Dagur - 10.09.1918, Blaðsíða 4
68
ÐAGUR.
Samtíningur.
— Mánudaginn 2, þ. m. brann
á ísafirði verslunarhús Elísar & Ed-
walds ásamt nokkrum skúrum. Eitt-
hvað af slqölum og reikningum ísa-
fjarðarkaupstaðarbrann inni,én mestu
af vörum varð bjargað.
— Knattspyrnu þreyttu ungmenna-
fjelagar Akureyrar við Fálkamenn
fyrra sunnudag. Unnu íslendingar
tvö mál, en Danir 1.
— Sæsíminn, er slitnaði skamt frá
Færeyjum fyrir nokkru, er nú sagð-
ur í þann veginn að komast í lag.
— Fossanefndin, er fór utan með
Botníu 24. júlí, koin aftur til Rvíkur
með sama skipi 22. ágúst.
— Mjólk í Rvík hefir verið sett
á seðla frá 26. ágúst. Ganga sjúkl-
ingar börn og gamalmenni fyrir.
— Hallgrímur Hallgrímsson frá
Reistará hefir lokið meistaraprófi í
sagnfræði við Kaupmannahafnarhá-
skóla. Kom til Rvíkur með Botníu.
— Lagarfoss fór frá Rvík. í gær,
er væntanlegur til Akureyrar á fimtu-
dáginn.
— Steinolíuframleiðsla árið 1916
er talin að hafa verið um 461 milj.
tunnur, 159 lítra hver. Meira en
helmingur (65°/°) var framleitt í
Bandaríkjunum, eða 301 milj. tn.
(1915: 281 milj. og 1913: 248
milj. tn.). í Rússlandi voru fram-
leiddar 73 milj. tn. (16°/o), 40 milj.
í Mexikó (9°/°), 13 milj. í Austur-
Indíum Hollendinga (3%) og 10
milj. í Rúmeníu.
»Merkúr «
SkilYindur
á kr. 110—250
fást hjá
Pjetri Pjeturssyni.
Prentsmiðja Björns Jónssonar.
Skógviður verður seldur og afhentur bæjarbúum á Torfu-
nefsbryggjunni miðvikudaginn 11. þ. m. kl. 4—6 e. h., en
á innri hafnarbryggjunní næsta dag á sama tíma.
Akureyri, 9. sept 1918.
Erlingur Friðjónsson.
Aðvörun.
Pað hefir komið í ljós, að reykháfar á nokkrum húsum
eru bilaðir fyrir ofan húsþakið og við húsþakið. Er því hjer
með lagt fyrir húseigendur að láta nú þegar gera við reyk-
háfana á húsum sínum, þar sem þess er þörf. Verði þetta
vanrækt verður hlutaðeigandi látinn sæta ábyrgð fyrir það.
Bæjarfógetinti á Akureyri, 4. sept. 1918.
Páll Einarsson.
Kaupfjelag Eyfirðinga
selur útlendar vörur fyrst um sinn aðeins til fjelagsmanna,
vegna takmarkana á vöruinnflutningi.
A vörusölu í Kjötbúðinni verður þó engin breyting.
Akureyri, 9. sept, 1918.
Fjelagsstjórnin.
TILKYNNING.
Matvælaskrifstofan hefir ákveðið að þeir, sem kornvöru
og sykur selja, megi fyrir rýrnun á þeim vörum við flutn-
ing og sölu telja alt að 2°/o af sykri og l1/20/0 af korn-
vöru, sbr. reglugerð 23. jan. 1918, 15. gr.
Petta tilkynnist til eftirbreytni þeim, er hlut eiga að máli.
Skrifstofu Eyjafjarðarsýslu og Akureyrar, 2. sept. 1918.
Páll Einarsson.