Dagur - 05.10.1920, Page 3
DAGUR
95
tryggja sér lögforða handa hverri skepnu
ár hvert, geldur 2 krónur í félagssjóð
og gengst að öllu undir lög félagsins.
Tillagið greiðist gjaldkera ekki síðar en
á haustfundi ár hvert. Gróði sá er verða
kann á vörukaupum félagsins rennur í
félagssjóð, og hann ber halla þann, sem
á þeim kann að verða, enda verði ein-
stökum mönnum eigi um það kent.
5. gr.
Félaginu stjórna 3 menn, kosnir á
aðalfundi, er halda ber í júnímánuði
ár hvert; er einn þeirra formaðúr ann-
ar ritari, þriðji gjaldkeri. Slcal lcjósa þá
hvern um sig. Formaður annast allar
framkvæmdir félagsins, kallar saman fundi
og stýrir þeim og sér um allar eignir
félagsins. Ritari annast allar skriftir og
bókhald og gjaldkeri fjárheimfur og
geymslu félagssjóðs, og báðir aðstoða
þeir formann við stjórn félagsins yfir-
leitt. Tveir fundir skulu að minsta kosti
haldnir á ári hverju vorfundur fyrri hluta
júnímánaðar og er það aðalfundur, og
haustfundur í öndverðum nóvember;
ennfremur aukafundir, hvenær sem stjórn-
in eða 10 félagsmenn telja þess þörf.
Á aðalfundi skulu lagðir fram til úr-
skurðar reikningar félagsins endurskað-
aðir af tveimur endurskoðendum, sem
aðalfundur kýs árlega. Á öðrum aðal-
fundi frá stofnun félagsins fer ritari eða
gjaldkeri frá, eftir hlutkesti og skal þá
kosið á ný. Eftir 2 ár fer sá þeirra frá,
sem eftir varð og þá kosið að nýju í
hans stað. Að þrem árum liðnum frá
félagsstofnun fer formaður frá og skal
þá formann kjósa á ný. Allir skulu þeir
hver um sig kosnir til þriggja ára og
fer þá fram kosning eins stjórnarmanns
á hverjum aðalfundi í þeirri r'Sð, sem
hlutkestið ákvað ffyrstu. Félagsárið telst
frá fardögum til fardaga, eða frá 6. júní
tii jafnlengdar næsta ár.
6. gr.
Félagsstjórnin skal sérstaklega láta sér
umhugað um, að félagsmenn vandi hirð-
ingu búpenings síns, hagnýting fóðurs
og beitar, húsavist og allan aðbúnað,
sem allra bezt að föng eru á og ber
félagsmönnum að styðja hana sem bezt
í^þassu efni. Prennum verðlaunurn skal
heita á ári hverju fyrir það, sem hér
hefir talið verið og skal þeim útbýtteftir
reglum, sem stjórnin setur um það og
félagsfundur samþykkir þegar eftir stofn-
un félagsins.« ,
Eins og menn sjá, er hér aðeins um
frumvarpsuppkast að ræða. Tilgangurinn
sá að marka höfuðlínur. Með reynslunni
koma fleiri drættir. Þessa leið ber að
stefna, svo fram úr verði ráðið mesta
vandamáli landbúnaðarins á þá leið,
sem öllum væri til sóma og landbún-
aðinum til fullrar tryggingar.
Símskeyti.
Rvík 29. sept.
Amerískir auðmenn hafa síofn-
að fjármálasamband við EvrójDU
gegn Englandi, eru það sumpart
þýzk-amerískar skipasmíðastöðv-
ar, sumpart fransk-amerískir auð-
menn.
Pólverjar hafa aftur hafið sókn.
Ekkert hefir orðið úr konung-
dómi í Bayern.
Rvík 5. okt.
Helferich fyrverandi þýzkurráð-
herra spáir að að því hljóti að
reka, að allar eignir Pýzkalands
verði’gerðar upptækar. Ríkisskuld-
irnar nú 283 miljarðar. Rýzkir
Bolsévíkar hafa bolað ritstjóra
blaðsins »Freiheit« frá blaðinu.
Noregur hefir tekið 20 miljón
dollara lán í Ameríku gegn 9°/o
vöxtum.
Pólverjar sækja fram og hafa
tekið hergögn og fanga.
Bolsévíkauppreisn í Mexikó.
Rýzki flotinn er nú allur af-
hentur og liggur í Forthfirði.
Norska stjórnin hefir hafnað
verzlunarsamningum við Litvinoff
hinn rússneska. *
Austurríki hefir samþykt sér
stjórnarskrá. Eftir henni er Aust-
urríki sambandsríki með þjóð-
kjörnu þjóðráði og sambandsráði
kjörnu af þingmönnum landshlut-
anna. Ráðin kjósa forsetann í
sameiningu.
Kolaverkfallinu enska frestað
til 16. október.
Landsþingskosningar í Dan-
mörku fóru svo að Vinstrimenn
fengu 31 sæti, Jafnaðarmenn 23,
höfðu áður 20, íhaldsmenn 13,
töpuðu 1, rótnemar 8, unnið 1.
Alls á þingi nú 76, tveir ókosnir.
Bátur hvolfdist á HvammsfiVði
síðastliðinn fimtudag og drukkn-
uðu 3 karlmenn og 1 kona.
Fréttartt. Dags.
Úr öllum áttum.
Fjárkreppan
sú sama. Bankarnir tæmastaf útlánafé
vegna geysilegrar umferðar á seðlum.
Vegna dýrtíðarvérðs á öilum hlutum
þarfnast þjóðin meira veltufjár handa á
rnilli. En stjórnin kvað setja fyrir sig
fætur um aukna útgáfu óinnlcysanlegra
seðla.
Síldin
selst illa. Hún hefir fallið í verði síð-
an sala hófst, og mátti þó verðið ekki
minna vera. Yfir þessum atvinnuvegi
hvílir einhver ógæfublær. Hann er rek-
inn í vitleysisæði. Úrslitunum ráða höpp
og glöpp. Of mikil áherzla lögð á það,
að hauga setn' mestu á land. Skortir
fólk og aðstöðu, til þess að gera aflan-
um þau verkunarskil sem skyldi. Og það
dofnar yfir silfurglampanum á síldarroð-
inu, þegar fram á vetur Iíður.
Sambandið
hefir uú þegar selt allmikið afkjötinu.
Um verð er blaðinu ókunnugt. Enn eru
slæmar horfur á gærusölu.
Heyskaparlok
hafa orðið góð hér nyrðra og hey-
skapur f góðu meðallagi að minsta kosti
í Ringeyjar og Eyjafjarðarsýslum. Tíðsr-
farið má heita einmuna gott hér norð-
an lands um þessar mundir.
Guðm. Finnbogason,
prófessor hefir verið kosinn háskóla-
rektor að þessu sinni.
Valtýr Guðmundsson
doktor, er orðinn prófessor við Khafn-
háskóla í íslenzkri sögu og bókmenta-
sögu.
Landfræðislega uppgötvun
hafa Danir gert eftir því sem fregnir
herma. Peir hafa fundið hærri staðj í
Danmörku en Himinfjallið. Má þetta
heita eitt af stórmerkjum 20. aldarinnar
og vísindalegum sigrum. Því miður get-
ur blaðið þó ekki að þessu sinni stað-
fest fregn þessa.
Aíhugasemd.
{ íslendingi seinast er því haldið fram,
að samvinnustefnunni sé teflt í öfgar
með andstöðu lærðs skóla á Norður-
landi, og ennfremur því, að samvinnan
þarfnist samkepni.
Retta er misskilningur. Samvinnu-
stefnan afneitar allri samkepni í þjóð-
málum. Samkepnin er hennar höfuð-
fjandi. Pessi fámenna þjóð á að sam-
eina krafta sína um að eignast einn
góðan lærðan skóla. Pað fullnægir
langsamlega þörfum hennar enn um
skeið.
Þeir, sem álíta þjóðinni nauðsynlegt,
að landshlutarnir beiti kappi hvor gegn
öðrum í menfamálum, geta haldið hinu
réttilega fram, að slík samkepni þarfn-
ist samtaka landsfjórðunga. Með öðrum
orðum: Samkepnin þarfnast samtaka
á þrengri sviðum, en samvinnan ekki
samkepni.
Ráðlegging.
Hvað gætum vér Norðlendingar gert
fyrir hið fyrirhugaða heilsuhæli Norð-
urlands?
Með eftirfylgjandi línum vil eg reyna
að svara þessari spurningu.
Flestum virðist vera ljóst, hvílíkt vel-
ferðarmál hér er um að ræða, og því
mætti gera ráð fyrir góðum vilja, fórn-
fýsi og samtökum hjá öllum þorra
manna til að styðja það eftir megni,
og »mikið má ef vel vill«, segir mál-
tækið, og »margar hendur vinna létt
verk«, því ekki er að gera ráð fyrir á
þessum erfiðu tímum, að hver einstak-
ur geti látið mikið af hendi rakna, en
alt er undir þvf komið, að hver sem
getur, geri sér að skyldu, að láta það
eitthvað vera, og dettur mér í hug að
benda hér á ráð, sem á síðustu árum
hefir verið reynt með góðum árangri í
útlöndum, til fjársöfnunar, til þess að
koma á fót ýmsum nauðsynlégum stofn-
unum, sem sé það, að ákveða vissan
dag á ári hverju iil fjársöfnunar. Skyldi
nú vera svo mikil fjarstæða að fara fram
á það, að reynt yrði hér á landi svip-
líkt ráð til að koma upp sem fyrst áð-
urnefndri uauðsynjastofnun á Norður-
landi. Mætti ekki gera ráð fyrir þeirri
fórnfýsi hjá öllum þorra manna, að
þeir vildu af frjálsum vilja leggja á sig
einskonar »nefskatt«, til styrktar góðu
málefni? Bjartsýnu fólki, sem mikið
finst til um »framfarir« nútímans, verð-
ur sérstaklega skrafdrjúgt um vaxandi
mannúð, og nú er tækifæri til að sýna
hana í verki, með því að hver og
einn geri sér að skyldu að Ieggja fram
sinn litla skerf til líknar sjúkum og
bágstöddum.
Eg hefi heyrt, að hið fyrirhugaða
»Heilsuhæti Norðurlands« muni kosta
sjálfsagt eina miljón króna, og líklega
meira, en ef gera mætti ráð fyrir, að
hver maður hér norðanlands gæfi að
meðaltali 1 kr. á ári til hælisins, þá
kæmu inn með því móti 40,000 til
50,000 kr. árlega. Eg geri ráð fyrir
að í hverjum hreppi sé einhver, sem
væri fús til að gangast fyrir slíkum
samskotum, og, eins og áður er áminst,
álít eg heppilegast að velja til þeirra
einhvern vissan dag á ári hverju, og
þá helst að haustinu, einhverntíma á
sláturtíðinni, því þá hafa flestir mest
peningaráð. Með þessu móti fengist á
10 árum alt að hálfri miljón króna, og
ef til vill meira, því lfklegt er, að hæl-
inu áskotnist fleiri gjafir fyrir tilstilli
góðra manna. Og þegar þetta væri
fengið, mætti ef til vill vænta þess, að
ríkissjóður hlypi undir baggann með
það sem eftir væri.
Að endingu bið eg góðfúsa Iesend-
ur að taka þessar fátæklegu bendingar
til athugunar, í fuilu trausti þess, að
enginn telji eftir sér að neita sér um
lítilfjörlegan óþarfa til að geia Iátið af
hendi 1 kr. á ári til styrktar hinu þarf-
asta mannúðarfyrirtæki.
]■
100000 amerískar kýr
til Þýzkalands.
Nautgriparæktunarfélag eitt í Ameríku
hefir nýlega gefið deild «Rauðakross.
ins« í Þýzkalandi 100 þúsund mjólkur-
kýr til hjálpar matarlausum börnum f
landinu. Er þetta slík mergð, að Þýzka-
Iand hefir ekki skipakost, til þess að
flytja gripina á, og hefir því verið leit-
að til Englendinga að leggja fram nauð-
synleg flutningaskip. — Er þetta hin
höfðinglegasta gjöf og ætti að geta bætt
mikið úr þeirri neyð, sem ríkt hefir og
ríkir enn á meðal barna og fullorðinna
á Þýzkalandi.
Morgunbl.
Akureyri.
Gagnfræöaskólinn
var settur eins og lög standa til 1.
okt s. 1. klukkan 12 á hádegi.
/ niðurföfnunarnefnd
fyrir kaupstaðinn voru kjörnir án at-
kvæðagreiðslu, með því aðeins einn listi
,kom fram, þeir Jakob Karlsson kaup-
•maður, Halldór Friðjónsson ritstjóri og
Jón E. Bergaveinsson, kaupmaður.
Byggingafélag
með samvinnusniði eru nokkurir menn
að stofná hér í bæ. Hvatamaður þess
mun vera Sveinbjörn Jónsson bygginga