Alþýðublaðið - 13.05.1967, Page 7
150 ÁR
jg^rsbækur Bókmenntafélags-
ins eru nýkomnar út fyrir
árið 1966 og eru að miklu leyti
helgaðar 150 ára afmæli félags-
ins sem minnzt var á því ári
að öðru leyti. í Skírni er birt'
ræða Einars Ól. Sveinssonar á
afmælisdaginn, 30. marz 1966,
og afmælisgrein um félagið eft-
ir Aðalgeir Kristjánsson, en
fylgirit Skírnis þessu sinni er
skrá um efni í tímaritum félags-
ins í 150 ár, sem Einar Sigurðs-
son hefur tekið saman. Af tíma-
ritum Bókmenntafélagsins — ís-
lenzk sagnablöð, Fréttir frá ís-
landi, Tímarit hins íslenzka bók-
menntafélags, Skírnir — er
Skírnir vitaskuld langmestur fyr-
ir sér, hefur nú komið út sam-
fleytt í 140 ár og er þar með
„elzta tímarit á Norðurlöndum”
sem oft er getið. Það kemur raun-
ar fram í formála Einars Sig-
urðssonar fyrir efnisskránni að
þótt árgangar Skírnis teljist 140
eru þeir raunverulega ekki nema
139 þar sem 78di árgangur, 1904,
féll niður. Væri nú ekki ráð að
taka til sömu undanbragða að
nýju þannig að sá Skírnir sem
væntanlega kemur út á næsta
ári verði ársettur samkvæmt því
1968, 142. árgangur? Þetta er
að vísu tómt formsatriði, en ó-
neitanlega er skemmtilegra að
Bókmenntafélagið sé nokkurn
veginn samtíða sér meðan það
er á lífi. Vonlítið virðist' hins
vegar að vinna upp á einu ári
rótgróna tímatöf útgáfunnar.
gfnisskrá tímarits Bók-
mennt'afélagsins er allmik-
ið rit að vöxtum, nær 300 bls.,
og verður ómetanlegur lykill að
þessum ritum öllum þeim sem
vilja reyna að hafa þeirra ein-
hver not. Meginkaflar hennar
eru höfundaskrá, efnisskrá eftir
OG EINU BETUR
[
flokkum, og skrá um ritdæmd
ar bækur sem ekki er minnst' um
vert þó Skírnir sé raunar ekki,
og sízt í seinni tíð, slíkt heim-
ildarrit um samtíðarbókmenntir
sem vert væri. Þá er skrá um
mannamyndir í ritum, ritstjóra
þeirra og ritnefndarmenn, og
Einar Sigurðsson ritar glöggan
formála um útgáfu tímaritanna.
Hins vegar vantar skrá um út-
gefnar bækur Bókmenntafélags-
ins sem fengur væri að fá sér-
staklega við tækifæri og væri
enda hið sæmilegast'a afmælisrit
ein sér.
Þeir víkja að því báðir í af-
mælisgreinum sínum, Einar Ól.
Sveinsson og Aðalgeir Kristjáns-
son, að það sé nærtækt verkefni
Bókmenntafélaginu að gefa út
að nýju ýms fyrri rit sín sem
upp eru gengin; en félagið hefur
raunar þegar farið út á þessa
braut með ljósprentun á íslenzk-
um gátum, þulum og skemmtun-
um Ólafs Davíðssonar. „Einkum
væri þörf að fylla eyður Skím-
is, Safns til sögu íslands og
Fornbréfasafns,” segir Einar í
sinni grein. Það er líklegt að
margur vildi eiga Skírni heilan,
minnsta kosti frá 1905 þegar
„nýi-Skírnir” hefur göngu sína,
og væri varla mikið átak að ljós-
prenta þá árganga sem í vantar,
en hitl mikið stórvirki að gefa
Skírni allan út að nýju, ef á-
stæða þætti til þess. Þá má vera
að Tímarit Hins íslenzka bók-
menntafélags þætti enn eigulegt
rit, en af því eru þrotnir níu
fyrstu árgangarnir; annað mun
enn vera fáanlegt'. En þótt slíkar
og ýmsar aðrar ljósprentanir
væru girnilegar virðist fráleitt
að endurútgáfa eigin rita verði
aðal-verkefni Bókmenntafélags-
ins á næstunni. í slík verkefni er
vert að ráðast aukalega séu þau
líkleg til að svara kostnaði og
þó helzt skila félaginu einhverj-
um ágóða. Vilji félagið halda
lífi er sannarlega vert að sinna
einhverjum öðrum efnum en
sinni eigin fortíð og hugsa um
fleira en fleyta sér áfram frá
ári til árs.
En því er ekki að leyna að
nokkurrar svartsýni virðist gæta
um framtíð Bókmenntafélagsins
á þeim tímamótum sem 150 ára
afmælið markar; það eitt kann
að vera nokkur hrumleiksvottur
hve samhljóða efnislega og sam-
dóma í mati sínu á hag félagsins
afmælisskrifin um það eru. Víst
má segja að gengið hafi af félag-
inu vegur og virðing með aldr-
inum ef miðað er við stöðu þess
í íslenzku menningarlífi á öld-
inni sem leið. Einar Ól. Sveins-
son rekur fróðlega í sinni grein
ýms verkefni félagsins frá fyrri
tíð sem aðrir aðilar hafa nú tek-
ið við og eru enda betur til falln-
ir að sinna. Bókmenntafélagið
þarf ekki lengur að gefa út al-
þýðleg fræðirit um hvaðeina né
fást við þau fræði, svo sem
málfræði og sögu, sem eiga eig-
in málgögn, né Skírnir að flytja
fréttir heim eða heiman. Starfs-
svið félagsins er hins vegar
skýrlega markað af nafni þess:
verkefni þess er að fást við
rannsóknir íslenzkra bókmennta,
íslenzka bókmenntasögu að
fornu og nýju, og halda úti
Skírni sem dugandi málgagni
þessara fræða; og á þessu sviði
er sannarlega nóg að vinna. Fé-
laginu mun nú ofviða eins .og
fjárhag þess er komið að gefa
út stór og kostnaðarsöm fræði-
rit; en ekkert virðist raunar því
til fyrirstöðu að slík verk verði
enn unnin í nafni félagsins þó
þau væru kostuð sér á parti, af
ríkisfé eða með framlagi ein-
hverra annarra aðila. Eins og
högum þess er háttað virðist
félaginu nóg verkefni að gera
Skírni nógu myndarlega úr garði
og koma árlega út með lionum
öðru riti sérstöku; en þeirri út-
gáfu þarf að vísu að móta miklu
ákveðnari stefnu og taka hana
fastari tökum en undanfarið.
Jafnvel til þess kann félagið að
þurfa við rýmri fjárráða en það
nú hefur.
gkírnir 1966 er sviplíkur því
sem hann hefur verið und-
anfarin ár. Auk afmælisgrein-
anna sem fyrr var getið er að-
alefni ritsins greinar um sögu-
leg efni eftir Björn K. Þór-
ólfsson, Magnús Má Lárusson og
Bergstein Jónsson, en eiginleg
bókmenntarannsókn er aðeins
ein í Skírnj þessu sinni, sem er
að vísu meira en stundum áður,
ritgerð um Kormák skáld og vís-
ur hans eftir Einar ÓI. Sveins-
son. Auk þess er kynningargrein
um Indriða G. Þorsteinsson eftir
Njörð P. Njarðvík og skemmti-
leg ritgerð eftir Stefán Einars-
son um „ónáttúru og afskræm-
ing í dróttkvæðum og tízkulist
Piccassos” þar sem allténd er
gripið á forvitnilegu efni; gæti
það eitt orðið ýmsum yngri
„fornfræðingum” okkar til eftir-
dæmis. Ritdómar Skírnis eru
kapítuli fyrir sig. Undanfarin
ár virðist hafa verið venja að
reyna að geta nokkurra helztu
rita á sviði íslenzkra fræða ár
hvert' en skáldskapardómar hafa
setið á hakanum. Virðist þó
skylt verkefni rits á borð við
Skírni að geta árlega helztu
skáldskaparverka sem út hafa
komið auk allra rita sem máli
skipta um fræðin. í ár er rit-
dómaþátturinn fátæklegri en
nokkru sinni. Einasta skáldrit
sem Skírnir telur vert ýtarlegr-
ar umgetningar er Fagur er dal-
ur Matthíasar Johannessens (Er-
lendur Jónsson) en aðrir ritdóm-
ar hans um bækur handrita-
stofnunar (Helgi Guðmunds-
son) Gest Pálsson eftir Svein
Skorra Höskuldsson (Richard
Beck), Lýði og landshagi Þor-
kels Jóhannessonar (Guðni
Jónsson) eru ekki nema efnis-
ágrip þessara rita, en smágrein-
ar Gunnars Sveinssonar um tvær
bækur ekki neitt neitt. Slíkar
„ritfregrtir” í kynningarskyni
eru ástæðulausar í Skírni. En
af honum verður að ætlast til
ýtarlegrar, ábyrgrar umræðu um
viðfangsefnin sem hann tekur
fyrir, mats á skáldskap og fræð
um sem stutt sé raunhæfum rök-
um.
Ritdómar Skírnis eru til
marks um það hvernig ritið hop-
ar undan eiginlegu vi'ðfangsefni
sínu: bókmenntum og rannsókn
þeirra. Og þótt ástæðulaust sé
að vanþakka efni Skírnis upp og
ofan er stefnuleysi ritsins um-
kvörtunarefni; það er engin á-
stæða til að hann láti sér nægja
tilfallandi ritsmíðar héðan og
þaðan af víðum vettvangi ís-
lenzkra fræða heldur hlýtur
hann að ætla sér sitt' eigið fræða-
svið og fjalla statt og stöðugt
um það. Áður fyrr kann Skírn-
ir að hafa átt hlutverki að gegna
sem alþýðlegt fræðirit um allt
sem íslenzkt er og þaðan af meira
efni. Nú yrði hann áreiðanlega
þá þarflegastur ef honum væri
einbeitt að íslenzki-i bókmennta-
sögu og bókmenntalegum rann-
sóknum, sjálfgefið málgagn
þeirra sem við þessi fræði fást,
en fjallaði ekki um önnur fræði
nema sem hjálpargreinar þess-
ara. Slík efnisstefna mundi ef
rétt væri á haldið gera Skírni
ómissandi rit öllum áhugamönn-
um um íslenzkar bókmenntir,
lærðum sem leikum, enda væri
eftir sem áður óþarfi að hafa
ritið svo tyrfið eða „fræðilegt”
að það væri óaðgengilegt al-
mennum lesendum bókmennta.
Og með þessu móti ættu Skírnir
og Bókmenntafélagið enn sem
fyrr ærnu hlutverki að gegna í
menningarlífi þjóðarinnar. ;
,,| hinu virðist mér Bók-
menntafélagið ekki geta
verið að standa,” segir Einar
Ól. Sveinsson í ræðu sinni á af-
mæli félagsins, „þó að blöð eða
tímarit vanræki að segja frá út-
lendum efnum. Þeir sem taka
að sér útlend efni sinni þeim,
og þá er um að saka, ef einhvers
þykir í vant fræðsluna.”
Þetta er vísast satt og rétt,
Framhald á IfO. síðu.
--K 1 - r-3
Í|j
m
S.K I R \ I 5{,
iiói, \11
m
\\ TIOIMM
IIINs Í n | | \ / K \
\ i \ i ki. \r,s.
<->55
IM I AliC I \ M.l\..
tv<>i
w
Pi
iT'Manswiiui'N, is:r
2*! .........
-c- •'• . v.'j,]
■osa !1
'\Jth i
1É •!
l\rP ' i
ivái
SKÍRNJR
TI0INÐI
IUNS ISI.F..N/KA UvKMI NN.I'Al ÍMCá-
1890.
pM
S K í R N I R
I í MARIT
IJINS I Sl.KN/.KA HOKMI.NNTAI Í.I.AGS
J Hl. ÁK 1 Mti(i
BIT>rrjftRI
IIAI.J.1)011 11A I.I.UOllSSON
HÍ .VK lAVlk -- !.*)<,»>
13. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ J
i