Dagur - 06.08.1919, Blaðsíða 1

Dagur - 06.08.1919, Blaðsíða 1
DAGUR kemur út einusinni í viku. Árgangurinn kostar 3 kr. Gjalddagi 1. júlí. II. ár. Akureyri, 6. ágúst 1919. Ritstjóri: Ingimar Eydah AFGREIÐSLA og innheimta hjá Jórti P. Pór. Norðurgötu 3. Talsimi 112. 31. blað. Þvottaduftið Read Seal Lye kaupa allir, sem einusinni hafa reynt það. Verslun P. Pjeturssonar. Hrossasalan. »íslendingur«, er út kom 25. f. m., mintist á hrossa- cinkasöiu landsstjórnarinnar í fyrra og nú í ár, og farast blaðinu meðal annars orð á þessa ieið um það mál: »Nú er það vitanlegt, að hrossakaupmenn í Dan- mörku mynduðu samtök sín á milli, er þeir heyrðu um verslunaraðferð íslensku stjórnarinnar, og það eru þó þeir, sem enn skapa verðið á hrossum vorum erlendis, þrátt fyrir þetta fangaráð stjórnar- innar. En einokunin hefir haft gagnstæða verkun við það sem til var ætlast. Hrossaeigendur tapa við hana of fjár, því í stað þess, að við ákveðum verðið, hafa útlendingar orðið ofan á, og aðferð- in aðeins vakið stífni, svo nú er hrossaverðinu þokað drjúgum niður á við frá -því í fyrra og frá því verði, sem vænta mátti erlendis eftir gang- verði hrossa þar um þessar mundir.« Tvö atriði úr þessum tilfærða greinarkafla munu vera rjett: að danskir hrossakaupmenn hafi myndað samtök (hring) sín á milli og að hrossaverðinu hafi þokað niður frá þvi í fyrra. En það er með öllu óskiljanlegt hvernig »ísl.« hefir farið að komast að þeirri niðurstöðu, að þessi samtök dönsku hrossakaupmannanna standi í sam- bandi við það, að salan sje öll á einni hendi, eða stafi af því, enda gerir blaðið enga grein fyrir þessu, rökstyður það ekki á nokkurn hátt. og rná að vísu virða það til vorkunar, því það er efiaust erfiðara verk en svo að »íslendingi« sje það fært. Ef að stjórnin þefði ekki tekið hrossasöluna að sjer, þá hefði hún verið í höndum margra hrossa- prangara. »íslendingur« lítur auðsýnilega svo á, að þeir hefðu verið þess megnugir að afstýra samtök- unum í Danmörku. Mikil er sú tröllatrú á mætti »milliliðanna«! Liggur nærri að ætla að þessi skoð- un blaðsins eigi rót sína að rekja til einhvers ann- ars og meira en blindrar tilviljunar. Eitthvað ann- að mun þó ráða en þrœlsótti við íslenska hrossa- kaupmenn. Pað er öllum kunnugt, að hrossasalan gekk ágæt- lega síðastliðið ár, og fengu hrossaeigendur mjög gott verð fyrir hesta sína. Stjórnin gerði það ekki ótilkvödd að halda hrossaeinkasölunni áfram þetta yfirstandandi ár, því bæði óskuðu hrossaeigendur, að hún hefði söluna með höndum, og ennfremur kom eindregin hvatning frá dönsku stjórninni í sömu átt. Það er líka auðskilið, að meiri trygging er fyrir því, að salan gangi vel á einni hendi, heldur en ef hver einstakur hrossaeigandi er að semja við hina og aðra hesta-spekulanta, sem þá aðallega hafa milliliða- gróðann fyrir augum. »íslendingur« fullyrðir nú reyndar, að hrossaeig- endur tapi »of fjár« við það að láta ekki milliliðina (hrossaprangara) hafa söluna f sfnum höndum. En það er eins með þetta og »samtökin« í Danmörku, að blaðið ber ekki við að rökstyðja þetta. Það er bara fuliyrðing, sem styðst einusinni ekki við neinar líkur, því síður sannanir. Pað er því ekki hægt að sjá, að fullyrðingin um fjártapið sje af öðru sprottih en gremjunni út af því, að íslenskir hrossakaup- menn geti ekki vaðið í milliliðarjóma. Vitanlega er það ekki landsstjórnin, sem hefir söluframkvæmdirnar með höndum, heldur útflutn- ingsnefndin. í henni eiga sæti Pjetur á Gautlönd- um og kaupmennirnir Ólafur Benjamínsson og Thor Jensen. Sá síðastnefndi hefir verið í Danmörku í sumar og því að sjálfsögðu haft mest afskifti af hrossasölunni. Ekki sýnist það beinlínis aðgengilegt fyrir kaúpmannablöðin að fara að halda því fram, að Thor Jensen sje sá liðljettingur og klaufi í versl- unarsökum, að hrossaeigendur tapi of fjár á því, að hann, en ekki Pjetur eða Páll, annist um framkvæmd- ir hrossasölunnar. Enda liggur ekkert fyrir um það að honum eða útflutningsnefndinni í heild liafi orð- ið nein handvömm á með söluna. En þá er nú komið að mergi málsins, og er hann í því fólginn að ekki hefir tekist að fá jafnhátt verð fyrir hrossin nú eins og í fyrra. Hæsta verð, er hrossaeigendur fengu þá, var rúmar 600 kr., þegar uppbótin bættist við. Nú er hæsta verð ákveðið 500 kr. eða rúmum 100 kr. lægra en í fyrra, en ekki loku fyrir það skotið, að einhver uppbót fáist, þó að litlar líkur muni fyrir því. Pað er þessi verð- mismunur, sem »íslendingur« notar sem árásarefni á einkasölu stjórnarinnar og ætlast til að falli í góð- an jarðveg hjá hrossaeigendum og vekji ímugust á stjórninni og hrossaeinkasölunni. Blaðið segir, að verðinu hafi þokað drjúgum nið- ur »frá því verði, sem vænta mátti erlendis eftir gangverði hrossa þar um þessar mundir.« Eftir þessu að dæma mætti ætla að gangverð hrossa í Dan- mörku væri hið sama eða svipað og það var í fyrra. Petta er algjörlega rangt hjá »ísl.«, því að verð á dönsk- um hestum hefir hvorki meira njö minna en fallið um 50°/o síðan í fýrra, en verð á íslenskum hest- um héfir þó ekki fallið þar nema um tæp 20% á sama tíma, þó að engin uppbót fáist þetta ár. Hjer skal ekkert fullyrt um það af hverju þetta gífurlega verðfall á dönskum hestum stafar, en mjög líklega stafar það af því, að hrossasala til Pýskalands hafi stöðvast þegar stríðinu lauk. Pað verður að gera ráð fyrir því, að þetta hjal »íslendings« um gangverð hrossa í Danmörku sje af barnalegri vanþekkingu sprottið, en að það sje ekki vísvitandi blekking. Rúsínan í endanum á þessari hrossasölugrein í »íslendingi« er sú, að það sje »stór spurning, hvort landsstjórn með tómhljóða fjárhirslur sje vitund betri milliliður en Pjetur eða Páll.« Áður var þó búið að fullyrða í sömu grein, að hrossaeigendur tapi of fjár vegna milligöngu stjórnarinnar, og hlýtur blað- ið að miða fjáriapið við það, að Pjetur eða Páll hefðu hrossasöluna á hendi, og að þá hefðu eig- endur fengið hærra verð fyrir hross sin en nú er raunin á. En gerum nú ráð fyrir því ólíklegasta, að landsstjórnin reyndist ekki betur en venjulegir milliliðir, fengi jafnhátt verð fyrir útflutt liross og þeir og hegðaði sjer síðan eins og þeir að því leyti að taka ríflegan bróðurpart af verðinu, hvort mundi sá gróði vera betur kominn í ríkisfjárhirslunni, eða í buddum hrossaspekulantanna? »íslendingur« mundi ekki verða lengi að svara þeirri spurningu. En hvort það svar fjelli hrossa- eigendum vel í geð, það er annað mál. En hrossaprangarar mundu áreiðanlega verða á- nægðir með svar »íslendings«. Stjórnarfrumvörpin. Hæstirjettur. Stofna skal hæstarjett á íslandi og er dómsvald hæstarjettar Danmerkur í íslenskum málum jafnframt afnumið. Landsyfirdóminn í Rvík ska! leggja niður, þegar hæstirjettur tekur til síarfa. Hæstarjelt skipar dómsíjóri og 4 meðdómendur. Dómstjóri hefir að launum 10000 kr. á ári og hæsta- rjettardómarar 8000 kr. Rúmsins vegna verður ekki nánar skýrt frá þessu frumv., sem er mjög langt. Aðeins skal hjer til- færður stuttur kafli úr athugasemdunum við það. Þar segir svo: »Mönnum hefir lengi þótt það óhentugt að sækja dóm á mál sín í annað land undir menn, sem ó- kunnugir eru íslenskri tungu og því íslenskum lög- um í frummálinu og íslenskum högum. Dómsgjörð- ir hefir orðið að þýða á danska tungu. Hefir það bæði valdið kostnaði og fyrirhöfn. Par að auki verður skjal í þýðing þar er á reynir, oft eigi jafn- tryggur grundvöllur undir dóm sem skjal í frum- máli. Lög vor nú á tímum hafa að vísu verið þýdd á dönsku, en sú þýðing er og hefir stundum verið ófullkomin. Og verður þó hæstirjettur Dana, þar sem tilviljun er, ef dómendur skilja íslensku, að fara eftir þeirri þýðingu. Dráttur verður venjulega mjög langur, einatt árum saman, á íslenskum málum, vegna þess, að dómsúrlausn þeirra hefir orðið að sækja út úr landinu.* Mat á saltkiöti. Hjer skal getið nokkurra atriða þess frumvarps: Alt saltkjöt, sem flutt er hjeðan af landi, skal metið og flokkað eftir tegundum og gæðum af kjöt- matsmönnum undir umsjón yfirmatsmanna. Læknis- skoðun og stimplun skal fara fram á öllu saltkjöti, sem til útflutnings er ætlað. Pegar því verður við komið, skal hún fara fram áður en kjötið er saltað í tunnur. Hverri kjötsendingu skal fylgja vottorð kjötmatsmanns um, að kjötið sje metið af honum og flokkað, og að öllu Ieyti með farið eftir hinum fyr- irskipuðu reglum. Hverri kjötsendingu skal jafnframt fylgja vottorð frá lækni þeím, sem skoðað hefir kjötið. Stjórnarráðið skipar yfirmatsmenn á kjötinu. Skulu þeir sýna ábyggileg vottorð um það, að þeir hafi aflað sjer þekkingar og æfingar á slátrunarstörfum í reglulegu sláturhúsi, ennfremur í meðferð kjöts og niðursöltun. Yfirmatsmenn þessir skulu vera 5 fyrir alt landið og árleg laun þeirra skulu vera 600 kr. auk ferðakostnaðar. Allur kostnaður við yfirmat kjötsins greiðist úr ríkissjóði. Lögreglustjóri skipar kjötmatsmenn, einn eða fieiri

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.