Alþýðublaðið - 27.08.1967, Síða 9

Alþýðublaðið - 27.08.1967, Síða 9
Sunnudags AfþýSublaðið — 27. ágóst 1967 9Í i í Hvalfirði á leið 1 Norðurárdal. I Umferðarmiðstöðinni. NÚ hafa þeir afhjúpað Nor ræaa húsið og iþað blasir við maimi á leiðinni til Umferðar miðstöðvarinnar. Ég veit það ekki, en máske er það meðfædd íslenzk íhaldssemi, en ekki er ég með öUu 6áttur við þessa byggingu og ég fæ heldur ekki séð, að hún minni nokkuð á þetta margþvælda bræðralag. Stór hópur gæsa kroppar í Vatnsmýrinni og þar rétt hjá er eitt og yfirgeflð ofurlitið blátt tjald og umferðin á Hring brautinni er sáralítil um hálf áttaleytið. Borgin sefur. Ég þarf að bíða stundarkorn fyrir utan, þeir opna ekki fyrr en kiukkan hálfátta og það á mínútunni. Barmmikil dama dökk á brún og brá afgreiðir mig um rúnstykki og kaffi og hvort tveggja er gott. Það er að sjálfsögðu mlkil bót af þess ari kaffiteríu þarna syðra og vonandi heldur kaffið áfram að vera eins gott og um morg uninn, sem ég lagði upp í reisu mína norður í land. RútubíLamir standa eins og veðhlaupahestar bíðandi eftir að verða ræstir: Blá Hólma. víkurrúta, rauð og gul Norður leiðarrúta og Vestfjarðabíll. Bílstjórarnir og aðstoðarmenn þeirra eru að ferma, klifra upp um bilana rétt eins og apar, allir að flýta sér. Fólk tínist inn I afgreiðslu salixm, flestir syfjaðir, 6umir þó sperriir, nokkrir krakkar með foreldrum sínum á leið í -sveit og það er spenningur í augum unga fólksins. Sumir eru augsýnilega á leið í sumar frí og handleika veiðistöngina eins og heilaga kú og vilja fá að sitja undir henni í bíln- um, Þrátt fyrir allt voru, títlend ingar í greinilegum meirihluta í Umferðarmiðstöðinni i og ís- lendingar virðast upp 'úr því vaxnir að skoða landið sitt nema þá að ofan fré. Á dögun um hitti ég mann, sem var að kama heim úr margra vikna utanlandsreisu, en hér innan lands hafði hann aldref komizt lengra avistm- en að Vík í Mýr dal. j Þegar strjálingur af fólki hafði tínzt inn í bílinn kom stór hópur Þjóðverja og lagði undir sig afturhluta rútunnar. Þetta voru ungir og frísklegir krakkar á táningaaldri. Þau voru aðsópsmikil og vildu öll fá gluggasæti og bílfreyjan varð að taka af þeim stjóm- ina og hola þeim niður og spurningamar flugu um loftið: Wo ist Platz? Ist es besitzen? Það var Vestfjarðarútan, sem fyrst rann úr hlaði en kl. var kortér yfir þegar okkar farkostur loks komst af stað. Virðulegur millistéttar Lund únarbúi fékk sætið við hliðina á mér og eins og gerist og geng ur með Englendinga þá sló hann því föstu, að ég talaði ensku og reyndist hann hinn á- nægjulegasti ferðafélagi. í hópi ungu Þýzkaranna er einn eldri maður, dálítið keim líkur fyrrverandi fótbolta- manni, snar í snúningum og léttur á sér með vikugamalt skegg og reynist hann vera fararstjóri þeirra. Það veður mikið á þeim þýzku og ég heyri lá Englendingnum sessu- naut mínum að hann er ekki nema meir en svo hrifinn af öllum þessum hávaða og ung- lingalátum og hann lítur aft ur fyrir sig með dálitlum þótta í svipnum og næstum ygglir sig. Já, vel á minnzt, bílfreyjur, til hvers eru þær annars í þessum Norðurleiðarútum? Eru það ekki full mikil flottheit, að hafa þær á fullu kaupi til að vera eins konar selskabsdöm ur fyrir bílstjórana og rífa af farmiðunum, sem seldir eru í afgreiðslu Umferðarmiðstöðv- arinnar. Þetta værj máske sök sér, ef þær væru í og með leiðsögukonur, því eins og áður er sagt er stærsti hópurinn í þessum rútubílum útlendingar og mundu taka feginshendi hvers kyns leiðsögu. Hitt er alveg meiningarlaust að líða annað slagið um bílinn eins og sýningardama og brosa með aumkunarbrosi til farþega og svo búið. Tvær sænskar stúdínur, sem koma seint inn í bílinn eru mæddar á svipinn og kvíða augsýnilega deginum. Við Londonarbúinn diskúter um hægri handarumferðina og hann skírskotar til brezkrar í- haldssemi og óhemju kostnaðs, sem af því mundi leiða ef Bretar legðu út í slíkt fyrir- tæki. Annars er hann á ferð með konu sinni og hafa þau dvalið tvo daga á landinu og brugðu sér amnan daginn til Grænlands og síðan í flugtúr yfir Surtsey ásamt Suðurlands undirlendinu. Hann var aldeil- is dolfallinn af að sjá eyjuna nýju, sem risið hafði úr haf- djúpinu. Hann ætlaði ekki lengra en að Bifröst og ekki annað að heyra en að hrifning hans væri ekta og hann nyti ferðarinnar. Áð var stundarkorn í Hval- firði og Pálmi staðarráðsmað- ur bauð mér í kaffi með bíl- stjórunum og þar var rabbað um vegi og vegleysur og sýnd- ist sitt hverjum. Þvottabrettin í Leirár- og Melasveitinni eru orðin óhrekj andi og sjálfsagðar staðreyndir rétt eins og 17. júní og varla annað að sjá en vegayfirvöld leggi kapp á að þau taki sem allra minnstum breytingum. Ensk eldri kona með hnút í hnakkanum reynir að taka öllu með kristilegri ró og tek ur upp prjónana sína og lokar sig í eigin heimi. Fararstjóri þýzku ungling- anna reynist vera katólskur prestur, þó raunar hvergi sjá- ist á honum geistlegheit en aftur á móti situr fremst í bíln um virðulegur skozkur kenni* maður, sem er á leið til að hítta séra Robert Jack og ætl- ar að veiða með honum lax í tvo eða þrjá daga, annað er- indi á hann nú ekki til íslands. Það má segja að tungur séu talaðar þarna í bílnum og eru þó Þjóðverjar í miklum meiri- hluta og krakkaangarnir ærsla fullir en presturinn þeirra legg ur sig allan fram við að út- skýra fyrir þeim landslagið, sem hann virðist kunna nokk- uð vel. Sól og fegurð í Borgarfirðin um og stoppað andartak í Bif- röst og Þjóðverjarnir svangir og nú hefst mikið matarstúss. Ein í hópnum, rám eins og togaraskipstjóri en ákveðin á svipinn gengur um bílinn og deilir út brauði og pylsum og ferðapelar á lofti og krakkarn- ir háma 1 sig bæði hart og lint brauð, kex og kökur og öll reyna þau að komast yfir sem mest á sem skemmstum tíma. 1 Fomahvammi er borðuð súpa og soðið lambakjöt með einhvers konar sósu og imgu amerísku hjónin hrylla sig, þegar þau sáu fituna og ég heyri að þau tala um kinda- andlit, sem þeim hafði verið boðið upp á fyrr í ferðinni. Við afleggjarann niður á Hvammstanga bíður Robert Jack kollega síns og þeir heils ast með virðuleik og hverfa von bráðar í jeppanum með allar veiðigræjumar. Framarlega í bílnum situr ísl. leikkoná með svartan hatt og í síðbuxum og heldur á veiði stöngunum sínum. Hún fer af í Húnavatnssýslu og það stafar af henni glans og fyrir- mennska þegar hún stikar heim að bænum vopnuð öllum þessum dýrindis tækjum. Á Blönduósi stendúr Oddur skólastjóri í Kópavogi á hótel hlaðinu og er ekki annað að sjá en að hann sé eins konar móttökusjeff og fer að öllu með þeirri fyrirmennsku, sem aðeins hæfir slíkum sjeffum Langidalur er með stytzta móti og vegurinn skárri en venjulega. Hópurinn í bílnum hefur þynnzt og enn eru það ungu þýzkararnir sem gefa tóninn og tala nm að bærilegt væri að geta flutt átóbanana þýzku með sér til íslands og leggja þá ofan á meiahroðann. Ég gef onig lítillega á tal við skeggjaða prestinn og upp úr kafinu kemur að hópurinn er frá Köln og þau öíl félagar í Nonnaklúbb, sem þar er starf andi og erindið til íslands er að heimsækja æskustöðvar Nonna. Nonnaáhugi er mikill í Köln og var á prestinum að heyra að þessi pílagrímsför ungmennanna væri styrkt af einhverjúm auðkýfingum þar úti. Þoka fyllir Skagafjörðinn og ekkert útsýni af hólnum sem varðan hans Stefáns G. stend ur og ég sakna sveitarinnar með allri sinni fegurð og fjarð arins með eyjunum sínum, sem eru mér svo kærar og gamal- kunnar. Við Varmahlíð hafa þeir Skagfírðingar rubbað upp einu ^élagsheimilinu í viðbót og það getur vel verið að það sé fallegt, en ég kann þá ekki að meta það. , Þokan helzt alla leið í Öxna . dalinn en þar birtir lítillega, en þó ekki nóg til að Hraun- drangamir fái að sýna á sér kollana. Á Akureyri gisti ég á Eddu- hótelinu og vil hreint ekki láta hjá líða að hæla öllum viður- gjörningi þar og prísar allir viðráðanlegir. Þarna í setustofunni, þar sem menntskælingar glíma við lífsgátuna á síðkvöldum á vet- urna hitti ég Belgíumann og rabbaði við hann um ástandið í Afríku, en þar hafði hann dvalið um árabil á vegum rík. isstjórnar sinnar. Þetta var allra skemmtilegasti náungi með velopin augu og aldeilis heillaður af íslandi, sagðist meðal annars hafa sent 56 kort til kunningja sinna eftir fyrsta daginn á íslandi til að láta þá vita, að ísland væri sko alls ekkert ís-land. Ég hlakka til næsta dags því þá ætla ég að koma við i Mývatnssveitinni og hitta þau hjónin Jakobínu skáldkonu og i Starra frænda minn í Garði. Ég hef það á tilfinningunni, að veðurguðirnir verði mér hlið- hollir og ekki er ég í neinum vafa \im að dvölin með þeim hjónum verði ánægjuleg ea það er önnur saga. Þoka í Skagafirði og óeirðirnar í Kongó. Geistlegheitin mætast í Húnaþingi.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.