Alþýðublaðið - 05.04.1967, Blaðsíða 2
Herferðin gegn Kína-
forseta nær hámarki
Samkvæmt blöðum í Peking
virðast þúsundir manna um allt
landið' taka þátt í svipuðum f jölda
aðgerðum til stuðnings IVIao Tse-
tung og gegn Liu Shao-chi. „Al-
þýðudagblaðið" sagði í forsíðu-
fyrirsögn, að öreigabyltingin for-
dæmdi liáttsetta flokksstarfsmenn
sem valið hefðu braut kapítal-
ismans, en opinber blöð hafa
hingað til forðazt að’ nefna Liu
á nafn. Blaðið segir, að herinn
taki virkan þátt í skipulagningu
fjöldaaðgeröanna víðs vegar í
landinu.
Ástæðan til mótmælaaðgerð-
anna gegn forsetanum eru tvær
greinar í „Rauða fánanum“. tíma
riti kommúnistaflokksins. í Ann-
arri greininni er forsetinn sak-
aður um tilrauu til að kúga mao-
ista við Pekingháskóla í fyrra-
sumar. í hinni greinni er Liu sak
aður um að liafa sagt að 10 ára
gömul kvikmynd bæri vott um
þjóðhollustu, en Mao á að hafa
sagt að myndin bæri vott um föð
urlandssvik.
CHEN KOK HRAUSTUR.
Chen Yi utanríkisráðherra, semi
gagnrýndur var í veggblöðunj
Framhald á 15. síðu.
Nýtt ungl-
ingablað
Nýtt unglingablað liefur liafið
göngu sína hér. Nefnist það REGN
og um útgáfu þess sjá nemendur
í 6. bekk GK í Langholtsskólan-
um, en það er 12 ára bekkur. Á-
byrgðarmaður ritsiiis er Loftuií
Guðmundsson, rithöfundur. Rit-
stjóri er Gísii Sv. Loftsson og
blaöamenn Sigurður J. Grétars-
son og Ágúst Þ. Árnason. í ritinu
er ýmislegt við hæfi unglinga,
framhaldssaga, sagt frá Donovana
stjörnuregn, þáttur um unglinga-
hljómsveitir, fræðigrein um dýr
o. fl. Hér á myndinni sjáum við
ritstjóra Regns.
PEKING, 4. apríl
(NTB-Reuter).
Herferðin gegn Liu Shao-chi,
forseta Kína, hélt áfram í Peking
í dag, þriðja daginn í röð. Þús-
undir manna taka þátt í herferð-
inni, en opinberlega hefur verið
sagt að þessi herferð' marki þátta
skil I menningarbyltingunni.
Mannfjöldinn hrópaði slagorö og
krafðist þess að Liu og stuðnings
mönnum hans yrði vikið frá völd
um.
♦-------------------:------------
Þessa óvenjulegu skipsmynd
tók Marteinn Friðjónsson, skip
venii á togaranum Röðli, af
skipinu fyrir skömmu, en Röö-
ull var þá á heimleið úr sölu-
ferð.
Grindavík, HM—Hdan.
Á skrídag bættist hér
ann nýtt glæsilegt skip,
i heim og reyndist það í alla staði
í flot- vel.
Hrafn'i Skipstjóri á Hrafni Sveinbjarn-
Sveinbjarnarson. Er skipið 2C8
lestir að' stærð og búið ölium ný-
lízku fiskleitartækjum, t.d. tveim
asdic ratsjám og dregur önnur
þeirra 24 mílur en hin 48. í skip-
inu er 670 hesta Lister aöalvél og
var ganghraði í reynsluferð 10,4
mílur.
Skipið er smíðaö' í Þýzkalandi
©g hreppti aftakaveður á leiðinni
Landhelgisbrot
báta orðin 43
Þyrla Landhelgisgæzlunnar tók
um hádcgið í gær fjóra báta aö
meintum ólöglegum veiðum, tvo
út af Ilafnarnesi og tvo undan
Framhald á 15. síðu.
ajrsyni er Pótur Stefánsson úr
Keflavík, 1. stýrimaður Sveimi
Sveinsson úr Grindavík, 1. vél-
stjóri Valdimar Valdimarsson úr
Garði og 2. vélstjóri Pétur Vil-
bergsson iir Grindavík.
Vestmannaeyjum, ES—Hdan.
Heildara-fli Vestmannaeyjabáta
frá áramótum var nú um mánaðar
mótin 10.470 lestir, en var á sama
tíma í fyrra 10.711 lestir. Sæ-
björg er aflahæst með 418 lestir,
Andvari 381, Leó 351, Sæunn
316, Hrauney 267 og Suðurey með
254 lestir.
Gísli Árni kom með 280 lestir af
loðnu hingað í gærmorgun.
Þrátt fyrir minni afla miðað
við sama tíma í fyrra, er rétt að
hafa það í !huga, að færri bátar
róa héðan í vetur og eins liefur
tíðarfar verið mjög erfitt það sem
af er vertíðinni og gæftir stirðar.
Afli netabáta hefur verið tregur,
en hins vegar hefur verið góður
afli hjá trollbátunum. Hafa þeir
komizt í þetta 30—40 lestir yfir
daginn, þegar þeir hafa getað ver-
ið a'ð.
Flateyri, HH—Hdan.
í fyrri viku varð einn Flateyrar-
báta fyrir því óhappi, að tapa 7
bölum af línu undir ísinn, sem nú
er á miðum báta þaðan.
Afli bátanna hefur verið imjög
lélegur að undanförnu þar sem
bátarnir komast ekki á sín venju
legu mið vegna íss.
I fyrradag var aflinn um lVSs
tonn á bát, nema hvað einn sem
reri lcngra fékk 4 tonn og tapaði
auk þess lí»u undir ísinn, eins og
fyrr er sagt.
Þrjár nýjar bækur
írá Heimskringlu
Heimskringla hefur sent frá sér
þrjár nýjar bækur, Ijóðabók eftir
Þorstein frá Hamri, lokabindi Jó-
hanns Kristófers eftir Romain Hol-
land og Söguna af Serjoza eftir
Vera Panova. Geir Kristjánsson
þýðir Söguna af Serjoza, þætti úr
lífi lítils drengs, en Sigfús Daða-
son Jóhann Kristófer. Er þetta
fimmta bindi íslenzku útgáfunnar
og birtast þar níundi og tíundi
hluti sögunnar, Logandi runnur
\
Leikréttarhöld haldin yfir Oswald
Almenningur í Bandaríkjunum
er enn ekki á eitt sáttur um
nið’urstöður Warren-nefndar-
innar, sem taldi að Lee H. Os-
vvald hefði myrt Kennedy for-
seta og verið þar einn að verki.
Þetta kom glögglega fram í
, leikréttarhöldum, sem stúd-
r entar við Yale-háskóla, kunn-
: asta lagaskóla Bandaríkjanna.
; settu nýlega á svið, en kvið-
. dómurinn, sem í voru sex kon-
ur og sex karlar, igat ekki náð
samkomulagi um sekt eða sak-
leysi sakborningsins.
Sá, sem tók að sér hlutverk
Oswalds í réttarhöldunum, neit
aði að hann hefði orðið for-
setanum að bana. Mörg vitni
voru leidd og var vitnisburður
þeirra unninn úr Warren-skýrsl
unni, en til þess að spara tíma
var framburði margra vitna úr
skýrslunni oft steypt saman í
einn.
Að vitnaleiðslunum loknum
gaf dómarinn kviðdóminum
leiðbeiningar og taldi að þrjár
grundvallarniðurstöður gætu
komið til greina: að Oswald
væri saklaus; að Oswald væri
sekur um að hafa myrt forset-
ann að yfirlögðu ráði; og í 3.
lagi, að ihann hefði skotið á
forsetann í þeim tilgan'gi að
bana honum, en þó hafi liann
ekki látið lífið fyrir kúiu úr
riffli Oswalds.
Kviðdómurinn dró sig því
næst í hlé og bar saman toæk-
ur sínar. Eftir þrjá stundar-
fjórðunga kallaði dómarinn
hann inn í réttarsalinn, og þá
lýsti oddviti kivðdómsins þvi
yfir, að kviðdómurinn hefði
klofnað í tvo jafna hluta, og
hefði það einkum valdið ágrein
ingnum, hvort Oswald hefði
verið einn að verki eða ekki.
í viðtali að loknum réttar-
liöldunum, sagði oddviti kvið-
dómsins ennfremur að öllum
dómendunum hefði komið sam-
an um, að Oswald væri !á ein-
hvern hátt við málið riðinn.
Hins vegar hefði ákærandinn
ekki borið fram nægilega sterk
rök til að ryðja úr vegi efa-
semdum um að Oswald hefði
raunverulega hleypt af því
skoti sem varð forsetanum að
bana.
og Hinn nýi dagur. Meira en tutL
ugu ár eru liðin síðan útgáfa sög-
unnar hófst á íslenzku, en Þórar-
inn Björnsson skólameistari hóf
þýðingu hennar sem Sigfús Daða-
son tók við og 'hefur nú leitt til
lykta. Jóhann Kristófer er 432 bls.
að stærð, en Sagan af Serjoza 174
bls. — Jórvík nefnist hin nýja
bók Þorsteins frá Hamri og er
það fimmta ljóðabók hans. Jór-
vík skiptist í fjóra kafla, Á þjóð-
veginum, Ekki þekki ég manninn,
Til fundar við skýlausan trúnað,
Himinn og gröf. Bókin er 66 bls.
að stærð.
Varöberg
á Akureyri
Varðbergsfélagar á Akureyri og
aðrir áhugamenn um vestræna
samvinnu. Fundur verður haldinn
á morgun, fimmtudaginn 6. apríl,
í Iitla-salnum í Sjálfsfæðishúsinu
og hefst fundurinn kl. 8.30.
Ræðumaður á fundinum verður
Árni Gunnarsson, fréttamaður,
og ræðir hann um Vietnam. Sýnd-
ar verða litskuggamyndir og stutt
kvikmynd. — Stjórnin.
2 5. apríl 1967
ALÞYÐUBLAÐIÐ
i'