Alþýðublaðið - 26.10.1968, Blaðsíða 2
2 'ALÞYÐUBLAÐIÐ 26- október 1968
______ii. X'
Ritstjórar: Kristján Bersi Ólafsson íáb.) og Benedikt Gröndal. Símar-
14900-14903. — Auglýsingastjóri: Sigurjón Ari Sigurjónsson. — Aug-
lýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu 8 —10,
Rvík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Sími 14905. Áskriftargjald
kr. 130,00. í lausasölu kr. 8.00 eintakið. —- Útg.: Nýja útgáfufélagið h.f.
Hvcrð viljct sovézku herskipin?
Uridíanfarna daga 'hafa sovézk-
ir tundurspillar siglt umhverfis
ísland. Hafa þeir komið allnærri
landi á ýmsum stöðum, en að
sjálfsögðu hiaflidið sig utan hinnar
eiginlegu landhelgi, sem er önn-
ur og m.'lnni en 12 mílha fisk-
veiðilandhelgin.
Þessar aðgerðir Rauða flotans
íhafa viakið athygli hér á landi,
og hafa verið uppi margvíslegar
íböilaleggingar um, hvað þær
Iþýði. Hefur þar meðal annars
kornið fram, að Rússar hafi oft
áður siglt nærri íslandi á her-
skipum sínum, og það sé þeim
helmilt samkvæmt þjóðarétti,
meðan þeir fara ekki innfyrir
landhelgi án sérstaks leyfis.
Augljóst hefur verið af ferð-
um tundurspillanna undanfarna
daga, að sovézík yfirvöld vilja
láta íslendinga taka eftir þeim.
Óvenjuleg blaðaskrif og urntal
þjóna þeim tilgangi þeirra.
í þeissu sambancEil er rétt að
gera sér grein fyrir þróun í milli-
ríkj'amálum Mið- og Norður-
Evrópu síðustu vikurnar. Eftir
innrásina í Tékkóslóvakíu hafa
Sovétríkin gripið til margvíslegra
aðgerða til að réttlæta það skref
og bæta upp þann álitshnekk,
sem þau urðu fyrir. Hefur þetta
verið gert með öllum venjuleg-
um ráðum, þar á meðal með því
að minna á htemaðarliegan mátt
Savétríkjanna og iþá stöðu, sem
hann skapar þeim.
Einn liður í þessari viðleitni
Sovétstjómarinnar he'fur verið
sókn gegn Norðurlöndum. Kosyg-
in fór í skyndiheimsókn til Finn-
lands og veidldi fisk við Hangö
með Kekkonen forseta, en sl'íkar
heimsóknilr hafa Ivenjulega þann
tilgang að minna Finna á stöðu
Iþeirria .og nágrenni. Þá hafa
sovézk blöð gert harðar árásir á
Norðurlöndin öll og haldið því
fram, að Vestur-Þjóðverjar væru
að iseilast til nýrra áhrifa fyrir
norðan sig. Nú síðast niótmæla
koirimúnistaríkin harðlega heim-
sókn Bortens, forsætisráðherr'a
Noregs, till Vestur-Þýzkalands.
Senniltega verður að líta á
„heimsókn‘£ sovézku tundurspill-
anna í ljósi þessara viðburða. ís-
land er eitt Norðurlandanna, og
varinarpólitík okkar hefur áhrif
á hið „norræna jafnvægi" alla
fleið til Finnlands.
Þá er rétt að minnast þess, að
Sovétríkin hafa á síðustu árum
komið sér upp miklum flotastyrk
á Norður-Atlántshafi. Þar, eins
og á Miðjarðarhafi, er Rauða
flotanum vafalaust ætlað að hafa
áhrif á valdajafnvægi þessa mik-
iisverða isvæðis. Til þess er her-
iskipunum nauðsynlegt að láta
vitía af sér.
Allir þessir atburðir, sem gerzt
háffa frá Prag til Langaness,
gefa Íslendingum tiléfni till að
íhulga vandlega utanríkis- og
vamarmál sín og faTa með
ítmstu gætni á þeim slóðum.
Þýzk-íslenzk frímerkjasýning
Hinn 22. nóvember hefst á
vegum Landsambandsins
samsýning þýzkra og íslenzk-
ra unglinga á frímerkjum að
Fríkirkjuvegi 11. Þetta er
fyrsta frímerkjasýning, sem
haldin er hér á landj með er-
lendri þátttöku og er bein af-
leið^ng af þátttöku íslands í
alþjóðasamstarfi frímerkja-
safnara, en eins og kunnugt
er var Landssambandið tekið
í „Federation International de
Phillatelie" F. I. P. á þingj
þess í Prag á s. 1. sumri.
Frímerkjasýningin sem stend-
ur frá 22.—29. nóvember ber
iheilið „DIJEX — ’68”, en það
er skammstöfun fyrir „Deustch
Islandisher Jugend Exposition”.
Þátttaka i sýningunni er opin
fyrir þýzka unglinga frá 13—21.
árs í Bavern og’ ísl. ungljnga.
Verðlaunaskjöl verða gefin fyrir,
silfur, silfrað bronze, bronze
diplom og þátttökuskjal. Auk
þess verða, svo markskonar sér-
stök verðlaun veitt, t.d. bækur
og munir. Þýzkir unglingar hafa
þegar fyllt pláss það sem þeim
er ætlað á sýningunni, eða 25
ramma óg eru söfn þeirra væntan
leg til landsins þann 15. nóv.
íslenzkir unglingar úr meðlima-
klúbbum Landssambandsins hafa
þegar tilkynnt þátttöku í 7 römm
um, en auk þess verða sýnd
þarna söfn er hlotið hafa viður-
kenningar á tveim alþjóðlegum
sýningum á þessu ári. Þá verður
sýnt á sýningunni hvernig nota
má frimerkið, sem hjálpargagn
í skólum. Auk alls þessa verða
svo kynningar frá þýzku og ís-
lenzku póststjórninni.
Islenzka póststjórnin mun láta
gera sér stimpil fyrir sýningu
þessa, sem verður í notkun á
pósthúsi sýningarinnar alla dag-
ana. Stimpill þessi mun m.a. bera
áletrunina Evrópsk seska, Sem
fellur inn í tegundasafn Evrópu-
stimpla. Þess má geta að Þjóð-
verjar létu á' s.l. ári gera slíkan
stimpil er íslenzkir ungfingar
voru í heimsókn þar. Fellurhann
undir tegundasafnið, sem á þýzku
riefnist „Europische Jugendtr-
effen”. Þá munu íslenzkir ungl-
jr>gar taka þátt í samskonar sýn-
ingu í Miinchen á næsta vori og
verður þar enn sérstimpill helg-
aður fslandi.
Þetta verður einskonar frum-
raun unglinganna á íslandi og
í Bayern fyrir alþjóðlegu ungl-
ingasýninguna „JUVENTUS
1969”, sem haldinn verður í
Luxembourg á næsta vori eða
nánar tiltekið 3-8 apríl 1969.
Verðlaunasamkeppni meðal ung-
menna um allan heim, um frí-
merki fyrir þá sýningu, lauk
með að verðlaun hlaut: Betty
Vferdrengh í!rá iBblgíÚ. Verða
teikningar þessar notaðar á frí-
merkjaörk, sem gefin verður út
af tilefni sýningarinnar,
í framkvæmdanefnd sýningar-
innar eru: Sigurður H. Þorsteins
son, Aðalsteinn Sigurðsson, Sig-
urður Ágústsson, Sigtryggur Ey-
þórsson, Jón Halldórsson, Þór
Þorsteinsson og Bolli Davíðs-
son. í Dómnefnd sýningarinnar
eru Sigurður H. Þorsteinsson, en
hann hefir nýlega verið útnefnd-
Merkjasöludagur
í Hafnarfirði
Fyrsti vetrardagrur er fjár-
öfiunardagur Barnaverndarfé-
laganna á íslandi. Þann daff
mun Barnaverndarfélag Hafnar
fjarðar bjóða Hafnfirðingum
merki félagsjns ásamt barnabók
inni Sólhvörf. Vonar félagið að
hvorutveggja verði vel tekið af
Hafnfirölngum, þar eð þetta
er einasta fjáröflun félagsins
að undanskildum árstjllögum
félagsmanna, sem eru um eitt
hundrað.
Merki og bækur félags'ns verða
afhent söluhqrnum í anddyri
barnaskólanna kl. 1, laugar-
daginn 26. þ. m.
Barnavemdarfélag Hafnar-
fjarðar er ekki fjársterkt félag,
enda ungt að árum og það allt-
af verið markmið þess að láta
það af höndum, sem jnn hefur
komið, í þágu hafnfirzkra barna.
ur alþjóðlegur dómari, Magni
Reynir Magnússon og Björn
Gunnarsson, en fyrir tegujhd'-
söfn sérstaklega, Sigurður Ágústs
son.
Tilkynningar um þátttöku
verða að berast framkvæmda-
nefndinni sem allra fyrst og
eigi síðar en 10. nóvember og
skal stíla þær til: Landssam-
band íslenzkra frímerkjasafnara,
Pósthólf 1336, Reykjavík og
merkja umslögin „DIJEX ‘68”.
Dómnefndin hefir úrskurðarvald
um hvort söfn teljist tæk á sýn-
inguna, en um hana gilda að
öllu leyti reglur F.I.P. um ugl
ingasýningar og þátttöku þeirra
í alþjóðasýningum.
(Frétt frá' Landssambandi ísl.
frímerkjasafnara).
.
Erlendar
frétfir í
stuftu máli
WASHINGTON 25. 10. (ntb-
reuter): Eldri dóttir Joh“-
sons, Bandaríkjaforseta, ,
Lynda Bjrd Rohb, ól í dag
stúlkubarn í fæðingar
deild Bethesda-sjúkrahúss
ins í washington. Er það
annað barnabarn forsetans.
SAIGON 25. 10. (ntb-reut-
er): Forseti Suður Vietnam
Nguyen Van Thieu, og am-
bassador Bandaríkjanna í
Sa gon, Ellsworth Bunker,
héldu í dag áfram vjðræð-
um sínum um málefni Vi-
etnam og mögulega stöðv-
un á loftárásum Bandaríkja
manna á Norður-Vietnam.
MOSKVU 25. 10. (ntb-afp):
Sovézki flokksleiðtoginn,
Le'onid Bresjnev, kvartaði
yfir því í dag, að sovézkir
íþróttamenn hefðu ekki
hlotið nægilega mörg verð
laun á Olympíuleikunum
í Mexíkó. Kvörtunin kom
fram í ræðu, er hann hélt
á æskulýðsþjngi kommú-
nista.
NEW YORK 25. 10. (ntb-
reuter): Til átaka kom á
milli stuðningsmanna og
andstæðinga forsetafram-
bjóðandans George Wall-
ace í New York í gær-
kvöldi. Urðu miklar rysk-
igar og var lögregla kvödd
til; brotnir voru búðar-
gluggar og kastað flöskum
og fle.ru lauslegu.
LUNDÚNUM 25. 10. (ntb-
reuter); Um 300 stúdentar
vjð The London School of
Economics settust í nótt í
ganga skólans og anddyri
til að halda honum opnum
fyrir aðkomna stúdenta,
sem væntanlegir eru til
borgarinnar að taka þátt í
mótmælaaðgerðum gegn
styrjöldinnj í Vietnam.
Lögregla reyndi að ryðja
skólann, en sú tilraun mis-
tókst.
ANKARA 25. 10. (ntb-reut-
er): Charles de Gaulle, for
seti Frakklands, og frú
hans komu t;l Ankara í
Tyrklandi í dag í opinbera
heimsókn. Þetta er í fyrsta
skipti í manna minnum,
sem þjóðhöfðingi Frakka
sækir Tyrkj heim.