Alþýðublaðið - 31.03.1968, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 31.03.1968, Qupperneq 1
Sunnudagur 31. marz 1967 — 49. árg. 59. tbl. Ríkisstjómin grípur I taumana Ríkisstjérnin hefur nú stöðvað þá firru, a0 Sölu miöstöð hraðfrystihúsanna skuli kaupa fiskum- búðir frá útlöndum fyrir hærra verð en þær eru fáanlegar á frá Kassagerð Reykjavíkur. Hefur þetta verið gert á þann hátt, að fiskumbúðir (og raunar mjólkurumbúðir líka) hafa verið teknar af frílista, og verður innflutningur þeirra háður leyf- um framvegis. Þessi ráðstöfun stjórnarinnar er af öllum almenn ingi talin sjálfsögð. Hin nýja og óþarfa kassa- gerð SH getur ekki annað þörf- inni, og reynist þá hroki Sölumiðstöðvar- innar svo mikill, áð hún kaupir dýrari umbúðir erlendis frekar en að snúa sér til keppinautarins, Kassagerðar Reykjavíkur. Stundum hefur SH að vísu látið SÍS kaupa fyrir sig umbúðir af Kassa gerðinni, og hefur þá hver álagningin á fætur annarri lagzt á umbúðirnar. Er öll þessi saga mesta hneisa og gefur þjóðinni sannarlega ekki fagra mynd af rekstri frystiiðnaðarins, einnar veigamestu atvinnugreinar þjóðarinnar, sem hlýt- ur stórfellda opinbera styrki. Sölumiðstöðin átti auðvitað aldrei að leggja fé í nýja umbúðaverksmiðju, þar sem nægileg framleiðslugeta var fyrir á því sviði. Hún gat tryggt sér sanngjarnt verð umbúða á annan hátt. Er þetta glöggt dæmi um það, hvernig einka- fjármagn streymir þangað, sem talin er gróða von, hvort sem þjóðin þarfnast þar aukinnar fjárfestingar eða ekki. Loks er fyrirhyggjan ekki meirí ei? svo. að tvö fyrirtæki á sama sviði geta eyðilagt alla ágóðavon hvort annars. Þjóðinni er nú meiri þörf á skynsamlegum vinnubrögðum en nokkru sinni. Verður að nýta framleiðslugetu í landinu sjálfu, en fara spar- lega með erlendan gjaldeyri. Ríkisstjómin hefur gripið í taumana í ernu máli — umbúðamálinu. Verst af öllu í því sambandi er sá sjúklegi hugs unarháttur, sem fram kemur hjá forystumönnum frystihúsanna. Á hádegisverðarfundi Alþýðuflokksfélagrs Eeykjavíkur í gær talaði Eggert G. Þorsteinsson, sjávarútvegsmálaráðherra, um atvinnuá- standið og sumaratvinnu unglinga. Myndin er tekin á i'undinum. (Ljósm.: Bjarnleifur). íkisstjórnin leggst gegn eiturlyf janeyziu \ Merkilegt frumvarp var lagt fram á alþingi í fyrra dag til breytinga á lögum um tilbúning og verzlun með ópíum og fleira. Frumvarpið er flutt vegna þes.sa að á undanförnum árum hefur aukizt mjög riotkun róandi eða æsandi! efna, sem ekki verða tal- in til lyfja, en geta þó valdið skaðlegum ávana. meðferð 'þeirra verður bönnuð, nema undir sérstöku eftirliti. Fyrirlesturinn í Háskólabíói Annar fyrirlestur Þórhalls Vilmundarsonar um náttúru- nafnakenninguna verður hald- inn í Háskólabíói í dag kl, 13.30, en ekki í hátíffasal há- skólans eins og ráffgert hafffi veriff. Sl. sunnudag komu svo 'marg ir að hlýða á fyrirlestur Þór- halls að til vandræða horfði, og voru helmingi fleiri við- staddir en húsnæðið rúmaði með góðu móti og beilbrigðis- yfirvöld leggja blessun yfir. Þórhallur sýnir skuggamynd ir með fyrirlestri sínum og er aðstaða í Háskólabíói mun belri hl slíks en í hátíðasalnum. Erihdi sitt í dag nefnir Þór hallur „Áfangi“. Bmm Miklar skemmdir urffu í gær á risíbúð í húsinu að Vestur- götu 61 hér í horg, en þar bjó einhleypur maður. Slökkviliðinu tókst þó að ráða niðurlögum eldslns á skömmum tíma. Um hádegisbilið í gær var slökkviliðið kvatt út að Sólvall argötu 51. Er á staðinn kom var búið að ráða niðurlögum elds ins. Á leiðinni til baka var slökkviliðinu tikynnt um að eld ur væri í rishæð hússins að Vesturgötu 61, en húsið er ein lyft timburhús. Tókst að slökkva eldinn á stuttum tíma en skemmdir urðu miklar á •húsinu og innbú mannsins sem bjó í risinu er talið ónýtt. Einsog oft hefur komið fram í fréttum eykst mjög notkun LSD og fleiri skyldra efna í hinum vestræna heimi. Þannig hefur sívaxandi notk un eiturlyfja verið mjög á dag skrá í blöðum á Norðurlönd- um, og kennarar og uppalend ur lýst yfir vaxandi ugg sín- um yfir eiturlyfjaneyzlu ung- menna í skólum. í greinargerð frumvarpsins segir, að misnðtkun efna sem þessara sé að vísu enn nokkuð óþekkt hér á landi, en hafi aukizt mjög í nágrannalöndun um. Markmiðið sé að gera kleift að gera ráðstafanir til varnar slíkri misnotkun hér á landi. Verði frumvarpið samþykkt lúta iþessi efni sömu ákvæðum og ópíum og kókaín, þ.e. öll Engan ósóma á f Furtsjeva, menntamálaráðherra, lýsir vanþóknun á djörfum ball- ettsýningum. FURTSJEVA Frú Fúrtsjeva, menntamála ráðherra Sovétríkjanna, sem kom hingaff til lands í opinbera heimsókn haust- iff 1961, lenti síffasta miff- vikudag I orffasennu viff stjórnanda Bolshoi balletts ins, Igor Moisejev, vegna útsendinga rússneska sjón varpsins á ástaratriffum úr frægum ballettum, en margir ballettdansaranna voru lítt klæddir. Atburðurinn átti sér stað á blaðamannafundi, þar sem kynna átti alþjóðlega þallettkeppni, sem fram á að fara í Moskvu á næsla ári. Sagði hin skapmikla Fúrtsjeva að leiðinlegt væri að vera áhorfandi kvn- rænna tilþrifa á sviði. Frú Fúrsjeva heldur því fr.gm, að kynlífslýsingar á sviði hljóti að vera abstrakt og þess vegna andstæðar hin um opinbera sósíalreaiisma ríkisins. Hinn 62 ára gamli stjórnandi vildi ekki fallast á þessa skilgreiningu og sagði, að svo sannarlega væri kynlífið ekki abstrakt og skelltu þá margir við- staddra úpp úr, en stjórn- andinn þagnaði, er frúin sagði með þykkju: „Þetta er léleg fyndni“.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.