Dagur - 13.08.1919, Qupperneq 1
DAGUR
kemur út einusinni í vihu.
Árgangurinn kostar 3 kr.
Gjalddagi 1. iúli.
AFGREIÐSLA
og innheimta hjá
Jóni P. Pór.
Norðurgötu 3. Talsimi 1i2
Ritstjóri: Ingimar Eydal. SM5
II. ár.
Akureyri, 13. ágást 1919.
32. blað.
Þvottaduftið -
Read Seal Lye
kaupa allir, sem einusinni hafa reynt það.
Verslun P. Pjeturssonar.
Landbúnaðurinn.
Búnaðarþingið síðasta gerði margfalt hærri kröfur
um viðreisn landbúnaðarins en nokkru sinni fyr. Þær
kröfur koma Ijóst fram í áætlun um útgjöld Búnað-
arfjelags íslands næsta fjárhagstímabil. Sú áætlun er
á þessa leið:
1. Stjórnarkostnaður: a. Laun forseta 1920 kr. 5000 1921 kr. 5000
b. Ferðakostnaður .... 500 500
c. Til meðstjórnenda tveggja . 1000 1000
d. Skrifstofukostnaður . . . 5000 5000
2. Búnaðarþingskostnaður . . . « 4500
3. Til verkfæra: a. Laun verkfæraráðunauts . . 4000 4000
b. Ferðakostnaður .... 8000 4000
c. Til verkfærakaupa, sýningar og reynslu 20000 40000
d. Til styrktar og verðlauna fyrir ný verkfæri eða breytingar á verkfærum 5000 5000
4. Til vatnsveitinga: a. Laun áveitufræðings . . . 5000 5000
b. Aðstoð og ferðakostnaður . 4000 4000
d. Mælingartæki og handbækur 2000 »
5. Til fóðurræ^tunartilrauna: a. Laun tilraunastjóra . . . 4000 4000
b. Ferðakostnaður alt að . . 1500 1500
c. Starfsfje 5000 5000
6. Tii garðyrkjutilrauna: a. Laun garðfræðings . . . 4000 4000
b. Starfsfje 5000 5000
7. Til ýmiskonar ræktunarfyrirtækja 12000 12000
8. Til búfjárræktunar: a. Laun þriggja ráðunauta . . 12000 12000
b. Ferðakostnaður og aðstoð . 7000 5500
c. Til framkvæmda í búfjárrækt 20500 20500
9. Til efnarannsókna .... 3000 3000
10. Til búnaðarrita 8000 8000
,11. Til búnaðarsambanda: a. Ræktunarfjelag Norðurlands 25000 25000
b. Búnaðarsamband Austurl. . 13500 13500
c. Búnaðarsamband Vestfjarða 9000 9000
d. Búnaðarsamband Suðurlands 8000 8000
e. Bún.s.b. Dala- og Snæfellsn. 2000 2000
f. Búnaðarsamb. Borgarfjarðar 2000 2000
g. Búnaðarsamb. Kjalarnesþings 1000 1000
12. Til mjólkurmeðferðarkenslu 4500 4500
13. Til utanfara 6000 6000
14. Til búnaðarfræðslu .... 6000* 6000
15. Vinnuhjúaverðlaun .... Kostnaður af fjelagshúsinu . . 500 500
16. 500 500
17. Ymisleg gjöld 2500 2500
18. Lagt í sjóð 1500 1500
Tekjur búnaðarfjelagsins, aðrar en ríkissjóðstillagið,
eru sáralitlar, ekki nema örfá þúsund á ári. Búnað-
arþingið krefst þá þess, að ríkissjóður leggi því nokk-
uð yfir 200 þús. kr. á ári til viðreisnar og eflingar
aðalatvinnuvegi íslendinga, Iandbúnaðinum. Pessi
krafa er svo sanngjörn og sjálfsögð, að Alþingi er
siðferðislega skyldugt að verða við henni. Peir þing-
menn, sem ekki vilja íinna henni eru blindir Ieiðtogar.
Fjórði hluti úr miljón á ári. Einhverjum úr aftur-
haldsliðinu kann að vaxa sú upphæð í augum. Það
er svipuð upphæð og sagt er að tiltölulega fámenn
stjett þessa lands, kaupmenn, hafi lagt fram nú ný-
lega til blaðafyrirtækis í þeim vændum að skara eld
að sinni eigin köku, og nærri má geta, að ekki er
sú upphæð nema lítilfjörleg fjöður af fati þeirra. Ætti
þá landinu í heild að vaxa það augum að leggja
aðra eins upphæð fram árlega til viðreisnar og stuðn-
ings þeim atvinnuveginum, sem meginþorri Íslend-
inga stundar?
Pess verður vel að gæta, að það er ekki eingöngu
gert vegna þeirrar stjettar, er landbúnað stundar,
bændalýðsins, að reisa þann atvinnuveg úlniðurlæg-
ingu. Velfarnan, sjálfstæði og líf þjóðarinnar bj'ggist
að miklu leyti á því, að þessi atvinnuvegur geti tek-
ið framförum og blómgast. Leggist hann niður, er
þjóðerni vort og þjóðarsjálfstæði í voða. Pað eru þvf
ekki aðeins fulltrúar bænda á búnaðarþingi, sem koma
fram með ofangreindar kröfur, öll þjóðin verður að
standa á bak við þær.
Valinn maður er nú kjörinn formaður Búnaðarfje-
lags íslands. Meðstjórnendur hans eru þjóðkunnir
áhugamenn. Fað er ætlast til að fjelagið hafi forystu
Iand6únaðarmálanna á hendi. Ennfremur er, ætlast til
að í hverri grein landbúnaðarins sje á að skipa vel
hæfum manni, er beiti starfskröftum sínum þar. Aætl-
unin hjer að framan ber þetta með sjer. Enginn vafi
mun á því, að góðir starfskraftar sjeu fáanlegir. En
góðir starfskraftar kosta nokkurt fje. Það verður þing-
ið að leggja fram tregðulaust. Heill þjóðarinnar krefst
þess. Of mikill sparnaður í þessa átt er sama og
hættuleg eyðslusemi og hefnir sín grimmilegai
Samtals 223500 240500
Alþingi.
Bjarni Jónsson og Einar Arnórsson flytja frumv.
til laga um vatnastjórn, er skipuð sje þrem mönn-
um. Á einn þeirra að vera formaður og fram-
kvæmdarstjóri vatna- og raforkumála og hafa að
Iaunum 8000 kr. á ári, en hinir tveir meðstjórnend-
ur og hafa að árslaunum 1500 kr.
Maguús Torfason flytur frumv. um hækkun á elli-
styrktarsjóðsgjaldinu, þannig að hver gjaldskyldur
karlmaður greiði 4 kr. á ári, en kvenmaður tvær
kr. og að ríkissjóður greiði árlega 2 kr. fyrir hvern
mann gjaldskyldan.
Frá þingmönnum Árnesinga er komið frumv. um
fjölgun dýralækna. Skulu þeir vera 7 á landinu,
einn þeirra í Rvik og nefnast Iandsdýralæknir, skal
hann jafnframt vera aðalráðunautur stjórnarráðsins í
heilbrigðismálum búpenings og hafa eftiriit með em-
bættisfærslu annara dýralækna. í greinagerð frum-
.varpsins segir: »Laun dýralæknisins borgast með
því, að hann bjargl 1—2 stórgripum frá bana eða
langvinnum krankleik, með því verði, sem nú er á
fjenaði.*
Matth. Ólafsson og Sig. Stefánsson vildu koma á
útflutningsgjaldi sem hjer segir:
Af hverri tunnu kjöts 60 au.
Af hverju kg. hvítri vorull 2 au.
Af allri annari ull 1 eyrir á kg.
Af söltuðum sauðargærum 1 eyrir á kg.
Af hverri lifandi sauðkind 15 au.
Af hverju hrossi, er nær vissri stærð 5 kr. Af
minni hrossum 2 kr.
Af hverju kg. af æðardún 15 au.
Af hverju selskinni 10 au.
Af hverju tófuskinni 50 au. .
Pessi viðaukatillaga við frumvarp um útflutn-
ingsgjald tjell í Neðri deild með 16 atkv. gegn 8.
Þessir 8 voru: Einar Arn., Jón Magn., Hákon, Björn
Kr., Björn St., Sig. Stef., Matth. Ól., PjeturáGautl.
Framlei^endum hefði ekki munað mikið um þetta
gjald, en ríkissjóði veitti ekki af því.
Neðri deild samþykti 4 kr. útflutningsgjald á
hverja síldartunnu frá 1. jan. næstk. Efri deild hef-
ir nú hækkað gjald þetta upp í 2 kr. á þessu ári,
en lækkað það úr 4 kr. í 3 kr. á næsta ári.
Efri deild hefir felt bifreiðaskattinn.
Hákon og Sig. Sigurðsson vilja láta breyta ullar-
matslögunum og flytja frumv. þess efnis. Gera þeir
það eftir bendingum og í satnráði vtð Björn í Graf-
arholti, er þeir segja að sje manna fróöastur um
þessa hluti, Aðaltilgangur frumv. er sá að fá meira
samræmi í ullarmatið. Flutningsmenn viljæ því, að
einn yfirullarmatsmaður sje skipaður yfir alt landið,
og skal hann sanna, að hann hafi þekkingu á ullar-
mati og meðferð ullar. Hann skal ferðast um með-
al ullarmatsmanna um ullartökutímann, til að leið-
beina þeim og líta eftir starfi þeirra og leitast við
að koma samræmi á *ul!armat í landinu. Ber hon-
um að finna alla ullarmatsmenn minst einusinni á
hverjum 3 árum. Árslaun hans skulu vera 1800 kr.
og greiðast úr ríkissjóði. Ferðakostnað eftir reikn-
ingi, alt að 1000 kr., fær hann og greiddan úr
ríkissjóði.
í greinagerð frumv. eru tilfærð þau ummæli Björns
í Grafarholti, að ófært sje að óþvegin haustull sje
undanþegin mati. Hún hafi verið sekkjuð til út-
flutnings vot og svo illa verkuð, að hneyksli sje
að. Hún sje oft hörð eins og kökur í sekkjunum.
Ennfremur segir Björii, að lítið þýði að krefjast
vöruvöndunar af bændum, ef svo sje látið afskifta-
laust, hversu um ullina fer, áður en út er flutt.
Pykir honum mikill misbrestur á þessu í Reykjavík,
því að ekkert eftirlit sje haft með geymslu hennar
nje úskipun til útflutnings. Með slfku sje matstarf-
ið gert ónýtt.
Allsherjarnefnd N. d. breytti heilbrigðisráðinu í
sóttvarnarráð; síðan feldi deildin frumvarpið.
í N. d. er komið fram frumv. um skerping á
bannlögunum. Flytjendur þess eru Porsteinn M.,
Stefán í Fagraskógi, Sveinn í Firði, Pjetur Ottesen
og Bj. Kr.
Samvinnunefnd allsherjarnefndar ræður til að sam-
þykkja hæstarjettarlögin.
4