Alþýðublaðið - 31.03.1968, Side 6
Kveðja frá Félagi íslenzkra leikara:
HELGA VALTÝSDÖTTIR,
leikkona
ÞAÐ eru óefað margir, sem
sakna Helgu Valtýsdóttur af
heilum hug. Ekki einvörðungu
ættingjar hennar, starfsfélagar
og vinir, heldur og allir þeir
fjölmörgu aðdáendur hennar,
sem kynntust henni af fjölununi
og gegnum útvarp. En sem leik-
kona og upplesari og þá ekki
sízt fyrir barnatíma sína, var
Helga fádæma vinsæl.
Leikkonan Helga Valtýsdóít-
ir var frábærum hæfileikum
gædd. Aldrei brást það, að henni
tókst að blása leikpersónum sín-
um sérstæðu lífi i brjóst. Per-
sónur þær, sem hún skapaði
voru aílar raunverulegar, og
finnst manni, að þær lifi enn-
þá, þótt langt sé um liðið, að
hún lék sumar þeirra, og svo
ólíkar voru þær hver annarri, að
næsta ótrúlegt er að sama leik-
kona hafi verið þar að verki.
Helgu var það líka ljóst, að til
þess að ná góðum árangri á leik-
sviði, varð að vinna og það gerði
hún. Starfsfélagar hennar minn-
ist þess ekki ósjaldan hvíiíka ai-
úð og varfdvirkni hún lagði í
starf sitt, enda varð árangurinn
eftir því. Hennar verður minnzt
af þeim, sem og öðrum aðdáend-
um hennar, sem þeirrar leikkonu
frá síðari árum, er fjölhæfust
var og hafði fært leiklistinni
marga sigra og var þess albúin
að vinna þá fleiri. — Þeim mun
meiri er söknuður okkar nú.
En Helga Valtýsdóttir hafði
líka fleira til að bera, en að vera
afburða leikkona og vinsæl með-
al aðdáenda slnna. Hún hafði per-
sónuleika, sém engum gleymizt,
er hefur haft nánari kynni af.
Helga var ekki 'ramhleypin. Hún
Var lítillát, hlédræg og allt að
því feimin í einkalífi. Á hinn
bóginn geislaði frá henni svo
miikil hlýja og mannkærleikur,
viljaþrek og kjarkur, að öllum
sem í návist hennar voru duld-
ist ekki, að þar bjó að baki mik-
il persóna. Ekki lét hún heldur
hinn hræðilega sjúkdóm sinn
hafa áhrif á starfsþrek sitt og
framkomu, og aldrei' gaf hún
neinum færi á að særa stolt sitt
með meðaumkun. Hún var stolt,
fögur, blíðlynd og hjartahrein,
enda var henni gott til vina. Þau
sterku andlegu bönd, sem hún
tengdist sumum af vinum sín-
um, að ógleymdu því fagra sam-
bandi, er hún hafði við systur
sina, Huldu, vakti aðdáun allra.
Mörgum mun þykja þeir hafi
misst meira en vin og starfsfé-
laga.
Helga er tekin snemma frá
okkur og það syrgjum við öll
heilshugar, en samt er arfur sá,
sem hún lætur starfsfélögum
sínum eftir svo mikill, að skylt
er að geta hans. — Auk þeirra
stórbrotnu persóna, sem hún
skapaði á leiksviði, hefur hún
sýnt okkur, að starf okkar verður
bezt. unnið og mestum árangri
náð með einlægni, án hroka, með
gleði, án öfundar, með elju, án
sérhlífni. Hún kenndi okkur, að
við megum aldrei þreytast á eða
gefast upp við að finna hina réttu
leið. Og í lífinu sýndi hún okk-
ur, að hrein lund, skilningur,
hjálpfýsi og öfgalaus framganga
eru okkar beztu vinir.
Við þökkum öll Helgu vinátt-
una og samstarfið þann tíma, sem
Helga Valtýsdóttir
hún dvaldi með okkur. — Og ást- anlegustu samúðarkveðjur.
vinum hennar færum við hjart- Gísli Alfreðsson.
Lærið
aðaka
ÞAR SEM ÚRVALIÐ
ER MEST
BÍLATEGUNÐIR og KENNARAR
Geir P. Þormar
(W.Vagen R.958) S. 21772, 19898.
Gígja Sigurjónsdóttir
(W.Vagen R.1822) S. 19015
Hfiróur Ragnarsson
(W.Vagen R.G873) S. 35481
Jóel B. Jacobssen
(Taunus 12M) R.22116) S. 30841
GuSmundur G. Pétursson
(Rambler Am.) R-7590- S. 34590
NNíels Jónsson
(Ford Cust.) R-1770 S. 10322
Auk framagreindra bíla:
Volga, Vauxhail og Taunus 12M.
Einnig innanhússæfingar á ökuþjálfann.
LfppivMGgin iimum;
imm ??77? >4590
ökukennslan hf.
Sími 19896 og 21772
Framhald af 3. síðu.
kemur fram að auk Neves höf
uðsmanns hafi tveir hershöfð
ingjar, tveir liðsforingjar og
fyrrverandi fyljcisstjóri verið
höfuðpaurarnir í glæpaverk
unum. í könnun, sem gerð
var -árið 1955 kom í ljós að
í Brasilíu voru þá 150.000 Indí
ánanna; flestir þeirra voru á
svæðinu í kringum Amazon-
fljótið, af þeim voru um
100.000 undir stjórn nefndar
innar; þeir sem nefndin hafði
ekki afskipti af voru annað
hvort of dreifðir í frumskóg
um Brazilíu eða of villtir til
að unnt væri að tjónka við
þá, en auk þess eru þeir um
alla Brazilíu og eru flest all
ir Brazilíubúar tengdir Indí-
ánum á einn eða annan hátt
og hafa Brazilíumenn því
sterkar tilfinningar til þeirra
Indíána, sem enn eru eftir.
Þrátt fyrir.þessi tilfinninga-
bönd hafa Indíánar í Brazil-
íu orðið að þola mikla
grimmd í gegnum aldirnar,
þó ekki í sama mæli og Indí
ánar Argentínu, þar sem næst
um allir Indíánar landsins
voru myrtir vegna kynþátt
ar þeirra á síðustu Öld. Á
dögum nýlenduveldisins í
Brazilíu voru Indíánar strá
drepnir og hnepptir í þræl-
dóm. T.a.m. voru á árunum
1928 ttl 1930 60.000 Indíánar
seldir til Río de Janeiro einn
ar. Sem dæmi um, hve rót-
gróin mannfyrirlitning kemur
fram hiá hvíta manninum
gagnvart Indíánum má nefna
að enn í dag árið 1968 er al-
genat að menn skreppi öðru
hvoru til landamæra Brazil-
íu til að veiða Indíána á sama
hátt og dádýraveiðar eru
stundaðar í Evrópu.
Sinfóníuhljómsveif Íslands
Söngsveitin Fílharmónía
Requiem eftir Verdi. — Stjómandi dr. Róbert A. Ottós-
son verður flutt í Háskólabíói fimmtudag 4. apríl kl.
20,30 og laugardag 6. apríl kl. 15.00.
Flytjendur: Söngsveitin Fílharmónía og einsöngvararnir
Svala Nielsen, Ruth Little Magnússon, Magnús Jónsson og
Jón Sigurbjömsson.
Uppselt er á tónleikana 4. apríl. Aðgöngumiðar að tón-
leikunum em seldir í bókabúð Lárusar Blöndal og bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar.
KIRKJUTONLEIKAR
í KÖPAVOGSKIRKJU
Aðalheiður Guðmundsdóttir,
söngkona heldur kirkjutónleika
í Kópavogskirkju þriðjudags-
kvöldið 2. apríl næstk. kl. 21. —
Fyrirhugað er að endurtaka tón-
leika þessa í Hafnarfirði og á
fleiri stöðum út um land á næst-
unni.
Á söngskránni em verk efiir
innlenda og erlenda höfunda,
þar á meðal sex andleg ljóð eft-
ir Beethoven við texta eftir Gell-
ert, en þessi fagri Ijóðaflokkur
hefur sjaldan verið fluttur hér
á' landi.
Páll Ky, Pálsson organleikari
l^ikur með á orgel.
Aðalheiður hefur á undanförn
um árum stundað söngnám í
Austurríki og Þýzkalandi, síðast
hjá hinum fræga þýzka söngv-
ara og söngkennara Josef Mett-
ernich.
Hún hefur sungið fyrir þýzka
útvarpið í Mtinchen og í kirkjum
þar í borg, og haldið tónleika á
vegum Bayr. Volksbildungs Ver-
band (Georg Her.schensteiner-
Verband zur Pflege der schönen
Kunste)- við lofsamlega dóma'
(Oberbayrisches Volksblatt, 16.
des. 1966).
Hér á landi hefur Aðalheiður
haldið kirkjuhljómleika á ísa-
firði, sungið fyrir Ríkisútvarpið
og á pressubaili Blaðamannafé-
lags íslands, og komið fram sem
einsöngvari á hljómleikum Söng-
sveitarinnar Fílharmoníu og Sin
fóníuhljómsveitar íslands í
Reykjavík.
Aðalheiður hefur sérstaklega
lagt stund á kirkjulega tónlist og
ljóðasöng. Tónleikarnir í Kópa-
vogskirkju eru fyrstu sjálfstæðu
tónleikarnir er hún heldur á
höfuðborgarsvæðinu.
6 31. marz 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ