Alþýðublaðið - 31.10.1968, Side 9
31- október 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9
VISUBOTNAKEPPNIN:
ymferðar
Úrslit í fimmtu umferð í
vísubotnakeppni Alþýðublaðs
ins urðu þau, að hlutskarpast
ur varð Árni Júl. Árnason, Ak
ureyri, og hlýtur hann verð-
laun blaðsins.
Vísan er svona eftir að hann
hefur botnað hana:
Séð hef ég skötuna skaka
strokk,
skógarþröstinn elda graut,
páfagaukjnn prjóna sokk,
pödduna leysa gestaþraut.
Margir botnar bárust, ' eins
og í hjnum umferðunum, og
var erfitt að gera upp á milli
ýmissa þeirra.
Öfugmælavísnagerð er ekki
ný af nálinni, þær hafa lengi
tíðkazt, og er talsvert til af
þejm frá ýmsum tímum. Fólk
hefur haft gaman af að leika
sér að fjarstæðunum og eru
sumar þeirra býsna hn'ttilega
gerðar. í sejnni tíð virð^st þó
hafa d.regið úr þessari tegund
kveðskapar.
Enn hafa ýmsir orð ð til að
senda okkur kvjðlinga með
botnunum, jafnvel heilar dráp
ur, fyrir al-lt slíkt þökkum við,
þótt ekki sé unnt að birta það
hér í vísubotnaþættinum. T. d.
auglýstum við eftir höfundi
einnar vísu sem vjð bjrtum í
síðustu umferð og reyndist
hann vera Haraldur Zophóní
asson, Dalvík, en hann lét eftjr
farandi vísu fylgja til frekari
skýringar:
Þó lítið sé hún gæðagrey
og gjörð af naumri snilli,
föðurlau? skal flækjast ei
frónshornanna milli.
Ég mun nú halda venjunni
og birta nokkur sýnjshorn af
vísubotnunum af handahófi.
Ólafur Hólm Thedórsson,
Reykjavík:
ÞúfutittHng þæfa sokk,
þeytast hval um Mjklubraut.
Magnús Árnason, Reykjavík;
Þúfutittling þeyta rokk
og þrastarunga mýla naut.
Gúnnfríður Rögnvaldsdóttir,
Reykjavík:
Músina veiða murtu og
smokk,
mýfluguna rofa naut.
Frjðrikka Björnsdóttir, Siglu-
firði:
Gráa rollu greiða lokk,
gaukinn ráða myndaþraut.
Steinn Emilsson, Bolungarvík:
Marfló draga mikinn smokk,
músarindil beizla naut.
J. Björnsson, Kópavogi:
Ljón íklæðast silkjsokk,
synda fisk í berjalaut.
Jósefína Þórðardóttir, Fá-
skrúðsfirði:
E nnig spröku spinna á rokk,
spóa leysa reiknjngsþraut.
Guðlaugur E. Einarsson, llafn-
arfirði:
Snjgil fara skeið og skokk,
skríða á rúðu þrevett naut.
r
Kraki:
Spóann vellandi spinna á
rokk,
sprökuna keppa í fimmtar-
þraut .
Haraldur Zophóníasson, Dal-
vík:
Spóa hreykinn splnna á
rokk,
sprökuna leysa reiknings-
þraut.
Jón Helgason, Hafnarfirði:
Spranga um landið sprölcu-
flokk,
spóann vella í djúpri laut.
Við sláum hér botnjnn í
botnasýnishornin að þessu
sinni og hvetjum alla vísna-
sm.öi sem þetta lesa til að
vera með í sjöttu umferð, um
leið og vjð þökkum vísubotna
og kveðjur þátttakenda.
GG.
m
í f'nitr.tu umferð vísubotnakeppninnar varS Akureyringnr
aftur hlutskarpasíur, Árni .Túl Árnason og sjáið þið
botnjnn hans á öðrum stað hér á síðunni. Þá hefst 6. um-
ferð og gefum við sldlafrest til mánudagsins 11. nóvember.
Næsti fyrripai'tur hljóðar svo:
Freistinganna gata er greið,
gutla ég hana löngum
Seinnipartur:
Merkið umslagið seinnipartur. Alþýðublaðið hefur póst
hólf 320. Góða skemmtun.
Viðgerðir
ðnnumst allar viðgerðlr á Skoda
bifreiðum. Enrsfrerrtur réttingar.
ÁkveðiS gjald e^a timavinna
eftir samkomulagi.
SÆHjyiVI — SENDUM
SKODA-verkstæðið hf.
Dalshrauni 5 — Sími 51427.
Útvarpsviðgerðir
VÉLAR OG VIÐTÆKI,
L'augavegi 147, símar 22600 — 23311.
Bæjarritari
Staða bæjarritara hjá Hafnarfjarðarbæ er
laus til umsó'knar. Laun samkvæmt 24. launa-
flokki.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og starfsreynslu sendist undirrituðum fyrir
1. desember n.k.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
Bachtónleikar
Bachtónleikar í Laugarneskirkju sunnudaginn
3. nóveimber kl. 5 s.d.
Aðgöngumiðar hjá Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar og við innganginn.