Alþýðublaðið - 31.03.1968, Page 11
Norðurlandamót í körfubolta í Reykjavík:
Finnar öruggir sigur-
vegarar í „Polar Cup
Arið 1962 átti sænska körfu-
knattleikssambandið 10 ára af-
mæli. í því tilefni buðu Svíar
hinum Noröurlandaþjóðunum til
keppni í Stokkhólmi, um bikar,
sem sænska sambandið gaf og
nefndi Polar Cup.
Á ráðstefnu hinna norrænu
körfuknattleikssambanda, sem
haldin var í Stokkhólmi á sama
tíma, var samþykkt reglugerð
fyrir Polar Cup keppnina og
jafnframt að keppnin skyldi
hljóta viðurkennin’gu sem Meist-
«ramót Norðurlanda í körfu-
knattleik.
Polar Cup keppnin er haldin
annað hvort ár og til skiptis hjá
þátttakendum.
Á ráðstefnU körfuknattleiks-
sambanda Norðurlanda, sem
haldin var í Kaupmannahöfn
um páskana 1966, var m. a. sam-
þykkt að halda „POLAR CUP”
mótinu sem hreinni keppni
innan Norðurlandanna, frekar
en að reyna að fá' mótið viður-
kennt sem svæðismót í Evrópu-
meistaramóti, Heimsmeistara-
Framhald á 10. síðu.
Þorsteinn Hallgrímsson
skorar í leik v'ið Skota.
STAÐAN í
HANDBOLTA-
MÓTINU
Staðan í I. flokki karla:
A-riðill 26/3
FH 2 2 0 0 26:13 4
Valur 3 2 0 1 26:25 4
Fram 2 10 1 21:21 2
Þróttur 2 10 1 16:17 2
Haukar 3 0 0 3 23:35 0
I. flokkur, B-riðilI 26/3
Ármann 2 2 0 0 20:12 4
Víkingur 2 1 1 0 22:19 3
ÍR 2 0 1 1 16:20 1
KR 2 0 0 2 15:22 0
31. marz 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ XX
Hrafnhildur Helgadóttlr, Á.
Jóhann Vílbergs-
Keppnin nú um helgina var
svigkeppni og keppt í A og B fl.
karla og kvennaflokki. Mótstjóri
var form. a-deildarinnar, Halldór
Sigfússon, en brautarsíjóri var
hinn gamalkunni skíðakappi, Sig-
urður R. Guðjónsson og Iagði
hann brautina, af mikilli snilld.
A - f 1 . k a r 1 a :
sek.
1. Jóhann Vilbergsson
KR. 37,1 37,2 74,3
2. Knútur Rönning
ÍR 37,3 39,1 76,4
son sigrað - • s 1 A.tl.
Reykjavíkurmótinu var hald- 3. Guðni Sigfússon
ið áfram nú um síðustu helgi. ÍR 37,6 39,2 76,8
Lokið er keppni í unglingaflokk- 4. Bjarni Einarsson
unum. Á. 39.3 40.1 79.4
Skíðadeild Ármanns sér um 5. Arnór Guðbjartsson
Reykjavíkurmótið að þessu sinni, og er það haldið i skíðasvæði Ár- Á. 39,9 41,1 81,0
manns í Jósepsdal. B - f 1 o k k u r :
1. Örn Kjærnested
Á. 34,6 39,6 74,2
2. Sigurður Guðmundsson
Á. 36,6 39,1 75,7
3. Sigmundur Ríkharðsson
Á. 39,0 38,7 77,7
i
Kvennaflokkur:
1. Hrafnhildur Helgadóttir
Á. 29,9 31,4 61,3
2. Jóna Bjarnadóttir
Á. 39,8 40,4 80,2
Mikið íþróttastarf
/ Þingeyjarsýslu
Mánudaginn 11. marz sl. boð-
aði stjórn HSÞ til fundar að
Laugum með formönnum sam-
bandsfélaganna og fleiri gest-
um. Mættir voru formenn frá
öllum félögunum að einu und-
anskildu. Formaður HSÞ, Ósk-
ar Ágústsson setti fundinn og
talaði meðal annars um starf-
semi sambandsins á síðasta ári,
verkefnin á þessu ári og fleira.
Verður nú rakið það helzta sem
kom fram á fundinum.
Haldin voru 5 íþróttamót á
sambandssvæðinu, ennfremur
tók HSÞ þátt í 9 íþróttamótuin
utan héraðs. Sett voru 13 hér-
aðsmet. Þar af 1 íslandsmet í
4x100 m. boðhlaupi kvenna,
53,2 sek. Þá'tttakendur á íþrótta-
mótum voru 225. Knattspyrna
var mikið stunduð á félagssvæð-
inu. Völsungur og Mývetningur
tóku þátt í III. deildar keppni
KSÍ. Lið frá HSÞ tók þátt í
undankeppni landsmóts UMFÍ
og sigraðí í sínum riðli og kepp-
ir til úrslita á landsmótinu í
sumar. Ennfremur var sent lið
á Norðurlandamót í knattspyrnu.
Handknattleikur var lítið
stundaður nema á' Húsavík og
kepptu þeir fyrir HSÞ í undan-
rásum fvrir landsmót UMFÍ.
Skíðaíþróttin er lítið stunduð
á sambandssvæðinu nema á
Húsavík, en þar er mjög mikill
áhugi fyrir hanni og voru hald-
in mörg skíðamót, meðal annars
sáu Völsungar um skiðamót
Norðurlands. Mikill áhugi var á'
sundíþróttinni og haldið var hér-
aðsmót í sundi, ennfremur var
handknattleikur stundaður á
sambandssvæðinu. Haldið var
bindindismannamót í Vagla-
skógi ásamt fleiri aðilum, og
tókst það mjög vel. Tvö sambands
félög áttu merkis afmæli á ár-
inu. íþróttafélag Völsungur varð
40 ára og umf. Eining, Bárðar-
dal átti 75 ára afmæli.
Þá voru rædd framtiðarverk-
efni. Rætt var um að halda leið-
beinendanámskeið að Laugum í
vor og sagði formaður að komið
hafði fram beiðni frá héraðs-
samböndum á Norðurlandi, að
fá að taka þátt í námskeiði
þessu. Þá var rætt um undirbún-
ing fyrir Landsmótið að Eiðum
og kom fram að mikið hefur
verið unnið að undirbúningi
fyrir landsmótið og verður þeim
undirbúningi haldið áfram. Enn-
fremur kom fram mjög mikil
óánægja með það hvað lands-
mótið er haldið seiní og töldu
margir að það mundj sennilega
draga úr þátttöku. Þá var rætt
um að koma á námskeiði fyrir
börn og unglinga á sambands-
svæðinu með sama sniði og í
fyrra, en það námskeið lieppn-
aðist mjög vel. Gjaldkeri sam-
bandsins, Arngrímur Geirsson,
gaf yfirlit um fjárhag HSÞ og
kom fram að hann er betri en
í fyrra. Gjöld og tekjur stóðust
að mestu og námu um kr. 300
þús. kr. Margt fleira var rætt
á fundinum, m. a. um útgáfu árs-
rits HSÞ o. fl. Dvöldu menn í
góðu yfirlæti við rausnarl :gar
veitingar á heimili formanns til
kl. 1,30 er fundi var slitið.
Fréttaritari HSÞ.
II. flokkur karla, A-riðiIl 26/3
Valur 5 4 0 1 55:31 8
Fram 4 3 0 1 50:26 6
ÍR 4 3 0 1 44:33 6
Ármann 4 2 0 2 29:41 4
Þróttur 4 1 0 3 32:52 2
Breiðabl. 5 0 0 5 29:66 O [
II. flokkur: B-riðill 26/3 1
FH 4 4 0 0 47:39 8
(í úrsl. 21/4)
Víkingur 4 3 0 1 63:35 6
KR 4 2 0 2 48:40 4
ÍBK 4 3 0 1 35:53 2
Haukar , 4 0 0 4 30:55 0
Næstu leikir: 31. marz kl. 14:
I. fl., 3 leikir:Vík.-Ármann, Fram-
FH; Haukar-Þróttur.
2. apríl: I. fl. kl. 20,15: ValuP
-FH; Fram-Þróttur; ÍR-KR.
2. apríl II. deild; Ármann-ÍBK.
Staðan í Meistaraflokki karla:
I. deild 26/3
Fram 8 6 1 1 166:142 13
FH 8 4 2 2 168:153 10
Haukar 8 5 0 3 182-167 10
Valur 8 4 0 4 153:148 8
KR 8 3 0 5 150169 6
Viking. 8 0 1 7 133:174 1
(Fallinn í II. d.)
Staðan í Meistaraflokki karla:
II. deild 26/3
!
ÍR 7 5 i 0 2 181:151 10
Þróttur 8 4 i 0 4 175:168 8
ÍBA 6 3 i 0 3 141134 6
Árm. 5 2 1 2 99:106 5
ÍBK 6 1 1 4 123:191 3
A Staðan í Meistaraflokki kvenna:
Valur 5 5 0 0 86:34 10
Ármann 5 4 1 0 65:48 9
Fram 6 3 2 1 78:52 8
Víkingur 6 3 1 2 58:54 7
Framhald á 10. síðu.