Alþýðublaðið - 05.07.1967, Side 8
FYRIR tíu 'árum var nafn henn-
ar stöðugt í æsifréttum blaða
úti um allan heim. Sonali Das
Cupla, önnur konan, sem yfirgaf
eiginmann sinn og barn af ást
til ítals'ka kvikmyndastjórans
Roberto Rossellini. Áður hafði
Ingrid Bergman gert slíkt hið
sama og hlotið hörð ámæli fyrir.
Og nú var hjónabandi þeirra að
verða lokið og Sonali komin í
staðinn.
Hún var gift indverska leik-
stjóranum Ilari Das Cupta og
FER SONALI AFTUR
TIL INDLANDS
átti með honum tvo syni. — Sá
eldri varð eftir hjá föður sínum,
en þann yngra tók hún að sér
til Rómar. Þetta varð mikið
hneyksli, því að einmitt um þær
mundir var fólk búið að fyrir-
gefa Ingrid Bergman og Rossel-
lini og taka þau aftur í sátt við
samfélagið, en þá kom Sonali-
ævintýrið eins og sprengja, og
Ingrid Bergman hélt á brott frá
ítalíu.
Sonali hefur búið með Rossel-
lini síðan í Róm og þau eíga
níu ára dóttur, Raffaellu. Sonali
er þrjátíu og níu ára og Rossel-
lini sextíu og sjö. En auk anna
sinna við heimilisstörf og barna
uppeldi rekur Sonali indverska
verzlun. sem hefur á boðstólum
alls k.vns listiðnaðarvörur, skart-
gripi og dýrindis silki frá Ind-
landi. Og hún skrifar greinar í
indversk blöð um lífið á vest-
urlöndum.
Enda þótt Sonali sé fíngerð
’kona í útliti og hæglát í fram-
komu, er hún eina manneskjan,
sem liefur tekizt að koma ein-
hverju skipulagi á ringulreiðina
í lífi Rossellinis. Öll fjölskyldan
elskar hana og dáir, og það er
*
stór fjölskylda — ættingjarnir
eru næstum óteljandi, og svo
eru börn Rossellinis af tveim
fyrri hjónaböndum og barna-
börn. Börn Ingrid Bergman og
hans eru hrifin af Sonali, og
núna dvelst allur hópurinn á
sveitasetri, sem þau hafa tekið á
leigu skammt frá ströndinni.
Nema Rossellini sjálfur. Hann
er í Egyptalandi og hefur dval-
izl þar lengi sem ráðunautur
við egypzka kvikmyndagerð. —■
Hann er m. a. að vinna við
fræðslumyndaflokk fyrir sjón-
varpið um lif og háttu fólksins
í Egyptalandi, — samsvarandi
fræðsiumyndum þeim, sem hann
gerði fyrir tiu árum um Indland
Ef til vill er Sonali orðin ó-
róleg. Hvað á hún að gera ef
Rossellini kynnist ein'hverri töfr-
andi egypzkri konu, sem yfirgef-
ur mann sinn og heimili hans
vegna? Jafnvel þótt hann sé far-
inn að nálgast sjötugt, hefur að-
dráttarafl hans ekki minnkað,
og sagan gæti endurtekið sig í
þriðja sinn.
Allavega er Sonali farin að
tala um ferð til Indlands. ,(Mig
langar til að sjá son minn“, seg-
ir hún. Hvort hún snýr aftur til
Rómar eða verður kyrr í Iandi
sínu, er enn ekki tímabært að
tala um. Það fer eftir því hve
sigrar Rossellinis verða miklir í
Egyptalandi . . .
Rossellini dvelst langdvölum / Egyptalandi
8 5. júlí 1967
ALÞYÐUBLAÐIÐ