Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1994, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994
Flórgoðadagur
Fuglaverndarfélag íslands efnir
til flórgoðadags á laugardag kl.
15. Flórgoði er með sérkennileg-
ustu fuglategunduin hér á landi
og eru biðilsleikir hans með því
failegasta sem um getur í náttúru
lands okkar. Ástjöm við Hafnar-
flörð er helsti griðastaður flór-
goðans á Suður- og Vesturlandi.
Kl. 15 verða reyndir fuglaskoðar-
ar staddir við Asveg fyrír norðan
Ástjöm.
Ratleikur á
vímuvarnar-
daginn
Lionshreyfingin á íslandi hefur
ákveðið að fyrsti laugardagurinn
i maímánuði ár hvert skuli til-
einkaður vímuvörnum. í tilefni
dagsins á morgun gengst Lion-
essuklúbbur Njarðvíkur fyrir
ratleik.
Strætisvagn fer ír á Gmnnskóla
Njarðvíkur kl. 10.45 en leikurinn
hefst við Safnaðarheimilið í
Innrí- Njarðvík ki. 11. Vagninn
mun síðanfara frá Innri-Njarðvík
að grunnskólanum að leik lokn-
um.
Ljósmyndir á
Akureyri
Sýning á verkum Klaus D.
Francke verður opnuð í Lista-
safninu á Akureyri á laugardag
ki. 16. Francke er arkitekten hef-
ur unnið sem „free-lance“ ljós-
myndari og unnið fyrir mörg
þekkt ferðatímarit eins og Merian
og Geo. Frá árinu 1975 hefur hann
einkum unnið að gerð ljósmynda-
bóka.
í miðsal Listasafnsins verða
sýndar nokkrar nýlegar myndir
sem Menningarsjóður Akur-
eyrarbæjar hefur fest kaup á.
Bygginga-
dagar
Byggingadagar verða haldnir á
vegum byggingafyrirtækja innan
Samtaka iðnaðarins undir kjör-
orðinu Þannig rís byggðin. Alls
er um að ræöa 15 fyrirtæki sem
em staðsett víðs vegar um höfuð-
borgarsvæðið, flest þó í hinu nýja
Rimahverfi í Grafarvogi. Sýning- ‘
arsvæðin eru opin á laugardag
og sunnudag kl. 13-18. Rann-
sóknastofnun byggíngariðnaðar-
ins er opin á laugardag kl. 13-18
en þar er hægt að fá nánari upp-
lýsingar.
Vorsýning
Stóðhesta-
stöðvarinnar
Hin árlega vorsýning Stóðhesta-
stöðvar ríkisins verður á laugar-
dag í Gunnarsholtí á RangárvöU-
um. Sýningin hefst kl. 14 með hóp-
reið félaga úr hestamannafélag-
inu GeysL Síöan verða sýndir
hestar sem taradir hafa verið og
þjálfaöir á stöðinni í vetur aúk
nokkurra úrvals stóðhesta af Suð-
urlandi. Einnig verður kynning á
ungfolum en nokkrum bráðefiú-
Iegum folum er enn óráðstafaö til
notkunar nú í sumar.
Landsbanka-
kórinn
Landsbankakórinn heldur tón-
leika í Seltjamarneskirkju á
sunnudag kl. 17. Kórinn var
stofnaður á haustdögum áriö 1989
og er því fimm ára á þessu ári.
Fyrri kórstjóri var Ólöf Magnús-
dóttir og undirleikari hjá kórnum
var maki hennar, Hilmar Guö-
jónsson. Núverandi kórstjóri er
Friðrik S. Kristinsson sem stjóra-
ar einnig Karlakór Reykjavíkur.
Hestadagar í Reiðhöllinni:
Hestar og menn
1 t f i x • r rt •• •
brjalaðir ur fjon
- segir Haraldur Haraldsson í Fáki
„Við erum nátturlega ofsalega
glaðir núna þegar útgöngubanninu
er aflétt. Hestamir era allir brjálaðir
úr íjöri því þeir koma beint úr inni-
stöðunni. Það verður mjög sérstakt
ástand núna á þessari sýningu og
stemninginn hjá mönnum og hestum
líkist helst því þegar kýrnar fara út
á vorin," segir Haraldur Haraldsson,
framkvæmdastjóri Fáks, í samtali
viðDV.
Hestadagar íþróttadeildar Fáks og
íþróttadeilda sunnlenskra hesta-
mannafélaga verða haldnir í Reið-
höllinni um helgina. Dagskráin hefst
kl. 21.00 á fostudags- og laugardags-
kvöld og sunnudag kl. 17. Á sýning-
unni verður skrautreið, stóðhestar
sýndir ásamt mörgum skemmtiatrið-
um, þrautakóngi og sýningu á gæð-
ingunum. Sterkasti hestamaður í
heimi kemur fram og einnig verður
keppt í tölti og skeiöi.
„Þaö kom okkur á óvart að miða-
pantanir hófust strax á þriðjudag án
þess að viö auglýstum nokkuð. Fólk
virðist vera mjög spennt fyrir sýn-
ingunni. Sýningin er unnin svo hratt,
að vísu var byrjað að undirbúa hana
áður en reiðarslagið dundi yfir. Núna
er unnið dag og nótt og við það skap-
ast mjög sérstök karnivalstemning.
Það er enginn veiruhræddur núna.
Ég held að það verði feiknamikil
skemmtun fram undan," segir Har-
aldur.
Laugavegur:
Langur laugardagur
Margir skella sér I bæinn á Löngum laugardegi.
Langur laugardagur verður á
morgun og verða verslanir við
Laugaveg opnar frá kl. 10-17.
Kaupmenn við Laugaveg og
Bankastræti standa fyrir Löng-
um laugardögum fyrsta laugar-
dag hvers mánaðar. Bandalag ís-
lenskra skáta kynnir íslenska
fánann í öndvegi á milli kl. 13 og
15. Skífan, Laugavegi 26 og 96,
heldur klassíska daga í verslun-
um sínum þessa helgi. Strengja-
kvartett leikur í versluninni á
Laugavegi 26 frá kl. 13-15.
Kodak bangsinn skemmtir íjöl-
skyldunni í Bankastræti. Bangsa-
leikurinn verður í gangi og munu
stóri og htli bangsi vera á svæð-
inu og leita að bangsanum með
krökkunum. í verðlaun verða
fimm vinningar frá kaffihúsinu
Tíu dropum. Auk þess bjóða
verslanir og veitingastaðir afslátt
eða sértilboð í tilefni dagsins.
Þjóöleikhúsiö
Stóra sviðið:
Gaukshrelörið
föstudagkl. 20.00
Gauragangur
laugardag kl. 20.00
Skllaboðaskjóðan
laugardag kl. 14.00
Borgarleikhúsið
Stóra svið:
Gleöigjafarnir
laugardag kl. 20.00
EvaLuna
föstudagkl. 20.00
sunnudagkl 20.00
Leikfélag Akureyrar:
Óperudraugurinn
Bar Par
föstudagkl. 20.30
Leikfélag Kópavogs
Hedda Gabler og Brúðuheimilið
sunnudag kl. 20.00
Hugleikursýnir
Haf nsögur 13 stuttverk
föstudag kl. 20.30
laugardagkl. 20.30
sunnudag kl. 20.30
Ýtavélarlaus-
umTrabant til
Þingvalla
Tíundi bekkur Ölduselsskóla ætlar
aö ýta vélarlausum Trabant frá
Reykjavík til Þingvalla á laugardag.
Atriðið er lokapunktur á lýðveldis-
viku sem verið hefur í skólanum.
Einnig sýna nemendur afrakstur
þemavikunnar á laugardag kl. 15-19.
Trabantinn hefur verið notaöur
síðastliöin ár viö leiklistarstarfsemi
(Rauða eldingin í Grease, svartur
Rolls Royce í Músagildrunni og
Tímavél í Bítlarokki). Ágóðinn renn-
ur til kaupa á kennslutækjum fyrir
börn og unga ökumenn í umferðinni
í samráði við Umferðarráð og um
30% ágóðans renna í píanósjóð For-
eldrafélags Ölduselsskóla. Ung-
mennin vilja meö þessu minna fólk
á að henda bílum sínum í bílakirkju-
garða þar sem bíllinn fer á einn slík-
an eftir maraþonið.
Tinna Gunnarsdóttir opnar um helg-
ina sýningu á karlmannanælum í
Gallerí Greip að Hverfisgötu 82.
Vímuvamardagurinn
Víðavangs-
hlaup 3-4
árabama
Lions-, Lionessu- og Leoklúbbar
um land allt halda sinn árlega vímu-
varnardag á laugardag. Aðalmarkm-
ið dagsins er að vekja athygli á vímu-
vörnum hreyfingarinnar með því aö
kynna námsefnið: „ Að ná tökum á
tilverunni“ eða „Lions Quest".
Tvö meginmarkmið kennsluefnis-
isn er að hjálpa ungu fólki að þroska
með sér félagslega eiginleika eins og
sjálfsaga, ábyrgðartilfinningu, dóm-
greind og hæfni til samskipta við
aðra. Aö hjálpa fólki til þess aö efla
tengsli viö íjölskylduna, skóla, jafn-
aldra og samfélag, auk þess að til-
einka sér heilbrigöan og vímulausan
lífsmáta. Á laugardag kl. 13.30 verður
víðavangshlaup 3-4 ára barna á milli
barnaskólans og leikskólans.