Dagur - 27.04.1920, Side 3
ÐAGUR.
3
Úti á þekju.
Hversu löng er eilífðin?
\Æfinfýri eift gefur hugmynd um það
eitthvað á þessa leið: »Á takmörkum
veralda er afarsfórt bjarg. Einu sinni
á hverri öld kemur smáfugl, og brýnir
nef sitt á bjarginu. Regar fuglinn hefir
á þenna hátt eytt bjarginu upp til agna,
er liðið eitt augnablik af eilífðinni.«
Fleiri spurninga má spyrja. Er þroska
mannkynsins sett takmörk? Ef svo er,
hversu langt verður þroskaskeiðið?
Slíkar spurningar getum við hrópað
út í djúp þagnarinnar. En við fáum
að líkindum aldrei svar — hérnamegin.
Er ekki skammsýni mannanna og hjarta-
kuldi eins og afarstórt bjarg á takmörk-
um veralda, þar sem smáfugl brýnir
nef sitt einu sinni á hverri öld?
Ef til vill er samlíkingin hæpin. Hitt
er þó víst, að hægum skrefum fer
mannkynið á þroskabrautinni.
Fyrir tæpum tveim þúsundum ára
fæddist Jesús Kristur í Betlehem. Hann
er sú persóna, sem ber hæst fyrir sjón-
um okkar kristinna manna. Ljóma him-
insins slær um hann. Sál hans er krist-
alstær. Hjarta hans fult af óendanleg-
um kærleika. Faðmur hans hvíldarstaður
þreyttra og þjáðra.
Hann greip inn í líf mannkynsins, til
þess að lægja storma ástríðu og ofsa í
inannsálunum. Hann kom, til þess að
kenna okkur að Iifa saman og hjálpa
hvor öðrum. Hann kom, til þess að
bregða birtu yfir samúðar og kærleiks-
gildi lífsins. Hann kom, til þess að
stofna guðsríki á jörðu.
Á öllum öldum síðan hefir erindi
Krists verið rekið. Stundum afskræmt
í þjónusíu eigingirni og lasta. Oft hefir
það verið rekið af alúð, oftar áf skin-
helgi. Enn í dag saurgast nafn hans
og minning á vörum milljóna manna,
— saurgast af skinhelginni.
Og hvert et þá erindi hans orðið?
Þeim, sem nokkuð hugsa um ástand-
ið í heiminum núna, getur ekki dulist,
að á síðustu árum hefir meir og meir
sigið á ógæfuhlið fyrir mannkyninu.
Aldrei hefir þvílíkum sorta lostið yfir
heiminn. Ramskorðaðar þjóðfélagsbygg-
ingar leika á reiðiskjálfi. Er það fjar-
stæða, að láta sér detta f hug, að bráð-
um muni hámarkinu náð, og að kvöldið
fyrir dag hirtingarinnar muni mannkynið
örmagnast undir ofurmagni eigin synda?
Vitrir menn hafa sagt, að veröldin
skjálfi nú í fjörbrotum efnishyggjunnar.
Margt bendir á, að hún eigi enn langt
líf fyrir höndum. Enn virðast íbúar
Jarðarinnar leggja langmesta áherzlu á
það, að hrifsa hvor úr annars höndum
svo kðlluð veraldleg gæði. Ekkert virð-
ist hafa jafnmikið gildi fyrir sjónum
manna sem alls nægtir matar, skraut og
prjál, Og digrir sjóðir.
Um þetta er togast af blindu kappi,
Minni áherzla lögð á, að afla þess með
eigin höndum, en að hrifsa það til sín
með brögðum og ofurkappi í viðskift-
unum. Fleiri og fleiri kappkosta að
lifa á annarra fyrirhöfn. 'Sú stetna íer
í vöxt hjá verkalýðnum, að heimta svo
hátt kaup, sem frekast er hægt að fá
með itlu eða góðu og jafnframt, að
vinna sem minst. Undantekningarlítið
okra allir af fremsta megni á öllu, sém
þeir selja. Gildir það jafnt um allar
stéttir.
Menn munu hafa á reiðum höndum
afsakanir fyrir öllu því versta, sem fram
kemur í fari manna nú á dögum. Menn
munu kenna óstandið hagsmuna og
réttinda ráni vissra stétta. Undirokun
lægri stéttanna svo kölluðu, og mein
göllum á stjórnarfari þjóðanna. En
með því er ástandið ekki skoðað ofan
í kjölinn. Hagsmunarán og undirokun
getur ekki átt sér stað nema þar, sem
vondir menn eru og illa innrættir.
Undirrótin er skammsýni mannanna og
vonska. Frumorsökin sú, að þeir hafa
magann fyrir guð sinn, og meta meir
sjóði en sáluhjálp.
Efnishyggjunni verða ekki brugguð
banaráð, fyr en menn koma alment
auga á æðra lífsgildi, en það, sem nú
er hylt.
En hvernig má það verða?
Eg sé í fljótu bragði eitt ráð. Við
þurfum að verða kristnir. Ekki til neins
að treysta því lengur, að prestarnir
kristni fólkið. Rað er verk, sem er
þeim ofvaxið. Hver og einn verður
að kristna sjálfan sig.
Ef til vill verður hér í blaðinu við
og við talað »úti á þekju«.
Akureyri.
Samsöngur.
Ein stoð rann undir Berklaveikrahæli
Norðurlands fyrra mánudagskvöld.
Sungu 1S karlar 12 lög undir stjórn
Magnúsar Einarssonar fyrir troðfullu
samkomuhúsi bæjarins.
Geislastofan.
Fyrir sérstakt atfylgi herra Steingríms
læknis Matthíassonar er Geislastofan í
sjúkrahúsinu her þegar stofnsett og
starfrækt. Nokkrir sjúklingar hafa ieitað
þangað. Læknirinn keypti áhöldin nú
í síðustu utanför sinni. Kveður hann,
að enn þurfi fé að safnast til muna, til
þess að gera mönnum Iéttara fyrir um
þessa læknishjálp. Pörfin brýnust þar
sem stendur. Starfrækslukostnaður mjög
hár en óumflýjanlegur. Berklaveikrahælið
lengra framundan. Hér kallar dagleg
þörf um, að geta notfært sér þá um-
bót, sem þegar er fengin.
í samgönguleysi og sjúkdómafári
munu þeir bezt skilja, sem fá hér bót
meina sinna, hvílíkt hnoss okkur er í
hendur komið. Þjóðin þarf að stefna
að því meir og meir, að létta mönnum
byrðar sjúkdómanna, sem eru þyngstar
allra byrða fyrir utan vonda samvizku.
Hjónaefni.
Ungfrú Sigurlaug Hallgrimsdóttir og
herra Brynleifur Tobtasson ritstjóri.
Póstmeistarinn
hér á Akureyri hr. Friðrik Möller
lætur nú af starfi eftir 38 ára þjónustu
við góðan orðstír.
Embættið er veitt hr. Guðmundi
Bergssyni fyrrum póstmeistara á ísafirði.
Skákþing
hefst hér í bænum laugardaginn 1.
maí n. k. að tilhlutun skákfélags Akur-
eyrar. Öllum er heimill aðgangur til
þess að horfa á. Sjá Auglýsingu hér í
þlaðinu,
Símskeyti.
Rvík, 27. apríl.
Bandaríkin selja Pjóðverjum
stórmikið af matvælum.
Hafnarverkfall heldur áfram í
Danmörku.
Fjármálafundur í Lundúnum.
Koma þar saman fulltrúar banda-
manna og hlutleysingja.
Bandamenn geta samið sérfrið
við Bolsevika.-
Bandamenn veita Rjóðverjum
skuldgreiðslufrest, en heimta af-
vopnun þeirra.
Innflúenza mannskæð íEnglandi.
Sóttvarnarnefnd Reykjavíkur held-
ur uppi vörnum gagnvart útlöud-
um.
Peningakreppan aegileg. Bank-
arnir flytja ekkert milli landa um
stundarsakir.
Kaupsýslumeun syðra og vest-
anlands skilja alvöru tímanna, og
þola innflutningshöftin.
Athugasemd.
í skeytum í dag segir að inflúenzan
sé mannskæð í Englandi, og sóttvörn-
um sé haldið uppi í Reykjavik gagnvart
útlöndum. Hins vegar er vörnum innan
lands hætt af hendi sóttvarnarnefndar-
innar, en éinstökum landssvæðum leytt að
verjast. Með Sterling síðast var svo
sótthættan flutt eins og önnur vara á
hafnirnar hér norðan lands. Viðbún-
aður gegn henni ekki sem skyldi, nema
á Akureyri og i Húsavík, að sögn.
Einstökum landssvæðum verður vitan-
lega ókleyft að verjast, þegar hættunni
er neytt upp á menn.
Læknar og sýslumenn norðan lands
verða að mótmæla kröftuglega slíku at-
hæfi. Menn sjá í kostnaðinn við sótt-
varnirnar, en hvað hostar viku til þriggja
vikna verktap allra Norðlendinga, og ef
til yill nokkur dauðsföll? Er nokkur
trygging fyrir þvf að veikin verði væg?
á Suðurlandi. 3,1 hiti á ísaf., minni
annarst. Hvergi frost. S. A. hláka í
Færeyjum með 6,6 hita.
Miðv.d. Loftvog stöðug; næstum
jafnhá alstaðar. Regn á N. A. landi.
Stilt veður. Austlægur á S. og .A. landi.
S. A. hláka í F., 6,1 hiti.
Fimtud. Loftvog næstum jafnhá.
Einna hæst á S, V. landi. Stígandi á
N. landi. Hæg vestl. átt. fslaust fyrir
Norðurlandi, nema hrafl við Horn, en
skip hafa siglt utan við það. ' Logn í
F., en regn og 3,0 hiti.
Föstud. Loftvog lægst fyrir vestan
land, og alstaðar fallandi nema á Aust-
urlandi. Byrjandi austanátt á S. V.
landi. Minstur hiti á ísafirði 2,0.
Litlu meiri annarstaðar. N. V. gola í
F., 5,1 hiti.
Laugard. Loftvog lægst fyrir S. A.
land og alstaðar fallandi. Snarpur N.
A. vindur á Austurlandi. Hríð á Seyð-
isfirði. Stilt veður annarstaðar. Sunnan
stinningskaldi í F., 7,0 hiti.
Sunnud. Vantar.
Mánud. Loftvog hæst fyrir N. V.
land. Snörp norðangola með frosti á
Norðurlandi. Minstur hiti á Grímsst.
2,5. Logn í Færeyjum. Alskýjað.
Hiti 2,7.
Færeyjahlákan fyrri hluta þessarar
viku og síðari hluta næst liðinnar viku
náði aldrei hingað.
Enn er tíðin hin óstiltasta og sér
ekki fram úr.
Illar fréttir berast nú að um felli.
Úr Steingrímsfirði er skrifað: »Vetur
hinn langþyngsti og gjafamesti sem
komið hefir um 30 ár eða lengur.
Bændur í nærsveitunum fella fé og
hesta til muna nú þegar.*
Allvíða er nú bjargarþrot handa mðnn-
um og skepnum. Óáran í náttúrunni,
og mönnunum lætur sverfa til stáls. Nú
reynir meir á drengskap og dugnað okkar,
en verið hefir um langan aldur.
Þessir tímar verða prófsteinn á okkur
um það. hvort viðgöngum á guðsvegum.
Úr öllum áttum.
Fjárskaðar
urðu talsverðir á Hólsfjöllum í stór-
hríðunum eftir páskana. Talið, að um
200 fjár alls hafi farist á ýmsum bæjum.
lslaust
er nú talið við land nema hrafl við
Horn. Skip hafa sigll fyrir utan það.
Skiptapar.
Aðfaranótt þriðja í páskum sukku
2 vélbátar á Ólafsfirði. Tjónið metið
um 36 þúsundir króna.
Tíðarfarið.
Á hverjum degi eru birtar veðurat-
huganir, sem gerðar eru í Vestmanna-
eyjum, Reykjavlk, ísafirði, Akureyri,
Grímsstöðum, Seyðisfirði og Þórshöfn
í Færeyjum.
Hér fer á eftir útdráttur úr þessum
athugununi s. I. viku. Athuganir frá
Vestmannaeyjum vanta.
Þriðjud. Loftvog næstum jafnhá al-
staðar á landinu ; einna lægst fyrir sunn-
an land, Milt og stilt veður, Austl.
Látnir.
Á sumardaginn fyrsta andaðist hér á
sjúkrahúsinu Fr.'mannía Kristjánsdóttir
fyrrum bónda á Nýhóli, Hólsfjöllum.
Hún dó af afleiðingum kviðslits og
garnaflækju.
Uni líkt leyti andaðist eftir langar og
miklar þjáningar Hólmsteinn Kristjánsson
á Gautlöndum við Mývatn. Góður
dréngur og vel gefinn, en ógæfumaður.
Kaupfélag
nýstofnað í Reykjavík. Hafa þegar
gengið í það 300 manns. Formaður
Héðinn Valdimarsson.
Alþýðubl. frá 8. marz.