Alþýðublaðið - 16.05.1968, Qupperneq 3
frumflutt á sinfóníutónl
í kvöld
NÆST-SEINUSTU áskriftar-
tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
íslands á þessu starfsári verða
haldnir nú á fimmtudaginn
kemur. Stjórnandi er Bodhan
Wodiczko, og á efnisskránni
verða eftirtalin verk: Forleikur-
inn að óperunni ,,Brúðkaup Fíg-
arós” eftir Mozart og Píanó-
konsert í c-moll, K.V. 491, einnig
eftir Mozart. Tónleikunum lýk-
ur með frumflutningi Sinfóníu
í f-moll, Esju, eftir Karl O.
Runólfsson.
Einleikari á tónleikunum verð
ur pólski píanóleikarinn André
Tchaikowsky. Hann hóf nám í
píanóleik á' unga aldri í Pól-
landi. Að lokinni heimsstyrjöld-
inni síðari stundaði hann nám
við Tónlistarháskólann í París
og brautskráðist þaðan með
heiðurspening. Áframhaldandi
nám hans var undir hand-
leiðslu Stefan Askenase.
Tchaikowsky hefur unnið til
ýmissa verðlauna í alþjóðlegum
samkeppnum. Tvítugur að aldri
vann hann verðlaun í Chopin
keppninni í Varsjá 1955, og ári
síðar í keppni þeirri, sem kennd
er við Elísabetu drottningu í
Belgíu. Þá' var það, sem píanó-
snillingurinn heimsfrægi, Arthur
Rubinsíein .sagði: „Ég álít And-
ré Tchaikowsky einn bezta pí-
anóleikara sinnar kynslóðar —
og hann er meira en það, hann
er afbragðs tónlistarmaður.”
Síðan hefur Tchaikowsky verið
á nær látlausum tónleikaferðum
'im víða veröld, og hlotið hinar
beztu undirtektir.
Frumflutningur íslenzkrar
sinfóníu hlýtur í sjálfu sér að
vera mikill viðburður, en ekki
ætti það að draga úr eftirvænt-
ingunni, þegar í hlut á eitt
kunnasta tónskáld landsins. Sin-
fónían ber heitið „Esja”, og seg-
ir Karl sjálfur svo frá, að nafn-
ið hafi upphaflega átt við síð-
asta þátt verksins, sem ortur var
fyrstur. Sinfónían er í fjórum
þáttum, þar af er einn scherzo
þáttur, sem saminn er um frum-
samið rímna og vikivakastef.
Umferðarkortin eru hin gagnlegustu fyrir almenn ng því margs verður að gæta á H-dag og dagana
aæst á eftir.
og vandað kort um
H-Umferð inn á heimili
Strákar á f læði-
skeri
Næstu daga verður drelft á hvert heimili í Reykjavík upp
lýsingariti ásamt aksturskorti af Reykjavík. Nefnist það ,,H-um-
ferð í Reykjavík" og er hið fyrsta sinnar tegundar, sem út
kemur hér á landi. Gatnamálastjórinn í Reykjavík gefur það út,
í samvinnu við Umferðarnefnd Reykjavíkur og . Framkvæmda-
nefndar H-umferðar. Umsjón með útgáfu hafði Fræðslu- og upp-
lýsingaskrifstofa Umferðarnefndar og lögreglunnar í Reykjavík,
og hafa starfsmenn hennar séð um útgáfuna í náinni samvinnu
við verkfræðinga Gatnamálastjórans I Reykjavík.
ingar um leyfð bifreiðastæði. Þó
ber að taka það með nokkurri
varúð, þar sem nauðsynlegt
verður að gera nokkrar breyt-
ingar á bifreiðastæðum vegna
gildistöku H-umferðar.
I
★ HVAÐ VELDUR MEST-
UM ERFIÐLEIKUM ?
SINFÓNÍAN ESJA EFTIR
KARL O. RUNÓLFSSON
i
★ í GÆR munaði mjóu, að
tveir strákar, 12 og 13 ára,
flæddi uppi á skeri rétt vestan
við verbúðírnar á Grandagarði,
en þeir höfðu ekki gert sér
grein fyrir því, að á flæði hverf-
ur þetta sker algjörlega.
Börn sækja gjarnan út i sker-
ið á fjöru, en gæía ekki að sér,
þegar flæðir. Fyrir nokkru setti
Slysavarnafélagið upp skilti
þarna til þess að aðvara þá, sem
færu út í skerið. Skiltið varð
híns vegar sjónúm að bráð í vet-
ur og hefur ekki annað skilti
verið sett upp þarna síðan.
★ Lögregluþjónar urðu var-
ir við strákana úti í skerinu um
þrjúleytið í gær, þegar byrjað
var að falla að. Snaraði lög-
regluþjónn sér út í skerið og
komst þangað, áður en það fór
í kaf og náði strákunum. Má
segja, að flætt hafi að baki
þeim.
★ SEYTJÁN SÉRPRENTUÐ
KORT.
í ritinu er að finna sér-
prentuð kort af þeim 17 stöðum
í Reykjavík, sem mest breytast -
við gildistöku hægri umferðar.
Eru þar sýndar akstursleiðir á ■
gatnamótum. Auk- þess fylgir
ritinu stórt heildarkort af
Reykjavík, þar sem sýndar eru
akstursstefnur á helztu götum
borgarinnar, allar aðalbrautir
eru sýndar með sérstökum lit,
svo og sýnd eftirfarandi atriði:
Umferðarljós, biðskyldumerki,
stöðvunarskyldumerki og bif-
reiðastæði. Texti á því korti er
á íslenzku og ensku. Má fast-
lega gera ráð fyrir, að ritið verði
vel þegið hjá öUum ökumönn-
um í borginni, svo og öllum al-
menningi. Aftan á kortinu er stór
uppdráttur af miðbænum í
Reykjavík, og þar sýnd helztu
bifreiðastæði, svo og leiðbein-
Fremst á ritinu er kafli, um
16 síður að stærð, sem fjallar
um ýmis atriði, sem koma til
með að valda ökumönnum nokkr-
um erfiðleikum í upphafi hægri
umferðar. Er kaflinn byggður á
niðurstöðum sænskra sérfræð-
inga, en þeir stunduðu rann-
sóknir á viðbrögðum sænskra
ökumanna í hægri umferð í
Danmörku, áður en hægri um-
ferð var tekin upp í Sviþjóð.
Frh. á 6. síðu.
ERLENDAR
FRÉTTIR í
STUTTU MÁLI
De GauEEe fagnað
í Rámesrsíu
í ræðu, sem De Gaulle héll á
rúmenska þinginu í gær á 5
daga opinberri heimsókn
sinni í Rúmeníu, hvatti hann
Rúmena til að taka upp sjálf-
stæðari efnahags- og stjórn-
málastefnu. Hvatli hann
Rúmena að standa fyrir ut-
an allar steinrunnar banda-
lagsmyndanir. Lagði hann til
að ríki Vestur, Mið- og Aust
ur-Evrópu stuðluðu að auknu
jafnvægi í heiminum og sam
vinnu innbyrðis.
Bæri þessum ríkjum að út-
kljá vandamál Evrópu og
nefndi í því tilviki Þýzka-
landsmálið.
Stefna bæri að sameinaðri
Evrópu, sem hefði hagsmuna
að gæta gagnvart stórveld-
unum 2 í Austri og Vestri.
Var forsetinn ákaft hyllt-
ur meðan hann hélt hina 16
mínútna löngu ræðu sína og
varð hann þrívegis að gera
hlé á ræðu sinni vegna ákafs
lófaklapps áheyrenda.
Heitar umræSur
í Bonn
Heitar umræður urðu á þing-
inu í Bonn í gær vegna frum-
varps, sem veitir ríkisstjórn-
inni og hernum alræðisvald á
neyðartímum. Felur frumvarp
ið m. a. í sér að hernum er
heimilt að gera ráðstafanir á
neyðartímum án þess að fá til
þess heimild ríkisstjórnarinn-
-ar, afnámi verkfallsréttar og
nauðungarvinnu, ier hætta
'steðji að ríkinu.
Ekki ríkir full eining innan
ríkisstjórnarinnar um frum-
varpið og hefur Jafnaðar-
mannaflokkurinn verið í and-
stöðu við hina 2 stjórnarflokk
ana, Kristilega demókrata og
Kristilega sósíalistaflokkinn
varðandi áðurgreind atriði.
Meðal annars felst í frumvarp
inu heimild ríkisstjórnarinnar
til að hllra símtöl og opna
einkabréf.
Efu þetta m. a. heimildir,
sem Bretum, Bandaríkjamönn-
um og Frökkum hlotnaðist, er
Vestur-Þýzka sambandslýðveld
ið var stofnað árið 1954. Hef
ur aðalsmiður frumvarpsins,
dr. Carl Otto sagt, að frum
varpiq væri nauðsynlegt til
þess að afnema róttindi þau,
sem Vesturveldin, Bretland,
Bandaríkin og Frakkland
lilutu 1954 og hindraði þau að
taka sér alræðisvald í málefn
um Þýzkalands.
Frumvarpið hefur mætt mik
illi' andspyrnu af hálfu félags-
samtaka, vinstri stúdenta og
menntamanna. Þrátt fyrir alla
andspyrnu er líklegt talið að
frumvarpið verpi staðfest af
2/3 þingmanna á morgun sem
mauðsynlegt er eigi það að ná
fram að ganga.
Dregið var
10. maí
Föstudaginn 10. maí var dreg
ið í 5. flokki Happdrættis Há-
skóla íslands. Dregnir voru
2,100 vinningar að fjárhæð
5,800.000 krónur.
Hæsti vinningurinn, 500.000
krónur, kom á heilmiða núm
er 40259. Voru báðir heilmiðarn
ir seldir í umboði Helga Sir
vertsen í Vesturveri. Sami mað
urinn átti þennan heilmiða í
báðum flokkunum, svo hann
fær eina milljón króna í þess-
um drætti.
16. maí 1968 — AIÞÝÐUBLAÐIÐ 3^
I