Dagur - 02.07.1919, Blaðsíða 2

Dagur - 02.07.1919, Blaðsíða 2
58 DAGUR. raðirnar á gluggunum, og einnig verður að gæía þess, að piönlnrnar njófi sem best íjóssins. Sje tíðin mjög stormasöm og köld verður iengi vel að byrgja glnggana á nóttunni, og á daginn verður eir.nig að gæta allrar varúðar, þá kalt er. En þegár lengra líður út á vórið og hlýna fer, og piönt- urnar eru búnar að ná fullum þroska og þoli, má smáin saman fara að láta giuggana standa opna og jafnvel taka þá af um hádaginn. Nokkrum dögum áður en gróðursett er úr reitnum, er hann látinn standa opmn dag og nótt. Regar plantan hefir feng- ið 2—3 blöð, er hæfilegt að planta út úr reitnum, ef'veður leyfir. En oft getur það komið fyrir, tíðar- innar vegna, að ekki er hægt að gróðursetja á ber- svæði þegar orðið er of þétt í vermireitnum, verður þá að setja plönturnar niður í skjólreit, sem er gerð- ur á sama hátt og verinireiturinn, að öðru leyti en því, að í honum er enginn áburður til að hita hann upp. í skjólreitnum eru plönturnar hirtar á sama hátt og í vermireitnum. Pegar plantað er út, er best að gera það í hægri rigningu, eða að næturlagi, og gæta verður þess vandlega, að slíta ekki ræturnar um leið og plönt- urnar eru teknar upp, og best er að láta loða við þær sem mest af mold. Pá sett er niður, ber að gæta þess, að þrýsta moldinni vel að plöntunum og láta þær standa dá- lítið dýpra en ■ þær stóðu í vermireitnum. Vökva verður vel um leið og plantað er, og eins næstu daga á eftir, ef ekki rignir, en þegarfrá líður má fara að vökva strjálara. Kosturinn við að nota vermireiti er sá, að með því má lengja vsxtartímann um 30-45 daga, og þá eru líkindi til, að rófnaiæktin þurfi aldrei að bregð- ast, hvar sem er á landinu. Til þess að verjast skemdum næturfrosta seinni hluta sutnars, verður fyrst og frem'st að velja garð- stæðið þannig, að árdegissólin nái ekki að skína á garðinn, því við það þiðna blöðin of fljótt, svo að I hinar einstöku frumur rifna og deyja af hinum skjótu hitabreytingum. Einnig er gott að þíða hjeluna með vatni, áður en sólin kemur upp, sjerstaklega er það gott með jarðeplagrös. Ekki þarf að efa það, að rófnaræktin borgi sig, því eftir því, sem reynst hefir hjer á landi, fæst til jafnaðar af dagsláttu 100 tunnur, og sje þurefnið í þeim 9% jafngildir það 27 hestum af töðu. Nú er meðal töðufengur um land alt 9-10 hestar af dag- sláttu. Af þessu sjest, að af hverri flatareiningu fæst nálega þrefalt meira fóðurgildi af rófum heldur en töðu. Auðvitað er túnræktin ekki í góðu lagi með þessu ofangreinda töðufalli, en góða rækt mætti það telja, ef töðufengurinn væri helmingi meiri. En hjer er ekki heldur miðað við nema meðaluppskeru af róf- um, ogska! þess getið, að árið 1908 fengustf Gróðr- arstöðinni í Reykjavík af einni dagsláttu 243 tunnur að amerískum rauðnæpum, og jafngildir það 62 hest- um af töðu. Pessar rófur hafa( verið ræktaðar nokk- ur ár þar í gróðrarstöðinni og hafa gefið af dag- sláttunni til jafnaðar 204 tunnur, en það jafngildir tíl fóðurs sem næst 52 hestum af íöðu. En slíkt töðufall getur ekki átt sjer stað af einni dagsláttu. Paö er því engum efa undirorpið, að rófnaræktin borgar sig hjer, bæði sökum þess, hvað þær gefa mikla eftirtekju, og eins eru þær ágætt fóður sjálfar og bæta mjög mikið annað fóður, sjerstaklega hólf- efnaríkt fóður, og einnig auka þær list á því fóðri, sem gripir mundu annars láta illa við. Kostnaðurinn við rófnaræktina ér ekki öllu meiri en við grasræktina, og rninni mun hann vera þegar um óbrotið eða óræktað land er að ræða, því eftir- tekja getúr fengist jægar á fyrsta ári, en aftur á móti gefa flagsléttur, sem til grasræktunar eru ætlaðar, ekki eftirtekju fyr en á 3.-4. ári. En þótt kostnaðurinn yrði eiíthvað meiri, og eins þó meðaltölur [aær, sem nefndar eru hjer að íraman, sjeu of -háar, þá er kálið enn óreiknað, en það er talið vera V-‘ móts við róf- urnar, og að næringargildi er það litlu verra. Rur- efmsmagn þess er að vísu fult svo mikið, en sökum þess, hvað það er hólfaefnisiíkt meltist, það ver. Best er að setja kálið í súrhey; getur það geymst þannig óskemt eins og hvert annað súrhey. í Danmöiku er fóðurrófnaræktin talin 20 — 30 sirm- um meiri nú, en fyrir svo sem rúmum 30 árum, og víðast hvar á Norðurlöndum hefir hún vaxið álíka mikið á síðasta mannsaldri. í Noregi eru þær rækt- aðar á 71° norðlægrat breiddar eða 4 — 5 breiddar- gráðum norðar en nyrstu tangar íslands Má því eflaust slá því föstu, að rófnaræktin er ein af vissustu jarðyrkjugreinunum hjer á landi, sje hún stunduð á réttan hátt. G. M. /. Barnaskólinn á Akureyri. Skólanefnd hefir nú ákveðið, að kensla verði auk- in þar að mun frá því, sem verið hefir dýrtíðarárin. Börn inrian skólaskyldualdurs verða tekin inn í skól- ann, gegn 40 kr. skólagjaldi yfir veturinn, ef þau hafa fengið þá undirbúningskenslu, sem þarf til þess að setjast í 1., 2.' eða 3. bekk. Að vísu verður hús- rúm að ráða, hve möig börn verða tekin, ef eítir- sóknin verður mikil. Líklegf tel jeg, að hægt væri að taka 20—30 börn, ef undirbúningur þeirra leyfir, að þau geti skifst nokkurnveginn jafnt í 3 neðstu bekkina. Auk þess er ráðgert, að skólinn sjái um lestrar- og skriftarkenslu handa bötnum, sem skamt eru á veg komin. Fer það eftir eftirspurn og á- stæðum, hve mörg börn verða tekin tii þeirrar kenslu. Líklega verður ekki húsrúm nema fyrir tvo flokka. Þau börn, sem komin eru næst skólaskyldualdri og erfiðast eiga með að fá fræðslu heima, verða að sjálfsögðu látin sitja fyrir. 6. bekkur verður ekki haldinn, sökum þess, að aðeins 9 börn höíðu óskað efíir honurn, áður en skólanefndaríundur var haldinn. Síða hafa fleiri bætst við, en þá var ákvörðun skólanefndar tekin, enda ekki svo mörg, sem við hafa bætst enn, að nokkru heiði um breytt. En skólanefnd ráðgerði. að Iáta í tje húsnæði handa framhaldsbekk, ef að- standendur barnanna vildu kosta kensluna. Það er því ekki hægt að segja, að lokuð sjeu öll sund fyrir því, að börn og unglingar, sem lokið hafa fullnað- arprófi, geti fengið aðgang að aukinni fræðslu, ef þeim sjálfum, foreldrum þeirra og vandamönnum er það nokkuð áhugamál. Með þvi að jeg þykist vita, að fleiri þurfi og vilji nota framhaldskenslu handa börnum sínum en gátu ákveðið sig svona fljótt, þá hefi eg hugsað mjer, að bjóða bæjarbúum að halda uppi nokkurskonar ungl-. ingaskóla, eða framhaldsskóla næsta vetur, á eigin ábyrgð, ef nógu margir nemendur gefa sig fram til að nota hann. Kenslunni mun jeg haga að mestu leyti eins og jeg hafði ætiast tii að gert yrði í 6. bekk, ef hann hefði starfað, en þó bæti jeg við enskukenslu, ef þess verður óskað. — Að sjálfsögðu stendur fermdum unglingum til boða að nota þessa kenslu, engu síður en ófermdum. Bæði í vetur og vor hefi jeg heyrt ýmsar raddir um það, hvílík nauðsyn sje á, að einhverri fram- haldskenslu sje haldið uppi hjer í bænum. Einnig hefi jeg orðið þess áskynja, að margir unglingar hafa lítið eða alls ekkert fyrir stafni allan veturinn, svo þeim væri innan handar að nota tímann til náms, ef kostur væri á kenslu við þeirra hæfi, sem ekki væri dýrari en svo, að flestir gætu undir risið. Pessar tvær ástæður knýja mig til að gefa kost á þessari tilraun. Áhugi fólksins og námfýsi unglinganna verð- ur svo að ráða því, hvort tilraunin kemst nokkurn- tímann lengra en á pappírinn. Jeg get beðið dálítið eftir því, að fólk ákvarði sig, því jeg geri ekki ráð fyrir neinurn sjcrstökum viðbúnaði til skólahaldsins að þessu sinni. En best þætti mér, að þeir gæfu 'sig fram sem fyrst, sem geta ákveðið sig strax. Eina ástæðu hefi jeg ekki nefnt, sem þó ýtir und- ir mig að gera eitthvað í þessa átt, en. hún er lík- lega nokkuð eigingjörn til að birtast á prenti. — í barnaskólanum kynnist jeg mörgum börnum, seni bæði geta lært og virðast hafa fulian vilja og áhuga á því. Pað er ekki laust við að mjer finnnist til um, að verða alveg að sleppa hendinni af þeim öllum, þegar þau eru.komfn á það rek, að hægt er að vænta einhvers verulegs árangurs af kenslunni. Við því er þó ekkert að segja, ef eiíthvert ákveðið nám eða ákveðið starf kallar þau til sín. En ef þau ranglá aðgerðalítil um götur bæjarins, þá vildi jeg ekki að öll s’und þyrftu að vera þeim lokuð, ef þau vildu nota tímann til að byggja eitthvað ofan á þær undirstöður, sem barnaskólinn hefir lagt. Og mjer fyrir miít leyti er það ekki óljúft, áð hafa 'umsjón með og vinna að fræðslu barnanna, þó ekki sje nema einn vetrartíma fram yfir hin lögboðnu skóla- ár, — að minsta kosti þeirra barna, sem einhverj- um námsgáfum eru gædd og einhvern áhuga hafa á námi. Jeg skrifa svo ekki meira um þessa fyrirhuguðu framhaldskenslu, en er reiðubúinn til að tala nánar um þessi efni við hvern sem er. Akureyri 30. júní 1919. Steinþór Guðmundsson. AÐALFUNDUR Ræktunarfjelags Norðurlands. Að þessu sinni var aðalfunduiinn haldinn að Víði- mýri í Skagafirði, og stóð yfir dagana 20. og 21. júní. Undanfarna daga hafði maður orðið var við all- mikla mannferð úr austursveitunum, og flestir höfðu heitið ferðinni til Skagafjarðar. Kom þá snmurn í hug, hvort að nú ætti að verða mót það með Skag- firðingum og Pingeyingutu, er störblaðið ■“Fram® gat um á síðastliðnum vetri, þar sem sagt var, að þeir ætluðu að reyna með sjer, hvorir montnari væru. — Hitt þótíi þó ýmsum líklegra, að aðrar á- stæður væru, og svo mun og hafa verið. Margan hjeðan úr austursýslunuin langaði til að koma í Skagafjörðinn, er talinn er vera ein af feg- urstu sveitum lands vors, og að sjálfsögðu hefir það ekki latt menn fararinnar, er þeir vissu, að fundur- inn skyldi haldinn að Víðimýri, hjá óðalsb. Porvaldi Arasen, er iandskunnur er fyrir gestrisni og höfð- ingshátt. Um kvöldið 19. júní fóru menn að tínast að staðnum,og þá hina fyrstu nótt munu hafa gist þar nær 20 manna, en er fléstir gistu þar, á meðan á fund- inum stóð, voru þeir 46. Að morgni fór að fjölga, og er fundur var settur, um hádegi, voru fulltrúar orðnir um 40, en flestir mættu 47, og er það að mun fleiri en verið haía á fyrri fundum, Fundurinn: skyldi haldinn í kirkjunni, og sleppi jeg að lýsa henni hjer. Fyrir þá, er hafa þegar sjeð haua, er þess ekki þörf, en hinir, er ekki hafa sjeð hana, ættu ekki að láta það undir höfuð leggj- ast, að gjöra það sem fyrst, því svo er bygging þessi merk. Pó þurfa menn að sjálfsögðu ekki að flýta sjer syo mjög, því nú er hið opitibera búið að taka að sjer að halda henni við, og þá er ekki hætt við að illa fari. í þessu merka húsi átti fundurinn að vera. En sá galli þótti mörgum þar á vera, að þeir þóttust fáa geta sjeð af fnudarmönnum, nema sessunauta sína. Fundinn setti form. félagsins, skólam. St. Stefáns- son, og stýrði honum síðan meö h'inni alþektu rögg- semi og lipurð. Hagur fjelagsins má teljast rnjög góður, þótt það hafi jafnan verið hálfgjört haft útundan hjá því op- inbera. Hrein eign er nú orðin Kr. 57,630,55. Hin helstu málefni, er fundurinn tók til meðferð- ar og voru afgreidd með ákveðnum tiliögum, voru þessi: 1, Búnaðarráðaneyti. 2. Búfjárræktarmál,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.