Alþýðublaðið - 13.12.1968, Blaðsíða 3
13- desember 1968 ALÞYÐUBLAÐH) 3
Brezkt blað kemur með nýjar upplýsingar um Tékkóslóvakíumálið:
Gieymdist aö reikna með tíma-
muninum milli Moskvu og Prag?
Varð tímamunurinn, sem er á Meskvu og Prag til
þess að koma í veg fyrir að Rússar gætu náð sér í
átyllu til innrásarinnar í Tékkóslóvakíu? Og varð
þessi tímamunur um leið óbeint til þess að Dubcek
og nánustu samstarfsmenn hans héldu lífi, þrátt
fyrir hrottalega meðferð í
Brezka stórblaðið The Sun-
day Times skýrir frá því um
'helgina, að tveir menn í fram-
kvæmdastjórn tékkóslóvakíska
ikommúnistaflokksms þeir Indra
og Kolder 'hafi vitað um innrás-
ina fyi'ir fram. Kvöldið fyrir
innrásina var boðaður fundur í
framkvæmdastjóminni kl. 22, og
þar 'áttu þessir rússnesku lepp-
ar að leggja Rússum til réttlæt
ingu á innrásinni með því að
'ásaka Dubcek um gagnbylting-
starfsemi og undirróður gegn
Sovétríkjunum og skora um leið
á Varsjárbandalagslöndin að
ÖKUMENN
byrjun?
koma til aðstoðar. Þetta átti að
gerast um leið og innrásin hæf-
ist eða um miðnætti.
T í m a-munurinn
En þessi ráðagerð fór út um
þúfur, af því að það gieymdist
að reikna með tímamuninum.
Rússar gerðu innrásina á til-
skildum tíma eftir sinni klukku,
þ.é. um miðnætti, en þá var
klukkan aðeins 10 að kvöldi í
Prag og framkvæmdastjcimar-
fundurinn rétt að hefjast. Hálf-
tíma síðar var flokksstjómar-
mönnunum tilkynnt um innrás-
ina, en þá höfðu þeir Indra og
Kolder enn ekki hafið ásákain-
irnar gegn Dubcek, og orðið
var of seint að bera frarn beiðn
ina um aðstoð.
ÖKUMENN
Látið stilla í tíma.
Hjólastillingar
Mótorstillingar
Ljósastillingar
Fljót og örugg þjón-
usta.
Bílaskoðun &
stilling
Skúlagötu 32
Sími 13-100.
©ps<3 aSlan
sólarhringinn
Smurt brauð — heilar sam-
lokur — hamborgari — djúp-
steiktsir fiskur. SENT EF
ÓSKAÐ ER.
RAMÓNA',
Álfliólsvegi 7, Kópavogi .—
sími 41845.
Blaðið segir, að yfirmaður
tókknesku leyniíþj ónustunnair
hefði hins vegar ekki gert þessi
sömu mistök. Bamn var mættur
á flugvellinum í Prag klukkan
10 eftir tékkóslóvakískum tímr
til þess að taka á móti hinum
rmsn esku húsbændum sínum op
iþröngvaði fhigvallarstarfsmönn.
um þar til þess að kveikja lend
ingarljós. Þar voru einnig starfs
menn úr sovézka sendiráðinu
en fyrsta vélin sem lenti þóttist
vera venjuleg áætlumarflugvél
á leið til Parísar og bað um
nauðlendingarleyfi vegna vélar-
ibilunar. Þessi vél flutti hjns
vegar brynvagna, sem fáeinum
mínútum EÍðar voru lagðir af
stað inn í miðborg Pragar.
Handtakan.
Blaðið segir að bílstjóra
sovézka sendiherrans hefði ver-
ið falið það hlutverk uð vísa
sovézkum ihermönnum leið að
húsi miðstjórnar kommúnista-
flokksins þar sem framkvæmda-
istjórnarfundurinn stóð yfir.
Ilermennirnir umkringdu bygg-
inguna, en í sömu andrá var
Dubcek kalláður í símann, þar
sem honum var skýrt nákvæm-
lega frá innrásinni og öllu sem
gerzt hafði. Þá ruddust hermenn
irnir inn í bygginguna, skipuðu
Tékkóslovökunum að standa í
röð út við vegginn og rifu sím-
ann úr höndum Dubceks. Við
þetta tækifæri var hann sleginn
að minnsta kosti einu sinni yfir
augað, og bar' hann nienjar um
það högg, er hann kom heim
frá Moskvu síðar.
Leiðtogarnir þrír, Dubcek,
Smrkovsky þingforseti og Cernik
forsætisráðherra voru síðan
leiddir upp í bi-ynvagna og flutt
ir til flugvallarjns í Prag. Þar
fóru sovézku hermennirnir með
þá eins og ótínda glæpamenn,
hrundu þeim og börðu, en að
lokum voru þeir fjötraðir og
bornir upp í flugvél. Tvennum
eða jafnvel fleiri sögum fer af
því, með hvaða hætti þeir voru
fluttir til Moskvu, en fyrst virð-
ist hafa verið farið með þá til
bækis'töðva sovézku leynii'þjón-
ustunnar í Úkraínu, og þar var
þeim skýrt frá því að ný stjórn
værj þegar tekin við völdum í
Tékkóslóvakíu, og þeir þyrftu
nú aðeins að meðganga glæpi
sína. Síðan voru þeir fluttir til
'Moskvu og þar var þess krafizt
af þeim, að þeir undirrituðu
skjal, þar sem þeir lýstu inn-
rás Varsjárbandalagsins löglega.
Þeir neituðu, en þá var þeim
sýnd fölsuð fréttamynd frá
Tékkóslóvakíu, þar sem almenn-
ingur í landinu var sýndur
knékrjúpa fyrir framan sovézka
hermenn og biðja þá að koma
á röð og reglu í landinu.
Hótun Svoboda.
Eftir mikinn þrýsting frá
Sovétríkjunum féllst Svoboda
forseti loks á |þ,að að fara til
Moskvu til „samninga“. Strax
og hánn kom þangað krafðist
hann þess að fá að hitta þá
Dubcek, Smrkovsky og Cerinik.
Bresnev færðist undan, ©n þá
tók Svoboda af sér öll sovézk
iheiðursmerki og fleygði þeim
frá sér á borðið. Síðan tók
hann upp skammbyssu og sagði:
Ef þið leyfið mér ekki að sjá
ráðherrana mína strax skal ég
svipta mig lífi, og það með
þessari byssu, sem Stalin gaf
mér til minningar um samejgin
lega baráttu okkar gegn Hitler.
Þið getið svo sagt heimimum,
að ég hafi framið sjálfsmorð, —
og það trúir ykkur enginn!
imm
Áiistair
MacLean
ARHAR'
BORCIH
Það er ótrúlegt, en satt: ALIS-
TAIR MACLEAN hefur aldrei áð-
ur skrifað jafnspennandi bók og
þessa, nema ef vera kynni BYSS-
URNAR í NAVARONE, enda er
útbreiðsla bókarinnar og viðtök-
ur lesenda í samræmi við það.
Alistair
MocLeon
ARNAR-
BORGIN
Sjö karlmenn og ein kona svífa til jarðar
á dimmri vetrarnóttu í fjallshlíð í þýzku
Ölpunum. Heimsstyrjöldin síðari er í al-
gleymingi. Hlutverk þessara áttmenn-
inga er að þjarga þandarískum hers-
höfðingja, sem er fangi í óvinnandi virki
á fjallstindi — í sjálfum aðalstöðvum
Gestapós. — en ER þetta í rauninni
aðalerindi þessa fólks, sem nánast e’r
sent beint í opinn dauðann?
Nú er verið að kvikmynda ARNAR-
BORGINA og leikur Richard Burton
aðaihlutverkið. Er kvikmyndar þessar-
ar beðið með mikilli óþreyju.
■I*8
IÐUNN
Skeggjagötu 1
símar 12923, 19156
FLOKKSSTAKFIÐ
BRIDGE - BRIDGE
Spilum bridge í Ingólfscafé n.k. laugardag, kl. 2 eftir hádegi,
Stjórnandi Guðmundur Kr. Sigurð'sson.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur.