Dagur - 03.12.1918, Page 3

Dagur - 03.12.1918, Page 3
DAGUR. 91 Skrá yfir niðurjöfnun aukaaútsvara í Akureyrar- kaupstað fyrir árið 1919 liggur frammi á skrifstofu bæjarfógeta almenningi til sýnis dagana 1. til 15. þ. m. Bæjarfógetinn á Akureyri 2. des. 1918. Páll Einarsson. um sú grein skáldskaparins áem best. Guöm. Magnússon var ólærð- ur alþýðumaður, alinn upp á ein- um útkjálka landsins. Rrált fyrir það tókst honum að ná þeirri vaxt- arhæð í skáldskaparlega átt að nafn hans mun ekki fyrnast, Símfregnir til Dags. (Rvík 2. des. ’18) Um 250 eru dánir í Rvík, 20 á Akranesi, 14 í Garði, 18 i Vest- mannaeyjum. Veikin er skæð í Arnes- og Rangárvallasýslum, er þó reynt að tefja för hennar. Almenn- ingur vill verjast og tefja veikina, en heilbrigðisstjórnin er seinlát og hvarflandi. Ríkisrjettindum íslands var fagn- að í gær með hátíðahöldum í Reyk- javík, Kaupmannahöfn og Kristjaníu. Rrír íslensku sambandslaganefnd- armennirnir gerðir riddararaf danne- brog og Jóhannes dannebrogsmað- ur. Ráðherrarnir heima komman- dörar annarar gráðu. Einmuna blíða. Afli nokkur. Samtíningur. — Inflúensan má heita um garð gengin í Reykjavík. Einstöku iiggja þó enn í lungnabólgu. Talið er að um 250 manns hafi dáið þar úr veikinni eða afleiðingum henn- ar. Allmargir hafa alls ekki veikst eða þá mjög lítilfjörlega. Eru það einkum rosknir menn. Fáeinum mönnum hefir veikin orðið að bana á Isafirði. Hún liefir breiðst út um Suður- og Vesturland og einnig til Vestmannaeyja. Meðal nafnkendra manna, er látist hafa úr veikinni, má nefna dr. Björn Bjarnarson frá Viðfirði og Gest Einarsson bónda á Hæli. Var hann einn af mikil- hæfustu bændum sunnanlands. — Sveinn Hjartarson bakari í Rvík hefir tekið 10 börn, sem orðið hafa munaðarlaus nú í veikindunum, til uppfósturs. Átta þeirra voru syst- in, er mist höfðu báða foreldrana. Þetta er »að gera vilja föðursins á himnum.« — Sigurjón Jóhannesson á Laxa- mýri andaðist að heimili sínu 27. f. m., kominn á níræðisaldur. Sigurjón var þjóðkunnur búhöld- ur. Hann bjó langa hríð á Laxa- mýri og gerði garðinn frægan. Neðan við túnið á Laxamýri er dálítili mýrarflákj. Þegar Sigur- jón byrjaði þar búskap, fengust af honum 40 hestar af heyi. En þegar hann hætti búskapnum, gaf mýrin af sjer 400 hesta. Sigurjón iífaldaði uppskeruna* — »WiIlemoes,« kom hingað í síðustu viku vestan af höfnum, hlaðinn kjöti. Hjer bætti hann við sig nokkru af kjöti og tók kol. Hjelt síðan áleiðis til Noregs. Strangur vörður var haldinn, svo að engar samgöngur væru við skipið, vegna sótthættunnar. — »Lagarfoss« Iagðist hjer að bryggju í gærmorgun, eftir 14 daga sóttkví. Er nú verið að afferma hann. Engum úr landi er leyft að stíga á skipsfjöl og vinna skipverj- ar einir í skipinu. — Sterling fer frá Reykjavík á morgun, áleiðis til Akureyrar, vest- an um land. Skipinu eru setíar fastar varúðarreglur um affermingu og sjerstakir menn sendir tneð því til þess að afíerma. — Nokkrir menn hafa sloppið fratn hjá sóitverðinum að vestan til Sauðárkróks. Enginn grunur um, að þeir hafi flutt veikina, en hafa engu að síður verið sekíaðir, eins og rjett var. — Einmunatíð hjer^norðanlands. Fje liggur víð’a úti nú í byrjun jóla- föstu. — Bæjargjaidkeri St. Stephens- sen hefir sagt gjaldkerastarfinu lausu frá 1. jan. nk. — Skáldkonan frú Torfhiidur P. Hólm er sögð nýlega látin. Ræktnnarfjelag Norðurlands, Ársrit þess, 1917—1918, er ný- prentað. Aðalreikningar fjelagsins sýna, að niðurstaðan af rekslurskostn- aði tilraunastöðvanna og ársarður hefir verið á þessa leið: Ár. Rekstur: Ársarður: 1914 h- 1877 kr. + 1907 kr. 1915 —í— 2819---1- 910 — 1916 h— 237 ----1- 1511 — 1917 + 179-----þ 2766 —

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.