Dagur - 04.08.1920, Blaðsíða 2
58
DAGUR.
ur, þar sem jafngóður og æfður skurð-
læknir var svo að segja við hendina,
þar sem Steingrímur er. Sigurmundur
eggjaði Steingrím mjög á að koma, en
Steingrímur færðist í fyrstu undan og
áleit vonlaust um árangur. Ró réð
hann fljótt af, að fara austur og kynna
sér ástæðurnar. Félst hann þegar á
uppástungu Sigurmundar, og með leyfi
eiginkonu Sigurðar var hinn fyrirhug-
aði uppskurður framkvæmdur.
Uppskurðurinn var gerður sem hér
segir :
Ofan við vinstra eyra var gerður
sporöskjuiagaður skurður upp og ofan,
en sem ekki kom saman þeim megin
er niður vissi.
Síðan var gat borað á höfuð-skelina
með þar til ætluðu verkfæri. Pegar
inn úr kom seyrði út dautt blóð. Vissu
læknarnir þá, að þeir voru á réttri leið.
Fleiri göt voru gerð umhverfis í skurðin-
um, og beiniðtsíðan meitlað sundur á milli.
Eins og áður var sagt kom skurðurinn
ekki saman í botninn. Flaski sá hinn
sporöskjulagaði var iiú spentur út og
fótur hans brotinn. Var þá þar innan
við allmikið af hálfhlaupnum glóðgraut,
sem læknarnir hreinsuðu burtu. Að
þvi loknu var flaskinn aftur lagður á
sinn stað, og húðinn saumuð saman.
Petta eru nú aðaldrættirnir, sem ætti
að geta gefið mönnum nokkurn veginn
Ijósa hugmynd.
Regar Sigurður vaknaði af svefnin-
um eftir skurðinn, var hann með fullri
rænu eftir 2 — 3 daga rænuleysi. Síðan
hefir honum farið dagbatnandi. Skurð-
urinn hafði tekist svo vel, sem framast
varð kosið. Eftir rúma viku báru Reyk-
dælir og Húsvíkingar hann heim til
hans í Húsavík. Síðan hefir Björn
læknir stundað hann. Sigurður er nú
farinn að klæðast, og enginn vafi um
það lengur, að hann fær fulla'heilsu.
Ekki verður einum frekar en öðrum
með réttu þökkuð þessi góðu málalok.
Allir, sem að því stóðu, hafa hver á
sinn hátt lagt til þess góðan hlut. Sig-
urmundur læknisfræðilega þekkingu sína,
alhug og glöggskygni, Steingrímur æfð-
ar snillingshendur, og Björn nú síðast
árvaka nákvæmni.
En aðstandendur Sigurðar og vinir
hans nær og fjær una vel úrslitunum,
og gleðjast yfir þeim.
^Sínum augum lítuF hver á silfrið."
Pessi forni máisháttur datt mér í hug,
er eg las í íslendingi 30. tbl. þ. á.
»Mestu menn íslands*.
Mér kom sá listi dálítið öðruvísi fyrir
sjónir, en eg var búinn að ímynda mér,
ve'Idur því að sjálfsögðu þekkingarleysi
mitt, og eins hitt, að eg dæmi þá, menn-
ina, að því leyti, hver áhrif þeir hafa
haft á hug minn sem einstakling. En
þrátt fyrir það get eg ekki varist þeirri
hugsun, hvort rétt sé þar ályktað.
Pá menn, er eg bjóst sérstakíega við
að sjá standa ofarlega á blaði, sá eg
ekki fyr en mjög neðarlega. Pað eru
aðallega 2 — 3 inenn þeir Tryggvi Gunn-
arsson og Matth. Jochnmsson og einn-
ig Steingrímur Thorsteinsson.
Pað má nú uátturlega lengi.um það
deila, hver méstnr er, það er alt eftir
jiví, hvaða skilning inenn leggja í jiað.
Eg tek það þannig, að þeir, sem hafa
gert þjóðinni mest gagn bæði beinlínis
og óbeinlínis inn á við, það séu mestu
mennirnir, en ekki þeir, sem sýnt hafa
mesta frægð hennar út á við.
Allir vita hve starf Tryggva G. var
afar umfangsmikið á nálega öllum svið-
um, og þó mun vera einna drýgst það
starf, er hann vann í þarfir dýranna.
Hann bar sama bróðurkærleika í brjósti
bæði til manna og dýra, þess vegna var
hann þjóð sinni það, sem hann var,
sannarlegt mikilmenni.
Matth. Jochumsson þekkja allir af
skáldskap hans, hann hefir kanske ekki
verið verulegur afkastamaður á verkleg-
um sviðum, mér er óknnnugt um það,
en á andanssviðum er hann afkastamikill.
Hver, sem les kvæði hans, hlýtur undir-
eins að sjá, að hann er sannur og ein-
lægur trúmaður.
Annars er óþarfi að vera að lýsa
þeim, alþjóð ætti að þekkja þá svo vel.
Pað, sem mér yfirleitt finst, er, að ekki
sé tekið nægilegt tillit til skáldanna. Pað
grunar líklega fæsta, hver áhrif þau hafa
á þjóðina, hvort sem það eru ljóða,
sögu, eða tónskáld.
Pað er mitt álit og sjálfsagt flestra,
að það andlega hafi meira og varaníegra
gildi, þegar alt kemur til alls, en hið
veraldlega, hversu stórfeldur dugnaður
sem kann að vera á því sviði, og því
séu það skáldin, sem mest lof eiga skil-
ið. Pað eru þau sem slá einatt á fínustu
strengi tnannssálarinnar í skáldverkum
sínum, og á þeim augnablikum er eins
og máður lyftist hærra, fjær því jarð-
neska, nær guði. Pví að:
»Eitt augnablik helgað af himinsins náð,
oss hefja til farsældar iná,
sú gjörvöll er framtíð og geislum stráð,
og gæfan ei víkur oss frá.«
En er það ekki einmitt gæfan, sem
við öll leitum að og þráum, það æðsta
í lífinu?
Er eg lít á þá, sem flest hafa fengið
atkvæðin, þá sé eg, að fjöldinn af þeim
mönnum, er þar standa, hafa verið uppi
a því tímabili, er þjóðin var í mestri
niðurlægingu og örbyrgð, þes§-. vegna
bar svo mikið á þeim sem að einhverju
Ieyti sköruðu fram úr. Eg efast ekki
um, að við eigum nú nokkra menn
eins mikla, þó ekki beri eins á þeim
eins og þá, vegna þroska og velmegun-
ar almennings. En vegna þess hvernig
þjóðin var stödd, gátu þeir gert meira
gagn. notið sín betur, þó þeir kanske
persónulega væru ekki meiri menn en
við nú eigum. Pá hafa þeir biásið
þjóðinni lífsanda í brjóst, vakið hana af
dvalanum.
Pað er trú mín og sannfæring, að
þeir einir, sem bera gæfu til að hefja
þjóðina á hærra siðferðis- og þroskastig,
það séu mestu meunirnir.
i Þ.
Um trúmál.
Nýlega var haldiun biskupafuudur á
Englandi og þangað stefnt flestum ^ af
helztu fulltrúum landsins og bar þar
margt á góma utfi ástand og horfur
kirkjumála Englendinga og trúmála. En
1 aðalniðurstaða fundarins — þegar frá eru
taidir þeir rnenn, sem kallast aljiýðu-
I tniboðar, sem ekkert hafa lært og engu
gjeymt í 400 ár og halda fram inn-
blæstri allrar biblíunnar spjaldanna á
milli, eins og ekkert annað guðsorð sé
til — hún var sú, að fundarmenn dæmdu
með öllnm atkvæðum útskúfunarkenn-
inguna dauða og marklausa og með
öllu ókristilega, enda finnist hún ekki
nema hjá Gyðingkristnum eins og hjá
Matth. 25. kap., þár sem Kristur er lát-
inn sitja til dóms samkvæmt skoðim
Gyðingkristinna manna, þar dæmi Krist-
ur ekki eftir sínu lögmáli, heldur Mós-
esar, farið fram hjá öllum Jesú fegurstu
kenningum hjá Lúkasi, þar sem hann
biður fyrir óvinum sínum og þar sem
hann flutti sínar guðdómlegu kenningar
um týnda sauðinn og glataða soninn.
Eins og Páll útlistar svo guðdómlega,
einkum þar sem hann segir; ;>Guð hefir
innilukt alla undir synd, svo hann misk-
unaði öllum.«
Fundurinn komst að þeirri niður-
stöðu, að engir trúarflokkar á Englaodi
tryðu lengur á fyrirdæminguna, nema
þessir áðurnefndu flokkar.
Einn biskupinn tók fram um Lúther
þá fávisku, að útskúfunarkenningiu væri
eftir Krist sjálfan; en nú er það kunn-
ugt, að í niðamyrkrum katólskunnar kom
upp trúin á hreinsunareldinn. Brá þá
svo við, að skínandi sói skein yfir kirkj-
una, og þvi standa katólskir enn í dag
föstum fótum.
Sá, sem fyrst hreyfði þessu tnáli, var
hinn gamli spekingur Englendinga, er
álitinn var lærðastur maður í Evrópu,
dr. Samuei Johnson d. 1884; og æ síð-
an hann var uppi, hefir þetta mikla
spursmál veríð á dagskrá, svo að þessi
voðakenning er gjörsanrlega fallin úr
sögunni.
Dr. Samuel fohnson. Vinur hans,
hinn frægi Bosweli, hefir skrifað endur-
minningar um þennan merkilega mann
og mikla sérvitring. Hann var trúmaður
mikill og ástvinur ensku kirkjunnar, en
hataðist við alla lýðkirkjur og öldunga-
kirkjur. Hann vildi hafa einveldi í kirkj-
um sem annarsstaðar, sérstaklega í bisk-
upakirkjunni, en Skota hataði hann, af
því að þeir höfðu lýðkirkju. Hann segir
að Skoti sé manneskja á tveimur fót-
um og lifi á höfrum. Hann var sérvitur?
og undarlegur í háttum. Stórhöfðingjar
og frægir rithöfundar höfðu miklar mæt-
ur á honum og höfðu hann oft í boði,
en hann var ruddamenni. Einusinni sat
hann við hliðina á hertogafrú og vant-
aði klút til að þurka sér á; tók hann
þá skó frúarinnar og þurkaði sér á þeim.
Hertogi eir.n sagði eitt sinn við hann:
»Doktor, mikill snillingur er skáldið
Goldsmith (sem ritað hefir prestinn á
Vökuvöllum). Pá snýr dr. Johnson ser
við og segir: »Já, en það er skaði að
hann er drykkfeldur«, síðan urraði í karli
o% hann bætti við: »Pú kemst aldrei
með tærnar, þar sem hann hefur hæl-
ana«. Pá þagnaði hertoginn.
Hann átti konu, afarófn'ða, sem hann
unni hugástum, og sagði að hún væri
sú fríðasta skepna, sem guð hefði skap-
að. Hann var svo sérvitur, að ef hann
slé vinstii fætinum fram, þegar hann
gekk iiin í hús, þá sté hann til baka
ti! að koma þeirn hægri fyr inn og
ruindi þá í lionum,
%Pegar einhver hrósaði Lúther, þá sagði
Johnsou: »Lúther var ágætur tnaður,
Pósthúsið
er .flutt í
Hafnarsíræti 57.
nema þégar haim stal öllu því bezta úr kat-
ólskunni, svo sem sálgæzlu.helgra manna
dýrkun, klausturlifnaði og sérstaklega
lireinsunareldinum, þessari Ijómandi sól,
sem skein yfir kirkjuna eftir niðamyrkur
miðaldanna, sem hættu að láta frelsar-
ann sýna náð og miskun öllum börn-
um sínum, því að dómurinn var bygð-
ur á Móseslögmáli, en ekki kenningu
krists, sem postularnir misskildu.®
M. J.
f Sigrún Sigurðardóttir,
húsfreyja á Tóvegg í Kelduhverfi and-
aðist í s. 1. júním. í sjúkrahúsinu í Húsa-
vík. Hún var-22 ára að aldri, fædd og
uppalin í Sandvík í Bárðardal.
Hún er stutt æfisaga þessarar ungu
konu, en verður þó ekki rakin hér.
Sigrún sál. hafði ekki kvatt æskuna,
þegar kald-hönd hvíta dauðans læstist
að brjóstinu óþroskuðu og síðan að
fleiri líífærum. —
Árin liðu og iangar og þungar legur
á hverju sjúkrahúsinu eftir öðru brendu
líkams þróttinn, lömuðu hugan og koll-
vörpuðu skýjaborgum bjartsýnnar æsku.
Hún sá hvert stefndi. En vonin Iifði
og styrkti.' #
í vöggugjöf hafði hún þegið góðar
gáfur, gott hjarta og ríka löngup að
brjóia sér brauttil frama og framkvæmda
— eiga »spor við tímans sjá« að loknu
lífi.
Hún eiskaði Ijósið, starfsemina og
dýrð náttúrunnar. — Paðan streymdi
lífið. — En lífið er gáta.
Hún varð að temja sér rósemi, og
taka í framréttar hendur vina og vanda-
manna. — Var þá þetta hlutverkið hennar?
Að læra að skoða dýrðina gegnum
næturskugga og svalviðrisbliku.
Var þetta vaxtarbrautin hennar til
þeirrar dýrðar, sem bernskutrúin hafði
kent henni um? 4
Og trúin varð öruggari og andlega
þrekið óx að berjast við sjúkdóminn
og mótlætið þó líkamskraftarnir þyrru,
af því að þetta varð að vissu:
»Eg er líka að þroskast og læra.«
Vinir þínir minnast þín með þakk-
læti, Sigrún.
B. A
Akureyri.
Sílturbrúðkaup
sitt hétdu í gær Ottó Tulinius kaup-
maður og frú. Ðagur óskar brúðhjón-
unum til heilla. Mæll er að fjölskyld-
an flytji nú tneð haustinu til Kaup-
mannahafnar. Er bæjarbúum í því mikil
eftirsjá. Tnliníus hefir verið, að dómi
kunnugra manna, einn af nýtustu og
framtaksmestn borgurum þessa bæjar.
Influenzan
gengur nú ytir hér norðan lands í
Pingeyjar og Eyjafjarðar sýslum. Teíur
hún menn frá verkum 3 daga til viku ;
íáa meira ef farið er gætilega.