Dagur - 22.05.1918, Síða 2
30
DAGUR.
heima, en engir daglegir »ragprísar«
eða neyðarkjör. Állir hljóta að óska
þess að sú stund sje nálæg.
Hvað viðkemur daglegum við-
skiftum bænda og bæjarbúa, mætti
athuga nánar við tækifæri. f*að
tvent skal hjer aðeins tekið fram,
að þau viðskifti ættu að vera bygð
á heilbrigðari grundvelli en nú ger-
ist, og óþarfa rígur milli þessara
stjetta er báðum máisaðilum jafn-
skaðlegur.
9U 1918.
Halldór Friðjónsson
— frd Sandi. —
Frá útlöndum.
Miklar viðsjár hafa átt sjer stað í
þingi Breta. Kæra hefir verið flutt
gegn Lloyd George út af því, að
hann hafi gefið rangar hernaðar-
skýrslur. Heitir sá Maurice og er
einn af hershöfðingjunum, sem kær-
an er frá komin. Asquith, keppi-
nautur og andstæðingurL. G., fylgdi
kærunni fast fram og heimtaði rann-
sóknarnefnd, en Lloyd George varð-
ist snarplega og lauk þessari sennu
svo, að hann fjekk traustsyfirlýsingu
frá yfirgnæfandi meiri hluta þing-
manna.
Fullnaðarfriður er nú kominn á
milli Rúmeníu og Miðveldanna.
Skuldbundu Rúmenar sig til að ala
önn fyrir Miðveldahernum þar í
landi um óákveðinn tíma. Rúmenar
verða undir eftirliti Miðveldanna.
Ukraine og Rúmenía hafa kom-
sjer saman um að skifta Bessarabíu
á milli sín eftir þjóðernum.
Búist er við nýrri ofsalegri sókn
frá Rjóðverjum að vestan þá og
þegar. Er það talin ætlun þeirra að
hrekja her Breta með öllu burt af
Frakklandi og ná hafnarbæjunum
við Ermarsund á sitt vald. Er svo
að heyra, að Bretar sjálfir telji ekki
óhugsandi að þeim takist þetta, en
eru engu að síður staðráðnir í að
halda stríðinu áfram eftir sem áður
á hafinu og með viðskiftastyrjöld.
Og aldrei; segja þeir, takist Rjóð-
verjum að koma her á land í Eng-
landi. Reir treysta og á her og flota
samherja sinna, Bandaríkjamanna.
Pingmannsefni sambandsflokksins
í Færeyjum hefir náð kosningu til
neðri málstofunnar dönsku með litl-
um meiri hluta. Bætist þar and-
stæðingutn Zahlestjórnarinnar einn
liðsmaður. 32 róttækir vinstrimenn-
og 39 jafnaðarmenn styðja stjórnina
við völd áfram gegn 69 andstæðing-
um. Við lögþingskosningar í Fær-
eyjum hefir frjálslyndi flokkurinn náð
11 sætum af 20.
Alþingi.
Ákveðið er að þingið haldi áfram
fyrst um sinn og jafnvel gert ráð
fyrir að þvi verði ekki slitið fyr en eft-
ir komu dönsku sendinefndarinnar,
sem semja á um fánann og ef til
vill fleira. Hvenær sú sendinefnd
kemur hingað verður ekki ráðið fyr
en danska þingið kemur saman sein-
ast í þessum mánuði.
í þinginu er mikið rætt um Tjör-
nesnámuna. Hefir orðið allmikið
tap á rekstri hennar síðastliðið ár.
Reyna andstæðingar stjórnarinnar
að færa sjer þetta sem best í nyt
sem árásarefni á hana, en horfir
þunglega fyrir þeim, og er fullyrt
að stjórnin standi með pálmann í
höndum í því máli. Pjetur Jónsson
hefir lagt til, að málið yrði afgreitt
með rökstuddri dagsskrá, sem hann
flytur, og er hún í raun og veru
ekki annað en traustsyfirlýsing til
stjórnarinnar.
Sjálfstæðismál Siglufjarðar hefir
náð samþykki þingsins. Ennfrem-
ur tillagan um bankaútibú þar.
Neðri deild hefir samþykt dýr-
tíðarfrumvarp stjórnarinnar.
Sr. Sig. Stefánsson hefir sagt sig
úr Heimastjórnarflokknum Ástæðan
sögð sú, að hann fjekk því ekki
ráðið að þinginu yrði frestað.
Pá hefir Jón á Hvanná sagt sig
úr Framsóknarflokknum og þakkaö
fyrir góða samvinnu.
Samkvæmt yfirliti um fjárhag
landsins, er fjármálaráðherra hefir
gefið þinginu, hefir tekjuhalli síð-
asta fjárhagstímabils orðið rúmlega
U/2 miljón kr. Skuldir landssjóðs
nú rúmar 19 milj. kr. Inneignir
landssjóðs um nýjár yfir ló’/z milj.
kr.
Á rekstri landsverslunarinnar frá
upphafi er talið að orðið hafi um
1 milj. kr. gróði, en tap á rekstri
landssjóðsskipanna tæp 240 þús. kr.
Er aðaltapið á »Borg«, þvi á »Wille-
moes« hefir orðið yfir 100 þús. kr.
hagur. Góðar vonir um, að hagur
verði á rekstri allra skipanna þetta
ár.
Samtíningur.
— Eftir því sem frá er skýrt í
Reykjavík, er móvinsluaðferð sú, er
P. Klementz stingur upp á, sænsk
að uppruna. Sagt að svörðurinn sje
aðeins Ui af vanalegri fyrirferð og
að hann þurfi mjög lítinn þurk.
Framleiðslukostnaður í Svíþjóðsagð-
ur 17 kr. á smálest, en gert ráð
fyrir að hann verði 60 kr. hjer á
landi. Vjelarnar sagðar kosta 4000 kr.
— Vínbrugg er orðið uppvíst í
Rvík. Hafa fundist hjá Ara nokkr-
um Pórðarsyni 80 pottar af ný-
brugguðu vini með tilheyrandi á-
höldum. Vínið reyndist að inni-
halda 10°/o af spíritus. '
- Verkamenn í Rvík hafa viljað
setja 90 au. ,lágmarksverð á vinnu
sína yfir kl.tímann, en vinnuveit-
endur ekki viljað ganga að. Ut af
þessu hefir legið við verkfalli, en þó
eigi orðið af, sætst á að leggja
málið í gerð, enda affarasælast að
líkindum.
— Lagarfoss lagði á stað frá
Khöfn hingað til lands nú fyrir
hvítasunnuna, er væntanlegur til
Rvíkur á næstu dögum.
Botnía er komin til Rv. frá Höfn.
Sterling er á leið hingað frá Rvík.
— Tvö seglskip eru væntanleg
hingað til Akureyrar með útlend kol,
sem landsverslunin á.