Alþýðublaðið - 13.05.1967, Side 1
Laugardagur 13. maí 19B7 - 49. árg. 105. tbl. VERÐ 7'KR.
Úrskurður yfirkjörstjórnar Reykjavíkur:
LISTI HANNIBALS
IITAN FLOKKA
Yfirkjörstjórn Reykjavíkur úrskurðaði í gær Iista Hannibals Valdi-
marssonar utanflokka og ákvað, að hann skyldi bera lístabókstafinn
I. Byggist úrskurður þessi á því, að sama stjórnmálaflokki sé ekki
heimilt að hafa fleiri menn í kjöri í Reykjavík en 24. Landskjör
stjórn kom saman til fundar í gærkvöldi en frá henni mun ékki úr
skurðar að vænta um málið fyrr en í dag.
Yfirkjörstjórn Reykjavíkur hélt
tvo fundi í gærdag. Kristján Kristj
ánsson yfirborgarfógeti, oddviti
kjörstjórnarinnar, hafði óskað eft
ir því að varamaður tæki sæti
hans og var það H.rður Þórðarson,
en Páll Líndal var kjörinn oddviti
kjörstjórnarinnar. Á þessum fundi
sem umboðsmenn allra lista höfðu
verið boðaðir til, var ákveðið
livaða listabókstaf allir listarnir
skyldu hafa, nema listi Hannibals
manna, sem ágreiningur stóð um.
Gerðu umboðsmenn listans kröfu
til að hann fenlgi bókstafinn GG,
en umboðsmenn G-listans mót-
mæltu því.
Yfirkjörstjórn kom aftur sam-
an til fundar kl. 3 í gærdag og
birti þar úrskurð sinn um ágrein-
ingsefnið og var úrskurðurinn und
irritaður af öllum yfirkjörstjórn-
armönnum, Páli Líndal, Eyjólfi
Jónssyni, Herði Þórðarsyni, Jón-
asi Jósteinssyni og Sveinbirni
Dagfinnssyni. Segir í úrskurðin-
um, að yfirkjörstjórnin telji að
við mat á úrlausnaréfninu komi
fyrst og fremst „til álita 1. gr.
stjórnskipunarlaga nr. 51, 14. á-
gúst 1959, um breyting á stjórn-
skipunarlögum nr. 33, 17. júní
1944. Þar segir svo í c-lið 1. mgr..,
að á Alþingi „eiga sæti 12 þing
menn kosnir hlutbundinni kosn-
ingu í Reykjavík", en í d-lið seg-
ir, að þar eigi sæti „11 lands-
kjörnir þingmenn til jöfnunar
milli þingflokka, svo að hver
þeirra hafi þingsæti í sem fyllstu
samræmi við atkvæðatölu sína
við almennar kosningar". í 2.
mgr. segir m.a.: „Á hverjum fram
boðslista skulu að jafnaði vera
tvöfalt fleiri menn 'en kjósa á í
því kjördæmi, og skulu varamenn,
bæði fyrir kjördæmakosna þing-
menn og landskjöma, vera svo
margir sem til endist á listanum".
Þótt svo sé til orða tekið, að á
framboðslista skuli ,,að jafnaði"
vera tvöfalt fleiri menn en kjósa
á, virðist ljóst, með hliðsjón af
30. gr. laga nr. 52, 14. ágúst 1959,
um kosningar til Alþiúgis, að átt
er við hámarkstölu.
Nú er yfirlýst markmið umboðs
manna lista Vésteins Ólasonar o.
fl„ samkvæmt gögnum, sem þeir
hafa lagt fyrir yfirkjörstjóm, að
atkvæði, er kynnu að falla á lista,
er merktur yrði GG, nýtist Al-
þýðubandalaginu að fullu við út-
hlutun uppbótarþingsæta, sbr.
119. gr. kosningalaganna.
Á hvorum lista, sem rætt hefur
verið um, em nöfn 24 manna, og
hefur kjörgengi þeirra ekki verið
véfengt. Báðir eru listamir bornir
fram í nafni Alþýðubandalagsins
í Reykjavík eins og áður segir.
Ef fallizt yrði á kröfur umboðs-
manna lista Vésteins Ólasonar o.
fl. leiddi af þvi, að frambjóðend-
ur Alþýðubandalagslns í Reykja-
vík yrðu alls 48. Verður því að
telja þá niðurstöðu andstæða áður
tilvitnuðum ákvæðum stjómskip-
unarlaga og kosningalaga, enda
verður að Iíta svo á, að sami aðili
geti ekki borið frarn iista, einn
eða fleiri, í Reykjavikurkjördæmi
Framhald á 15. síðu.
AVARP
tilstuðningsmannaA-listans
Á rúmlega 50 ára starfsferli sínum liefur Alþýðufíoldiurinn
ávallt átt í fjárhagserfiðleikum vegna nauðsynlegrnr starfs-
semi sinnar. — FIokkurinn hefur stuðzt við fylgi fclks, sem
lítið hefur verið aflögufært um fjármuni. — Þetta hcfur þó
bjargazt með almennri þátttöku stuðningsmanna hans þótt
hver hafi þar ekki látið stóra skammta.
Nauðsynlegur kosningaundirbúningur hefur á siðari ár-
tugum vaxið mjög og krafist síaukins fjármagns. — Það er
á þessu undirbúningsstarfi, sem úrslit kosninganna geta oltið
Þetta gera fjársterkari flokkarnir sér Ijóst og spara þess vegna
í engu allan tilkostnað. Þessum þætti kosningabarýi tunnar
verður ekki mætt á annan veg, en með- almennri fjársöfnun.
Alþýðuflokkurinn fer þess vegna enn einu sinni bónarveg til
allra stuðningsmanna sinna og velunnara og biður þá, hvern
eftir sinni getu, að láta af hendi rakna fé í kosningasjóð flokks
ins.
Fyrir hönd fjáröflunarnefndar munu eftirtaldir aðilar veíta
fé móttöku; Emelía Samúelsdóttir, simi 13989, og skrifstofa Al-
þýðuflokksins í Reykjavík, símar 15020 — 13374.
Fjáröflunarnefnd Alþýðuflokksins í Reykjavík:
Emelía Samúelsdóttir
Gylfi Þ. Gíslason.
Eggert G. Þorsteinsson.
Leitarstöð K.í.
í nýiu húsnæði
Blaðamönnum var í gær boð
ið að skoða nýendurbyggt hús-
næði fyrir leitarstöðvar krabba-
meinsfélaganna, en það hefur ver
ið í undirbúningi síðan í vet-
ur, ásamt ýmsum öðrum endur
Nokkrir af forystumönnum Krabbameinsfélagsins og læknar stöðvarinnar.
bótum á húsinu, svo að nú er
hægt að hefja þar tilætluð störf.
Meðal þeirra verkefna, sem
Krabbameinsfélag íslands hefur
með höndum er rekstur tveggja
krabbameinsleitarstöðva sem um
árabil hafa haft aðsetur sitt í
kjallara hússins, en með auknum
störfum og starfsliði var húsnæð
ið orðið allt of lítið, en nú hef
ur verið bætt úr því.
Eldri stöðin, eða leitarstöð A
eYílÓ ára una þessar mundir. Hún
flytur nú alla starfsemi sína ó
fyrstu hæð hússins ,en auk þess
verður þar rannsóknarstofa fyrir
leitarstöð B, og þar með er
báðum stöðvunum vel séð fyrir
húsnæði.
Læknamir sem fyrstir veittu
leitarstöð A forstöðu voru Dr.
Guðlaugur Snædal og Richard
Thors, en undanfarin ár hefur
Jón Hallgrímsson verið forstöðu-
maður stöðvarinnar og allar rann
sóknir þar hvílt á hans herðum
og ! aðstoðarfólki hans.
Til stöðvar A leitar fólk er
ekki kennir sér meins, en óskar
eftir rannsókn með sérstöku til
liti til krabbameins og hefur stöð
in haft nóg viðfangsefi i„ og aí
óbreyttum aðstæðum var ókleiffc
að auka afköst hennar eða færa
starfssviðið út, en nú verður
þar breyting á með nýja húsnæð-
inu.
i Jón Hallgrimsson læknir, hef
1 ur unnið að því og staðið fyrir
því að taka saman allar rann-
sóknir stöðvarinnar á 10 ára
tímabili og er því verki nú langfc
komið.
Ýmsar veigamiklar rannsóknir
, eru gerðar á þeiný sem leita
! stöðvarinnar, en auk þcirra, sem
i hafa verið framkvæmdar þar áð
ur verður nú bætt við lýsingu
upp í endaþarminn á þoim, sem
þangað leita, en á því svæði, sena
þannig er hægt að rannsaka,
myndast helmingur allra krabba-
meina í þörmum.
Krabbamein í maga myndasfc
frekar í sýrulausum maga, en.
þeim, sem hafa sýrurnar í igóðu
lagi, það er því æskilegt, að rann
saka þá einstaklinga, sem þann
ig er ástatt um með hæfilegu
millibili. Ef ætti að gera það á
hinn fullkomnasta.hátt, kostar það
Framhald á 15. síðu.