Alþýðublaðið - 13.05.1967, Blaðsíða 3
Ný eldisstöð
1 Kollafir
Nefndin, sem undirbjó fundinn. Frá vinstri: Gu'd'-mundur Karlsson, Sigurður Jóhannesson, Siguröur
Helgason, Þórarinuu Sigurðsson, Eggert G. Þorsteinsson, Jón Helgason, Ásgcir Þorleifsson, Hörð'ur jósk
arsson, Ásgeir Björnsson Jónína M. Guðjónsdóttir.
Þeir eru aff merkja laxaseiðin, en nú verffa merkt nær 15 þús. seiði.
Ungir I istamenn
1967 me5 sýningu
FÉLAG íslenzkra myndlistar-
manna hefur ákveffið að efna til
sýningar á verkum ungra lista-
manna í fyrri hluta júní, og verð
ur sýningin nefnd Ungir lista-
menn 1967. Þátttakendur þurfa að
vera yngri en 30 ára, en að öðru
leyti eru þeim engin skilyrði sett.
Fjögurra manna dómnefnd velur
verk á sýninguna, og skipa hana
tveir menn frá félaginu, þeir
Steinþór Sigurðsson og Jóhann
Eyfells, og tveir fulltrúar ungu
kynslóðarinnar, Sigurjón Jóhanns
son og Jón Gunnar Árnason. Sýn-
ingin verður haldin í Listamanna
skálanum og þangað eru ungir
listamenn beðnir að koma með
myndir sínar föstudaginn 2. júní
kl. 4-7. Er þetta í fyrsta skipti,
sem sýnin'g af þessu tagi er hald
in hér á landi.
í Laxeldistöð ríkisins í Kolla-
firði var nýlega tekið í notkun
nýtt eldislhús og hefur því aðstað
an við laxeldi í eldisstöðinni batn
að mikið.
Blaðamönnum var í fyrradag
boðið að skoða stöðina og hið
nýja eldishús, en það er 400 fer-
metrar að flatarmáli, stálgrindar-
hús og á steinsteyptum grunni.
Mestur hluti hússins er eldissalur,
þar sem 40 ferhyrndum eldiskerj
um er komið fyrir ásamt
vatnsleiðslum að kerjunum og frá
þeim. Er ætlunin að nota eldisker
in til þess að ala í laxaseiði á
fyrsta ári.
Eggert
Hörffur
Sigurður
Verkfræðilegan undirbúning.
að byggingu eldishússins gerði
Verkfræðistofan Hönnun í Reykja
vík.
Innkaupastofnun ríkisins bauð
byggingu hússins út. Var samið
við Hvesta h.f. að reisa gmnninn,
Landssmiðjuna um að reisa stál-
grindina og að klæða hana svo
og um raflagnir, en Árni Jóhanns
son, byggingarmeistari, hefur ,séð
um innréttingar 'á skrifstofu og
fleiru. Eídisker í eldissal eru gerð
úr plasti og hefúr Trefjaplast h.f.
á Blönduósi búið kerin til. Eru
þau 2x2m að ummáli og 50 cm að
dýpt. Eftirlitsmenn með bygging-
arframkvæmdunr voru verkfræð-
ingarnir Ásgeir Markússon og
Guðmundur Gunnarsson, sem
jafnframt gerði allar áætlanir.
Kostnaður við byggingu hússins
og útbúnaður er um þrjár milljón
ir króna.
STJÓRNMÁLAKYNNING
Á ÞRIÐJUDAGINN
í Laxeldisstöðinni eru nú um
milljón laxaseiði. Þar af er um
800 þúsund kviðpokaseiði, um 150
þúsund ársgömui seiði og rúm-
lega 50 þúsund tveggja ára seiði,
sem eru tilbúin að ganga í sjó í
vor. Auk þess eru nokkur hundruð
ársgömul sjóbirtingaseiði og um
fimm þúsund bleikjuseiði af ýms-
um stærðum og aldri, allt upp í
fimm pur.da fiska.
Laxaseiðin í stöðinni eru upp-
runnin úr mörgum ám svo sem úr
Stóru-Laxá í Hreppum, Hvítá í
Árnessýslu, Höskuldslæk, Soginu,
Elliðaánum, Leirvogsá, Laxá í
Leirársveit, Laxá í Dölum, Mið-
fjarðará, Víðidalsá og Laxá í Þing
eyjarsýslu. Veiðifélög við nefndar
ár hafa verið svo velviljuð að
láta Laxeldisstöðinni í té laxa-
hrogn á undanförnum árum. Laxa
hrognin hefur svo Laxeldisstöðin
endurgreitt með því að skila aftur
Framhald á 15. síðu.
Stjórnmálakynning Fulltrúaráðs Alþýffuflokksins í Reykjavík
verffur þriðjudaginn 16. maí kl. 8,30 í Ingólfskaffi.
Fulltrúaráðið skipaffi nefnd til að undirbúa fundinn og
fjallaði nefndin um atvinnumál.
Framsögumaður nefndarinnar er Eggert G. Þorsteinsson,
fundarstjóri er Sigurffur Helgason og fundarritari Hörður
Óskarsson. Flokksfólk er hvatt til að sækja fundinn og taka
virkan þátt í umræðum.
Skemmtifund ur
KVENFÉLAG ALÞýÐUFLOKKSINS í Hafnarfirffi heldur
skemmtifund í Alþýðuhúsinu næstkomandi þriöjudagskvöld,
16. maí, kl. 8,30 síðdegis.
SKEMMTIATRIBI:
1. Ávarp: Jón Ármann Héðinsson, viðskiptafræð-
ingur.
2. Upplestur: Frú Hulda Runólfsdóttir, leikkona.
3. Söngur: Guðmundur Guðjónsson, óperusöngvari.
4. Leikþáttur: Róbert og Rúrik.
5. Ávarp: Stefán Júlíusson, rithöfundur.
Kaffidrykkja. — AHt Alþýðuflokksfólk velkomið meðan
húsrúm leyfir.
SKEMMTINEFNDIN.
Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins
Utðnkjörfundðkosning
KOSNINGASKRIFSTOFA ALÞÝÐUFLOKKSINS cr aff Hverf
isgötu 4. Símar 11260 — 10671.
Stuðningsfólk Alþýffuflokksins er beffiff aff hafa sam-
band við skrifstofuna, og gefa henni upplýsingar um það
fólk sem verður fjarverandi á kjördegi.
13. maí 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3