Dagur - 22.10.1919, Blaðsíða 1
DAGUR
kemur út einusinní i viku.
Árgangurinn kostar 3 kr.
Gjalddagi 1. júli.
Ritstjóri: ingimar Eýdal
AFGREIÐSLA
og innheimta hjá
Jóni P. Pór.
Norðurgötu 3. Talsimi 112.
II. ár.
Akureyri, 22. október 1919.
Kappleikurinn.
Tíðrætt verður mönnum um kosningarnar í Eyja-
fjarðarsýslu. Andstæðingar fyrverandi þingmanna kjör-
dæmisins munu telja vonlítið eða vonlaust um að
það takist að fella Stefán í Fagraskógi, en aftur á
móti hafa þeir einhverja vonarglætu um að geta
brugðið fæti fyrir Einar á Eyrarlandi, svo að honum
verði ekki framar þingsetu auðið. Bírni Líndal er
ætlað að verða þúfan, sem veltir því hlassi, þess
vegna er nú megin áherslan Iögð á það að afla hon-
um fylgis. Hann er maður vel máli farinn, og fylgis-
menn hans vona, að með mælskunni takist honum
að vinna hylli kjósenda á þingmálafundum. Auðvitað
er mælskan góður þingmannskostur, en hinu mega
kjósendur þó síst gleyma, að skoðanir og stefna eiga
mestu að ráða. En um stefnu Líndals þurfa sam-
vinnumenn ekki að vera í vafa. í því efni er mönn
um óhætt að treysta gamla spakmælinu: »Segðu mjer
hverja þú umgengst, og jeg skal segja þjer hver þú
ert.« Enginn skýhnoðri efasemdanna skyggir á þá
vissu, að æstustu mótstöðumenn samvinnunnar eru
óðfúsir eftir því að bola Emari á Eyra'landi frá þing-
setu og koma Líndal að í hans stað. Kappleikurinn,
sem nú verður háður í Eyjafjarðarsýslu, verður því
um það, hvort Einar á Eyrariandi eða Björn Líndal
eigi að fara á þing, eða öllu heldur um það, hvort
ofan á verði samvinnumaður. eða samvinnuandstæð-
ingur. Sje gert ráð fyrir að þessi kappleikur fari fram
á heilbrigðum grundvelli, ættu allir þeir, er í sam-
vinnufjelagi eru, að kjósa Einar, eu hir.ir, sem eru á
bandi þeirra kaupmanna, er ailan samvinnufjelags-
skap vilja feigan, að kjósa Líndal. Þeir satnvinnu-
menn, sem hann kjósa, bregðast því skyldu sinni
um Ieið og þeir gerast samherjar kaupmanna gegn
samvinnunni.
Víst er um það, að samvinnumenn eru í meiri
hluta í umræddu kjördæmi, og ætti því kosning Ein-
ars á Eyrarlandi að'vera viss, ef þeir halda saman.
Þetta vita andstæðingarnir, þess vegna reyna þeir
eftir megni að hafa áhríf á þá samvinnumenn, er þeir
telja lítilsiglda og telja þeim trú um, að jafnvei báðir
fyrverandl þingmenn kjördæmisins, Stefán og Einar,
sjeu liðljettir bjálfar, sem kjördæminu sje vansæmd í
að hafa á þingi. Öðru máli sje að gegria með þá
Líndal og Pál Bergsson; komist þeir á þing, þá renni
upp sól og sumar yfir þetta kalda land. Sólskinið og
sumardýrðin er vitanlega í því fólgin að ganga á
milli bols og höfuðs samvinnustefnunnar, en auðvit-
að er vandlega varast að hafa orð á því.
Pað setn hjer er mælt, er ekki í því skyni gert
að kasta neinni rýrð á mennina Björn Líndal og Pál
Bergsson; best að andstæðingarnir sjeu einir um þann
leik. Eyfirskum kjósendum er aðeins ráðið til að kjósa
ekki Líndal og Pál vegna þeirrar stefnu, er þeir
hljóta að vera samgrónir
Næstu kosningar verða góður prófsteinn á þroska
samvinnumanna hjer í Eyjafjarðarsýslu. Einmitt þar
hefir kaupfjelagsskapurinn og samvinnuhugurinn ver-
ið talinn standa föstustum fótum hjer á landi. Vart
er hugsandi að óvinir samvinnustefnunnar eigi því
að fagna að kosningunum afstöðnum, að sá orðróm-
ur hafi verið á sandi bygður. Pað er á valdi sam-
vinnumanna sjálfra hvort svo verður.
Bolsjevíkarnir.
Margir og misjafnir eru dómar manna um stjórn-
arbyltingarmennina rússnesku. Flestir eru þeir harð-
ir. Peir eru dæmdir sem hinir verstu morðvargar
og ræningjar, sem enga hugsjón eigi aðra en þá að
brjóta niður allar menningarmenjar fyrirrennara sinna
og eta upp alt, sem til er í landinu og hægt er að .
eyða.
íslensku blöðin taka flest í þenna strenginn. Pau (
flytja hroðasögur af aðförum Bolsjevíka og telja, að
menningu allri standi mikil hælta af bolsjevíkastefn-
unni. Pað jafnvel talin siðferðisskylda vesturþjóð-
anna að fara krossferð gegn Bolsjevíkum.
Pað er erfitt að gera sjer Ijóst, hvað er að gerast
í Rússlandi; en þó má sjá nokkurnveginn í hendi
sjer, að Bolsjevíkar gera eitthvað meira en að jeta.
Pegar þeir náðu völdunr, var skortur á öllum nauð-
synjum í landinu, framleiðsla öll og samgöngur í
ólagi og víða (t. d. í Pjetursborg) var verulegur
sultur. Síðan hafa þeir orðið að heyja t þrefalda
baráttu: við erlendar þjóðir, við gagnbyltingarmenn
innanlands og við skrílinn, sem unair forustu ýmsra
ævintýramanna geiir uppreistir á ýmsum stöðum og
reynir að ræna og rupla eftir megni. Þó halda
Bolsjevíkar enn völdum í Rússlandi, en það gætu
þeir ekki, ef þeir hefðu aldrei gert annað en að
sukka og svalla.
Pegar dæma skal bolsjevíkastefnutia. er margs að
gæta, fyrst og fremst þess, að næstum allar fregnir
frá Rússlandi berast frá óvinum Bolsjevíka, sem
umkringja þá á alla vegu. í öðru lagi er þess að
gæta, að öll hryðjuverk, sem unnin eru í Rússlandi,
eru eignuð Bolsjevíkum, þótt mikill hluti þeirra sje
unnin af mönnum, sem enga stefnu þekkja, hvorki
bolsjevíkastefnu nje aðra; með öðrum örðum: af
aumasta og argasta skríl.
Til þess að verjast gagnbyltingarmönnum og
stjórnleysingjum, hafa Bolsjevíkar orðið að beita
hinni mestu hörku og miskunnarleysi líkt og frönsku
stjórnarbyltingarmennirnir; annars myndu þeir hafa
mist völdin fyrir löngu. En hvað hefði þá tekið
við? Pað veit enginn.
Pað hefir jafnan reynst svo, að stefna (hugsjón)
og framkvæmd þeirrar hugsjónar er nokkuð sitt hvað.
Margir þeir, sem skipa sjer undir merki stefnunnar,
skilja hana ekki, síst til fulls. Aðrir skilja hana að
vísu, en eru eigi vaxnir því að koma henni í fram-
kvæmd. Og enn aðrir skipa sjer undir merki stefn-
unnar aðeins til þess að ná völdum eða komast
sjálfir einhvernveginn áfram. Pví er það, að þeir,
sem framkvæma, fara oftast aðrar leiðir en hug-
^jónamennirnir ætlast til. Átakanlegasta dæmi þess
er Kristindómurinn. Fiest hugsanleg hryðjuverk hafa
verið unnin í hans nafni, og dettur þó víst engum
heilvita manni í hug að saka stefnu Kristninnar um
það. Sá dómur um Kristnina, sem aðeins væri
bygður á breytni kristinna manna gagnvart áhang-
endum annara trúarflokka eða á aðförum kristinnat
kirkju á miðöldunum gagnvart »trúvillingunum«,
yrði í meira lagi ósanngjarn. Pað væri og lítið vit
í því, ef dæma ætti kenningu Mahomets eftir aðför-
um Tyrkja í Vestmannaéyjum.
I Með bolsjevíkahreyfinguna er alveg sama máli að
42. blað.
PöKKUM innilega auðsýnda hlut-
tekningu við fráfall og jarðarför
Þórarins Jónassonar.
Akureyri 16. Október 1919.
Ekkja, börn og tengdabörn.
HjARTANS þakkir þeim öllum fjær og
nær, sem sýndu hluttekningu við jarðarför
mannsins míns sáluga.
Akureyri 22. okt. 1919.
Anna Stephensen.
gegna. Til þess að geta felt nokkurnveginn rjettan
dó;n um hana, þarf að lesa rit allra hinna bestu rit-
höfunda Bolsjcvíka. Og ekki nój með það; það
þarf. að lesa þau i tjósi sögunnar, annars verða þau
aldrei skilin rjett.
Pað er vel hugsanlegt, að við þann lestur kæmust
tnenn að þeirri niðurstöðu, að bolsjevíkahreyfingunni
sje líkt háttað og siðbótahreyfingunni, sem þrátt
fyrir fagrar og göfugar hugsjónir siðbótarmannanna
leiddi af sjer þrjátíu ára stríðið og óteljandi önnur
hryðjuverk. En hvað sem því líður, þá er það víst,
að enginn getur ennþá felt rjettan dóm um bolsje-
víkastefnuna. Það gerir sagan á sínum tíma.
Víglundur.
Símfregnir.
Rvík 21. okt.
Útlönd. Yfirráð þjóðbandalagsins samþykt ávarp
hlutleysingja. Fyrstu málin, sem friðarstefnan vill að
þjóðbandalagið taki á stefnuskrá sina, er víðtæk há-
skólasamvinna allra þjóða, afnám hvítu þrælasölunnar
og ópíumsnautnar.
/nnanlands. Frambjóðendur í Reykjavík eru:
Ólafur, Porvarður, forsætisráðherra, Sveinn Björnsson
og Jakob Möller. í Mýrasýslu: Davíð á Arnbjarnar-
læk og Pjetur í Hjörsey. í Dölum: Benedikt í Tjalda-
nesi og Bjarni. í Barðastrandasýsiu: sra. Böðvar á
Rafnseyri og Hákon. í Vestur-ísafjarðarsýslu: Kristinn
Guðlaugsson og Ólafur Proppé. í Rangárvallasýslu:
gömlu þingmennirnir, Guðmundur læknir, Gunnar
frá Selalæk, Guðmundur á Núpi og Skúli á Móeiðar-
hvoli. Gagnsóknarlaust í Skaftafellssýslum báðum,
Vestmanneyjum, Borgarfjarðar- og Snæfellsnessýslum.
Einar Arnórsson hefir sagt lausu prófessorsembætt-
inu; kvað gangast fyrir- Morgunblaðsgullinu, enda
rekur nú hver níðgreinin aðra þar.
Páll E. Ólason ver doktorsritgerð hjer við háskól-
ann á laugardaginn.
[Frjettarítari Dags, Rvik.J