunasamtök hefðu mælt með inngöngu í ESB. Halldór Ásgrímsson, formaöur Framsóknarflokksins, útilokaði í sinni ræðu ekki aðild að ESB en sagði að íslendingar gætu ekki gengist undir sjávarútvegsstefnu ESB. Hann sagði Evrópusambandið í þróun og að mikilvægt væri fyrir íslendinga að semja sig til áhrifa innan þess. x. Stjórnarsinnar gerðu mikið úr '^*þeim teiknum um efnahagsbata sem nú væru á lofti. Stjórnarandstaðan sagði þetta kvaldar kveðjur til þeirra þúsunda sem nú eru atvinnulausar. Svavar Gestsson gagnrýndi formann Framsóknarflokksins harðlega fyrir eftirgjöf í ESB-málinu og í sama streng tóku fulltrúar Kvennalistans. Athygli vakti að enginn af ráðherr- um Alþýðuflokks tók til máls í um- ræðunum í gærkvöldi. Vígslubiskupskj ör: Enginn náði meirihluta -kjósaþarfaftur Séra Sigurður Sigurðarson á Sél- fossi fékk flest atkvæði í vígslubisk- upskjöri í Skálholtsbiskupsdæmi. Atkvæði voru talin í gær og hlaut Sigurður 49 atkvæði. Næstur kom sr. Guðmundur Þorsteinsson, dómpró- fastur í Reykjavík, með 38 atkvæði og þá sr. Karl Sigurbjömsson, sókn- arprestur í Hallgrímskirkju, með 29 atkvæði. Á kjörskrá voru 134 og bárust 129 atkvæði sem þýðir 96% kjörsókn. Þar sem enginn fékk meirihluta greiddra atkvæða þarf að kjósa aftur um þrjá efstu menn. Úrsht í því kjöri ættu að liggja fyrir um næstu mánaðamót. Krefjumst log banns fari þau ekki i dag „Ég og lögmaður minn kreflumst þess aö hrossin sem sýktust verði flutt í burtu í dag. Gerist það ekki munum við fara fram á að lögbann ; verði sett á heimild bæjarstjórnar ; um að þau mættu vera þarna. Þetta er algjörlega óviöunandi, að flytja sýkt hross úr einu bæjarfélagi í annað,“ sagðí Þórarinn Jónsson, eigandi hestaleigunnar i Laxnesi í Mosfellsdal - næsta bæ við Selholt þar sem 15 sýkt hross voru flutt frá Víðidal síðastliðinn fóstudag. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hélt fund um málið í morgun. Þegar niðurstaða hans lá fyrir sagði Ró- bert Agnarsson bæjarsflóri við DV: „Við sjáum ekki efni til að fallast á kröfu Þórarins. Við skiljum þó mæta vel ótta hans - hann er með mikinn atvinnurekstur með hross. Viö höfum fengiö staðfestingu frá; yfirdýralækni um að það sé ekki hætta á ferðum með önnur hross þama. Niðurstaða úr sýnatöku, sem fékkst á sunnudag, sýndi jafn- framt aö þama hefði verið um veiru að ræða sem var til staðar áður og utanaðkomandi áhrif hefðu valdið sýkingunni í þessum tilteknu hrossum. Auk þess voru önnur hross með þessum sýktu á tímabiii og það kom ekkert smit fram í þeim og sýktu hrossin hafa nú náð sér að mestu," sagöi bæjar- stjóri. Þegar DV fór í prentun var Þórar- inn að bíða eftir skriflegu svari frá bæjarstjórninni urn kröfu hans viö því að hrossin verði flutt í burtu, Þórarinn ræddi við Brynjólf Sand- holt jdirdýralækm í gær. Hann kvaðst í samtali við DV í morgun hafa fengið neikvæð viðbrögð yfir- dýralæknis við því að hrossin verði flutt í burtu. Slökkviliðið á Reykjavíkurflugvelli hreinsaði í gær þotueldsneyti eða steinolíu sem lak úr tönkum maltneskrar þotu sem hafði viðdvöl á Reykjavíkurflugvelli. Að sögn varðstjóra skapaðist ekki veruleg hætta af en steinolían fer illa með malbikið ef hún er ekki hreinsuð strax. Tankar vélarinnar höfðu yfirfyllst en nokkuð algengt er að eldsneyti drjúpi úr yfirfylltum eldsneytisgeymum flugvéla þegar olían þenst út við hitabreytingar. Verkfall meinatækna: Málið komið Vonir standa til að samningavið- ræður meinatækna og ríkisins kom- ist aftur á hreyfingu eftir viðræður Guðmundar Áma Stefánssonar heil- brigðisráðherra og Friðriks Sophus- sonar flármálaráðherra og meina- tækna í gær. Búist er við að fljótlega verði boðað til samningafundar. „í gær var ekki búið að kalla form- lega á samningafund en það er hreyf- ing á málinu. Það er vilji til þess af hálfu meinatækna að leysa málið og ég veit að meðan fólk ræðist við er málið á hreyfingu,“ segir Guðmund- ur Árni Stefánsson heilbrigðisráð- herra. Suðursveit: Lá við stór- bruna Við stórbmna lá þegar eldur kom upp í vélageymslu á bænum Lækjar- húsum í Suðursveit um klukkan 19 í gærkvöld. Vélageymslan er áfost hesthúsi, flárhúsi og hlöðu. Talið er líklegt að flóðljós í vélageymslunni hafi bráðnað en fyrir neðan það var olíudallur sem eldurinn kom upp í. Heimamenn brugðust skjótt við og tókst að ráða niðurlögum eldsins með þremur handslökkvitækjum og urðu mestar skemmdir af völdum sóts og reyks. Hestar sem voru í hesthúsinu voru í gerði við húsið og sakaði ekki. Reykur komst hvorki í hlöðu, þar sem töluvert hey var, né flárhús, þar sem á annað hundrað flár í sauð- burði var. Slökkvilið var kallað til baka áður en það kom á staðinn, þökk sé snar- ræði heimamanna. Ágreiningur um þyrlukaup Ákvörðun um þyrlukaup er á dag- skrá ríkisstjómarfundar á morgun. Frestur til að ná niðurstöðu í viðræð- um við Bandaríkjamenn um yfirtöku þyrlusveitarinnar á Keflavíkurflug- velh rennur út á miðnætti. Útlit er fyrir aö þær viðræður taki mun lengri tíma. Telur Jón Baldvin Hannibalsson því koma til álita að tala beint við bandaríska starfsbróð- ur sinn um máhð en ákvörðun um kaup á einstakri þyrlu geti lokað máhnu gagnvart Bandríkjamönnum. Davíð Oddsson býst hins vegar við að þyrlukaupamáhð verði afgreitt á ríkisstjómarfundinum og Þorsteinn Pálsson segir ekkert geta tafið yfir ákvörðun um þyrlukaup. LOKI Skyldi ríkisstjórnin fara á flug vegna þyrlumálsins? Veðriðámorgun: Víðast kaldi Á morgun verður austlæg átt, ' viðast kaldi og dálítil rigning um norðanvert landið en hæg breyti- leg átt og smáskúrir syðra. Hiti 3-9 stig. Veðrið 1 dag er á bls. 44 LANDSSAMBAND ÍSL. RAKVKRKTAKA lir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.