Dagur - 19.07.1918, Qupperneq 3
DAGUR.
47
tilmælum stjórnarráðsins, er sam-
þykti það óbreytt. /
Þess skal getið að herra Halld.
Eiríksson aðstoðaði mig góðfúsl.
sjerstaklega að því er snerti form
einnar Eókarinnar.
Bókhald mitt yfir sölu .varanna
var frá byrjun (1914) tvöfalt, sem
kallað er, hver einstök afgreiðsla
tílfærð í 4 bókum samtímis, d : frum-
bók, afhendingarbók, sjóðbók og
höfuðbók. .
Enginn yfirboðara rninna hefur
mjer vitanlega, hvorki fyr nje síðar,
fundið að störfum mínum við lands-
verslunina, eða látið í ljós óánægju
með þau, enda þykist jeg ekki hafa
gefið tilefni til þess.
Vörutalning fór oft fram, og seld-
ust vörurnar við og við alveg út;
matarbirgðir urðu því aldrei gamlar.
Skýrslur um söluna og fyrirliggj-
andi vörubirgðir sendi jeg stjórnar-
ráðinu iðulega. F*að vissi því á öll-
um tímum hvað sölunni og vöru-
forðanum leið. Reikning yfir rekst-
ur verslunarinnar gat það því sam-
ið og látið endurskoða eins oft og
því þóknaðist mín vegna; mjer var
það óviðkomandi. Herra Rórður
Sveinsson- endurskoðaði alla reikn-
* inga landsverslunarinnar, ekki frem-
ur mína reikninga en stjórnarráðs-
ins, og samdi einn heildarreikning
fyrir stjórnina. En ósannindi eru það
hjá höf., eins og annað, að hann
hafi orðið að skrifa upp mfna
reikninga.
Af framanskrifuðu er það ljóst,
að annaðtveggja er höf. gjör-ókunn-
ugur málefni því, er hann skrifar
um, eða hann ritar móti betri vit-
und. \
Brigslyrði hans um ljelega greind
mína og laklega mentun læt jeg
mjer í ljettu rúmi liggja; enda er
yfirleitt sama handbragðið á grein
þessari og skrifum þeim, sem birt-
ust í »Tímanum« í fyrra, sem jeg
hefi ekki virt svars hingað til.
Hygg jeg að árásir hans á mig
gæfu rjettari lýsingu á honum sjálf-
um en mjer, ef hann hefði hug til
þess að koma fram í dagsbirtuna.
Er það ekki talinn vottur hreinnar
samvisku að þora ekki að gangast
við gerðum sínum.
Reykjavík 28. maí 19.18.
Olgeir Friðgeirsson.
Ágangur búfjár.
Ágangur af sauðfje hjer niðri í
bænum er nú svo magnaður að
orð er á því gerandi. Fjeð er í
smærri og stærri hópum að heita
má, bæði nótt og nýtan dag, sjálfu
sjer til bjargar, en mönnum þeim,
sem einhverja lóðarspildu eiga, oft
til mikiis skaða og skapraunar. Fjen)
aðurinn er svo ágengur,. að honum
verður ekki varist með venjulegum
girðingum og varnartækjum, sem
menn hingað til hafa notast við.
Rollurnar stökkva yfir háar girð-
ingar, vaða inn um öll hlið, ef þær
sjá færi á, og jafnvel inn í hús.
Börnuin og unglingum ekki fært
að fást við slíkar skepnur, því ekki
svífast þær þess að ráðast á full-
orðið fólk, þegar þeim er alvara
með að komast leiðar sinnar.
Peir, sem við garðrækt fást, eiga
það stöðugt í hættu, að garðarnir
sjeu að miklu leyti eyðilagðir á
einni nóttu. Ein rolla með lambi
getur hæglega eyðilagt fyrir fleiri
tugi króna yfir nóttina, einkum í
róugörðum.
Nú á dögum er mikið í húfi með
garða að þeir sjeu ekki eyðilagðir.
Rað er vanvirða, en sannleikur,
að bœrinn er notaður sem afrjett,
því vitanlegt er að margir af fjár-
eigendum í bænum sleppa fje sínu
hjer niðurfrá á vorin, þegar þeir
eru búnir að rýja það. Og þó að
þeir reki það upp í Glerárdal, kem-
ur það að engu haldi. Dæmi eru
til þess að fje, sem hefir verið
fóðrað í bænum, og rekið upp í
dal, hefir verið fljótara heim aftur
en rekstrarmennirnir.
Ressi ágangur af sauðfjenu er
því ergilegri, þegar það er athugað,
að fyrir nokkrum árum var varið
miklu fje til þess að girða af bæjar-
landið, og hefði því mátt ætla að
það hefði komið að einhverjum
notum. Ef til vill hefir það verið
fyrst í stað, en nú er það ekki
lengur. Staurarnir eru (víða beygðir
og brotnir, strengirnir fallnir af
þeim, og þeir slitnir og hirtir.
Það er ekki tilgangur minn með
línum þessum að særa hina hátt-
virtu jarðeignarnefnd eða bæjar-
stjórnina, þó hana megi uni þetta
saka að nokkru leyti, og eigi held-
ur að sýna það að jeg sje nefnd-
inni ráðkænni, þó jeg bendi á ráð.
Erfiðleikarnir á því að koma í
veg.fyrir þennan ágang eru sýnilegir
þeim sem til þekkja. Efni til girð-
inga og peninga vanfar til fram-
kvæmda. Verkefni mefndarinnar er
líka svo mikið, að ekki er von á
því, að menn, sem eru hlaðnir
önnum, geti vafsast í öllu því er
landinu viðkemur og það án end-
urgjalds.
Jeg vil leyfa mjer að benda á
ráð í þessu efni í því trausti að
þau geti orðið að liði.
1. Að tekið sje upp það slitur,
sem eftir er af girðingunni hið
efra, nú þegar á þessu sumri
og hún sett niður í haust eða
næsta vor niður við tún og
engjar og sje svo rækilega frá ,
þeirri girðingu gengið, að engu
búfje sj’e fært að komast þar
undir eða yfir.
Ressi girðing yrði mikið styttri,
og ætti að vera til nóg efni í
hana úr hinni gömlu girðingu,
þareð svo mörg af túnunum eru
vel girt að ofan.
Að ájálfsögðu þyrfti að búa vel
um öll hlið á vegum og hafa
ákveðna menn til þess að gæta
þeirra á hverju kvöldi.
2. Að öllum fjáreigendum, sem
fóðra fje sitt í bænum yfir vet-
urinn, sje gert að skyldu, ann-
aðhvort að hafa það á sínu
eigin afgirta landi strax á vorin,
þegar fje gengur út, eða koma
* *