Alþýðublaðið - 05.07.1967, Side 2

Alþýðublaðið - 05.07.1967, Side 2
Viðræðum Pod gornis lokið Moskm 4. 7. (Reuter-NTB) NIKOLAJ Podgorni, forscti Sov- étríkjanva, er nú á leið heim til Moskvu cftir ferð sína til Sýr- lands og íraks, þar sem hann ræddi ‘við valdamenn um sameig- iniegt -átak til þess að fá ísraels- menn til þess að yfirgefa þau svseði, sem þeir hertóku i styrj- vldinni við Araba. Franski for- sætisráðherrann, George Pompi- dou, sem er í opinberri heimsókn i Sovétríkjunum, ræddi í dag við Aleksej Kosygin, forsætisráð- herra í Kreml. Kosygin sagði í ræðu, sem hann hélt í hádegis- verðarboði í franska sendiráðinu í Moskvu í dag, að stjórnir Sovét- ríkjanna og Frakklands séu sam- mála í öllum atriðum, að því er varðar Víetnam og deilu ísraels- manna og Araba. í einstökum öðrum málum séu stjórnir ríkj- anna ekki algjörlega sammála ennþá, — en fullur skilningur rílci á sjónarmiðum livors annars, — cinnig í þeim málum. vestanlands Síldþeiði er er mjög góð við SuO-Visturland nú og betri en mörg índanfarin ár. Það var í síð- ustu ifiku, sem bátarnir byrjuðu að-fá þíld og hefur veiðin haldizt jöfn siðan. Aðallega eru það Vest mamiqeyjabátar, sem stunda veið- ar þarna, ásamt bátum frá SuQur- nesjurb. Einnig hafa nokkrir bát- ar koihið að austan, til þess að taka þiílt í veiðum liér syðra. Þar fsem stærsta síldarbræðslan í Vesttnannaeyjum brann í vetur, geta Vestmannaeyingar ekki veitt síldinríi móttöku. Leituðu bátarn- ir því fyrst til Þorláksh. en allar -jjrær þar fylltust í síðustu viku, og siðan til Sandgerðis, Grinda- víkur, Keflavíkur, Hafnarfjarðar, Reykjavíkur og Akraness. í gær gátu síldarvinnslustöðvar á öllum þessum stöðvum ekki tekið við meiru, svo að bátarnir liafa ekki í annað hús að venda en Aust- -firði, ef veiðarnar haldast jafn- iniklar og nú. Síldin sem veiðist er smá og fer öll i bræðslu. Hefur það valdið síidarvinnslustöðvum erfiðleikum hve erfitt er að vinna síldina. Kosygin sagði, að þetta leiddi til þess að gera mætti sér vonir um mikla samstöðu í tilraunum til þess að finna framtíðarlausn þessara vandamála. Forsætisráðherrann lagði á- herzlu á' það, að viðræður franskra og sovézkra leiðtoga hefðu leitt í ljós gagnkvæmar óskir þjóðanna um aukin vináttu- tengsl, - enda væri sovézka þjóðin meira en fús til að styrkja tengsl Sovétríkjanna og Frakklands. Pompidou sagði í sinni ræðu, að rædd hefðu verið mikilvæg al- þjóðamál og ýmsar hliðar fransk- sovézkra samskipta. — Pompidou sagði, að. viðræðurnar hefðu ver- ið gagnlegar og þótt stjórnir land- anna væru ekki sammála á ölium sviðum, — virlist svo sem auðvelt væri að komast að samkomulagi um öll mikilsverð atriði. — Ég tel þetta merki þess, að skoðanir okkar séu raunsæjar, sagði Pom- pidou. Couve de Murville, utan- ríkisráðherra, var í ferðinni með Pompidou. Helsingfors, (NTB-Reuter), TVEIR ungir Hollendingar, sem hafa selt maríjuana í Finnlandi hafa verið teknir höndum þar. Áður en þeir komu til Finnlands höfðu þeir haft viðdvöi í Dan- mörku og Svíþjóð. Caronia í góðu veðri Skemmtiferðaskipið Caronia frá Cunard skipafélaginu var hér í gær og aldrci þessu vant rigndi ekki á hana. Farþegar roru aðallega amerískir og sltoðuðu þeir bæ’nn að vanda og fóru eitthvað um umhverfið. BANDALAG ISLENDINGA I NORÐUR-ÞÝZKALANDI Á ÞJÓÐHATÍÐARDEGI Islend- inga, 17. júní s. 1. komu saman nálega 50 íslendingar víðs vegar að úr Norður-Þýzkalandi á lieim- ili Franz E. Siemsen, ræðismanns Nýr bátur til Hafnarfjarðar Skipið er byggt hjá Kaarbös Mek Verksted A/S í Harsíad, en umboðsmenn þess á íslandi eru Eggert Kristjánsson & Co. h.f. Eigandi skipsins er Einar Þorgils- son & Co. h.f., Hafnarfirði. Skipið er byggt í Det Norske Veritas klasse 1-A-llSC fyrir út- hafsfiskiskip og eftir reglum skipa skoðunar ríkisins. Lengd skipsins er 41,26 metrar, breídd 7,80 metr- ar og dýpt 3,93 metrar og er að öllu leyti byggt úr stáli og alumin ium. Skipið er byggt sem alhliða fiskiskip, en þó aðaláherzla lögð á það sem síldveiðiskip og línu- og netveiðiskip. Teikningar eru allar gerðir af Kaarbös Mek Verk sted A/S og er það árangur af endurbættum teikningum, sem áð- ur hafa verið byggðar fyrir íslend inga, svo sem “Jón Kjartansson”, “Höfrungur III”, “Jón Garðar” og “Gísli Árni”. Það er íbúðarpláss fyrir 17 menn og eru allir lúkarar afturí. Lúkar- arnir eru mjög rúmgóðir fyrir einn og tvo menn og útbúnir með þægilegum og viðfelldnum litum. Eftirfarandi tæki eru í skipinu: Aðalvél er Wiehmann 6ACAT 900 HK v/350 snúninga á mínútu. Tvær hjálparvélar af MWM Mann heim-gerð, 83 hestöfl v/1000 snún inga á mínútu og er við það tengd- ur rafmagnsrafall, 65 KVA., en rafmagnið er 220 volta riðstraum ur. Einnig er hafnarljósavél af Lister Blackstone-gerð 15 hestafla. Tvær hliðarskrúfur eru á skipinu frá Ullstein Mek. Verksted A/S, hvor 75 hestafla. Framan á aðal- mótor er “centralgear”, sem gefur kraftúltak alit að 400 HK, en frá' honum eru tekin aflúttökin fyrir hliðarskrúfur, spilútbúnað og kraft blökkina. Dráttarspilið er Kaarbös Mek. Verksted A/S spil, týpa SN US 17-540-100 og er það staðsett langskins bakborðsmegin. Sömu- leiöis cr línuspil, bomsvinger, kap •‘•an ps ankervins í sjk’ninu er Triplex krnftblökk frá P. Björs- hol Mek, Verksted, ásamt færslu- Framhald á 15 síðo íslands í Lubeck. Tilefni þessarar samkcmu var tvennt, annars veg- ar að lialda daginn hátíðlegan og hins vegar stofnun Bandalags ís- lendinga í Norður-Þýzkalandi (Hamborg, Bremen, Niedersachs- en og Schleswig-Iíolsiein). Aðal- hvatamaður að stofnun bandalags ins var Franz E. Siemsen og hafði hann allan veg og vanda af und- irbúningi stofnuninnar svo og sam koir.unnar, en ákveðið hafði verið á íslendingamóti í Lubcck 26. nóv. s. 1. að koma bandalagi þessu á fót. Tilgangur bandalagsins er að vinna að aukinni kynningu og samheldni meðal íslendinga á fyrr nefndu svæði, svo og sameigin- legum hagsmunamálum þeirra, en í bandalaginu eru nálægt 100 fé- lagsmenn. Fyrstu stjórn bandalagsins skipa: Franz E. Siemsen, Ltibeck, formaður; varaformaður, Einar Þ. Ásgeirsson frá HAFÍS, félagi ís- lendinga í Hannover; ritari, Mar- geir R. Daníelsson frá FÍSÍK, fé- lagi íslendinga í Kiel; gjaldkeri, Magnús Þ. Magnússon frá JÖKLI, félagi íslendinga í Braunschweig; spjaldskrárritari, Liselotte Qdds- dóttir, Hamborg, fulltrúi einstakl- inga á bandalagssvæðinu, meðstj. Ólafur Þ. Jónsson frá HANSA, fé- lagi íslendinga í Liibeck og Jakob Yngvason frá Fél ísl. í Göttingen. Endurskoðandi er Gylfi C-uð- mundsson. Hamborg. Þar sem eigi hefur náðst til allra íslendinga á bandnlagssvæð- inu, beinir stjórnin þeim tilmæl- um til þeirra íslendinga, sem eigi hafa haft vitneskju um stofnun bandalagsíns. að 'snúa sér til Franz E. Siemsen, en heimilisfang hans er 24 Lubeck, Postfach 1938, Deutschland. Áður en fundur hófst, flutti Freysteinn Sigurðsson, Kiel, á- varp í U’e?m da'’s>ns og stiórnaði hann einnig fundi. A3 löknum fundi, sátu fundarmenn góðan fagnað hiá þeim hjónum Franz og Loré Siemsen. 2 5. júlí 1967 ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.