Alþýðublaðið - 02.11.1968, Blaðsíða 1
ÚTVARPSVIKAN
3.-9. nóvember
1968
Hinn nýi Nixon
'•, ’■
,A. % J
aám í*!* '.vt° %
* * í'.
■■
|S9,*-
1
RICHARD NIXON, fram-
bjóðandi repúblikana í banda-
ríslcu forsetakosningunum, sem
fram fara nú í vikunni, Iiefur
verið tregur til að hafa viðtal
við sjónvarpsmenn, eins og
komið hefur fram í fréttum
og frásögnum. Kappinn lét þó
undan síga fyrir brezkum sjón-
varpsstarfsmönnum ek.ki alls
fyrir löngu, og það viðtal fáum
við að heyra (og sjá'!) í íslenzka,
sjónvarpinu á sunnudagskvöld,
§. nóvember næstkomandi, í
þætti, sem nefndur hefur verið
„Hinn nýi Nixon” eða bara
„Nýi Nixon”. Áróðursmenn
frambjóðandans munu kynna
hann fyrir íslendjngum og sjálf
ur svarar hann ýmsum spurn-
ingum um sjálfan sig og kosn-
ingabaráttuna. Nú er kosninga-
barátta bandarísku forsetaefn-
anna hvað heitust, og því sann-
arlega tímabært að heyra hvað
þeir hafa að bjóða þjóð sinni.
Er ekki að efa að þáttur þessi
verður bæði fróðlegur og
skemmtilegur undir öruggri
umsjón Markúsar Arnar Ant-
onssonar, hins vinsæla frétta-
þuls.
Kunnugir telja, að baráttan
um sæti Bandaríkjaforseta
verði óvenjulega hörð og tví-
sýn að þessu sinni. Það þykir
til dæmis sýnt af skoðana-
könnunum þeim, sem efnt hef-
ur verið til upp á síðkastið,
að Hubert H. Humphrey, fram-
bjóðandi demókrata, aukist
stöðugt fylgi, en í fyrstu var
staðfest mikið djúp á milli
þeirra Nixons. Þá er og talið,
að George Wallaee, þriðji fram
Ibjóðandinn, sem býður sig
fram fyrir „Óháða lýðræðis-
flokkinn” svonefnda, setji tölu-
vert strik í reikninginn. En
það er semsagt ekki annað
fyrir hendi en að bíða og sjá
hvað setur!