Alþýðublaðið - 13.05.1967, Side 8
KASTLJÓS
GRÍSKIR HERFORINGJAR
TREYSTA SIG í SESSI
EFTIR byltingu hersins í
Grikklandi 21. apríl létu nýju
valdhaíarnir í það skína, að
horfið yrði aftur til eðlilegra
stjórnarhátta eftir nokkurn að-
lögunartíma og þegar gerðar
hefðu verið vissar breytingar
sem tryggja mundu styrka stjórn
í landinu. Herforingjarnir
sögðu, að því færi fjarri að þeir
hefðu pólitískan metnað og
kváðust hafa tekið völdin í
sínar hendur, þar sem þeir
hefðu „ekki getað sætt sig við
Þótt Konstantín Kolias, fv.
saksóknari, sé forsætisráðherra.
nýju stjórnarinnar í Grikklandi
virðast þrír herforing-jar hafa
öll raunveruleg völd í sínum
höndum. Þeir eru Georg Pap
andopoulos ofursti, sem er að-
stoðarráðherra forsætisráðherr
ans, Nicholas Makazeros of-.
ursti, sem fer með mál er
varða samræmingu á sviði
efnahagsmála, og Stylianos
Pattakos hershöfðingi, sem sést
hér á myndinni, en hann er
innanríkisráöherra. Þcssir her-
foringjar eru allir á svipuðum
aldri, Papapoulos er 48 ára,
Makazeros 47 ára og Pattakos
53 ára gamall.
að haldnar yrðu kosningar, sem
enga lausn mundu hafa í för
með sér, eða koma til valda
nokkurri þeirri ríkisstjórn, sem
þjónað gæti hagsmunum lands
ins.“
Fáir munu hafa tekið þá yfir
Iýsingu herforingjanna, að þeir
yrðu ekki lengi við völd, há-
tíðlega, þar sem reynslan hefur
sýnt, að auðveldara er að ræna
völdunum en að losa cig við
þau á eðlilegan hátt. Ekkert
bendir til þess, að grísku her-
foringjarnir hafi enn sem kom
ið er að minnsta kosti í hyggju
að leggja niður völdin. Með
hverjum deginum sem líður
verður ljósara, að þeir hafa á
prjónunum víðtækar áætlanir
um að koma á breytingum eft-
ir eigin höfði.
Markmið herforingjanna eru
óljós. Þeir tala um að byggja
verði upp nýtt þjóðfélag, þar
sem „heilbrigði" ríki á öllum
sviðum, í stjómmálum, efna-
hagsmálum, landbúnaðarmálum
o. sv. frv. Til að ná þessu marki
verður að útrýma allri ,spill-
ingu“, segja herforingjarnir.
Þeir hafa reynt að koma sér í
mjúkinn hjá kirkjunni og höfð
ingjum hennar, og með því að
hrinda í framkvæmd umbótum,
sem ráðgerðar voru áður en
þeir brutust til valda, reyna þeir
að afla sér fylgis meðal hinna
fátæku landbúnaðarverkamanna,
sem eru fjölmennir.
□ Gamlar aðferðir.
Ráðin, sem beitt eru til að
breyta þjóðfélaginu, eru kunn
úr öðrum einræðisríkjum.
□ Þaggað er niðri í stjórnar
andstöðunni. Yfirvöldin hafa við
urkennt að þúsundir pólitískra
andstæðinga hafi verið hand-
teknar eða settar í gæzluvarð-
hald.
□Stjórnmálafélög hafa verið
leyst upp. Bönnuð hefur verið
starfsemi rúmlega 260 verka-
lýðsfélaga, íþrótta- og menning
arfélaga, er standa í tengslum
við vinstrisinnaða stjórnmála-
flokka, og eignir þeirra hafa
verið gerðar upptækar. Öll póli
tísk æskulýðsfélög hafa verið
leyst upp. Einn stjórnmálaflokk
ur (EDA-flokkurinn, „dula“
kommúnista), hefur verið bann
aður, en hinum stjórnmála-
flokkunum hefur verið gert það
ókleift að starfa, þar sem skjala
söfn þeirra, spjaldskrár og eign
ir aðrar hafa verið gerðar upp-
tækar.
□ Málfrelsi hefur verið skert.
Helmingur allra dagblaða í
Aþenu hætti að koma út þegar
byltingin var gerð. Erlendir
blaðamenn, sem gagnrýna her-
foringjastjórnina í fréttaskeyt-
um, eru reknir úr landi.
□ Sjálfsforræði bæjar-_
sveitar- og fylkisstjórna hefur
verið leyst upp.
Allar þessar ráðstafanir hafa
verið gerðar á tveimur vikum
og samkvæmt heimild í neyðar
ástandslögum, sem lýst var yfir
skömmu eftir byltinguna. En
herforingjarnir geta ekki til
lengdar stjórnað með slíkum lög
um. Þess vegna hafa þeir ráðizt
á stjórnarskrána og skipað tutt
ugu manna nefnd til að breyta
henni í samræmi við hið nýja
ástand, sem ríkir.
Þegar hefur verið tilkynnt,
að meðlimum þjóðþingsins verði
fækkað um helming, úr 300 í
150. Herforingjarnir og áhang-
endur þeirra munu að sjálf-
sögðu sjá sér mikinn hag í því
að menn sem þeir sætta sig við
séu tilnefndir frambjóðendur og
kosnir á þing.
□ Mótmæli í rénum.
Herforingjarnir hafa náð völd
unum með valdbeitingu og
treyst einræðisstjórn sína í
sessi án nokkurra verulegra
blóðsúthellinga í landinu og líf
ið gengur sinn vanagang að því
er virðist í Grikklandi.
Stjórninni hefur einnig farn
azt vel í utanríkismálum. Mót-
mæláaldan, sem byltingin olli
fyrstu dagana, er í rénum. Sam
Framhald á 15. síðu.
Úr revíunni: frá vinstri: Bjarni Steingrímsson, Arnar Jónsson og Sve;
Revíuleikhúsið:
ÚR HEIÐSKÍRU LOFTI
Leikstjóri: Kevin Palmer
Búningar og tjöld: Una
Collins
Dansatriði; Þórhildur Þor-
leifsdóttir
Höfundar: Jón Sigurðsson
og fleiri
Ekki fór það svo að aldrei
reyndist neitt gaman lengur að
revíum í Reykjavík; það er þó
mála sannast að þvílíkar skoptiÞ
raunir ,,í borginni” hafa um langt
skeið verið harla fátæklegar.
Einmitt vegna þeirrar reynslu kom'
ný revía sem nokkrir ungir leik-
arar sýndu á miðnætursýningu í
Austurbæjarbíó á miðvikudags-
kvöld ánægjulega á óvart, vakti
hlátur og kátínu og varð til
meiri skemmtunar en maður
vænti sér fyri'rfram.
Revían Úr heiðskíru lofti hefr
EINHVERS STAÐAF
ÁRUM saman hafa embættis-
menn í Vestur-Þýzkalandi verið
sammála um, að þrír fyrrverandi
þrælabúðalimir frá Austur-Evr-
ópu, sem setið hafa í fangelsi í
Vestur-Þýzkalandi síðan þeir
voru dæmdir af amerískum her-
rétti árið 1946, skyldu látnir laus
ir þegar í stað — með því skil-
yrði, að þeir væru sendir til
heimalands síns. Þessi mildi hef-
ur þó sína hundingjahlið.
Síðar í þessum mánuði munu
koma saman tveir lögfræðingar
— annar þýzkur en hinn amer-
ískur — til að kanna enn á ný
mál fanganna þriggja, sem allir
vilja sleppa úr haldi, en enginn
vill taka við. Þessi endurskoðun
málsins kemur þó ekki til með
að hafa neitt gildi, nema því að-
eins að einhver vilji taka ábyrgð
á framtíð þeirra.
BLÓÐBAÐIÐ
Sagan hófst 20. nóvember 1945
er hópur af heimilislausu fólki,
aðallega Pólverjum, réðist inn á
bóndabæ nálægt Bremen. Er þeir
höfðu rænt öllu í húsinu, ráku
þeir íbviana niður í kjallara og
skutu þá alla til bana, nema
einn.
Sá, sem af komst, Wilhelm
Hamelmann, slapp með því að
látast vera dauður, og hefur síð-
an sýnt merkileigan, kristilegan
kærleika með því að bjóðast til
að ættleiða einn af hinum þrem-
ur mönnum, sem lögum sam-
kvæmt eru allir ábyrgir fyrir því
að hafa drepið konu hans, börn
MUNIÐ KAPPREIÐAR FÁKS Á SKEIÐVEL
g 13. maí 1967
ALÞYÐUBLAÐIÐ