Dagur - 16.07.1919, Blaðsíða 3

Dagur - 16.07.1919, Blaðsíða 3
DAGUR. 65 Ríkharður Jónsson myndhöggvari, Rvík. Valtýr Stefánsson búfræðiskand., Rvík. Gunnlaugur Kristmundsson sandgræðslumaður í Reykjavík. Vigfús Guðmundsson frá Engey. . Tryggvi Þórhallsson ritstjóri, Rvík. Er nokkuð að óttast? Niðurlag. Aldrei kemur óttinn, hræðslan við það að lúta í lægra haldi eins greinilega í Ijós eins og hjá þeim, sem eru ánægðir með og hrifnir af því ástandi, sem er, en finna nýjar hreyfingar vera að grafa grund- völlinn undan fótum þeim, og geta búist við að alt liðist í snndur þá og þegar. Það lá til grund- vallar fyrir óttanum í Sjálfstjórn, þess ótta varð ekki svo lítíð vart við bæjarstjórnarkosningarnar hjerna í bænum í vetur, og það má búast við að hann stingi upp kollinum í allmörgum kjördæmum við kosning- arnar í haust. Enn eru margir, sem hafa beyg af bændum og al- þýðumönnum á þingi, og sumir fulltrúar þeirra stjetta hafa gefið tilefni til þess, að vera kvíðandi. En straum- ur tímans stefnir þó ótvírætt í þá átt, að þoka Iægrí stjettunum upp á við, en draga úr fornum yfirtökum hinna. Og þjóðfjelögin herða smátt og smátt á eftir- litinu með jöfnum rjetti og jöfnu frjálsræði alira þegn- anna, af hvaða stjett sem er. Á þetta tímanna tákn horfa þær stjettir kvíðafullar, sem eru að missa tökin, og eins sá hluti alþýðunnar, sem leiðitamastur er, og kyssir á vöndinn, þegar honum er ekki beiít mjög hrottalega. En hinir sem ekki horfa kvíðafullir á nýju straumana, heldur taka þeim fagnandi og vilja greiða þeim veg inn í atvinnumál og menningarmál þjóðar vorrar og einstakra bæjarfjelaga, þeir geta bú- ist við því að rás tímanna færi þeim vaxandi fylgi. En fylginu fylgir ábyrgð, mikil og þung ábyrgð. Það má aldrei ásannast, að ótti eða skelkur hinna, sem lítt vilja breyta úr gamla horfinu, reynist á rökum bygður. Nýjungar og stefnubreytingar verða að reyn- ast blessunarríkar. En til þess að vera viss um að svo verði, verður að vanda val þeirra manna, sem marka eiga stefnunum braut. Við þingkosningarnar næstu verða framsæknari flokkarnir að gæta þess vand- lega, að velja sjerjfulltrúa, sem ekki eru einasta flokks- menn, heldur líka menn — menn, sem enginn, ekki einu sinni þröngsýnustu afturhaldsmennirnir geta lit- ið niður á. Það er ekki nema vel til fallið, að alþýðustjettirn- ar eignist sem flesta fulltrúa á þingi. En það verður þeirra eigin framsókn til ógagns, ef þeir reynast ekki fullkomnir jafningjar hinna, — fullkomnir jafningjar að mannviti drengskap og snarræði, þótt eitthvað kunni að bresta í fjárbrallskænsku og skólalærdómi. Og enginn blettur af stjettaríg eða sjerdrægni má falla á skjöld alþýðumálsvaranna. Þjóðarheillin verður ávalt að sitja fyrir flokksheill og eiginhagsmunum. Mr. Davies segir að mannvitið leggist ávalt á sveif með þeim. sem efla vilja hlutskifti fjöldans. Við get- um verið örugg um það, að hjá alþýðunni er menn- ingarleysið ekkert meira en hjá öðrum stjettum, þó þær sjeu fágaðri og glæsilegri ásýndum. En engu að síður er full ástæða til að vara alla framsækna kjós- endur við því, að vera ekki of linir í kröfum um mannvit og hæfileika fulltrúaefnanna. Hinum kann jeg engin ráð að leggja. En líklegt er, að bæði stuðn- ingsmenn þess, sem er, og þess, sem mun verða, þurfi sinnaskifta við í þessum efnum, til þess að óttinn geti horfið og víðsýni skapast hjá þeim, sem tímarnir fá í hendur yfirtökin á þjóðmálasviðinu. En fyr en því marki er náð, er ekki að vænta jafnvægis í þjóðfjelaginu. Stþ. G. Ritstjóri »Dags« kom heim úr Reykjavikurför með Berg- ensskipinu »Kora« á sunnudaginn var. Stjórnarfrumvörp lögð fyrir alþingi 1919. 1. Frumvarp til stjórnarskrár konungsríkisins ís- lands. 2. Frumvarp til laga um stofnun og slit hjúskapar.' 3. Frumvarp til laga um afstöðu foreldra til óskil- getinna barna. 4. Frumvarp til laga um landsbókasafn og lands- skjalasafn íslands. 5. Frumvarg til laga um laun embættismanna. 6. Frumvarp til laga um stofnun lífeyrissjóðs fyrir embættismenn og um skyldu þeirra til að kaupa sjer geymdan lífeyri. 7. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 1, 3. janúar 1890, um lögreglusamþykt fyrir kaupstaðina. 8. Frumvarp til laga um sameining Dala- og Strandasýslu. 9. Frumvarp til laga um landamerki o. fl. 10. Frumvarp tiT laga um seðlaútgáfurjett Lands- banka íslands. 11. Frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 66, 10. nóv. 1905, um heimild til að stofna hluta- fjelagsbanka á íslandi. 12. Frumvarp til lega um breyting á lögum um stofnun landsbanka 18. sept. 1885 m. m. 13. Frumvarp til Iaga um einkaleyfi. 14. Frumvarp til laga um mat á saltkjöti til út- flutnings. 15. Frumvarp til fjárlaga fyrir árin 1920 og 1921. 16. Frumvarp til fjáraukalaga fyrir árin 1916 og 1917. 17. Frumvarp til fjáraukalaga fyrir árin 1918 og 1919. 18. Frumvarp til laga um- samþykt á landsreikn- ingunum 1916 og 1917. 19. Frumvarp til laga um skrásetning skipa. 20. Frumvarp til laga um bráðabirgðainnflutnings- gjald af síldartunnum og efni í þær. 21. Frumvarp til laga um breyting á Iögum nr. 22, 3. nóv. 1915, um fasteignamat. 22. Frumvarp til laga um framlenging á gildi laga nr. 40, 26. október 1917, um bráðabirgða- hækkun á burðargjaldi. 23. Frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 54, 3. nóv. 1915, um stofnun Bruiiabótafjel- ags íslands. 24. Frumvarp til laga um heimild fyrir landsstjórn- ina til að leyfa íslandsbanka að auka seðla- upphæð þá, er bankinn má gefa út samkvæmt 4. gr. laga nr. 66, 10. nóv. 1905. 25. Frumvarp til laga um viðauka við lög nr. 24. 12. sept. 1917, um húsaleigu í Reykjavík. 26. Frumvarp til laga um ekkjutrygging embættis- manna. 27. Frumvarp til laga um breytingar á siglingalög- um frá 30. nóv. 1914. 28. Frumvarp til laga um skipun barnakennara og laun þeirra. 29. Frumvarp til laga um breytingu á lögum fyrir ísland nr. 17 frá 8. júlí 1902 um tilhögun á löggæslu við fiskiveiðar fyrir utan landhelgi í hafinu umhverfis Færeyjar og ísland. 30. Frumvarp til laga um heilbrigðisráð m. m. 31. Frumvarp til laga um hæstarjett. 32. Bráðabirgðalög um breyting á löggjöfinni um . skrásetning skipa. Hafís. Bergensskipið »Kora«, er kom hingað til Akur- eyrar á sunnudagiun var frá Reykjavík, fór fyrir Horn á fimtudaginu var. Fyrir austan Horn var þá land- föst hafísbreiða og sá ekki út fyrir hana. Skipið lagði inn í ísinn, er var ógreiðfær, og vildi freista hvort ekki yrði komist í gegnum hann. Skall þá þoka yfir, svo að skipið varð að snúa aftur til Horn- víkur og bíða þess að birti. Snemma á föstudags- morgun lagði það aftur á stað inn í ísinn og var þá veður bjart og ísinn nokkru greiðari en áður. Komst þá skipið leiðar sinnar, en 6 tíma var þið að kom- ast gegnum fsinn með hægri ferð. Sfðan varð íslaust. Kvikmyndirnar. Upp á sfðkastið hefi jeg gefið dálftinn gaum mynd. um þeim, sem verið er að sýna hjer í kvikmynda- húsinu um þessar mundir, og get jeg ekki annað en farið um þær nokkrum orðum, af því mjer finst hjer um stórkostlegt alvörumál að ræða. Jeg skal ekkerl tala um það fje, sem hálfgerðir og algerðir óvitar eyða til kvikmyndahússferða. Þó það sje vafalaust tilfinnanleg upphæð hjá fátækum fjöl- skyldum, þá gæti það verið tilvinnandi, ef það, sem þar er að sjá, væri fallegt, fræðandi og skemiilegt. Ug jeg gæti látið það afskiftalaust, þó menn eyddu tíma og fje til að horfa á Ijelegar myndir, ef þær væru meinlausar um leið og þær væru gagnslausar. En þegar það sem sýnt er, er bæði Ijótt og sið- spillandi og hættulegt, fyrir andlega og jafnvel líka líkamlega heilbrigði, þá get jeg ekki að því gert, að jeg fer að finna til með börnunum og óþroskuðu unglingunum, sem horfa á þetta með hálfum skiln- ingi og óljósu hugboði um það, sem fram fer. Til þess að vera ekki myrkur í máli, get jeg sagt það afdráttarlaust, að jeg tel tvær myndir, sem nú er verið að sýna hjer í kvikmyndahúsinu, tæplega hæfar tii að sýna þær siðuðu fólki, og með öllu ó- verjandi að leyfa börnum aðgang að þeim myndum. Önnur myndin (Gloria) sýnir sumt af því Ijótasta og viðbjóðslegasta, sem gerist í »Skuggahverfum« stórborganna, og hefir auk þess að bjóða tvö sjálfs- morð, fjársvik í stórum stíl, trygðarof o. s. frv. Hin myndin (Hraðlestin) er stófglæpamynd, sýnir morð- ingja að verki sínu í troðfullu leikhúsi, við að sprengja járnbrautarlest í loft upp o. f!., og eltingarleik Ieyni- lögreglunnar við að hafa hendur í hári þeirra. — Á þetta eiga börn og fuliorðnir aö horfa, sjer til á- nægju. Jeg efast ekki um það, að einstöku menn þykjast skemta sjer vel við að horfa á þessar myndir, þær sjeu svo »spennandi«. En hitt er líka jafnvíst, að allir, sem eitthvert skyn bera á eðli mannlegra tilfinninga, eru á einu máli um það, að slík ofæsing við áhrif frá því sem Ijótt er og ómannlegt, grafi meira en noklutð annað grundvöllinn undan siðgæðisþreki manna, og valdi beinlínis skaplyndissjúkdómum og hugarvíli hjá ýmsum, sem eitthvað eru veilir fyrir. Börnin hafa að sjálfsögðu ekki nærri fult vit á, hvað Ijótt er og viðbjóðslegt í þessum myndum. En einmitt fyrir það, eru áhrifin hættulegri. Meðan sið- gæðisvitundin er ekki fullþroskuð, vaknar jafnan meiri eða minni löngun til að líkja eftir því, sem fyrir aug- un ber. Og hálfi skilningurinn gerir mann svo for- vitinn, og fær mann til að brjóta heilann um við- fangsefnin, og reyna að fylla f eyðurnar, með get- gátum, ef ekki með eigin reynslu. Þeir, sem eitthvað fást við uppeldi barna, gera sjer því far um, að láta þau því ávalt hafa eitthvert fagurt, gott eða gagnlegt viðfangsefni að glíma við. En kvikmyndahúsin verða ekki lengi að sópa öllum slíkum frækornum út í veð- ur og vind, ef oft eru sýndar slíkar myndir. Þau börn og óþroskaðir unglingar, sem ekki eru búin að sjá þessar myndir, ættu ekki að hugsa til þess hjer eftir, og jeg get ekki sjeð, að neinn full- orðinn sæki þangað góð eða gagnleg áhrif. En þéir fullorðnu verða að hafa vit fyrir sjer sjálfir. Aftur á móti verð jeg, stöðu minnar vegna, að taka foreldr- um og aðstandendur barna hjer í bæ sterklega vara fyrir, að leyfa börnum helst ekki að fara á kvikmyuda- sýningu, fyr en þeir, sem eldri eru, eru búnir að ganga úr skugga um að myndin sje ekki skaðleg. — Um opinbert eftirlit með kvikmyndum verður sjálf- sagt ekki að ræða hjer í bæ fyrst um sinn, enda er rnjer ekki kunnugt um, að nein lög sjeu til fyrir því, og þessar myndir gefa mjer ástæðu til að vænta lít- ils góðs um myndaval, af hálfu þeirra manna, sem nú eiga að ráða sýningum á kvikmyndahúsinu hjer, En verði oft boðið upp á annað eins góðgæti og þetta, ætti það að ýta undir bæjarstjórn og önnur stjórnarvöld að yfirvega, hvort ekki væri rjettara að bæjarfjelögin tækju kvikmyndasýningar algerlega í sínar hendur. Steinþór Gitðmnnclsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.