Alþýðublaðið - 21.02.1969, Side 7
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 21. febrúar 1969 7
FANGELSI GERA MENN „FORHERTA"
, ,, >» ■ ■
1 mg- ;; ""': 1
► SX < >4
nrtekið/brot. Með öðrum orðum:
Sú aðferðin sem kostaði þióðfélagið
gífurlegt fé varð til þess, að af þeim
sem hennar ntttu, brutu 85% fleiri
af sér á tiý, heldur en af þeim sem
sjálfir greiddu sína aðferð. Þjóð-
félagið borgaði háar fjárupphæðir
í meðferð sem spilhi mönnunum,
það tapaði enn verðmætum þegar
þessir menn brutu af sér á ný það
beitti þá aftur hinni kostnaðarsömu
mannskemmandi meðhöndlun, og
steig þar með eilt skref til viðbótar
í þessum undarlega vítabring. Af
þessu má glögglega sjá, að sé ætl-
upin að kenna einhverjum eitthvað,
er ekki rétta aðférðin sú, að útiloka
viðkomandi frá allri snertingu við
námsefnið. Leiðin til happasællar
og hamingjusamrar sambúðar við
náungann verður aðeins kennd f
umhverfi þar sem slíkt raunveru-
lega þrífst.
ar sem við höfum nú rakið
töiur og líkur fyrir því að
refsing bafi neikvæð áhrif á þá sem
hennar gjalda, og aðstandeitdum
þeirra, væri ekki úr vegi að athuga
hver áhrif hótunin um refsingu
vegna afbrots hefur á löghlýðið fólk,
eða (réttara sagt) fólk sem hefur
ekki hlotið dóm fyrir lögbrot. Það
er einmitt þessi hóptir sem er frtim-
kvöðullinn að kriifunni um þyngri
refsingu, einkum vegna þess að
honum stafar hætta af afbrotamönn-
um, en alls engin sjáanleg hætta
af óréttlátum hegningum á þeim.
Þótt allir menn hafi brotið lög og
regl^r og sé það fullkomlega ljóst,
mun enginn þeirra vilja líta á sjálf-
an sig sem 1 afbrotamann, og alls
ekki taka þessa aðvörun til sín,
þ.e. fvrr en þeir eru stimplaðir með
dómsúrskurði. Það sem aftrar þeim
frá lögbrotum er hin siðferðislega
sektarmeðvitund og óttinn við
álitsskerðingu, en alls ekki óttinn
við þá hegningn sem við einhverju
afbroti liggtirt Hvgg ég að' öllum
sé þetta nokkuð Ijóst. Rétt er. cinnig
-að minna hér á þá: augljósu stað-
reyncl, að þeim mönnum sem mest
áhrif hafa á lög og hegningardóma,
eru, af eðlilegum umhverfis og hug-
arfarsástæðum, ýmsar tegundir af-
brota meira fráhrindandi og fyrir-
litlegri, og þannig alvarlegri en
aðrar, þó að þjóðfélagslegt tjón af
þeim sé hið samá. Þetta hefur í för
' með sér óréttláta valdbeitingu „efri“
Hvernig á að meta lög-
. brot
stéttanna á þeim „lægri", og er
það greinilegast þar sem þjóðir eru
stéttaskiptar, en það er auðvitað
ekki ' eins ríkum mæli bér á landi.
Eina Ieiðin fyrir samfélagið til að
meta og dæma lögbrot, er að meta
þann skaða sem það veldur. Eina
sanlfélagslega mælistikan á skaða,
er andvirði þess sem skemrnt er,
í peningum, hvort sem mönnum
líkar sú fullyrðing betur eða verr.
Ef að dóma ætti að byggja á dul-
mótaðri réttlætiskennd eða tilfinn-
ingum manna, yrði ekkert samræmi
með þeim, sökum þess að slíkar
kenndir eru mjög misjafnar með
mönnum, allt eftir ólíku innræti
og uppeldi. Þeir sem í raun og
veru ímynda sér að hegning beri
jákvæðan árangur, ættu, hvað sem
öllu öðrti líður, að leggja þyngstu
viðurlögin við þeirn lögbrotum sem
mestu fjárhagslegu tjóni valda.
Þessi réttmætiskrafa, svo langt sem
hún nær, er að mestu leyti hlunn-
farin. Ejnn maður sem brýzt inn á
nokkra staði og hefur ef til vill
tíu þúsund krónur upp úr krafs-
inu, hlýtur mun þyngri dóm en
annar maður sem árum saman not-
ast við óskráð sjónvarpstæki, og
veldur þannig sama samfélagsskað-
anum. Og undantekningarlaust hlýt-
ur hann þyngri dóm en einhver
þrautmenntaður og úrræðagóður
einstaklingur, sem sólundar tugum
milljóna af almannafé í eigin þágu,
og ber úr býtum virðingu og viður-
kenningu, í stað maklegra mála-
gjalda. A meðan blómstra skattsvik
og ýmiskonar ;fjárplógssf,arfsemi,
ir
sem hver um sig veldur margfalt
meira árlegu tjóni, en innbrot og
skemmdarverk. Glöggt er hversu
okkur hættir við að sjá flísina í
auga náungans, og hversu gjarnt
okkur er að haga seglum eftir vindi.
Sá ykkar sem syndlaus er .........
og nóg um það.
I þjóðfélagi þar sem menn virða
lög og reglur, líta þcir með van-
virðu á þá sem þau brjóta. Lang-
sferka.sta uppeldisaflið, og í raun
og veru eina aðhaldið, er sjálft al-
menningsálitið. Allir, jafnvel þeir
sem við verst kjör búa, eru í flest-
iim gerðum sínum mótaðir af ríkj-
andi 'áliti fjöldaps. Virðing, traust,
gott álit og önnur torsótt gæði eru
UDDskorin á þeim vettvangi. Af
■þessum ástæðum hafa margir fylgj-
endur þyngri refsingar farið fram
á að lögbrjótar verði sviptir ærunni
frammi fyrir alþjóð, þannig að nöfn
þeirra og myndir yrðu birtar í fjöl-
miðlunartækjum o. fl. Þannig æru-
missir er tvímælalaust þyngsta refs-
ing sem hægt er að beita nokkurn
rnann í siðuðu þjóðfélagi. Hún
brýtur nefnilega niður þann ramma
sem hverjum Jöghlýðnum manni er
gert að lifa innan. Þar sem álit
fjöldans _er eitt sterkasta aflið sem
bægir manninuni frá því að brjóta
lögin, er sá sem ekki er lengur
bundinn af því beinlínis bvattur
áfram eftir sömu braut. Hann er
þannig óvægt dæmdur af ókunnu
fólki, sem lítið cða ekkert þekkir
hann, nema fyrir þann eina verkn-
að, þá einu hlið hans, sem opin-
berlega er sýnd. Sú mynd sem þann-
ig innprcntast iijá öllum einstakling-
um samélagsins vcldur því, að hann
er tortryggður hvarvetna sem lög-
brjótur, jafnve! þótt hann aldrei
framar stígi víxlspor. Vel kann að
vera að þau atvik sem til slíkra
dóma leiddu, seu sorgleg og vekji
réttláta reiði manna, en rétta úr-
lausnin er ekki að. halda þannig á
taumunum, að þjóðfélagið svipti
Framhald á bls. 10.
TILKYNNING
frá SÁPUGERÐINNI FRIGG
Að marggefnu tilefni, viljum við minna á að framleiðslu
vörur okkar eru eingöngu seldar til verzlana og fyrir-
taekja. Er því tilgangslaust fyrir aðra en ofangreinda að
leita til okkar.
Síðbuxur
Þýzkar úrvals skíðabuxur, allar herra-
og unglingastærðir.
Ó.L. Laugavegi 71 1
Sími 20141. b
Iðnskólinn í
Reykjavík
gengst fyrir námskeiði fyrir meistara og sveina i pípu-
lagningaiðn í samráði við Hitaveitu Reykjavíkur. Náms-
■efni samkvæmt bréfi, sem félögum í stéttarfélögum
pípulagningamanna hefur verið sent.
Innritun fer fram á skrifstofu Iðnskólans í Reykjavík
til 26. þ.m. Niðurröðun í deildir fer fram föstudaginn
28. febrúar kl. 20.00 í skólann. Námskeiðið hefst mánu-
daginn 3. marz n.k. kl. 20.00. Skipt verður i hópa effir
þátttökunni. Kennt verður 5 kvöld kl. 20—22 fyrir hvern
hóp.
Skólastjóri.
Dauðir menn segja írá merkilegum
atburðum
nefnist erindi, sem SVEIN B.
JOHANSEN flytur í
AÐVENTKIRKJUNNI, í dag
FÖSTUDAGINN 21. febrúar <
kl. 20,00
Kórsöngur - kvartettsöngur
Athyglisverðar litskuggamynd-
ir.
ALLIR VELKOMNIR.
Blaðburðarfólk óskast við:
Rauðarárholt
Hafið samband við afgreiðsluna. — Sími 14900-
MATUR OG BENSÍN
allan sólarhrínginn.
Veitingaskálinn, Geithálsi.