Alþýðublaðið - 10.12.1968, Qupperneq 3
10. desember 1968 ALÞÝ€HJBLAÐIÐ 3
FLÓTTINN
Frambald af 1. síðu.
svaraði því til, að ég væri ekki
til neinna samningaviðræðna við
þá. Svaraði Georg því til, ag þá
væri ekkert annað að gera en
binda mig. Auðvitað mátti ég
mín lítils á móti þeim þremur.
Töluverðar stympingar urðu,
á meðan þeir voru að binda mig.
Býst ég við, að ég hafi hlotið
þau meiðsli, sem ég hlaut í þeim
stympingum.
Þeir munu hafa notað fang-
elsislyklana til að komast inn á
skrifstofuna. Hins vegar höfðu
þeir ekki útidyralykilinn. Síðan
liafa þeir annað hvort farið út
um glugga eða komizt í gegnum.
eldhúsið út í portið og síðan yfir
vegginn.
Um það bil ein klukkustund
leið, unz mér barst hjálp.
Dóttir eins fangavarðarins,
sem býr á efri hæð fangahúss-
ins vaknaði við köll einhverra
fanganna á milli glugga. Hún
skynjaði strax, að ekki væri allt
með felldu. Fór niður og hringdi
á dyrabjöllinni við skrifstofuna,
en enginn svaraði. Hún tók því
bíl föður síns og ók í skyndi á
lögreglustöðina. Þaðan kom hóp-
ur lögreglumanna í lögreglubif-
reið.
Fangavörður vaknaði um svip-
að leyti og stúlkan fór út. Opn-
aði hann fyrir lögregluþjónun-
um. Þegar þeir komu síð&n að
mér, var ég bújnn að leysa mig
úr böndunum.
Skömmu síðar, eða þegar ég
hafði gefið skýrslu um það, sem
fyrir hafði komið, fór ég á slysa-
varðstofuna, þar sem ég hafði
slæma verki á milli herðanna og
í vinstri handleggnum.
Við rannsókn kom í ljós, að
afltaugin ofan úr hálsi niður í
handlegg hafði marizt og við það
hafði upphandleggurinn lamazt
að verulegu leyti.”
HVERNIG VARSTU Á ÞIG
KOMINN, ÞEGAR HJÁLPIN
BARST?
„Ég var alls ekki illa á mig
kominn, að vísu var ég lokaður
þarna 'inni og dasaður eftir á-
tökin, enda er ég orðinn fimm-
tíu ára gamall -maður og mesta
harkan kannski farin úr manni.”
HVAÐ VILTU SEGJA AÐ
ATBURÐI ÞESSUM LOKN-
UM?
„Það hlýtur að vera krafa
þeirra, sem vinna við fangagæzlu
í hegningarhúsinu, að manna-
FL0KK88TABF1Ð
Hafnarfjörður og
Kópavogur
Alþýffufloklisfélög-in í Hafnarfirffi og FUJ á sömu stööum halda sam
ciginlegan fund í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirffi í kvöld kl. 8,30. Fjall
að verffur uin efnahagsmál og mun dr. Gylfi Þ. Gíslason við-
skiptamáíaráöherra mæta á fundinum.
Sýnikennsla
Kvenfélag Alþýffuflokksins í Reykjavík gengst fyrir sýnikennslu í
jóíaskreyt’ngrm og fer hún fram í Ingólfscafé í kvöld og hefst
tkl. 8.30. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 15020.
Jóíafundur Al-
Jb ýðuflokkskvenna
Jólafundur Kvenfélags Alþýðuflokksins í Reykjavík verður hald
jnn n.k. fimmtudagskvöld, 12. desember kl. 8,30 i Ingólfscafé.
1. Venjuleg félagsfundarstörf.
2. Upplþstiu’.
3. Sveinbjörn Sigurjónsson skólastjóri sýnir skuggamyndir frá
Grikklandsför.
4. Jólahappdrætti.
Félagskonur eru hvattar til að fjölmenna og taka með sér gesti.
STJÓRNIN.
BRIDGE - BRIDGE
Spilum bridge í Ingólfscafé n.k. laugardag, kl. 2 eftir hádegi.
Stjórnandi Guðmundur Kr. Sigurffsson.
I Alþýffuflokksfélag Reykjavíkur.
•úVt'-. • ' i" ; ■■‘v ... ‘ i:
hald þar sé nákvæmlega hið
sama og er austur á Litla-
Hrauni. Þar eru þrír menn á
vakt allan sólarhringinn. Sömu-
leiðis hlýtur það að verða krafa
okkar, að í hegningarhúsinu sé
sérstakur maður, sem sjái um
matinn fyrir fangahópinn, eins
og er á Litla-Hrauni.
Við verðum meira að segja að
elda matinn og skammta hann
og koma honum til fanganna. —
Þetta hefur það í för með sér,
að ekki er nema einn maður við
fangagæzluna a.m.k. fyrri hluta
dagsins, þar sem það hefur verið
talið fullt eins manns verk að
hugsa um mat fyrir um þrjátíu
manns. -
Sömuleiðis hlýtur það að vera
krafa okkar, að ráðin verði bót á
húsnæðismálunum frá því sem
nú er. Þrátt fyrir erfiða tíma,
hlýtur að vera unnt að bæta úr
því ófremdarástandi.
Vegna f járhagshliðarinnar
væri vert að spyrja, hvort nokk-
urn tíma hafi verið reiknað út,
hve margar milljónir farj árlega
í útsvikna og stolna fjármuni,
fyrjr utan þá eyðileggingu á
húsum og húsbúnaði einstaklinga
og fyrirtækja, sem óbótamenn
hafa valdið, og sömuleiðis vegna
örkumlunar fólks, sem hefur
orðið fyrir árásum bæði á götum
úti og í heimahúsum.”
Að lokum vil ég segja þetta:
„Alþingi, sem hefur fjárveitinga-
valdið, og viðkomandi yfirvöld,
sem með framkvæmdavaldið «
fara, verða að hætta að líta fang
elsismálin sem einhver feimnis-
mál og láta þau til sín taka, áð-
ur en afbrotalýðurinn vex þjóð-
félaginu yfir höfuð.”
í þessu viðtali við Gunnar
Guðmundsson fangavörð, sem
starfað hefur við hegningarhús.
ið við Skólavörðustíg í 12 ár,
kemur í ljós, að öll aðstaða til
fangavörzlu í þessu gamla og
vjrðulega húsj er með öllu óvið-
unandi.
Um fjörutíu ár eru liðin síðan
fangelsið að Litla-Hrauni var
tekið í notkun. Má segja, að á
því tímabili, sem liðið er síðan,
hafi ekkert verið gert til að bæta
úr fangelsismálum hér á landi.
Þó ber þess að geta, að fyrir
nokkrum árum var skipuð nefnd,
sem skyldi velja nýju ríkjsfang-
elsi stað og mun teikning pð því
liggja fyrir. Hins vegar e 1 ekki
að sjá, að um frekari framgang
málsins hafi verið að ræða
ástæða til þess nú, þegai
Værí
ljóst
er, að í algjört óefni er kómið í
fangelsismálunum að gera gang-
skör að byggingu nýs fan^elsis.
-----------------í---
.
Minningarrit
um Harald
Nielsson
Sálarrannsóknarfél. íslands hef
ur gefið út minningarrit um Har-
ald Níelsson prófessor, en hundr
að ár eru nú liðin frá fæðingu
hans. Séra Benjamín Kristjáns-
son sá um útgáfu ritsins sem
nefnist Haraldur Níelsson —
stríðsmaður eilífðarvissunnar
1868—1968. í formála segir séra
Benjamín m.a: „í mjnningarrit
þetta er safnað nokkrum ritgerð-
um um séra Harald Níelssoii próf
Framhald á 12. síðu.
Jónas Þorbergsson
BROTINN ER BRODDUR DAUÐANS
%
ffiOTINN- g
BIiOÐDUIl
-%0:
Þessi síðasta bók Jónasar Þorbergssonar fjallar um „mikil-
vœgasta mólið ■ heimi". Hann rœðir hér um orku og efni
og framlífið að loknum líkamsdauðanum, — um manninn
og samsetning hans, — langur kafli er um sólfcrir og segja
þar ótta landskunnir menn fró eigin reynslu, — kafli er
um djúptrans miðla og loks er hér að finna brot úr sam-
tölum sem Jónas ótti við framliðna vini sína. — Sem bókar-
auki eru minningargreinar nokkurra vina Jónasar um
hann lótinn.
Verð kr. 365,50
S K tt 6 G S J Á
James Leasor
^ LÆKNIR í LEYNIÞJÓNUSTU
„Þegar K gékk inn um hverfidyrnar ó Park-gistihúsinu,
gerði hann sér ósjólfrótt grein fyrir, hvers vegna þreknu
mennirnir tveir stóðu og biðu við móttökuborðið. Þeir
voru komnir til að drepa harin . . ."
Hver var K, og hvers vegna hafði einhver óhuga ó að
drepa hann? Hver var stúlkan í Róm — þessi með mar-
blettina? Hver var flóttamaðurinn i Kanada? Og hvers
vegna lagði rauðhœrður Skoti óherzlu ó að nó sambandi
við mann, sem hann hafði kynnzt í Burma 20 órum óður?
í fljótu bragði virtist ekkert þessara atriða snerta Jason
Love, énskan sveitalœkni, og þó snertu þau hann ö.ll óður
en lauk.
„Fróbœrlega skrifuð og spennandi njósngsaga" — Sun-
day Express. Verð kr. 344,00
5 K U G G S J Á