Dagur


Dagur - 17.12.1919, Qupperneq 1

Dagur - 17.12.1919, Qupperneq 1
DAGUR kemur út einusinni i viku. Árgangurinn kostar 3 kr. Gjalddagi 1. júlí. II. ár. Ritstjóri: Ingimar Eydal. Akureyri, 17. desember 1919. AFGREIÐSLA og innheimta hjá fóni P. Pór. Norðurgötu 3. Talsími 112. 50. blað. Skattfrelsi samvinnufjelaga. (Eftirfarandi gein er tekin úr Tímariti samvinnuijelag- anna, II. og III. hefti þ. á. Er hun eftir ritstjóranu, /ónas Jónsson frá Hriflu.) Jafnskjótt og kaupfjelög byrjuðu starfsemi sína hjer á landi, varð ágreiningur út af því, hvort fjelögin ættu að greiða ú t s v a r eða eigi. Er þessa atriðis nokkuð getið í síðasta hefti, þar sem sem sögð er æfisaga Jakobs Hálfdánarsonar. Urðu miklar og langvarandi deilur milli Kaupfjelags Þingeyinga og kaupmannavaldsins á Húsavík út af þessi máli. Því lauk svo, að hæstirjettur dæmdi að fjelagið skyldi eigi geiða útsvar. Síðan hefir deilan borist til annara hjeraða. Nið- urjöfnunarnefnd Reykjavíkur hefir undanfarin tvö ár lagt útsvar á Samband fsl. samvinnufjelaga, og á landsversluna, sem að því leyti sem hjer er um að ræða, á mikið sammerkt við pöntunarfjelögin. Er dómur fallinn viðvíkjandi landsverslun, og á þá leið, að lienni bæri ekki að greiða útsvar. Hins vegar mun standa til að bærinn höfði mál á móti Sam- bandinu, þar sem það hefir neitað greiðslu. En dómur er ekki fallinn í því máli. En vitanlegt er, að hann inuni, er til kemur, ekki geta orðið bæn- um í vil. Pá hafa víða orðið málaferli út af skatt- skyldu samvinnufjelaga, t. d. milli Sláturfjelags Suð- urlands og Reykjavíkur. Fjell það mál á fjelagið. Enn fremur kærði Sláturfjelag Austur-Húnvetninga útsvar sitt í haust sem leið. En ekki hefir enn spurst um málalokin þar. Eins og sjá má af þessu, er aðstaða samvinnu- fjelaganna til skattamálsins ekki nærri svo Ijós sem skyldi. Af því stafa deilurnar og málaferlin. Og leið- in út úr vandanum er ekki sú, að fjölga málssókn- um og dómum, heldur hitt, að löggjafarnir skeri til fulls úr því, hvers konar verslun sje skattskyld og hver skattfrjáls. Og til þess að það verk verði var- anlegt, þarf sú löggjöf að vera bygð á rjettum skiln- ingi á eðli deilumálsins. Pað er óhugsandi annað en íslenskir samvinnumenn hreyfi málinu á þingi, áður en Iangt um líður. Verður þess vegna drepið hjer á nokkur atriði málsins, íil þess að hvetja les- endur tímaritsins til að taka ákvörðun, eftir því sem þeim þykja málavextir vera. Pó að *deilan um skattana hafi enn sem komið er eingöngu snúist um gjöld til sveitarsjóða, en eigi til landssjóðs, þá skiftir það engu verulegu máli. En þar sem skattar landsins verða að líkindum meir og meir lagðir á »eftir efnum og ástæðum«, eins og útsvörin, þá koma gjöld til Iandssjóðs líka til greina. Annaðhvort eiga fjelögin að bera byrðar bæði sveitarfjelaga, eins og t. d. venjuleg hlutafjelög, og 1 a n d s i n s, eða þau eiga að vera skattfrjáls yfirleitt. Annað atriði, sem vert er að minnast á í byrjun, er það, að krafan um skattfrelsi samvinnufjelaga er ekki sprottin af þeim skoðunarhætti, að fjelögin get i eigi borið skatta, ef því er að skifta. Með skattfrelsiskröfunni er ekki verið að biðja um n á ð- ar-brauð fjelögunum til handa, heldur r jettlæti. Fjelögin geta borgað skatt af atvinnurekstri sínum. En þau vilja ekki gera það, fremur en einstaklingur, sem neitar að borga reikning, sem hann veit með sjálfum sjer, að er honum að öllu leyti óviðkomandi. Skattfrelsiskrafan er þess vegna rjettlætismál, en ekki sjálfsvörn, af hendi Tjelaganna. Þriðja atriðið, sem vert er að taka til greina, ' er það, að í þessu efni gera menn nú orðið mun á pöntunarfjelögum, sem útvega eingöngu vörur handa fjelagsmönnum og afhenda þær með kostnaðarverði, og k a u p f j e 1 ö g u m, sem skifta líka við utanfjelagsinemi, og selja með dagsverði kaupmanna, en skifta síðan arðinum um áramót milli fjelagsmanna, eftir viðskiftamagni þeirra. Andstæð- ingar samvinnunnar telja sig nú orðið allfúsa til að viðurkenna skattfrelsi pöntunarfjelaganna, síðan hæsti- rjettur skar úr málinu. En kaupfjelögin vilja þeir telja í flokki með venjulegum fjesýslufyrirtækjum. En í þessari skiftingu er fólginn sá misskilningur, sem þarf að Ieiðrjetta. Skal þá fyrst athuga aðstöðu pöntunarfjelaganna. Pegar Jakob Hálfdánarson byrjaði hið litla versl- unarfyrirtæki á Húsavík, dró haun þegar á fyrsta ári allmikið af viðskiftamagni kauptúnsins úr höndum dönsku verslunarinnar til fjelagsins. Það er engan veginn erfitt að skilja það, að Þórði Ouðjohnsen verslunarstjóra þætli verslun sinni nóg boðið, þó að sá hluti viðskiftamanna, sem uppreist hafði gert móti honum, yrði að bera bróðurpartinn af þeim byrð- um, sem áður hvíldu á verslun hans. Pess vegna lagði hann ótrauour út í deilu, sem bakaði honum að lokum tómt fjártjón og erfiði. Utsvör eru lögð á einstaklinga og stofnanir eftir efnum og ástæðum. Pví meiri efni og tekjur, því hærra útsvar. Bóndi breytir auðsuppsprettum jarðar sinnar í verðmæti. Hann hefir lekjur af at- vinnu sinni og ber því að gjalda útsvar í hlutfalli við þær. Kaupmaðurinn í verslunarstaðnum kaupir bæði innlendu og útlendu vöruna lægra verði en hann selur þær. Pess vegna safnast saman í vörsl- um hans gróði, sem, eins og eignarrjettinum er hátt- að, á heimilisföng með kaupmanninum og hvergi annars staðar. Það er þess vegna jafn rjett, að leggja útsvar á gróða kaupmannsins, eins og gróða bóndans. Alt öðru máli er að gegna með pöntunarfjelagið. Pað er ekki stofnað og starfrækt til að græða sjálft, heldur til að fjelagsmenn græði. Pað afhendir er- lendu vöruna með lægsta sannvirði, og ef það selur innlendar afurðir, er það framkvæmt á ábyrgð fram- leiðanda. Höpp og óhöpp á sölunni snerta fjárhag hans, ekki fjelagið. Af þessu er það Ijóst, að pöntunarfjelag vantar frumskilyrði þess, að eiga að borga skatt. Pað e i g n- ast ekkert sjálft, er ekki sjálfstæður atvinnu- rekandi, sem Ieitast við að safna í eigin sjóð. í stað þess gerir það viðskiftamenn sína betur efnum búna, leiðir heim til hvers þeirra fje, sem annars væri þeim tapað, og gerir hvern þeirra þannig að meiri skattborgara, heldur en annars myndi. Munurinn á starfsemi kaupmanns og pöntunarfjelags er í stuttu máli sá, að kaupmaðurinn dregur f j á r- magn hjeraðsins smátt og smátt ísínar hendur, en pöntunarfjelagið dreifir efnunum, svo vítt sem veldi þess nær. Skatturinnáfjármagnið hlýtur þess vegna í annað skiftið að lenda á kaup- manninum, en í hitt sinnið á fjelagsmönnum, hverjum þar sem hann er búsettur. í sambandi við þetta er vert að geta þess, að sláturfjelög, sem eingöngu koma í verð afurðum fjelagsmanna, eiga engu fremur en pöntunarfjelög að borga útsvar, og virðist svo sem fjelög þessi sjeu sumstaðar beitt ólögum nú sem stendur. Eins og menn vita, hafa sum pöntunarfjelög hjer á landi sláturhús, reka sölu bæði innan og utan lands, gróðalaust, á ábyrgð fjelagsmanna, og gjalda engan skatt. En þar sem sláturfjelögin starfa ein saman, hafa niðurjöfnunarnefndir sumstaðar vilst af rjettri leið og reynt að koma fram útsvarskröfu, með hjálp dómstólanna. En þar er um bersýnilegt rang- læti að ræða og gegnir furðu, að sá órjettur er lát- inn viðgangast ár eftir ár. Landsverslunin er eftir eðli sínu alþjóðar pöntunarfjelag, og á þeim grund- velli hafa dómstólarnir skorið úr, að hún skuli ekki bera útsvar. Að þessu marki er skattfrelsi samvinnufjelaganna komið. Pað er komið bæði inn í meðvitund al- mennings og viðurkent af dómstólunum, að pöntun- arfjelög sjeu skattfrjáls hjer á landi, af því að þau afhenda vöruna án þess að græða sjálf. Framhald. Kosningin í Reykjavík. Lögrjetta skýrir meðal annars svo frá henni: »Hún fór svo, að Sveinn Björnsson yfirdómslög- maður fjekk 2589 atkv. en þeir Jón Magnússon forsætisráðherra og Jakob Möller ritstjóri liöfðu, áð- ur en vafaseðlar, sem frá höfðu verið lagðir, voru athugaðir, jafnmörg atkvæði, 1436 hvor um sig. Svo varð samkomulag um að gild væru 7 atkvæði af seðlum þeim, sem frá höfðu verið teknir, og átti Jón 1 þeirra en Jakob 6. Pannig urðu atkvæði jak- obs 1442, en Jóns 1437. Um 50 vafaseðlar voru þá eftir. Töldu umboðsmenn Jóns Magnússonar hann eiga þar gild atkvæði, sem breyttu kosningunni, en meiri hluti kjörstjórnar (2 : 1) áleit að svo væri ekki og gaf Jakobi kjörbrjef ásamt Sveini. En það var Jakobi sagt, um leið og hann tók við' brjefinu, að það gilti að eins þangað til þing kæmi saman. Peir umboðsmenn þeirra Jóns Magnússonai og Sveins Björnssonar mótmæltu allir kosningunni og skutu máli sínu til Alþingis, en umboðsmennirnir voru fjórir, tveir fyrir hvorn frambjóðanda : Pjetur Magn- ússon lögfræðingur og Pjetur Zophoniasson rithöf- undur fyrir Jón, en Björn Pálsson yfirdómslögmað- ur ög Sigurður Jónssson barnakennari fyrir Svein. Ljetu þeir bóka þau mótmæli í kjörbókina, að margir hefðu við kosninguna greitt atkvæði, sem ekki hefðu kosningarrjett. Og er yfirkjörstjórnin athugaði þetta, eftir bendingu þeirra, bókaði hún í kjörbókina, að hún hefði fundið á kjörskránni nöfn 15 manna, sem taldir væru að hafa greitt atkv., en hefðu enn ekki náð kosningaraldri. Jakob Möller hafði einnig mót- mælt gildi kosningarinnar meðan ósjeð var, hvernig yfirkjörstjórnin liti á vafaseðlana, en lýsli því yfir, er hann fjekk kjörbrjefið, að hann tæki þau mót- mæli aftur. Bæta má því við, að gamlir og mikilsmetnir lög- fræðingar hafa sagt, að ekki geti annað komið til mála, en að þingið dæmi kosninguna ógilda, því

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.