Dagur - 17.12.1919, Blaðsíða 2
112
DAGUR.
áður hefði það jafnan bygt dóm sinn á því, er það
dæmdi gilda gallaða kosningu, að enda þótt ágalli
sá, sem yfir var kært, hefði átt sjer stað, þá breytti
þetta ekki úrslitum kosningarinnar. En hjer er það
augljóst, að þar sem að minsta kosti ’15 menn, sem
ekki eru atkvæðisbærir, hafa verið látnir kjósa, þá
geta atkv. þeirra hafa ráðið úrslitum, þar sem aðeins
er um 5 atkv. mun að ræða hjá frambjóðendunum.*
Símfregnir.
Rvík u'/i2.
Inna.nla.nds. Eftirtekt vekur nýútkominn bækl-
ingur Jóns Dúasonar, er heitir »Gullmál íslands-
banka*. Telur Jón á skorta löglega gulltrygging.
Innanlandsdýrtíð stafi að talsverðum mun af oflítilh
seðlaútgáfu bankans. Gengismunur orðinn gífurleg-
ur. Ser'lahandhafar eigi heimting á gullinnlausn; gull
upphefji gengismun í viðskiftum erlendis. Bankinn
megi hinsvegar ekki missa gullið. Landsstjórnin verði
að bjarga bönkunum með bráðabirgðalögum, er
gera feeðlana óinnleysanlega. Björgunin eigi að kosta
hindrunarrjett íslandsbanka til seðlaútgáfu. Bráða-
birgðalög þegar útgefin og útflutningsbann á gulli.
Sú björg nægir'til þings. Þingið kemst ekki fram
hjá málinu.
Utlönd. Þjóðverjar vilja að sjerstök nefnd fjalli
um Scapaflóamálin. Tvíveðrungur Bandaríkjanna
gagnvart bandamönnum talinn stafa af bandalags-
stofnun Englands, Frakklands, Ítalíu og Belgíu.
(Frjettariiari Dags, Rvik.)
Bókmentafjelagið.
Bækur þær, sem fjelagið gefur út í ár, eru auk
Skírnis, Lýsing íslands, þriðja bindi, 3. h., eftir t*.
Th., íslendingasaga þriðja bindi 3. h., eftir Boga Th.
Melsteð, Safn til sögu íslands og Brjefabók Guðbr.
biskup Rorlákssonar, 1. hefti. Bækurnar kosta 10
krónur fyrir fjelagsmenn næsta ár.
»Tíminn«
stækkar um næstu áramót, verður í sama broti og
»Lögrjetta og tölublaðafjöldinn að minsta kosti 60
á ári.
F*á fer að birtast í blaðinu einhver frægasta saga
eftir stórskáldið Hall Caine og heitir: Borgin eilifa.
Argangur blaðsins verður seldur fyrir kr. 7,50.
Samvinnuskólinn
var settur 8. nóv. Starfar hann í Iðnskólanum, þar
til hið nýja hús sambandsins á Arnhóli verður full-
gert, sem niun verða upp úr nýjárinu; verður þá
skólinn fluttur þangað. Aðsókn ao skólanum er mikil,
Clemencau,
fórsætisráðherra Frakka, hjeit nýlega ræðu í Strass-
burg um horfurnar í Frakklandi. í ræðu þessari tók
hann meðal annars fram um verslunarmálin, að leggja
yrði áherslu á viðgang samvinnuhreyfingarinnar til I
eflingar almennri velmegun.
Til eru íslenskir menn, sem þrástagast á því, að
samvinnuverslun eigi ekki að nefna í sambandi við
pólitík. Yfirráðherra Frakklands er sýnilega á annari
skoðun í því máli.
Hvítárbakka
hefir Sigurður Rórólfsson skólastjóri selt Davíð
þorsteinssyni á Arnbjarnarlæk. Kaupverðið sagt 50
þús. kr. og er það tilskilið að skóla verði haldið
þar áfram. Sigurður hefir rekið þar skóla í 18 vetur
á næsta vori, en verður nú að hverfa frá því starfj
vegna ýmsra erfiðleika og bilaður á heilsu.
Alþingi
er sagt að verði kvatt saman 5. febr. n. k.
Lög
síðasta þings hafa öll verið staðfest af konungi í
síðustu utanför forsætisráðherrans.
100 austurrísk börn,
ef ekki fleiri, eru væntanleg hingað til íslands inn-
an skamms. Neyðin í Austurríki er hörmuleg og ligg-
ur ekki annað fyrir fjölda barna þar en hungurdauði,
Til jólanna
fæst í
'MF" Kjöt, nýtt ogsaltað, Rúllupylsur, Smjör, Kæfa, Gráða-
ostur, Mysuostur, Mjólkurostur ýmsar tegundir, Smjörlíki,
Saft í flöskum, ÁVEXTIR niðursoðuir, svo sem; Ananas,
Perur, Aprikósur, Plómur, Hindber, Epli, Ferskjur. Enn-
fremur Citron, Möndlu og Vanilledropar, Ávaxtalitur, Fisk-
soya, Kjötsoya, Sósulitur, Búðingaduft, Eggjaduft, Borð-
salt, Carry, Sennep, Ansjósur, Sardínur, Leverpostei, Gaff-
elbider, Laukur, Kartöflur o. m. fl.
Earlmanna-
unglinga- og drengjaföt
— einnig sjerstakar buxur ■—
l-a-n:g-f-i-ö-l-b-r-e-y-t-t-u-s-t o-g ó-d-ý-r-u-s-t í
„HAMBORG“.
S ö 1 u b ú ð
Kaupfjelags Eyfirðinga
verður lokuð 1. til 22. jan. n. k. vegna vörukönnunar.
Pennan tíma verða alls engar vörur afgreiddar.
Akureyri 16. desember 1919.
FJ ELAGSSTJ ÓRNIN.
ef ekki er hjálpað. í utanför forsætisráðherra var far-
ið fram á það við hann, að ísland tæki þátt í hjálp-
inni á þann hátt að hópur barna yrði fluttur hingað
til uppfósturs. Forsætisráðherrann símaði um þetta
til Reykjavíkur. Rar var nefnd selt í málið og er
Kristján Jónsson háyfirdómari formaður hennar. Mál
þetta fjekk þegar góðar undirtektir og voru 150 til-
boð um barnatöku komin til nefndarinnar fyrir nokkr-
um tíma.
Ágætir
illlarkambar,
fínir og grófir,
einnig Borðvaxdúkar,
Afarmikið úrval af
gríðarstórum
PAKKKÖSSUM,
misjafnlega þykkir. ágætir til að sníða úr,
fást í
„HAMBORG“.
á vefnaði frá námsskeiði Heimilisiðnaðar-
fjelags Norðurlands verður haldin í Pósl-
húsinu (uppi), sunnudaginn 21. þ. m. frá
kl. 11. f. h. til 8. síðd.
ótal sortir, nýkomið í
„HAMBORG“.
Akureyri 11. des, 1919.
Stjórnin.
Prentsmiðja Björns Jónssonar,