Alþýðublaðið - 13.05.1967, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 13.05.1967, Blaðsíða 11
l=Ritsfióri Örn Eidsson l Laugaskóli — íþróttami istöð Þingeyinga, Árangursrík starfsemi Héraðssambands S. Þing. Óskar Ágústsson var endur- kjörinn form. sambandsins ist til um, að sett' verði bann við tóbaksauglýsingum." „Aðalfundur HSÞ haldinn 6. og 7. maí 1967, lítur svo á, að Lauga skóli sé sjálfkjörin miðstöð fyrir 54, ársþing HSÞ var haldið 6. og 7. maí 1967 í félagsheimili Reykhverfinga að Hveravöllum í boði umf. Reykhverfinga. Mættir voru fulltrúar frá öllum sambands félögunum 11 að tölu að undan- skildu einu félagi. Gestur þings- ins var Brynjar Halldórsson for- maður Ungmennasambands Norð ur-Þingeyinga. Formaður HSÞ, Óskar Ágústs- son setti þingið og skipaði þing- forseta þá Þórð Jónsson, Laufa- hlíð og Jón Á. Sigfússon, Víkur- nesi og ritara þá Gunnlaug Tr. Gunnarsson, Kasthvammi og Ósk- ar Sigtryggsson, Rey.kjarhóli. Óskar Ágústsson flutti skýrslu sambandsins, sem lögð var fram prentuð. Ljóst' var af skýrslu stjórnar að starfsemi sambands- ins hafði verið mjög margþætt og umfangsmikil og kostað mikla fyr irhöfn og mikið fé. Arngrímur Geirsson ias og skýrði reikninga sambandsins. Voru niðurstöðutöl- ur rekstrarreiknings um 510.000 krónur, en rekstrarhalli var: rúm- ar 26 þús. kr, eignaaukning var rúmar 37.000 kr. Mikill áhugi ríkti á ársþinginu fyrir málefnum sam- bandsins og félaganna. Margar samþykktir voru gerðar og eru þessar helztar: „Aðalfundur HSÞ haldinn 6. og 7. maí 1967 samþykkir að heimila stjórninni að ráða framkvæmda- stjóra, eftir því sem efni og að- stæður leyfa.“ „Aðalfundur HSÞ, haldinn 6. og 7. maí 1967, lýsir sig fylgjandi frumvarpi Alfreðs Gíslasonar um bann við tóbaksauglýsingum, sem fram kom á síðasta þingi, og skor- ar á hið háa Alþingi, að það hlut- starfsemi HSÞ. Fundurinn lýsir undrun sinni og óánægju yfir því, hve litlar eru fjárveitingar til stofnfram- kvæmda Laugaskóla undanfarin ár, einkum ef samanburður er gerður við aðra héraðsskóla. Skor ar fundurinn á fjárveitingavaldið að rétta hlut Laugaskóla og veita á næstu árum ríflegar fjárhæðir til uppbyggingar staðarins.“ „Aðalfundur HSÞ, haldinn 6. og 7. maí 1967, samþykkir að stofna sérstakan sjóð af fé því, sem inn kann að koma vegna æfingagjalda. Tekjum sjó'ðsins skal varið til þess að jafna aðstöðu íþróttamanna til að sækja æfingar. Sjóðurinn skal ÍA-ÍBH leika í Litlu bikarkeppn- inni í dag / r I dag kl. 4 fer fram á Akranesi síðasti leikur Litlu bikarkeppn- innar og mætast þá Akurnesingar og Hafnfirðingar. Ef Akurnpsing- um tek9t að sigra, eru þeir jafnir Keflvíkingum að stigum og verða því að leika aukaleik. Boðhlaupssveit kvenna úr HSÞ 1966. starfa samkvæmt reglugerð sem samþykkt verði af aðalfundi sam- bandsins.“ Eftirfarandi íþróttamót á veg- um sambandsins í frjálsum íþrótt um voru ákveðin: Drengjamót 25. júní, héraðsmót 8. og 9. júlí, úr- slitakeppni í unglingakeppni IISÞ 11. ágúst og tugþraut 2. og 3. sept. Ennfremur voru ákve'ðin héraðs- mót í knattspyrnu og sundi. Úr stjórn sambandsins áttu að ganga Óskar Ágústsson, Sigurður Jónsson og Vilhjálmur Pálsson en voru allir endurkjörnir. Stjórn HSÞ er þannig skipuð: Óskar Á- gústsson, formaður, Vilhjálmur Pálsson varaformaður, Sigurður Jónsson ritari, Arngrímur Geirs- son gjaldkeri og Stefán Kristjáns- son meðstjórnandi. Sænska körfuknattleikssamband- ið hefur. ákveðið að halda nám- skeið fyrir körfuknattleiksþjálf- ara í Stokkhólmi dagana 18. til 22. júní n.k. Einn af beztu þjálf- urum Rússa mun verða meðal kennara á námskeiðinu. Sænska körfuknattleikssamband ið býður 5 þjálfurum frá íslandi til að taka þátt' í námskeiðinu og verður dvalarkostnaður greiddur af Svíum. Er hér um einstakt tækifæri að ræða fyrir íslenzka körfuknattleiksþjálfara og/eða í- þróttakennara til að kynna sér nánar körfuknattleiksþjálfun. Þeir, sem áhuga hafa á þátttöku eru beðnir aff hafa samband við skrifstofu ÍSÍ eða Helga Sigurðs- son formann Útbreiffslunefndar Körfuknattleikssambands íslands í síma 41945 jyrir 20. þessa mánað- ar. Leiðrétting I frásögninni af Sambandsráffs- fundi ÍSÍ um síffustu helgi féll niffur nafn Jens Guðbjörnssonar, fulltrúa Reykjavíkur. Viff biðjum Jens afsökunar á mistökunum. TRYGGING ER NAUÐSYIM 1 slifsa- og ábqrgða- trggging eitt simtal og pér eruð tryggður ALMENNAR TRYGGINGAR f PÓSTHÚSSTRí SÍMI 17700 nri 9 AÐALFUNDUR Aðalfundur Hagtryggingar hf. í Reykjavík árið 1967 verður haldinn í veitingahúsinu Sig túni, Reykjavík, laugard. 20. maí og hefst kl. 14.30. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 15. grein samþykktar félagsins. 2. Lögð fram tillaga félagsstjórnar um hlutaf j áraukningu. Aðgöngumiðar að fundinum og atkvæðaseðl ar verða afhentir hluthöfum eða öðrum, með skriflegu umboði frá þeim, í skrifstofu félags ins að Eiríksgötu 5, Reykjavík, dagana 17. til 20. maí n.k. á venjulegum skrifstofutíma. Stjórn Hagtryggingar hf. 13. maí 1967 ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.