Dagur - 17.09.1919, Síða 2
86
DAGUR.
Smásöluverð í Reykjavík
í júlí 1919.
Eftir Hagt.
Samkvæmt skýrslum þeim um úlsöluverð í smá-
sölu, sem hagstofan fær frá kaupmönnum í Reykja-
vík í byrjun hvers ársfjórðungs, birtist hjer yfirlit
yfir smásöluverð í Reykjavík á flestum matvörum og
nokkrum öðrum nauðsynjavörum í byrjun júlímánað-
ar þ. á. Er það fundið með því að taka meðaltal
af verðskýrslum kaupmanna. Til samanburðar er
hjer líka tilgreint verðið í byrjun næsta ársfjórðungs
á undan, fyrir rjettu ári síðan og loks fyrir rjettum
5 árum síðan, í júlí 1914, eða rjett áður en heims-
styrjöldin hófst. í síðasta dálki er sýnt, hve miklu
af hundraði verðhækkunin á hverri vöru nemur síð-
an stríðið byrjaði. Við þær vörur, sem ekki koma
fyrir í júlí þ. á., er sett milli sviga verðhækkunin,
sem orðin var á þeim, þegar þær komu síðast fyrir
í skýrslunum.
ON On OO 'O o\ X3
O r—i O* ON T—< Se,
02 v_ tí rf
V ö r u- t e g u n d i r: ►—> O, < S3 »-S * 1 Ed 0> , S* r—1 ra
au. au. au. au. °/o
Rúgbrauð (3 kg) . . stk. 175 175 193 50 250
Fransbrauð (500 gr.) — 70 70 73 23 204
Sigtibrauð (500 gr.) — 53 53 54 14 279
Rúgmjöl ....... kg 62 67 66 19 226
Flórmjöl 102 103 101 31 229
Hveiti 99 101 101 28 254
Bankabyggsmjöl . . . — 97 100 — 29 234
Hrísgrjón — 119 119 115 31 284
Sagógrjón (almenn) . — 197 211 200 40 393
Semoulegrjón .... — 120 — — 42 186
Hafragrjón (vals. hafrar) — 100 99 92 32 212
Kartöflumjöl — 198 200 198 36 450
Baunir heilar .... — 140 140 170 35 300
Baunir hálfar .... ' 134 132 — 33 306
Kartöflur 50 49 49 12 317
Gulrófur (íslenskar) . — 10 (200)
Hvítkál 58 — 16 263
Rauðkál 65 65 — 22 195
Purkaðar aprikósur . — 386 361 361 186 108
Purkuð epli — 363 — 291 141 157
Ný epli — — 160 — 56 (186)
Rúsínur — 250 218 204 66 279
Sveskjur — 280 ' — 206 80 250
Kandís — — — — 55 (136)
Melís högginn .... — 156 128 147 53 194
— óhögginn . . . — — — — 53 (66)
Strausykur — 146 117 127 51 186
Púðursykur — 127 107 123 49 159
Kaffi óbrent — 291 277 209 165 76
— brent 388 366 292 236 64
Kaffibætir — 219 219 220 97 126
Te — 878 894 809 471 86
Súkkulaði (suðu) . . — 652 721 805 203 221
Kakaó — 527 531 553 265 99
Sinjör íslenskt .... — 633 691 677 196 223
Smjörlíki — 326 404 — 107 205
Palmin — 357 363 — 125 186
Tólg — 430 471 — 90 378
Nýmjólk I 64 80 52 22 191
Mysuostur kg 302 286 287 50 504
Mjólkurostur .... 440 471 391 110 300
Egg stk. 30 41 24 8 275
Nautakjöt, steik . . . kg 353 268 247 100 152
— súpukjöt. . — 312 237 227 85 267
Kálfskjöt (af ungkálfi) — 120 140 140 50 140
Kindakjöt, nýtt . . . — 200 203 — — 239
— saltað . . — 200 198 135 67 199
— reykt . . — 287 278 230 100 187
Kæfa — 270 265 230 95 184'
Flesk saltað ..... — 475 —- 400 170 179
— reykt — 610 — — 213 186
Fiskur nýr — 30 30 24 14 114
Lúða ný — 50 50 50 37 35
Saltfiskur, þorskur . . — 90 97 93 40 125
— ufsi .... — 40 75 — 20 100
Trosfiskur — 33 43 32 13 154
Matarsalt (smjörsalt) . — 63 66 30 16 294
Sódi — 62 114 — 12 417
Brún sápa (krystalsápa) — 233 247 — 43 442
Græn sápa — — 226 — 38 (495)
Stangasápa (almenn) . — 227 207 — 46 393
Steinolía I 57 56 57 18 217
Steinkol (ofnkol) XkQp^ 3200 2000 3200 2000 5300 3315 460 288 j-596
Bannmálið á þlngi.
Tillaga til þingsályktunar um atkvæðagreiðslu í
bannnmálinu og ríkiseinkasölu á áfengi flytja Sig-
urður Stefánsson, Magnús Pjetursson og Pjetur Jóns-
son.
Tillagan hljóðar svo:
»Neðri deild Alþingis ályktar að skora á iands-
stjórnina að láta fara fram aðkvæðagreiðslu allra al-
þingiskjósenda um það, hvort nema skuli ur gildi
áfengisbannlögin og setja í stað þeirra einkasölu rík-*
isins á öllu áfengi. Verði afl atkvæða með afnám-
inu eins mikið eða meira en það var 1908 með
banninu, þá Ieggi stjórnin fyrir Alþingi frumvarp til
laga um einkasölu á öllum áfengum drykkjum.
Atkvæðagreiðslan sje leynileg og fari fram á kom-
andi vori«
Biskupinn dr. Ingram,
sem talinn er einhver mesti skörungur enskra preláta,
enda ræður yfir langstærstu biskupsríki heimsins,
hann mælti nýlega á fjölmennum fundi æðihörð orð
í garð Pjóðverja og landa sinna um leið — m. a.
mælti hann: »Ekki skulum vjer þirma »Húnunum«
að svo stöddu; enga vægð eiga þeir skílið fyr en
eftir langa iðruu og yfirbót. Miskunn við slíka ill-
virkja væri ranglæti.« — — Við verkalýðinn sagði
hann: »Kunnið hóf, verkamenn, hættið ykkar vit-
skertu skrúfum, og sækið rjett ykkar lagaveginn, úr
því þið hafið öðlast fullan atkvæðisrjett ásamt kon-
um ykkar og uiðjum.« — — Og við eða um Spíri-
tistana komst hann svo að orði: »Pað er hættu-
legt fargan, sem fer í vöxt, að almenningur sifur og
leitar frélta hjá framliðnum, jafnvel gárungar og flysj-
ungar, og teygja svo að sjer allskonar misendislýð
úr hularheimi, jafnvel verur, fullar af heimsku og
hrekkvísi. En hreyfinguna Iasta jeg ekki, sje rjett
og guðrækilega að farið. Spíritisminn boðar háleit
sannindi. Látið ykkur nægja kenningar manna eins
og Sir Oliver Lodge og Sir Conan Doyle. Peir
segja ykkur satt.«
Úr »Inquirer«.
Matth. J.
Símfregnir.
Rv. 16. ágúst.
Alpingi. Níu af tólf í samvinnunefnd beggja
deilda vilja láta taka Sogið eignarnámi endurgjalds,-
laust. Sveinn Ólafsson, Sig. Sigurðsson og Sigur-
jón Friðjónsson eru í minni hlutanum. Eftir snarpar
umræður í dag var tillaga nýmenninganna feld með
16 atkv. gegn 9. Allir langsummenn með, en öil
stjórnin andvíg vatnsráninu.
Pingsályktunartillaga er fram borin af Sig. Stef.,
Magnúsi P. og Pjetri á Gautlöndum um að atkvæða-
greiðsla fari fram um afnám bánnlaganna og að
landseinkasala komi í staðinn.
Margir þingmenn bera fram tillögu um að hætta
prentun á þingræðum,
Verslunarskólanum vísað frá með dagskrá.
»SuðurIand«, strandferðaskip, eign samnefnds
eimskipafjelags, nýkomið.
[Frjettaritari Dags, Rvík.J
Eugenie,
ekkja Napoleons þriðja Frakkakeisara, er nú orð-
in 93 ára gömul og því kominn á grafarbakkann.
Hún var 45 ára, þegar Frakkar fóru ófarirnar fyrir
Pjóðverjum um 1870 og hún varð að láta af hendi
kórónu sína og gerðist landflótta. Síðan hefir hún
haft búsetu í Englandi, svift manni sínum og einka-
syni, er hún misti báða. Prátt fyrir aldur sinn og
lífsraunir er mælt að hún hafi fylgt stórviðburðum
síðustu ára með lifandi áhuga. Meðan á stríðinu
stóð, gaf hún Rauða krossinum í Frakklandi og Eng-
landi mikinn hluta eigna sinna, og þegar friðurinn
var saminn, og Pjóðverðar urðu að skila Frakklandi
öllu því, er þeir unnu 1871, ljet hún í viðhafnar-
skyni skrautlýsa heimili sitt og hafði við orð, að
dagur sá, er Pjóðverjar urðu að undirskrifa friðar-
samninginn, væri mesti hátíðisdagur lífs síns, enn
meiri en þegar hún fjekk kórónuna að brúðargjöf
forðum daga.
»Gullfoss«
kom hingað í fyrrinótt og fór aftur í dag. Með
skipinu var fjöldi farþega úr Reykjavík.
Sigtryggur Þorsteinsson,
sem um mörg ár hefir haft á hendi verkstjórn við
sláturhús Kaupfjel. Eyfirðinga, er af stjórnarráðinu
skipaður yfirmatsmaður á kjöti á svæðinu frá Greni-
vík að Blönduósi.
1005 miljarða
franka segir fjármálaráðherra Frakka að heims-
stríðið mikla hafi kostað. Af þeirri upphæð hafi
700 miljarðar fallið í hlut bandamanna, en 305
miljarða hafi stríðið kostað Miðveldin.
B. Ryel
verslunarstjóri, sem verið hefir í Rvík að undan-
förnu, kom hingað til Akureyrar, ásamt fjölskyldu
sinni, með Gullfossi, og sest hjer að aftur.
Kostsala.
3—4 menn geta fengið keyptan kost í vet-
ur á góðum stað í bænum.
Ritstjóri vísar á.
Skógviður
verður afhentur á Oddeyrartanga
á Miðvikudögum kl. 4—5 síðd.
Erlingur Friðjónsson.
Prentsmiðja Björns Jónssonar.
X
/