Dagur


Dagur - 06.08.1919, Qupperneq 2

Dagur - 06.08.1919, Qupperneq 2
DAGUR. 72 á hvérjum stað, eftir tillögu yfirmatsmanns. Kaup kjötmatsmanna ákveður stjórnarráðið og greiðir út- flytjandi kaupið. Umdæmi yfirmatsmanna eru hugsuð þannig: 1. Sunnlendingafjórðungur, ásamt Mýra-, Snæfellsness- og Dalasýslu. 2. Vestfirðingafjórðungur að öðru leyti, ásamt Hvammstanga. 3. Húnavatnssýsla að öðru leyti, Skagafjarðar- og Eyjafjarðarsýsla, ásamt Svalbarðseyri og Grenivík. 4. Pingeyjarsýsla að öðru leyti, ásamt Bakkafirði og Vopnafirði. 5. Múla- sýslur að öðru leyti og Austur-Skaftafellssýsla. Yfir- matsmenn á kjöti skulu ferðast um umdæmi sitt ár- lega, helst á tímabilinu frá 1 sept. til 31. okt., og koma á hvern stað, þar sem fje er slátrað til út- flutnings. Heilbrígðisráð. Frumvarpið er á þessa leið: 1. gr. í Reykjavík skal setja á stofn heilbrigðisráð. Skal heilbrigðisráð þetta skipað 3 læknum, er rjett hafa til lækninga á íslandi. Ennfremur skulu vera tveir varamenn. Konungur skipar einn mann í heilbrigðisráðið, en læknadeild háskólans kýs hina tvo, og auk þess tvo lækna til vara. Aðalmenn þéir og varamenn, sem Iæknadeildin nefnir, skulu kosnir til 5 ára, en í fyrsta skifti geng- ur annar aðalmaðurinn og annar varamaðurinn úr eftir 3 ár. Endurkjósa má þá, er úr ganga. 2. gr. Störf þau, sem eftir eldri lögum heyra undir verk- svið landlæknis að undantekinni forstöðu yfirsetu- kvennaskólans, skulu falin heilbrigðisráðinu í hend- ur. Sá maður, er konungur skipar í heilbrigðisráð- ið, er forseti þess, og hefir á hendi framkvæmdir allar fyrir þess hönd. Forstaða yfirs^tukvennaskólans skal falin læknadeild hásícólans. Að öðru leyti skal nánara kveðið á um verksvið heilbrigðisráðsins með konunglegri tilskipun eftir að fengnar eru tillögur þess sjálfs þar um og um það, hvenær og hvernig varamenn komi í stað aðal- manna. 3. gr. Forseti heilbrigðisráðsins hefir auk ritfjár í byrj- unarlaun 5000 krónur, en launin hækka eftir 3, 6, og 9 ár í þessari röð um, 300 kr., og 400 kr. upp í 6000 kr. Auk þess nýtur hann sömu dýrtíðar- uppbótar, sem aðrir fastir starfsmenn landsins. Hinir aðalmenn heilbrigðisráðsins fá í þóknun ár- lega 1200 kr. hvor. 4. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1920, og er þá um Ieið lagt niður landlæknisembættið, Alþingi. Fjárhagsnefnd Neðri deildar hefir flutt frumv. um bifreiðaskatt. Samkvæmt því á að greiða árléga í ríkissjóð: Af bifreið fyrir 1 mann 250 kr., af bif- reið fyrir 2 300 kr., fyrir 3 350 kr. og áfram þann- ig, að skatturinn vex um 50 kr. fyrir hvern mann, er bifreiðin rúmar að meðtoldum bifreiðarstjóra. Þó á skatturinn ekki að fara fram úr 600 kr. á bifreið. Bifreiðar til vöruflutninga eiga að greiða 200 kr. árlega. Aðalástæðan fyrir skattinum er sú, að bifreiðar spilli vegum. Gert er ráð fyrir að skattur þessi nemi 80 þús. kr. á ári. Jörundur og Einar á Eyrarlandi flytja frumv. um, að skattur af óþörfum hundum verði hækkaður úr 10 kr. upp í 100 kr. fyrir hvern. Ellefu þingmenn í Neðri deild flytja tillögu til þingsályktunar um aðskilnað ríkis og kirkju. Fjárhagsnefnd Efri deildar leggur til að settur sje 4 kr. tollur á hvern lítra af suðuspíritus. Svohljóðandi þingsályktunartillögu flytja 8 þing- menn í Neðri deild. »Neðri deild Alþingis ályktar að skora á lands- stjórnina að hlutast til um, að komið verði sem fyrst á fót sjerstakri lánsstofnun fyrir landbúnað- inn, er veitt geti bændum bagkvæmari lán til bún- aðarbóta en nú er kostur á.< Álit landbúnaðarnefndar. Eftir að greinin um hrossasöluna hjer í blaðinu var skrifuð, hefir álit landbúnaðarnefndar N. d. um það mál borist hingað norður. Af upplýsingum, sem hr. Thor Jensen formaður útflutningsnefndar hefir látið landbúnaðarnefndinni í tje, má sjá að sal- an hefir verið örðug. Hvergi sjest þó staðfesting á þeirri fregn, sem hjer hefir flogið fyrir, að hrossa- kaupmenn í Danmörku hafi gert samtök sín á milli, og er sú saga Iíklega uppspuni. Af nefndarálitinu sjest, að samningatilraunir hafa byrjað um miðjan maí, og eftir að þær tilraunir lipðu staðið yfir nokkra hríð og nokkur tilboð fram komið um kaup á íslenskum hestum, var að lokum gerður fullnaðarsamningur við Poulsen Karise og Levin Hansen. Útflutningsnefadin skuldbindur sig til að selja kaupands 4000 hross, er sjeu komin af stað til útflutnings fyrir miðjan okt., þó svo, að ef skiprúm skortir fram að þeim tíma, verður eigi kraf- ist meiri tölu en þá er fengin. Hæsta verð er 600 kr. en lægst 400 kr. Fer það eftir stærð hestanna og aldri. Af þessu verði greiðir seljandi allan kostn- að innanlands, hey, flutningsgjald og almenna sjó- ábyrgð, en að öðru leyti tekur kaupandi við. hest- unum á sína ábyrgð á höfn hjer og greiðir verð þeirra, þá er þeir eru komnir um borð og sjóábyrgð- argjald greitt. Nefndarálitið endar á þessa leið: »Aður en tilboðin hækkuðu var í ráði að láta lausa söluna, með það þó fyrir augum, að verðið kynni að verða 200 — 400 kr. í hæsta lagi fyrir hvern hest. En þegar vænkaðist með tilboð, var haldið áfram á sama grundvellinum og samningar gerðir. Óvíst hvaða verð hefði fengist, ef salan hefði verið frjáls. Allmiklar líkur til, að verra verð hefði feng- ist en þetta á jafnmörgum hestum, ef margir voru frambjóðendur og milliliðir. Og engar upplýsingar hefir nefndin geta fengið um, að kostur sje eða hafi verið á hærra verði. Líkur eru til, að hægt hefði verið að selja fáa hesta, svo sem einn skipsfarm, sæmilegu verði í frjálsri sölu, en það væri að sjálf- sögðu ékki neinn sannur mælikvarði á söluhorfum yfirleitt. Eftirspurn eftir íslenskum hestum hefir sýni- lega verið fremur dauf, og er það skiljanlegt, þar sem danskir hestar hafa fallið svo mjög í verði. Umsamið flutningsgjald er 100 kr. fyrir hvert hross; hefði verið minst 25 kr. hærra, ef stjórnin hefði ekki annast útflutninginn. Að athuguðum þessum upplýsingum leggur nefnd- in til, að frumvarpið sje samþykf óbreytt.* Ur bænum. Bœjarstjöri Akureyrar, hr. Jón Svéinsson, kom hingað með »Sterling« á sunnudaginn var og er nú tekinn við embætti sínu. Boðaði hann til bæjar- stjórnarfundar í gær. Á þeim fundi fór fram kosn- ing forseta bæjarstjórnarinnar samkvæmt hinum nýju bæjarstjórnarlögum. Kosningu hlaut Otto Tulinius bæjarfulltrúi. Búnaðarþingið, sem haldið var í Reykjavík í siðasta mánuði, skifti um sjórn Búnaðarfjelags íslands. Forseti þess var kosinn Sigurður Sigurðsson skólastjóri á Hólum í stað Eggerts Briems, en meðstjórnendur voru kosnir Guðjón Guðlaugsson alþm. og Hallgrímur Kristins- son framkvæmdarstjóri. í*orv. Thoroddsen / prófessor kom til Reykjavíkur með Botniu um miðjan síðasta mánuð og ætlar að dvelja þar nokkr- ar vikur. Hefir hann ekki komið hinsað til lands síðan árið 1907, Haraldur Níelsson prófesspr fór til Englands í síðasta mánuði og dveiur þar fram í september. Heyskapur gengur vel hjer nærlendis það er til spyrst. Tíðin hagstæð og grasspretta víðast góð. Peningabudda með 30 kr. í seðlum og 2 hringum í héfir tapast. Finnandi skili gegn fundarlaunum tilritstj. þessa blaðs. Kennara vantar næsta vetur í 0ngulstaðarhrepps- fræðsluhjerað. Umsækjendur semji við Stefán Jónsson á Munkaþverá fyrir 1. sept. n. k. Víkingskilvindan góða óg alþekta — 3 stærðir — á kr. 110—250 fæst hjá Pjetri Pjetnrssyni. Nýkomið r 1 Kaupfjelag Eyfirðinga: Diskar, skálar, bollapör, rakvjelar, lampar, tilbúin karlmannaföt o. fl. Kaupendur Dags mega borga blaðið til þessara manna: í í s a f j a r ð a r s ý s 1 u, til hr. verslunarstj. Bjarna Halldórssonar, Arngerðareyri. í F1 j ó t u m, til kaupfjelagsstjóra Guðm. Ólafs- sonar Stórholti. í N o r ð u r tn ú I a s ýs I u, til bóksala Pjeturs Jóhannessonar Seyðisfirði. Kaupfjelagsmenn í Eyjafjarðarsýslu og Höfðahverfi borgi blaðið í verslun Kaupfjelags Eyfirðinga. Prentsmiðja Björns Jónssonar,

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.