Alþýðublaðið - 24.04.1967, Page 10
Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIÐ 23. apríl 1967
10
(7
Frá ársþingi íþróttabandalags Hafnarfjarðan
Bygging íþróttahúss
brýnasta verkefnið
Yngvi Rafn Baldvinsson
endurkjörinn formaður
Ársþing íþróttabandalags Hafn-
arfjarðar var- haldið nýlega, eða
31. marz og 8. apríl sl. Mörg mál
voru rædd á þinginu og fjöldinn
allur af tillögum samþykktar.
Stjórn bandalagsins var öll end-
urkjörin, en hana skipa:
Formaður: Yngvi Rafn Bald-
vinsson; gjaldkeri: Ögmundur
Ilaukur Guðmundsson; ritari: Jón
Egilsson; Meðstjórnendur: Guð-
mundur Geir Jónsson, Anna Kr.
ÞóUðardóttir.
Tillögur, sem samþykktar voru
á 22. ársþingi ÍBH 31. marz og
8. apríl 1967.
I
1. 22. ársþing ÍBH telur sem
fyrr byggingu íþróttahússins
brýnasta verkefnið í íþróttamál-
um bæjarins og beinir þeirri ein-
dregnu áskorun til bæjarstjórnar
Ilafnarfjarðar, að hún leggi J).öf-
uðáherzlu á að hraða framkvæmd-
um við' byggingu hússins.
%
a. Þingið vekur athygli á því að
samkvæmt opinberum skýrsl-
um, er Hafnarfjörður með flesta
skólanemendur á hvern ferm.
leikfimisgólfs af öllum kaupstöð-
utn Iandsins. Enda er ekki hægt,
nema að litlu leyti, að framfylgja
fræðslulögum viðvíkjandi leik-
fimikennslu í skólum bæjarins.
I
b. Nú er ástandið í byggingu í-
þröttahússins þannig, að hefja
þar'f framkvæmdir í maí næstk.
svo' að von sé til að húsið verði
fokhelt fyrir veturinn, eins og á-
ætfað er. Vitað er að all mikið
Innanhússmót
IR á mánudag
IJrjálsíþróttadeild ÍR efnir til
innanhússmóts í stökkum án at-
rennu á mánudag kl. 20,50. Keppt
verður í langstökki, þrístökki og
hástökki fyrir karla.
Drengjahlaup
Armanns í dag
Drengjahlaup , Ármanns fer
fram í dag og hefst kl. 2. Kepp-
enc}ur eru alls 25 frá Ármanni,
ÍR..HSÞ, KR, UMSE og KA, Ak-
ureyri. Starfsmen'n og þátttalk-
endur eru beðnir að mæta á
Melavellinum kl. 13,15.
fé þarf til þess að hefja þennan
áfanga við bygginguna.
Fjárhagsáætlun bæjarins gerir
ráð fyrir kr. 5 millj. á yfirstand-
andi ári og sama upphæð var á-
ætluð til verksins á sl. ári., og
upplýsingar liggja fyrir um það
að þeirri upphæð var ekki allri
varið til verksins á því ári. Það
verður að teljast lágmarkskrafa,
að sú upphæð, sem ætluð er til
verksins á fjárhagsáætlun hvers
árs sé örugglega notuð hverju
sinni.
Hafi bæjarsjóður ekki hand-
bært fé, nú þegar, til þess að
halda áfram með ráðgerða áætl-
un, verður það að teljast lág-
markskrafa að bæjarsjóður út-
vegi það fé með lánum eða öðru
móti. Mætti þar nefna útgáfu
skuldabréfa.
c. Þar sem dregizt hefur úr
hömlu að standa við gerðar á-
ætlanir um byggingu íþróttahúss
í Hafnarfirði, beinir þingið því
til stjórnar ÍBH, hvort ekki sé
tímabært að boða til almenns
borgarafundar um byggingu húss-
ins.
)
2. 22. ársþing ÍBH vill enn einu
sinni vekja athygli bæjaryfir-
valda á því, að íþróttahreyfingin
hefur óskað eftir því, að tvö svæði
yrðu tekin fyrir framtíðaríþrótta-
svæði fyrir Hafnarfjörð. 1. Víði-
staðir. 2. Svæðið milli Hamraness
og Grísaness. Treystir þingið því
að loforð verði haldin um það,
að þessi svæði verði ekki tekin
til annarra nota og þar hafnar
framkvæmdir, þegar byggingu í-
þróttahússins er lokið.
f
3. 22. ársþing ÍBH skorar á hátt-
virta bæjarstjórn, að hefjast
nú þegar handa um byggingu lít-
illa íþróttasvæða, víðs vegar um
bæinn. Ennfremur má benda á
þá nauðsyn að lagfæra svæðin í
kringum skólana, þannig að þau
notist skólunum á meðan þeir
starfa og íþróttafélögunum yfir
j sumartímann.
j Þingið vill vekja athygli á því,
því, að oftast er hægt að útbúa
þessi svæði með sáralitlum til-
kostnaði, með þeim tækjum, sem
nú er völ á.
4. 22. ársþing ÍBH vill enn einu
sinni óska eftir því við hátt-
virta bæjarstjórn, að félögin fái
meiri afnot af leikfimihúsi Lækj-
arskólans. Vill þingið benda bæj-
aryfirvöldum á, að þetta er eina
íþróttahúsið í bænum og er því
óþolandi að það skuli ekki vera
meira til afnota fyrir íþrótta-
hreyfinguna en nú er. Felur þing-
ið stjórn ÍBH að halda áfram að
þoka þessu máli í viðunandi horf.
5. Um leið og 22. ársþing ÍBH
þakkar háttvirtri bæjarstjórn
fyrir veitt fjárframlög, vill það
minna á að styrkur sá, er bæj-
arstjórn veitir íþróttahreyfing-
unni, kr. 90 þúsund á ári, hefur
ekki hækkað síðan 1959. Vegna
húsnæðisvandræða hafa félögin
neyðst til þess að leita í auknum
mæli til annarra byggðarlaga um
húsnæði fyrir æfingar sínar. —
Sem dæmi má nefna, að ferða-
kostnaður og húsaleiga vegna æf-
inga, utan bæjarins, á sl. ári,
varð hjá meistaraflokkum F.H.
og Hauka, kr. 80 þúsund.
Það er því von þingsins að
bæjarstjórn sjái sér fært að
hækka þennan styrk verulega og
greiða hann með jöfnum greiðsl
um allt árið. Á þann hátt kemur
hann íþróttahreyfingunni að bezt-
um notum.
6. 22. ársþing ÍBH telur, að
fullkomlega sé tímabært að
ráða íþrótta- og æskulýðsfulltrúa
á vegum bæjarins.
Skorar þingið á bæjarstjórn að
samþykkja tillögur þær, um þetta
efni, sem stjórn ÍBH lagði fyrir
bæjarráð á síðastliðnu hausti.
7. 22. ársþing ÍBH Iýsir ánægju
sinni á starfi núverandi í-
þróttanefndar, en átelur jafn-
framt að ÍBH skuli hafa verið
sniðgengið við skipan nefndar-
innar og störf hennar unnin án
samráðs við stjórn ÍBH. Væntir
þingið þess að bæjarráð Hafnar-
fjarðar endurskipuleggi þessá
nefnd til samræmis við það sem
tíðkast í öðrum bæjarfélögum og
reynzt hefur vel, þannig að
nefndarmenn verði 5, þar af 2
tilnefndir af stjórn ÍBH.
8. 22. ársþing ÍBH þakkar ÍSÍ
fyrir hið myndarl. landshapp-
drætti undanfarin ár og þau
auknu sölulaun sem boðin hafa
verið.
9. 22. ársþing ÍBH telur æski-
legt að ÍBH kaupi miða í lands
happdrætti ÍSÍ, sem svarar til 2
miðum á hvern félaga og láti fé-
lögin fá þá í réttu hlutfalli við
félagatölu. — Skili félögin miðum
til baka fái þau 50% sölulaun, en
ef ekki, þá 75% sölulaun. ÍBH
sé heimilt að kaupa þá miða er
félögin kunna að skila.
10. 22. ársþing felur væntan-
legri stjórn bandalagbins
að skipa nefnd sem vinni að
Framhald á 14. síðu
VEITIR KEFLAVÍKURBÆR
MEST TILIÞROTTANNA?
Greiðslur bæjarfélaga til íþróttabandalaga viðkomandi staða, sam-
kvæmt fjárhagsáætlun 1967.
Krónur: íbúar 1. des. Krónur
1966: pr. íbúa:
Reykjavík ........~ 2.100.000,00 78.982 26.58
Akureyri ......... 150.000.00 9.907 15.14
Kópavogur ....... 150.000.00 9.933 15.10
Keflavík ......... 200.000.00 5.396 37.06
Akranes .......... 100.000.00 4.145 24.13
Hafnarfjörður ....... 90.000.00 8.546 . 10.53
Ef ÍBH fengi meðaltal greiðslna miðað við þessa 5 bæi, kr. 24.92 á
íbúa, þá ætti það að fá kr. 212.966.32, í staðinn fyrir kr. 90.000,00,
eins og nú er.
Hvor sigrar ■
kvökl KR eða ÍR?
Körfubolti
r
I
tapi fyrir KFR í kvöld. Fari svo,
að úrslit beggja leikjanna verði
ÍS í hag, munu þeir leika auka-
leik við Ármann um sætið í
fyrstu deild.
í kvöld kl. 20.15 verða leiknir
síðustu leikirnir í 1. deild í ís-
landsmótinu í köi'fuknattleik.
Fyrst leika KFR og Ármann, en
þar má búast við hörkuleik, því
á undanförnum árum hafa leik-
ir þessara liða jafnan verið jafn-
ir og skemmtilegir. Að þeim leik
loknum mætast „erkióvinirnir“.
ÍR og KR. KR-ingar náðu bikarn-
um af ÍR eftir aukaleik í ís-
landsmótinu 1965, og liéldu hon-
um enn 1966, unnu ÍR í úrslita-
leik nokkuð örugglega. ÍR vann
svo fyrri leik liðanna í þessu
móti og er nú í efsta sæti með
alla leiki unna. Sigri KR í leikn-
um í kvöld, verða liðin að leika
aukaleik um titilinn.
í clag verða leiknir þessir fjórir
leikir í íslandsmótinu í körfuknatt
leik:
ÍR - KR. Ungl. fl.
ÍR — ÍS 1. fl.
Á — KFR 1. fl.
ÍS — ÍKF 1 deild.
Ástæða er til að vekja athygli
á fyrsta og síðasta leiknum í dag,
en sá fyrsti er úrslitaleikurinn í
meistaraflokki kvenna, og sá síð-
asti er lokaraunin fyrir ÍS, sem
er í neðsta sæti í 1. deild, en
getur forðað sér frá setu í 2.
deild með því að vinna þennan
leik, jafnframt því að Ármann
HJORTUR HANS-
SON, K.R.
Hjörtur er 20 ára laga-
nemi við Háskólann, 189 cm.
á hæð. Hann leikur vinstri
framherja í KR liðinu, og
Iþrátt fyrir að hann hefur
aðeins æft körfuknattleik að
staðaldri í fimm ár, hefur
hann náð mikilli leikni í
knattmeðferð og körfuskot-
um og er nú orðinn einn
sterkasti leikmaður KR-liðs-
ing, Hann lék sína fyrstu
stórleiki með unglingalands-
liðinu í París 1963, en hef-
ur auk þess leikið 5 lands-
l íeiki.