Alþýðublaðið - 31.03.1968, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 31.03.1968, Qupperneq 5
s Já, ættum við að láta sér- fræðinga annast barnauppeld- ið í vaxandi mæli? Er það ekki mikil áhætta, að börn okkar skuli alast upp hjá foreldrum, sem hvorki hafa uppeldisfræði lega né sálfræðilega menntun? Slíkar spurningar heyrast oft í umræðum um þessi mál. Stundum er áherzian lögð á uppeldisfræðilega menntun for eldra í einhverri mynd, meðan aðrir vilja leysa vandann á (þann hátt, að börnin séu sem allra minnst á heimilunum. Það er talað um lögboðinn for skóla fyrir börn frá þriggja óra aldri, um barnaheimili, þar sem börnin dvelja alla vikuna og komi aðeins heim um helg ar. Þetta sé framtíðarlausn, er hafi marga og æskilega kosti. Rökin eru margvísleg. Sum hagræn: uppeldisstörfin leggi stein í götu foreldranna, svo að þeir eigi erfitt um vik að vinna báðir u^an heimilisins. Önnur eru sótt í mismunandi raunhæfar kennisetningar: heimilin séu oft skaðlegt um- hverfi fyrir tilfinningalíf og' andlegan þroska barnanna, for eldrarnir smeygi sínum eigin vanköntum inn í sálarlíf þeirra eða geri þau allt of háð sér. Þessi rök eru talsvert ísmeygi leg. Við erum orðin því sva vön að varpa frá okkur sífellt fleiri vandamáium í hendur sérfræðingum. Og þeir tímar eru löngu liðnir, að hver hús- móðir búi sjálf til pylsurnar sínar og vefi lökin í rúmin. Hvers vegna ætti þá barnaupp eldið endilega að vera ,,heim- ilisiðja“ nú á dögum? Þokukenndur óskadraumur En að fengnum þessum nið- urstöðum förum við kannski að velta vöngum yfir hugtak- inu ,,sérfræðingur í barnaupp eldi“. Og þá hættum við skyndi lega að vera jafn örugg í rás inni. Hvers konar fyrirbæri er slíkur sérfræðingur? Er það einhver hálærður þúsundþjala. smiður? Eða venjulegur há- skólamenntaður uppeldisfræö- ingur? Barnasálfræðingur? Kannski faðir eða móðir, sem hafa alið upp tíu fyrirmyndar börn? Við förum ef til vill hreint og beint að velta því fyrir okk ur, hvort hugtakið „sérfræð- ingur“ sé ekki í vissum tilfell um eins konar töfraorð, sem við notum til þess að reyna að Særa til okkar einhverjar á- þreifanlegar staðreyndir utan úr þokukenndum óraunveru- leikanum. Eins og mörg okkar uppáhaldsorð á þetta einnig uppruna sinn og sama stað í- heimi vísinda og tækni. getum verið sérfræðingar í smíði rafeindaheila, í gömlum handritum eða í framleiðslu tilbúins áburðar. Þar er staðar um að ræða eitthvert takmarkað svið, sem unnt er að spanna. Reynum við hins vegar að tengja þetta hugtak mannlíf- inu sjálfu, vaknar sú spurning, hvort við séum þá ekki einung is og óafvilandi að gera eælur við óskadraum, — þann óska- draum að geta leyst öll vanda mál mannlegs samlífs með sömu aðferðum og við notum til að ráða fram úr tæknileg- um vandamálum, — til að finna skrúfuna, sem þarf að herða, svo að vélin gangi eðli lega. Við skjótum okkur á balc við þennan óskadraum, af því að við viljum ekki horfast í augu við þá staðreynd, að ó- framkvæmanlegt sé að smala saman í eina* kví hinum geysi lega afbrigðilegu og marg- slungnu þóttum í samlífi kyn slóðanna og barnauppeldinu, þannig að einhverjum sérfræð ingi megi síðan takast að gæta allrar hjarðarinnar. Það sahnast og reynist oft og mörgum sinnum, að þessar kennisetningar stangast við raunveruleikann. Þekkjum við ekki mörg skólaumsjónarmann inn eða konuna, sem aldrei hafa lært uppeldisfræði eða barna- sálfræði, en reynast samt sjálf sagt skjól og skjöldur allra skólabarnanna, þegar, eltthvað amar að, enda þótt þarna und ir sama þaki finriist einnig bæði uppeldisfræðingur og skólasálfræðingur, DjúpstæS sam- skiptí fremur en vísindi Hér er alls ekki verið að van meta gild; barnasálfræðinga og uppeldisfræðinga. Þvert á móti. Alltaf og alls staðar eru fyrir hendi fjölmörg viðfangsefni, sem unpt er að afmarka, og þar getur sérfræðingurinn ver ið ómissandi. Hér má t-d. nefna kennslustprf í skóla fyrir börn og unglinga á ýmsum þroska- skeíðum, meðferð alls konar vanþroskatilfella og þeirra, sem beðið hafa andlegt heilsu tjón o.s.frv. En enginn sérmenntun á þess um sviðum getur gert okkur að allsherjarsérfræðingum í öllu þessu víðlenda ríki mann lífsins, sem hér um ræðir. Það væri blátt áfram að ætla sér að verða sérfræðingur á öllum þeim sviðum, er sjálft völund arhús mannlífsins hefur að geyma. Barnauppeldi er, þegar öllu er á botninn hvolft, ekkert annað en ein af hinum marg- slungnu hliðum mannlegs sam lífs. Á ekki. þetta þokukennda sérfræðirigshugtak einmitt rót sína að rekja til þess, að okk- ur sé alls ekki sú staðreynd augljós? Það getur þó e.t.v. lát ið undarlega í eyrum í lýð- frjálsu landi nútímans, þar sem allir eru á varðbergi gagn vart hvers konar forskriftum og valdboði. Sérfræðingurinn rannsakar og fæst við afmarkað viðfang? efni, t d. raforkuver eða forn leifafund, en börnin almennt og uppeldi þeirra eru ekki hlið stæð fræðigrein. Þar verða öll viðfangsefni sívik og breyt ingum háð. Og kannski upp- gÖtvum við stundum, að börn ' in ali okkur eins mikið upp og við þau. Við verðum með öðr um orðum að koma auga á þá staðreynd, að hér sé ekki um að ræða uppalanda og „ein- hvern hlut“, heldur tvær lif- andi mannverur, sem eiga að leÞast við að leiðast um tor- færur mannlífsins og reyna að skilja hvor aðra. Að sjálfsögðu er þetta erfitt hlutverk, eins og öll náin og djúpstæð sam- skipti mannanna. Ff-amhald á bls. 14. Geta foreldrar almennt alið upp börn? í umræðum um uppeldismál kemur ýmislegt fram, sem gæti vakið efasemdir í þá átt. Við gætum einnig oft efast um uppeldishæfSIeika okkar, þegár við virðum fyrir okkur ófullkominn og lélegan árangur af þessari víðleitni. Ættum við ef til vill að fá sér- fræðingum barnauppeldið í hendur? En eru þá til einliverjir sérfræðingar í uppeldi barna? Og hvers konar fólk mundi það þá vera? Barnauppeldí er þó þrátt fyrir allt ekki nein afmörkuð fræðigrein í líkingu við rafeindafræði eða eiíthvað því um líkt. Barnauppeldi er e.t.v. fyrst og fremst samlíf, og samlífisfræð’ingar — eru þeir til? 31. marz 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.