Alþýðublaðið - 31.03.1968, Side 3

Alþýðublaðið - 31.03.1968, Side 3
 Myndin hér að ofan var tekin í gær á æfingu á Iledda Gabler. w * . igp gíítgjg Hedda Cahler fruinsýnd á miðvikudag Leikfélag Reykjavíkur frum- sýnir á miðvikudagskvöld 3. apríl Heddu Gabler eftir Henrik Ib- sen. Helga Bachmann leikur að- alhlutverkið, en Sveinn Einars- son leikhússtjóri setur leikinn á svið. Hedda Gabler var áður sýnd í Iðnó árið 1942 þegar Gerd Grieg dvaldizt hér. Fór hún þá með hlutverk Heddu og stjórnaði jafnframt leiknum. Á stríðsár- unum var Pétur Gautur einnig leikinn undir stjórn Gerd Grieg og fyrir réttum 20 árum sýndi Þjóðleikhúsið norska Rosmer- holm í Iðnó í heimsókn sinni hingað til lands. En síðan hefur Leikfélag Reykjavíkur ekki efnt til Ibsen-sýningar. Við höfum undanfarið sýnt mikið af nýtízku legum verkefnum og mörg ný leikrit íslenzk, sagði Sveinn Ein- arsson í viðtali við fréttamenn í gær. Okkur þótti tími til kom- inn að taka okkur klassískt við- fangsefni. Norskur málari, Snorre Tind- berg, leikmyndamálari frá Det norske teater í Oslo gerir leik- mynd Heddu Gabler, og þýðing leiksins er ný, eftir Árna Guðna- Framald á 15. síðu. eðjur fleiri í ófærðinnj sem verið hefur Minni sðla á dráttðrvélum Sala á dráttarvélum og öðrum landbúnaðartækj- um til bænda hefur verið mun minni nú heldur en í fyrra. Kann þetla að stafa m.a. af ve'ðurfari, því ef hart er í ári þurfa bænd- ur að leggja meira fé í fóð urbæti. Þá er og' talið vís1 að verkfaHið hafi haft nokkur áhrif á kaupgetu bænda, því all margir, og þá einkanlega á Suður- landi, urðu fyrir tjóni á meðan á verkfallinu stóð. undir bíla á götum borgarinnar að und anförnu hefur komið í ljós að bifreiðar komast lítið áfram án þess að hafa keðjur. Hafa nelgdir hjólbarðar lhið haft að segja í snjónum. Haft er eftir atvinnubílstjóra að alltof fáir bifreiðastjórar hirði um að setja keðjur undir farkosti sína, og verði þeir til trafala fastir í fönn á miðjum akveg um. Blaðið aflaði sér upplýsinga um verð á snjókeðjum og kom í ljós að svokallaðar gadda- keðjur fyrir fólksbíla kosta frá 900 til 1200 kr. Sléítar keðjur kosta hins vegar frá 750 til 1000 kr. Algengt er að keðjur þarfnist endurnýjunar einu sinni á vetri hverjum. Af þessu leiðir að sæmileg trygging fyr ir því að komast leiðar sinnar í fannferginu kostar að meðal tali um 1000 krónur á ári. Hneykslismál í Indíánastjórn Brasilíu: Myrtu, skjólstæðiuga og seldu þá mansali Óhugnanlegar staðreyndir hafa séð dagsins ljós við rann sókn, sem nýskipuð innanrík isstjórn Brasilíu Lefur sett á laggirnar til að kanna starfs semi ríkisskipaðrar nefndar, sem undanfarin 20 ár hefur starfað á vegum stjórnarinn- ar til að sjá um velferðarmál brasilískra indíána. Hefur rannsóknarnefndin nýlokið 5 mánaða rannsókn sinni og kemur fram í skýrslu hennar, Íað velferðarnefndin hefur á samvizkunni fjöldamorð, rán og nauðganir. Allsherjar spill ing og sadismi hafi stjórnað gerðum nefndarjnnar og spanni glæpir hennar yfir allt frá fjöldamorðum á heilum ættbálkum, sem hafa verið upprættir með dynamiti, vél- byssum og arsenaki blönduðu sykri, að mansali á 11 ára gömlu skólabarni, sem var selt sem þræll til eins nefnd- armanna Verndarþjónustu Indíána, eins og hið kaldhæðn (► islega nafn nefndarinnar var opinberlega, en meðal fólks J, gekk nefndin undir nafninu i Indíánavændisþjónustan. é Rannsóknarnefnidin hefur f nú skilað 20 binda verki um J rannsóknina, en hefur ekki i enn birt allar niðurstöður sin f ar né lokið rannsókn að fullu. \ Af hinum 700 nefndarmönn i um hinnar uppleystu nefndar f hafa 134 verið ásakaðir fyrir f glæpi, 200 verið reknir úr i þjónustu ríkisstjórnarinnar i og 38 gæðingar nefndarinnar, f sem voru ráðnir vegna klíku \ skanar hefur verið sagt upp i störfum. Nefndin var leyst 4 undan störfum á síðasta ári f af nvrri nefnd, sem á að taka \ við hlutverki hennar. Alvarlegustu ákærurnar fjalla um fjöldamorð á tveim ættbálkum. Opinberir emb- ættismenn útrýmdu Cinta ættbálknum með því að kasta dýnamiti á þorp þeirra úr flugvél, en síðan voru þeir sem komust undan dýnamit- regninu stráfelldir með vél- byssum. Tapaiunættbálkurinn fékk hins vegar ókeypis syk- ur frá nefndinni, sem inni- hélt bannvænan skammt af arseniki. Nefndarmenri not- uðu ýmis ráð til að fá Indíán ana til að yfirgefa landssvæði sín; er þeim hafði tekizt það notuðu þeir aðstöðu sína og klíkuskap til þess að kaupa landssvæðin ódýrt. Rannsókn arnefndin álítur að þeir hafi hagnast um 60 milljónir eða 3 milljarðir og 420 milljónir ísl. kr. með því að selja síðár landssvæði (og með því að stela niðursöguðum trjám og málmum frá verndarsvæðum Indíánanna. Formaður nefnd arinnar sem átti að sjá um velferðarmál Indíánanna, Nev es, höfuðsmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa aðeins á síðasta árinu, sem hann var formaður dregið sér 300.000 dollará á ólöglegan og glæp- samlegan háH. í skýrslunni kemur fram, að algengar hafi verið pyndingar og aðrar bar smíðar á Indíánum af hendi nefndarmanna. Stúlkur á barnsaldri voru seldar sem vændiskonur og hundruð Indí ána voru drepnir og þúsundir Indíána létust vegna bar- smíða nefndarmanna. ÞaS Framhald 6. síðu. Frumstæðir Indíánar í frumskógum Brasilíu. 47 fengu verðlaun fyrir öruggan akstur í marzmánuði hafa 4 klúbb- anna ÖRUGGUR AKSTUR hér sunnanlands haidið aðalfundi sína á Akranesi, Hafnarfirði, Borgarnesi og í Kópavogi. Á öll- um þessum stöðum hefur Bald- vin Þ. Kristjánsson og umboðs- mennirnir á viðkomandi stöðum afhent á vegum SAMVINNU- TRYGGINGA samtals 100 bif- reiðaeigendum viðurkenningar- merkj fyrir 5 ára öruggan akst- ur, og 47 bifreiðaeigendum verð- laun fyrir 10 ára öruggan akst- ur. í báðum tilfellum er um að ræða snotur merki á mann og' bíl, en auk þess iðgjaldsfrítt II. árið vegna ábyrgðartrygginga farartækja 10 ára mannanna. Þá hefur Pétur Sveinbjarnar- son, forstöðumaður fræðslu- og upplýsingaskrifstofu Umferðar- nefndar Reykjavikur flutt erindi Góðar gjafir Nýlega veitti stjórn sund- laugarsjóðs Skálatúns móttöku stórgjöf frá kvennadeild Sálu rannsóknarfélagsins, peninga að upphæð kr. 66.080.00 frá Erlu Sigurðardóthir, Skálatúni. Þessum gefendum þakkar stjórn sjóðsins af alhug sóðan stuðning við málefnið. um H-umferð á öllum fundunum, nema í Hafnarfirði, þar sem Hörður Valdimarsson lögreglu- flokksstjóri í Reykjavík ræddi málið. Enn leitaö Leitinni að Haraldi Bjarna- syni, litla drengsins sem hvarf að heiman frá sér á mánudag s.l., var haldið áfram í ,gær. Gengu þá leitarflokkar á fjörur á flóðinu, ásamt því að þyrla Landhelgisgæzlunnar flaug yfir Framald á 15. síðu. 31. marz 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.