Alþýðublaðið - 16.09.1967, Side 9

Alþýðublaðið - 16.09.1967, Side 9
Ný dönsk mynd, gerð eftir hinni umdeildu metsölubók Siv Holms „Jeg en kvinde“. BönnuS börnum innan 16 Sra. Sýnd kl. 5 og 9. BÍLAKAUP 15812 — 23900 Höfum kaupendur að flest- um tegundum og árgerðum af nýlegum bifrelðum. Vinsamlegast Iátið skrá bif- reiðina sem fyrst. BÍLAKAUP Skúlagötu 55 við Rauðará Símar 15812 - 23900. Uínkranat, Tengikranar, Slöngukranar, Blöndunartæki. Burstafell byggingavöruverzlun Réttarholtsvegi S. Sfmi S 88 40. nie kom aftur inn. Hefurðu tal- að lengi við Rhodu? — Dálítið. — Kemur hún inn til okkar? spurði Joss. — Nei, en hún vill gjarnan fá einn martini. Fenella reis letilega á fæt- ur; — ég skal færa henni hann, sagði hún. — Þetta var víst ekki sér- lega skemmtilegur dagur, sagði Joss, þegar Penella var farin. Sérstaklega ekki spurningarnar og yfiriieyrsla lögreglunnar. En ég varð að segja þeim, að þú værir í heimsókn hér. — Ég skil það vel, Joss frændi. — Ef tii vill upplýsist málið næstu daga og þá gengur lífið aftur sinn vanagang. En þang- að til verður lítið um skemmt- anir, a.m.'k. fyrir mig. Þekkirðu nokkurn liérna í borginni, sem gæti farið út með þig? Það er engin ástæða til þess að þú sitj- ir inni og látir þér leiðast. — Ég get farið að skoða mig um. — Áttu nokkra vini hér? spurði hann aftur. Vonnie hristi höfuðið. — Mig minnir að þú hafir þekkt einhverja, sem heita Gar- vin, sagði hann. — Mary Gar- vin var í skóla með mömmu þinni. Þau eiga son og dóttur. Þau bjuggu í Chelsea, ef við leitum í símaskránni. — Gerðu það ekki, Joss frændi, sagði Vonnie áköf — einum um of áköf. — Ég vil heldur skoða London ein. — Ef þú hittir þau geta þau kynnt þig fyrir fleira fóiki! — Við skulum hugsa um það seinna. Heyrðu, sagði hún, þeg- ar gamii maðurinn tók síma- skrána. — Ég vildi lieldur bíða með það. Hann leit á hana. — Jæja, ég sem hélt að mamma þín íhefði skrifazt á við Mary? Ungur maður og stúlka á aldri við Myru? Garvin? Jú, hafði Myra ekki sagt henni að Mari- an Garvin hefði gift sig nýlega? Eða var það einhver önnur stúlka? Joss gamli virti liana fyrir sér og hrukkaði ennið. — Skrifaðirðu þeim ekki, að þú værir að koma hingað? — Nei. — Furðulegt! Fólk, sem heimsækir önnur lönd er vant að láta kunningjana vita, að von sé á þeim. En ef þú .. — Æi, Joss frændi, greip Vonnie fram í fyrir honum. Ég vil eða mun heldur fara um ein. Skyndilega hringdi síminn. Joss fór til að svara og skildi dyrnar, eftir hálfopnar. Vonnie sat grafkyrr og ihlust- aði án þess að skammast sín. — Já, þetta er Ashlyn. Hvað segið þér? Er víst að það hafi verið kona? í dökkri dragt? Hringið til lögreglunnar. Spyrj- ið um Vachell lögregluforingja. Já, Vachell hjá Scotland Yard. Rétt! Sælar. Vonnie leit til dyra, þegar Joss kom inn. Hann settist í stólinn sinn. — Þetta var kona, sem var í Suzanne Ebel: iMiiiiiniiii 11MiMiiiiii 11 iiiiMimmmmiim^ - heimsókn í næsta húsi. Hún_ toringdi utan úr sveit þar sem hún býr til að segja þér að fyr- ir fáeinum kvöldum síðan með- an ihún var að iáta niður í tösk- urnar hefði hún séð gegnum gluggann á herbergi sínu, konu læðast um í garðinum. Ég bað liana um að segja lögreglunni frá þessu. Það passar nákvæmlega við það, sem vinnukonan þar sagði. Vonnie fannst hún falla saman um leið og hún hallaði sér aftur á bak í mjúka sófapúðana. Kona í garðinum kvöldið sem morðið var framið. .. Hún svaf ekki vært þá nótt- ina. Hún iór að hátta klukkan ellefu, en hún heyrði enn um- gang klukkan hálf eitt. Hún heyrði umgang inni í lierbergi RHODU sem var við hliðina á hennar herbergi og hún heyrði ekki betur, en Rhoda færi niður aftur. Vonnie skildi naumast sjálf þær grunsemdir, sem ollu því, að bún fór aftur á fætur og gekk út að glugganum. Það var ljós í vinnustofunni. Hvers vegna hafði Rhoda val- ið þennan tíma, þegar allir voru háttaðir til að laumast um og njósna í vinnustofunni? Að hverju leitaðj hún? Vonnie sá hana ekki, hún fór aftur upp í rúmið sitt og lá lengi og hlust- aði áður en hún heyrði Rhodu koma upp aftur. Hún lokaði augunum en, hún sá Nigel fyrir sér. Hann var svo lifandi og skýr eins og hann væri raunverulega þarna hjá henni. Hiin hugsaði um hann og sorgina 'yfir því, að hann lét ekkert til sín heyra þangað til að hún sofnaði óværum svefni. SJOTTI KAFLI. Þegar Vonnie sat úti í garðin- um dáginn eftir og las sunnu- dagsblöðin sá hún, að heimsókn hennar í St. John’s Wood var nefnd í greinum um morðið á Felix Ashlyn. Þá leið henni enn þá verr. Það var aftur mjög heitt og Fenella kom með bækur og blöð til að vera úti í garðinum. — Næst- koma þeir og taka myndir af þér, sagði hún súr. — Æi, nei, sagði Vonnie lirædd. Hún missti blaðið og leit skelfingu lostin á Fenellu. Það leyfi ég aldrei. — Hvað leyfirðu aldrei? spurði Joss gamli, sem kom rétt í þessu. Um leið og hann sett- ist í stóran körfustól, sagði hann: — Góðan daginn, Fenella! Ég slóðst ekki freistinguna, það er svo heitt inni. Það gerir vonandi ekkert til, þó að ég ryðjist svona inn? — Ég hef sagt þér það þúsund sinnum vina mín, að þú getur komið hingað, hvenær sem þig lystir. Ég vil gjarnan hafa þig hér sem oftast. Hvers vegna varst þú annars svona æst, Myra? spurði hann svo. Hún benti með hendinni á blaðið, sem lá í fangi hennar. — Það er minnzt á mig hér og Fenella segir að blaðamenn komi og vilji taka myndir af mér. En það vil ég ekki hafa! — Þá segjum við þeim það, þegar þeir koma, sagði hann. — Ég skil ekki hvers vegna þú verður svona æst, sagði Fen ella. — Flestum finnst gaman að fá mynd af sér í blöðin. — Ekki mér! ságði Vonnie. Hún hallaði sér aftur á bak í stólnum, en hver einasti vöðvi í líkama hennar var spenntur til hins ítrasta. Henni fannst að á hverri stundu hlyti að koma blaðaljósmyndari og taka mynd af henni án þess að spyrja um leyfi. Hún reis á fætur og flutti stólínn sinn í skuggann inn milli trjánna. — Er sólin of heit? spurði Joss. Hún tautaði eitthvað, sem átti að vera jákvætt svar. Að hún þyldi ekki sólina í augnablikinu. — Áttu ekki sólgleraugu? — Jú, það átti hún! Hún hafði ekki hugsað um það. Hún reis á fætur til að sækja þau. Þau voru stór með breiðri og hvítri umgerð — þau gátu hljft hennj fyrir blaðaljósmyndurum. — Vertu ekki hrædd við blaða mennina, vina mín, sagði Joss. þegar hún kom inn í garðinn. Ég segi þeim, að þú sért ekkert blönduð í málið og bið þá um að láta þig í friði. En nú skul- um við tala um annað, sagði hann ákveðinn. — Hvað ætlarðu að gera í dag? Mig langar til að fara eitthvað með þig. í dýra- garðinum eða lystigarð, en ég neyðist víst til að halda mig heima. — Það er of heitt fyrir þig úti, frændi, sagði Fenella. Svo eru svo margir þar á sunnudög- um. Hún hallaði sér aftur á bak og lokaði augunum! — Myra, biddu mig ekki um að fara eitt- hvað með þér! — Ég lofa þér að gera það ekki, sagði Vonnie sannfærandi. Ég fer í gönguferð ein seinna. Það var áberandi, að Fenella hafði ekki neina löngun til að gleðja Myru. Annars var það furðulegt, ð enginn skyldi hafa boðið jafn fallegri stúlku og Fenellu út úr borginni á slíkum sunnudegi. En kannski kom hún bara til að hitta Ralph. Hann bjó þá í húsinu. Kahnski voru liinar tíðu heimsóknir hennar til frænda síns aðeins átylla til að halda í Ralph? Var þetta gagnkvæm ást? Eða var það engin ást? Voru þess- ar stöðugu heimsóknir eitthvað í sambandi við morðmálið —. var Fenella hrædd? Grunaði hana að einhver ákveðinn hefði framið morðið og var hún þvl á verði? Klukkan tólf ætluðu þau Ralph að hitta nokkra vini sína. — Ifarðu með þeim, Myra, sagði Joss gamli, þegar Fen- ella fór inn til að fara í kjól. — Mig langar ekki, svaraði hún hreinskilnislega. — Ég vil heldur ganga um úti eða sitja hér en fara á veitingahús. Ef BÍLAMÁLUN - RÉTTINGAR BREMSUVIÐGERÐIR O. FL. BIFREIÐAV ERKST ÆÐIÐ VESTURÁS HF. Súðavogl 30 — Síml 35740. Skrifstofustörf Efnahagsstofnunin vill ráða tvær stúlkur þ. 1. október eða fyrr, aðra til símavörzlu, hina til almennra skrifstofustarfa, aðallega reikningsvinnu og töflugerðar. Laun samkvæmt reglugerð um launakjör bankastarfsmanna. Skriflegar umsóknir sendist t»l Efnahagsstofnunarinnar, Lauga- vegi 13. 16. september 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.