Dagur


Dagur - 30.07.1919, Qupperneq 2

Dagur - 30.07.1919, Qupperneq 2
DAGUR. 70 Ringmenn Eyfirðinga flytja tillögu um að Silfra- staðasíminn verði framlengdur yfir 0xnadalsheiði til Akureyrar með hliðarálmu frá Silfrastöðum að Vatns- leysu og annari úr Glæsibæjarhreppi í Skriðuhrepp. Sömuleiðis komi lína frá Akureyri inn að Saurbæ rneð hliðarálmu í 0ngu!staðahrepp. Fjárhagsnefnd Neðri deildar flytur írumvarp um aðflutningsgjald af salti. Á samkvæmt því að greiða 12 kr. gjald í ríkissjóð af hverri smálest, sem fiutt er til landsins. Björn Stefánsson og P. Ottesen flytja frumv. um gjald af innlendri vindlagerð og tilbúningi á konfekt og brjóstsykri. Pingm. Eyfirðinga flytja frumvarp um breytingar á bæjarstjórnarlögum Siglufjarðar. Aðalbreytingin sú, að lögreglustjórinn á Siglufirði skuli jafnframt vera bæjarfógeti í kaupstaðnum með fullkomnu dómsvaldi. Pingmenn Norðmýlinga hafa flutt tillögu til þings- ályktunar um að sett verði á stofn á Vopnafirði út- bú frá Landsbankanum. Pjetur Jónsson hefir komið með breytingartillögu um að hafa útbúið á Húsavík. Lækf'alaunin. Kennarafjelagið á Akureyri heldur fund í Gagnfræðaskólanum sunnudaginn 17. ágúst næstkomandi kl. 4 síðdegis. Ftindarefni: 1. Skólaskylda og heimafræðsla. 2. Utgáfa bóka til sjálfmentunar. Sigurður Nordal prófessor verður á fundinum. Fjelagsmenn sjálfsagðir, aðrir vel- komnir á fundinn. Stjórnin. Slgurður Hordal prófessor heldur fyrirlestra á Akureyri laugard. 16. og sunnud. 17. ágúst næstkomandi. Nánara auglýst síðar. Eins og Iaunalagafrumvarp stjórnarinnar ber með sjer, leggur hún til að launakjör starfsmanna ríkisins verði bætt að miklum mun. Er sú tillaga bæði eðli leg og sanngjörn. Pó er ætlast til að ein stjett em bættismanna sitji nokkurn vegin við sömu kjör og áður, að því er föstu launin snertir. Pað eru lækn- arnir. Ráðgerð Iaunahækkun þeirra — úr 1500 kr. upp í 1800 kr. — er ekki teljandi. En kjör þeirra á að bæta á annan hátt, þann, að borguti fyrir störi þeirra verði ákveðin svo há, að þeir beri ekki skarðan hlut frá borði. Peir menn, sem eru svo ó- gæfusamir að þurfa að leita til læknanna, sjúklingarnir sjálfir, eiga aðallega að launa læknunum. Borgun sú, er ríkið leggur fram, er aðeins lítilfjörleg þóknun. Petta er öfugt við það sem ætti að vera. Aldrei er meiri ástæða fyrir heildina að rjelta fram sfna styrku hjálparhönd, en þegar sjúkdómar og heilsu- leysi herja á einstaklingana. Nógu þung er sjúk- dómsbyrðín, þó að fjárhagsleg neyð standi ekki einn- ig fyrir dyrum. Miklu nær sýnist hafa verið að fara þessa leið með prestana, ætla þeim hærri borgun fyrir verk sín, en nú á sjer stað, það hefði venju- lega ekki komið eins illa við hagsmuni manna eins og hækkandi borgun fyrir Iæknishjálp. Auðvitað hefir þetta ráð verið tekið til þess að spara landsfjeð. En sá sparnaður hefði helst átt að vera í einhverja aðra átt. Við ættum að stefna að því marki, að öll læknis- hjálp og spítalavist yrði sjúklingunum ókeypis, alt slíkt að borgast af almanna fje; okkur hefir lengi verið kent, að við ættum að bera hver annars byrð- ar. Peir heilbrigðu, sem ekki þurfa læknis við, eiga að ljetta ok hinna sjúku, að svo miklu leyti sem það er hægt. Pað verður öllum fyrir bestu, læknunum líka. Geta má nærri, að margir þeirra muni veigra sjer við að ganga hart að fátækum mönnum með borgun fyrir læknishjálp, þó að þeir hafi fulla þörf fyrir peningana. Gerh. Jacobsen & Go. ÁS Bergen, Norge. Telegrafadresse: €ierco« Moííar íil forhandling alle soríer Islandske produkter, besörger indkjöpt og avsendt tönder og salt m.m. mod rimelig provision. Referance Bergens Kreditbank. TrjáyiíSarfarnmr nýkominn til Eggerts St. Melstaðs Sími 115. Hafnarstræíi 93. Símnefni: Melstað. Nýtt stríð. Styrjöldinni miklu er nú lokið. Það lítur út fyrir að annað heimsstríð sje að skella á, þó að í breyttri mynd sje. Pað er baráttan milli verkalýðsins og vinnu- veitenda, auðsins og fátæktarinnar. Hvaðanæfa berast nú að fregnir um gífurleg verkföll utan úr heiminum, Pað er bardagaaðferð annars stríðsaðilja. Hvernig síendur á þessum verkföllum? Hvernig víkur þvi við að almenningur víða um lönd, sem þó í raun og veru þráir frið, skuli stofna til nýs stríðs eftir hörm- ungar ófriðaráranna. Pað má gera sjer grein fyrir því á þessa leið: Vitanlega voru það ekki þjóðirnar í heild, heldur einstaktr menn, sem hrundu heimsófriðnum af stað. Undantekningarlaust þóttust þeir vera að berjast fyrir hugsjónum og almenningur trúði þeim, trúði því, að þegar ófriðarhörmungunum slotaði, mundi ný gullöld renna upp, nýtt skipulag myndast, er hefði það í för með sjer, að lífið yrði ánægjulegra en áð- ur. Nú sjá menn að alt þetta muni bregðast. Menn eru að komast að raun um, að stríðið hafi ekki verið hugsjónastríð heldur eigin hagsmuna barátta, sprott- in af taumlausri samkepni og valdagirnd. Hugsjóna- hjalið hefir verið fals. Miskunarleysi og sjerdrægni sigurvegaranna gengur úr hófi fram. Drepandi sam- kepnin og aðstöðuhagræði einstakra manna til óhemju- auðsöfnunar á að halda áfram. Svo er nýtt sfríð hafið með verkföllum. Með þeim á að knýja fram nýtt og betra skipulag. Hvort þetta tekst er vansjeð. Pað er undir því komið, hvort skipulag sjálfra verkfallsmanna er í góðu lagi eða óreiðu. í, Verkföllin eru í sjálfu sjer megnasta neyðarúrræði, örþrifavopn og átakanlegur vottur um vanmætti þéss, er því beitir. Væri nógur samhugur og samtök með- al almennings, ekki síst þar sem kosningarjettur er almennur, ætti að vera hægt að koma nauðsynlegum breytingum í framkvæmd á friðsamlegan hátt, þegj- andi og hljóðalaust án jafn óheilbrigðra ráða og verkföllin eru. Nægilega þroskuð alþýða getur tekið ráð og völd í sínar hendur og skipað málum eftir vild, ef hún er þeim vanda vaxin, án verkfalla. Nú er eftir að vita, hvort verkfallshreyfingin getur þrátt fyrir alt fætt það af sjer, sem henni er ætlað: nýja og betri mannfjelagsskipun, eða að afieiðingar hennar verða aðeins þær, að auka enn meira á eymd og hörmungar þjóðanna. Og það gerir hún að^ minsta kosti í bráðina, ef hún magnast og breiðist út. Bretar hafa bannað kolaútflutning úr landi sínu. Astæðan námuverkföll og spellvirkiS!í námum. Furkur ágætur hefir verið síðustu daga. Bændur eru í þann veginn að hirða töður sínar, hafa þær fengið góða verkun. Bannlagabrot. Enskt skip kom til Siglufjarðar fyrir síðustu helgi og hafði meðferðis 400 potta »Whisky« og 4 kassa með öðrum vínföngum í; átti þessi »f!jótandi vara« að fara til Akureyrar, viðtakendur Havsteen, Gottfred- sen & Co. Lögreglustjórinn á Siglufirði tók vínföng þessi til varðveitslu. Hestar tapaði'r. 3 ungir hestar, jarpur, mógrár og rauður, aljárn- aðir, ómarkaðir, brennimerktir: Brim á hægra fram- fæti, hafa tapasí frá Mosfelli í Grímsnesi norður yfir Hvítá. Sá, sem kynni að verða þeirra var, géri svo vel og geri undirrituðum aðvart sem fyrst. Saurbæ í Eyjafirði 23. Júlí 1919. Helgi Ágústarson. VíkingskilYindan góða ög alþekta — 3 stærðir — á kr. 110—250 fæst hjá Pjetri Pjeturssyni. Prentsmiðja Björns Jónssonar.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.