Alþýðublaðið - 06.09.1967, Side 3

Alþýðublaðið - 06.09.1967, Side 3
HEILDARAFLINN á síldveiðun- um noröanlands og austan nam um s.l. helgi 165.594 lestum, en var á sama tíma í fyrra 330.618 lestir eða helmingi meiri. Á þessu sumri hefur nær allur aflinn far- ið í bræðslu eins og kunnugt er, en í fyrra hafði á sama tíma verið saltað í rúmlega 230 þúsund tunnur. Af löndunarstöðum hafa þess- ir staðir tekið við mestum afla: Seyðisfjörður, 39.413 lestir; Siglu fjörður, 34.607 lestir; Raufarhöfn, 26.223 lestir og Reykjavík 18.965 lestir. Framliald á 11. síðu. Héðinn hæstur # 1 <» t t ENSK GÓLFTEPPI ISKEIFUNNI HÚSGAGNAVERZLUNIN' Skeif- an hefur nýlega tekið að sér um- boð fyrir enska gólfteppaverk- smiðju, Carpet Trades Limited. Hefur fyrirtæki þetta framleitt gólfteppi síðan 1920 og er nú eitt hið stærsta sinnar tegundar í Evr ópu, með útibú í Kaupmannahöfn, Kanada, Suður-Afríku, Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Þýzkalandi. Teppin, sem eru kölluð Gilt Edge, eru af Axminster og Wilton gerð og er fjölbreytni mynstra mjög mikil. Á boðstólum í Skeif- unni verða bæði ákveðnar stærðir Stéttösam- bandsfundi bænda lokið AÐALFUNDI Stéttarsambands bænda lauk á sunnudag og var Gunnar Guðbjartsson endurkjör- inn fortnaður sambandsins. Gerð- ar voru ýmsar ályktanir á fund- inum m. a. um verðlagsmál. í ályktunum um verðlagsmál segir ra.a.: „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1967 leggur áherzlu á, að verðlagning landbúnaðarafurða fyrir verðlagsárið 1967—1968 fari nú fram samkvæmt gildandi lög- um og við ákvörðun vinnuþarfar viðmiðunarbúsins verði lagðar til grundvaUar niðurstöður Búreikn- ingaskrifstofunnar, svo og gerðar vinnumælingar, svo langt sem þær ná. Þá minnir fundurinn á, að vext- ir, kostnaður við vélar, fyrning úti húsa og ýmsir fleiri liðir hafa jafn an verið vanmetnir í verðlags- grundvellinum og krefst leiðrétt- ingar á því. Ennfremur krefst fundurinn þess, að í verðlagningunni nú í Framhald á bls. 9. af teppum, einkum í frönskum stíl, svo og teppi, serrt seld eru eftir máli. Verða teppin pöntuð eftir óskum viðskiptavina, og má gera ráð fyrir um tveggja vikna af greiðslufresti. Eins og fyrr segir er Carpet Trades Limited með stærstu fram leiðendum gólfteppa í Evrópu og þess má geta, að teppin frá þeim eru seld til yfir 50 landa. Þorgerffur Þorleifsdóttir klippir á spottann og opnar brúna til umferðar. JÖKULSÁRBRU VÍGÐ ÞAÐ var mikið um dýrðir aust ur á Breiðamerkursandi síðast liðinn laugardag, en þá var brú in yfir Jökulsá opnuð til um- ferðar og tekin formlega t notkun. Þar með eru Öræfin komin í beint vegasamband við aðrar sveitir og aldaganmll draumur Öræfinga um rofna einangrun er með þvi orðinn að veruleika. Þetta var því að vonum mikill hátíðisdagur hei mamanna. Jökulsárbrú á Breiðamerkur sandi er mikið mannvirki. Brú- in er hengibrú, 110 m löng miRi turnstoða. Undir hvorn turn varð að reka 150 9 metra langa staura og eru þessir staurar ásamt undirstöðu timnsins varðir með 6 metra löngu stálþili. Akbrautin á brúnni er 3,6 m á breidd, en breidd milli handriða eru 4,5 m. Turnar og akkeri eru úr steinsteypu, yfirbygging brú- arinnar úr stáli, en sjálft brú- argólfið úr gegndreyptu timbri og er það gert til þess að fá það sem léttast. Turnarnir eru tæpir 14 m á hæð, en stöplar undir þeim eru 6,7 m, og er hvor turn þannig röskir 20 m frá sökkli. Langbilar brúarinn- ar og gólf er reiknað fyrir 34 tonna þunga vagnlest, en strengir og turnar fyrir jafn- dreifðan þunga um alla brúna, sem nemúr 350 kg á hvern fer- metra eða 134 tonna þunga á brúnni. í brúna hefur farið 1700 teningsmetrar af steinsteypu, 600 tonn af. sementi, 52 tonn af steypustyrktarjárni, 65 tonn af stálþili og akkerisfestingum, stál í yfirbyggingu er 160 tonn og í brúargólfið fóru 2300 ten- ingsfet af timbri. Stályfirbygg- ingin er keypt og smíðuð í Eng landi, en að öðru leyti er brú- in smíðuð hér árin 1966 og 1967 og var Jónas Gíslason brúarsmiður yfirsmiður við brúna. Árni Pálsson yfirverk- fræðingur og Helgi Hallgríms- son deildarverkfræðingur hafa gert alla burðarþolsreikninga og uppdrætti að brúnni og haft verkfræðilega umsjón með framkvæmdinni. — Áætlaður heildarkostnaður við brúargerð ina er röskar 20 millj. króna. Ráðgert hafði verið að brú- arvígslan hæfist klukkan 2 síð degis á laugardag, en athöfn- inni seinkaði nokkuð vegna þess að gestir frá Reykjavík komu nokkru síðar á staðinn en ráðgert hafði verið. Veður hefði getað verið betra, því að fjallasýn var litil og rigning á köflum, sem fór heldur vax- andi, þegar á daginn Ieið. At- höfnin hófst’ með því að Ing- ólfur Jónsson samgöngumála- ráðherra flutti ræðu. Síðan tal aði Sigurður Jóhannsson vega- málastjóri og lýsti brúnni og eru upplýsingarnar hér að framan um gerð hennar teknar úr ræðu hans. Að ræðu vegamálastjóra lok inni var gengið á brúna og klippti frú Þorgerður Þorleifs- dóttir, kona Jónasar Gíslason- ar brúarsmiðs á borða, sem lá yfir þvera brúna og opnaði hana þar með til umferðar. Síðan gekk mannfjöldinn yfir brúna, í-áðherrann, vegamála- stjóri, Árni Pálsson yfirverk- fræðingur og Jónas Gíslason yfirsmiður og frú í broddi fylk- ingar. Síðan var athöfninni haldið áfram, og fluttu þá ræður fjór ir af alþingismönnum Aust- fjarðakjördæmis þeir Eysteinn Jónsson, Páll Þorsteinsson, Jónas Pétursson og Lúðvík Jósefsson. Síðan talaði Einar Oddsson sýslumaður Skafta- Framhald á bls. 9. - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 6. ágóst 1967

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.