Alþýðublaðið - 29.12.1967, Page 7
Flowers, Hljómar og sinfonían
ÞÆTTINUM hafa nýlega borizt
þær fréttir að fyrir dyrum
standi all nýstárlegir hljómleik-
ar, er myndu að öllum líkindum
fara fram í Háskólabíói í janú-
ar á næsta ári.
Sviðsljósið kom að máli við þá
Karl Sighvatsson og Jónas Jóns
son, meðlimi Flowers, en þeir
ásamt Hljómum eru sagðir
standa fyrir þessum virðulega
konsert.
— Hvað er hæft í þessu spyrj
um við þá félaga.
Sumir draumar rætast, aðrir
ekki, segir Jónas. Það er allt-
af gaman að koma fram á hljóm-
leikum, sérstaklega með tilliti
til þess að Flowers hefur enn
ekki komið fram á slíkum mann
fagnaði.
Það er naumast að þú ert
virðulegur segir Kalli glottandi:
— Verða fleiri hljómsveitir en
þið og Hljómar á þessum hljóm
leikum?
Nei, ætli það, segir Jónas ann
ars hugar. Hvað ertu að segja
Jonni verða Hljómar og Flowers
saman á hljómleikum? Organist
inn er augsýnilega alveg dolfail
inn.
Karl Sighvatsson og Jónas Jóns-
son.
Það segir blaðamaðurinn, svar
ar Jónas brosandi.
— Það var nú meiningin að fá
þetta staðfest hjá ykkur.
Mér finnst óstaðfestar fréttir
mun skemmtilegri, segir Kalli.
En þær missa allt gildi sitt
þegar þær eru staðfestar, botnar
Jónas.
Blaðamaðurinn herðir upp hug
ann áður en hann ber fram
næstu spurningu.
— Er það rétt að þið ætlið að
fá aðstoð frá Sinfóníuhljómsveit
inni?
Nei, nei. Þetta er mesti mis-
skilningur, það erum við sem
ætlum að aðsfoða þá, segir Jónas
og bætir síðan við með tilgerð
arlegum hátíðleik, einleikarj á
orgel Karl Sighvatsson, áttu
smóking Kalli. Ekkert svar.
Tiðindamaöur þáttarins gerði
nú örvæntingarfulla tilraun til
að fá einhvern botn í viðtalið
— Það er sem sagt meiningin
að halda þessa hljómleika.
Það væri auðvitað gaman ef
úr því gæti orðið, það er söngvar
inn sem hefur orðið. Hugmynd
in er alls ekki svo galin.
Það er orgelleikarinn sem slær
botninn í þetta viðtal.
Ég held að rétt væri að flokka
þetta um sinn sem óstaðfesta
frétt.
Barnavinafélagið Sumargjöf
2. janúar 1968 og þar næstu daga verða innrituð börn í
Leikskólann við Safamýri.
Forstöðukonan verður til viðtals á staðnum, einnig verð
ur innritað í 6 ára deild, sem á að starfrækja þai\
Sími 82488.
STJÓRN SUMARGJAFAR.
MEIRAPRÓFSNÁMSKEIÐ
Meiraprófsnámskeið verður haldið í Reykja-
vík í janúar 1968, umsóknir sendist bifreiða-
eftirlitinu í Reykjavík, fyrir 5. jan. n.k.
Bifreiðaeftirlit ríkisins.
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Lokað verður hjá aðalskrifstofunni og öllum
umboðsmön'num í Reykjavík laugardaginn 30.
desember, vegna jarðarfarar JÓNS ST. ARN-
ÓRSSONAR.
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
SAVANNA A GAMLARSKVÖLÐ
FLUGELDAR
EINS og menn muna var
samnorrænni skemmtidagskrá
sjónvarpað um öll Norðurlönd á
gamlárskvöld í fyrra.
Frá íslandi skemmti Ómar
Ragnarsson. Ekki fékk þessi
dagskrá góða dóma, enda aðeins
norræn að nafninu til, þar að
auki langdregin, en hún stóð í
fulla tvo tíma.
Nú hefur verið ákveðið að
hafa þennan dagskrárlið helm-
SVIÐS
LJÓS
ingi styttri, en í ár eru það Sví-
ar sem hafa með höndum upp-
tökuna. Fulltrúar frá íslandi
verða í þetta sinn Savanna trí-
óið, en piltarnir eru farnir utan
til upptökunnar fyrir nokkru.
Áður hafði þátturinn samband
við Þóri Baldursson og innti
hann frétta.
Upphaflega kom þetta til
þaimig, að er stjórnandi þessar-
ar norrænu dagskrár var hér á
ferð í sumar, þá tók hann heil-
an dag í það að stþdera sjón-
varpsþættina okkar, og var mjög
hrifinn af, síðan kom Steindór
Hjörleifsson dagskrárstjóri að
máli við okkur og útkoman varð
sú, að við skildum koma fram
í þessum þætti sem fulltrúar
íslands.
— llvað heita lögin.
Þetta eru þrjú lög sem eru
gagngert valin af hinum sænska
stjórnanda, það eru Hafmeyjan,
Surtseyjarríma og Búðarvísur.
Öll atriðin verða tekin upp að
viðstöddum áheyrendum og það
verður ekkert ,play back‘ — allt
látið fara eins og það kemur
inn á filmuna.
— Ertu ekki komin með
glímuskjáifta.
Ég hef nú haft svo mikið að
gera síðustu dagana, að ég
hef hreint ekki liugsað neitt um
þetta. En það er áldrei að vita
nema að maður fái senuskrekk
þegar maður stendur augliti til
auglitis við sænsku sjónvarps-
vélarnar.
Laugavegi 178
>f
Fjölhreyft úrval
>f -K
29. desember 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ ^